Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1998, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1998, Blaðsíða 20
2» fréttaljós LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998 UV Islandsbanki leggur prófstein fyrir samstarf stjórnarflokkanna: Fjandinn laus í bankaheiminum - þingmenn óttast erfitt mál á kosningaári Smáauglýsingadeild DV er opin: • virka daga kl. 9-22 • laugardaga kl. 9-14 • sunnudaga kl. 16-22 Tekið er á móti smáauglýsingum til kl. 22 til birtingar nœsta dag Ath. Smáauglýsing í Helgarblað DV þarf þó að berast okkur fyrir kl. 17 á föstudag a\\t mil/í hirnir,s Smáauglýsingar 550 5000 Völdin of dýr Eins og alkunna er fylgja Itökum í bankakerfinu mik- il völd og stjóm- málaflokkamir hafa löngum keppst við að koma sínum mönnum í áhrifastöður í bönkunum. Stöðuveitingar í bankakerfinu hafa jafnan verið pólitískt hitamál sem krafist hef- ur mikillar samningalipurðar af hálfu flokkanna á Alþingi. Tilkoma íslandsbanka sém fyrsta bankans í einkaeigu hefur þó breytt ýmsu hér um. Eftir tímaskekkja. Þeir telja að nær vonlaust sé að reka banka sem hefur arðsemina að leiðarljósi ef hagsmunir ríkisvaldsins og stjórnmálaflokkanna fléttast stöðugt inni í reksturinn og að ekki sé hægt að horfa upp á það að íslandsbanki vaxi frá ári til árs Þeir Davið Oddsson og Halldór Ásghmsson munu hafa f nógu að snúast næstu vikurnar við að sætta sjónarmið stjórnarflokkanna f bankamálum. Guðni Ágústsson hefur lýst tilboði íslandsbanka sem póiitfskri sprengju af hálfu manna sem rakað hafi að sér auði og völdum í samfélaginu. þegar ríkisbankarnir standa í stað. Bentu nokkrir þingmenn á það að ef ekkert væri að gert þá myndi íslandsbanki á fáeinum árum hafa náð hagnaði sem sam- svarar allri eiginfjárstöðu Lands- bankans. Pólitísk ítök í bönkun- um væru því orðin of dýrkeypt og enginn stjómmálaflokkur hafi lengur efni á að sækjast eftir þeim. Sala Drengjabankans DV kannaði í vikunni hug á annan tug stjórnarþingmanna til þeirra umræðna sem verið höfðu í fjölmiðlum um sölu ríkisbank- anna og spurði þá álits á þróun mála. Flestir virtust þá sammála um það öldurnar sem yfir- lýsing Halldórs Ás- grimssonar vakti um möguleikann á að selja Wallenberg- um Landsbankann hefði lægt og töldu að þar hefði áhugi Spari- sjóðanna á að kaupa Fjárfestingarbankann valdið mestu. Margir þingmenn innan stjómarflokkanna em þess mjög fýsandi að Sparisjóðimir kaupi einhvern hlut í bankanum þar sem það gefi rík- issjóði kærkomið tækifæri til að afla þess fjár sem nauðsynlegt er til reka ríkissjóð með tekjuaf- gangi. Þá er eign- araðildin á Spari- sjóðunum ekki til þess fallin að skapa tortryggni um að með kaup- mn þeirra á Fjár- festingarbankan- um sé verið að veita einhverjum gæðingum ríkis- stjómarflokk- anna of sterk ítök í bankakerfinu. Sala Fjárfesting- arbankans er heldur ekki flók- ið mál fyrir ríkisstjórnina að því leyti aö þegar liggur fyrir laga- heimild til að selja 49% í bankan- um. Þá hefur Fjárfestingarbank- inn ekki öðlast sama sess i hug- um fólks og Landsbankinn og Búnaðarbankinn hafa gert og sala á Fjárfestingarbankanum ætti því ekki að vekja upp eins blendnar tilfinningar og sala hinna síðar- nefndu. Loks er að geta þess að þegar liggur fyrir lagaheimild til að selja 49% í Fjárfestingarbank- anum. Sala hinna ríkisbankanna þarfnast hins vegar nýrrar laga- setningar og því þurfa menn að ná víðtækri samstööu um það mál í ríkisstjórninni. Langur aðdragandi Þrátt fyrir að lítið sem ekkert hafi heyrst frá íslandsbanka- mönmun þegar umræðan stóð sem hæst þá hafa þeir Kristján Ragnarsson, formaður banka- ráðs, og félagar ekki setið auðum höndum. Reyndar höfðu þeir Kristján og Valur Valsson, bankastjóri íslands- banka, heimsótt Finn Ingólfsson þegar fyrir áramót og kynnt hon- um áhuga sinn á að kaupa Búnað- arbankann. Þremenningamir ræddu meðal annars þann mögu- leika að renna bönkunum saman í eitt hlutafé- lag en kaupin ætluöu ís- landsbanka- menn að fjár- magna með hlutafjárút- boði á inn- lendum mark- aði. Aftur voru þessi mál sið- an rædd í vor og tilboðið var síð- an kunngert í fyrradag. Einhvem tíma