Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1998, Page 2
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998
2 fréttir__________________________________________________
★ iz
Ekkert lát á gosinu í Vatnajökli:
Bannsvæði er í
kringum gosstað
Almannavarnanefnd lýsti í gær
svæði í 10 km radíus frá gosstaðn-
um í Vatnajökli bannsvæði. Að sögn
Sigurðar G. Tómassonar, upplýs-
ingafulltrúa Almannavarnanefndar,
eru leiðir á Grimsfjall taldar lífs-
hættulegar. „Það er ekkert lát á gos-
inu,“ sagði Sigurður í samtali við
DV í gærkvöld. „Þessu fylgir ösku-
fall sem leggur til suðausturs og að
auki eru kröftugar sprengingar sem
valda hættu í nágrenni eldstöðvar-
innar. Það er ekkert vitað um fram-
vindu gossins en það er í fullum
gangi og er nú þegar orðið stærra
en gosið 1983.“ Vísindamenn munu
fylgjast með gosinu og fara í birt-
ingu á morgun á vettvang. Aðspurð-
ur um flugumferð yfir gosstað sagði
Sigurður að öskufall væri mikið og
hún væri hættuleg fyrir flugvélar
og því yrðu flugmenn að gæta var-
úðar. Almannavamanefnd vill
einnig beina því til fólks að vera
ekki á ferli utan vega á Skeiðarár-
sandi. Gæsla verður á svæðinu í
nótt en viðvörun um hugsanlegt
hlaup hefur verið gefin út. -hb
Flugmaðurinn sem sá eldgosið fyrstur:
Stórkostleg sjón
„Ég sá eitthvað sem ég hélt að væm
skýhnoðrar fram undan. Stuttu
seinna kom blossi og því næst sá ég
eldingar. Þá áttaði ég mig á því hvað
um væri að vera,“ segir Óskar
Tryggvi Svavarsson, flugmaður hjá
Flugfélagi íslands, sem var fyrstur
manna til að sjá gosið úr lofti um tíu-
leytið i gærmorgun. Með Óskari í för
var Sigríður Einarsdóttir flugstjóri en
þau vom að koma frá Egilsstöðum
þegar þau urðu skyndilega vör við
eldgosið í Grímsvötnum. „Við fóram
til Egilsstaða í myrkri upp úr kl. 8 í
gærmorgun og urðum eðlilega ekki
vör við neitt. Svo þegar við flugum frá
Egilsstöðum var skýjað í klifinu til að
byrja með en þegar við vorum komin
í um sex þúsund feta hæð sáum við
skýhnoðrana. Fljótlega eftir það feng-
um við tilkynningu frá flugstjóm sem
staðfesti að eldgos væri haflð. Þetta
var alveg mögnuð sjón.“ Óskar hefur
einu sinni áður séð eldgos á svipuð-
um slóðum en það fyrir tveimur
ámm, einnig úr flugvél. Óskar segist
alltaf hafa myndavél með sér þegar
hann flýgur og það hafl heldur betur
komið sér vel að þessu sinni. „Ég er
vanur að mynda landslagið, flugvélar
og flugvelli, en hef ekki áður myndað
eldgos. Það var gaman að vera fyrstur
að sjá þetta,“ segir Einar. Myndir Ein-
ars vom svo fyrstu myndimar sem
birtust í fjöl-
miðlum af
gosinu en
þær birtust
á fréttavefn-
um Vísi.is
þegar klukk-
una vantaði
Qórðung í
tólf.
-hb
Myndin til hiiðar er fyrsta myndin
sem var tekin af gosstað og birtist í
fjölmiðium. Óskar Tryggvi Svavars-
son flugmaður tók myndina en hún
birtist á Vísi.is.
ILeigubílstjórinn enn í dái:
Lögreglan leitar
að vitnum
Leigubilstjórinn sem nær lést í
fangageymslum lögreglunnar
síðastliðinn þriðjudagsmorgun er
enn í öndunarvél eftir aðgerð.
