Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1998, Side 22
22 É *
'k
lyndlist
LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998 DV
Louisa Matthíasdóttir
er ýkjulaust meðal
kunnustu núlifandi
myndlistarmanna ís-
lendinga og hefur um
áratuga skeið notið
verðskuldaðrar virðing-
ar og yinsœlda vestan-
hafs. í heimalandinu
höfðu menn samt tœp-
ast spurnir afhenni
fyrren hún var komin
hátt á sjötugsaldur.
Hún tók þátt í haust-
sýningu Félags ís-
lenskra myndlistar-
manna á þjóðhátíðarári
1974 en fyrstu umtals-
verðu nasasjón af yerk-
um hennar fengu ís-
lendingar á Listahátíð
1984, þegar tíu íslensk-
um „útlögum“ var boð-
ið að sýna á Kjarvals-
stööum. Þá sýndi hún
51 mynd og skipaði tví-
mœlalaust heiðurssess-
inn. Mönnum kom
ásamt um að í myndum
hennar vœri ísland
upplifað ferskum að
ekki sé sagt ófreskum
augum, og sýnirnar
þannig túlkaðar að allt
varð sem nýtt, œrnar,
kýr og smalinn.
Allt veröur sem nýtt í myndum hennar, ærnar kýr og smalinn. Þessi mynd er nokkuð dæmigerö fyrir náttúrumyndir Louisu. Hún er frá árinu 1983 og er tek-
in úr bókinni Myndir sem Mál og menning gaf út 1987.
Ávarp við opnun sýningar Louisu Matthíasdóttur í Hafnarborg 9. apríl
„Landslagið heima skil ég best"
Louisa efndi til fyrstu einkasýn-
ingar á íslandi árið 1987 þegar hún
stóð á sjötugu, og er varla ofmælt
að þá hafi orðið sprenging. Verk
hennar voru bókstaflega rifin út.
Bókin sem Mál og menning gaf út
við það tækifæri - með eftirprent-
unum af smámyndum hennar -
seldist líka í stóru upplagi. Síðan
hefur nafn hennar verið töfrum
slungið í hugum hérlendra listunn-
enda.
Louisa er dóttir Matthíasar Ein-
arssonar læknis, sem keypti Höfða
árið 1924 og bjó þar á árunum
1925-38. Louisa bjó í foreldrahús-
um til 1934 þegar hún fór til náms
í Kaupmannahöfn. Hún dvaldist
því á Höfða frá 8 til 17 ára aldurs.
Hefur henni alla tíð þótt sem þessi
áratugur hafi verið ævin öll, enda
fer ekki milii mála að hún hefur
áratugum saman verið að ausa af
óþrjótandi brunni bjartra bemsku-
og æskuminninga. Sjálf sagði hún
á liðnu ári um Esjumótífið í mynd-
um sínum: „Ég horfði á Esjuna
dagsdaglega í tíu ár svo hún hlaut
að festast í mér. Ég er enn að mála
þessi mótíf: Esjuna, Skarðsheiðina,
Akrafjallið og allt það.“
Samlynd hjón
Samkvæmt nálega öllum prent-
uðum heimildum hélt Louisa til
New York árið 1941, en ýmsir era
þeirrar skoðunar að hún hafi ekki
farið utan fyrren ári síðar, og verð-
ur sennilega seint úr því skorið
með óyggjandi vissu, því Louisa
kveðst ekki muna ártalið. Vestan-
hafs giftist hún bandaríska málar-
anum Leland Bell, sem var af rúss-
nesku gyðingakyni. Þó ólík væru
aö upplagi og skapferli voru þau
hjónin einstaklega samrýnd og
unnu saman einsog tvíeyki, studdu
hvort annað með ráðum og dáð,
hjálpuðust að við undirbúning sýn-
inga, þaulræddu verk hvort annars
og sýndu stundum saman.
Leland, sem lést árið 1991, var
fimm árum yngri en Louisa. Hann
var sérlega lifandi og skemmtileg-
ur maður, glöggskyggn, víðlesinn
og flugmælskur. Louisa er hinsveg-
ar fáorðasta kona sem ég hef fyrir-
hitt. Sjálf sagði hún í fyrra: „Það
var svo gott með Lee, að hann vissi
aUtaf hvað hann átti að segja, svo
ég þurfti aldrei að opna munninn.