í kringum við- ræðunar fékk viðskiptaráðúneyt- ið þrjá innlenda menn til að leggja mat á verðmæti Búnaðar- bankans. Komust þeir að þeirri niðurstöðu að verðgildi bankans næmi um sex til sjö milljörðum og erlendir ráðgjafar sem kallaðir vom til tóku undir þetta mat. Til- boð íslandsbanka er milljarði hærra en þetta mat og leiða má getum að því hvort boðið sé ekki of gott til að ríkisstjómin geti hafnað því, ef menn hafa þar á annað borð áhuga fyrir að fá sem hæst verð fyrir bankana. Þess má geta að viðskiptaráðuneytið fékk einnig innlenda ráðgjafa til að meta verð íslandsbanka og töldu þeir verðgildi hans liggja nærri átta milljörðum. Á markaðnum er íslandsbanki aftur á móti metinn á um ellefu milljarða króna. Efasemdarmennirnir Þrátt fyrir að ríkissjóður hefði álitlegar tekjur af því að selja ís- landsbanka Búnaðarbankann þá em ýmsir fullir efasemda um þessa sölu og á það einkum við um þingmenn Framsóknarflokks- ins. Milli Framsóknarflokksins og Búnaðarbankans hafa löngum legið sterkar taugar og líklegt er að einhverjum finnist að sala Búnaðarbankans til íslands- banka, þar sem sjálfstæöismenn og lífeyrissjóðimir eru áhrifa- miklir, myndi raska valda- hlutföllum flokkanna í bankakerfinu. í þessu sam- hengi hafa menn einnig áhyggjur af því hverjir muni eignast það hlutafé sem boðið verður út í ís- landsbanka ef af kaupunum verður, en það getur breytt skip- an bankaráðs íslandsbanka á hvom veginn sem er. Loks nefna þingmenn úr báðum flokkum það sem sérstakt áhyggjuefni að kaup íslandsbanka á Búnaðarbankanum muni veita honum yfirburðastöðu á mark- aðnum og öðrum innlendum bönkum muni veitast erfitt að keppa við hann. Þessi staðreynd þýðir í raun það að sameining ís- landsbanka og Búnaðarbanka mun skapa ákveðinn þrýsting á aukningu hlutafjár í Landsbank- imi og hugsanlega þátttöku er- lendra aðila í rekstri hans, auk þess sem hún rennir stoðum und- ir kaup Sparisjóðanna á Fjárfest- ingarbankanum. Leiðsögumaðurinn Sameiginlegt kvíðaefni þing- manna Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks er þó það að samein- ing bankanna muni koma hart niður á starfsfólki þeirra og að erfitt mrrni verða að ganga frá málum á við- unandi hátt. Orðið hag- ræðing sem notað er í við- skiptamáli merkir oft uppsagnir á máli hins al- menna laun- þega og þing- menn vilja ekki heyja kosningabar- áttu undir ásökunum stjómarand- stæðinga um að afstaða þeirra hafi kostað fjölda manns starf- ið. Stuðning- ur við sölu ríkisins á Búnaðar- bankanum er því ekki tryggður innan stjórnarflokkanna. Ljóst er þó að margir þingmenn ríkis- stjórnarinnar horfa mjög til Dav- íðs Oddssonar í þessu efni. Eins og oft áöur munu menn treysta á að klókindi hans og pólitísk rat- vísi muni fmna ríkisstjóminni leið út úr þeirri óþægilegu stöðu sem tilboð íslandsbanka hefur sett ríkisstjómina í. Tilboð íslandsbanka í Búnaðarbankann þykir það gott að ríkisstjórninni gæti reynst erfitt að hafna þvf. Það er milljarði hærra en mat sem innlendir ráðgjafar gerðu á Búnaðarbankanum fyrir viðskiptaráðuneytið. Innlent fréttaljós Kjartan Björgvinsson Davíð Oddsson líkti samstarfl stjómarflokkanna í ríkisstjóm einu sinni við hjónaband þar sem ástin kæmi ekki við sögu. Margir em þeirrar skoðunar að síðan hafi kærleikar vaxið með Sjálf- stæðisflokki og Framsóknarflokki og fátt bendi til annars en að þeir muni vinna saman eftir kosning- ar. Svo mikið er þó víst að ef líkingin um hjónabandið er enn í fullu gildi þá hefur átta milljarða tilboð íslands- banka í Búnaðarbankann gert ríkisstjóminni talsvert rúmmsk í hjónasænginni. Þar með hefur þrýstingur- inn á sölu ríkisbankanna vaxið á ný og stjórnarflokk- amir em nú tilneyddir að taka á því viðkvæma máli sem einkavæðing bank- anna er. Það mun því reyna mjög á stoðir hins ástlausa hjónabands á næstu vikum. nokkra byrjunarörðugleika hefur bankinn vaxið jafnt og þétt og á skömmum tíma orðið ein arð- bærasta fjármagnsstofnun í land- inu. Innan Sjálfstæðisflokksins líta margir á velgengni íslands- banka sem sönnun þess að ríkis- reknir bankar séu al- ger
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.