Ég hef alltaf verið svona. Ég hugsa
varla að ég hafi versnað, en ég hef
víst ekki heldur skánað. Hjá mér
gengur allt útá að mála, og það er
ekkert sem hægt er að segja um
það.“
Ég kynntist þeim hjónum
skömmu eftir að ég kom tÚ New
York sumarið 1953 og var heima-
gangur á hlýlegu og gestrisnu
heimili þeirra þartil ég hélt heim
haustið 1956. Temma dóttir þeirra
var 8 ára þegar við kynntumst, fríð
telpa, hljóðlát og bráðþroska. Hún
fetaði í fótspor foreldranna þegar
tímar liðu og hefur greinilega orð-
ið fyrir sterkari áhrifum af verk-
um móðurinnar.
Ég komst strax að raun um að
Louisa var óvenjulega hlédræg og
fámál kona, en þegar hún lagði orð
í belg var hver setning sem af vör-
um hennar hraut sérkennilega
þungvæg, stundum með ávæningi
af kaldhæðni, þegar henni þótti
eiginmaðurinn gerast helsti
mælskur og andríkur. En hún átti
líka til létta kímni og smitandi
ungmeyjarhlátur sem yljaði manni
innað hjartarótum. Hvort heldur
setið var heima í 16da stræti eða
farið út að snæða í Greenwich
Village eða Chinatown ásamt góð-
um vinum, þá var hæglát og hlé-
dræg návist Louisu ævinlega
einsog krydd í samkvæmið: hún
bjó yfir einhverjum óskilgreindum
þokka sem var samtvinnaður úr
hlýju, fullkomnu látleysi og hressi-
legu hispursleysi sem ævinlega
dró okkur Leland niðrá jörðina
þegar háspekOegar bollaleggingar
tóku stefnu á skýin.
Vera má að hlédrægni Louisu
hafl átt sinn þátt í, að hún gerði
svo seint vart við sig á íslandi, þó
hún kæmi hér oftlega við og væri
stundum um kyrrt svo mánuðum
skipti. Vestanhafs sáu eiginmaður-
inn og félagar hans um að koma
henni á framfæri, og brátt tóku
gagnrýnendur að mæra hana og
vegsama.
Fæddist inní íslenskt
landslag
Víðkunnar íslandsmyndirnar
hóf Louisa ekki að mála fyrren
árið 1966, þegar hún var komin
fast að fimmtugu. Hún segir að
það hafl gerst uppúr þurru. Þá var
hún stödd í Indiana þarsem
Leland kenndi við listaháskóla.
Alltíeinu tóku myndir og minning-
ar frá Höfðaárunum að leita á
hana og létu hana ekki í friði það-
anífrá.
í viðtali við frænda sinn, Matth-
ías Johannessen skáld, minntist
Louisa á rætur sínar og var
óvenjulega margorð: „Mér þykir
gott að mála í Ameríku. Loftið er
tært í Ameríku eins og á íslandi.
En landslagið heima skil ég bezt.
Ekki vegna þess að íslenzkt lands-
lag sé fallegra en annað landslag.
En það er mitt landslag. Það, sem
ég hef séð síðar á ævinni, hefur
ekki sömu áhrif á mig og landslag-
ið í æsku. Ég fæddist inn i íslenzkt
landslag. Það er dýrmæt gjöf. Og
hún hefur fylgt mér. Sumir halda
að Maine sé líkt íslandi. En það er
rangt. Það eru engin eldfjöll í
Maine. Ekkert hraun. Rautt, svart
hraun. Engir jöklar. Og á íslandi
eru engir skógar sem skyggja á
sjónhringinn."
Veröldin sem Louisa hefur
töfrað fram í verkum sínum býr
yfir þeim tærleik skynjunar og
þeim einfaldleik tjáningar sem
setja má í samband við sýnir
bernsku- og æskuáranna, þegar
allt er óbrotið, litskrúðugt og upp-
runalegt. Þvílíkur galdur er
greinilega afrakstur mikillar elju
samfara þeirri fágætu gáfu að
varðveita bernska sjón og bernsk-
an hug gegnum margvísleg boða-
foll fullorðinsáranna.
Til sanns vegar má færa að list
Louisu spegli þær eigindir sem
eru mest áberandi í dagfari henn-
ar: skýrleik, knappleik og yfirskil-
vitlega ró. Hún veit hvað hún vill
og gengur hreint til verks. Þetta
kemur greinilega fram í ýmsum
sjálfsmyndum hennar, sem hið
Eldhúsið er uppspretta fjölmargra mynda Louisu eins og gestir á sýningunni
í Hafnarborg geta séð.