Lögreglan einbeitir sér nú að því
að finna vitni að því þegar maður-
I inn féll niður í Skúlatúninu í
« Reykjavík.
| „Sérfræðingar segja okkur að
! ómögulegt sé aö segja til um hvort
maðurinn fékk höfuðáverkann við
fall eða högg. Við verðum að finna
vitni til að vita hið sanna eða þá
1 að bíða eftir að maðurinn komist
I til meðvitundar og geti sagt okkur
| þetta sjálfur," sagði talsmaður lög-
1 reglunnar í gær. -EIR
Tónlistarhús risið í Kópavogi á einu ári:
Allar óskir uppfylltar
í gær var fréttamönnum sýnt hið
nýja, glæsilega tónlistarhús í Kópa-
vogi, nákvæmlega ári eftir að eigin-
legar byggingarframkvæmdir hófust
þar. Skólakór Kársness undir stjóm
Þómnnar Bjömsdóttur, Martial Nar-
deau, Guðrún Birgisdóttir, Jónas
Ingimundarson og Auður Gunnars-
dóttir sýndu með lifandi tónlistar-
flutningi frábæra eiginleika hússins,
en hljómburður þar er eins fullkom-
inn og verða má. „AUar óskir hafa
verið uppfylltar," segir Jónas Ingi-
mundarson píanóleikari.
Tónleikasalurinn tekur 300
manns og hentar 70-80% tónlistar-
viðburða á höfuðborgarsvæðinu.
Hann er klæddur greni úr Skorra-
dal sem er sérstaklega tUsniðið sam-
kvæmt kröfum hljóðverkfræðinga,
60% rúnnað, 40% kantað. Lausir
flekar eru úr hlyni, stólarnir em
hannaðir á Ítalíu og sessurnar með
loftgötum sem gera það að verkum
að hljómburðurinn er jafngóður
hvort sem salurinn er fuUur af fólki
eða tómur. „Það er ekki sjálfgefið að
geta talað án hjálpartækja og náð
jónas Ingimundarson sem átti hugmyndina að tónleikasalnum í baksýn og Vigdís
Esradóttir, nýráðinn forstöðumaður Tónlistarhúss Kópavogs. DV-mynd E.ÓI.
aftur á aftasta bekk,“ sagði Jónas,
„þetta er ákveðinn galdur." Og
Bergþór Pálsson óperusöngvari
sagði að alveg mátulega létt væri að
syngja í salnum því ómtíminn væri
hárréttur og bergmál ekkert.
Opnunarhátíð hússins verður 2.
janúar kl. 14.30 en um kvöldið verða
raðtónleikar frá kl. 18 þar sem fram
koma margir af fremstu tónlistar-
mönnum landsins, gestum að kostn-
aðarlausu. -SA
Leikskóli opnaður í Grafarvogi:
Vantar um þriðj-
ung starfsfólks
Nýr leikskóli við Mururima í
Grafarvogi var opnaður með við-
höfn í gær. Þrjár af fjórum deildum
era komnar í gagnið. Ekki hefur
gengið nógu vel að fá starfsfólk við
leikskólann.
Bergur Felixsson, framkvæmda-
stjóri Dagvistar barna, sagði að
hægt væri að treysta því að starfs-
fólk yrði komið upp úr áramótum.
„Við höfum verið róleg yflr þessu
því skólinn er nýfarinn af stað og
byrjar á sama tíma og aðrir skólar
em að ráða til sín leikskólakennara
en það vantar alltaf fagfólk."
Við skólann starfa um 2/3 þess
starfsfólk sem þarf. Meirihluti
starfsfólksins er ófaglærður. Það
sama á við um aðra leikskóla.
Burtséð frá starfsmönnum sagði
Bergur að leikskólinn yrði fullnýtt-
ur upp úr áramótum. „Við getum
svo sem ekki fyllt leikskólann strax
og byrjað með öll böm samtímis.
Það þarf að venja þau við.“ Reiknað
er með 83 bömum en tæplega 70
börn eru þegar í leikskólanum.
Leikskólinn er hönnun Ingimund-
ar Sveinssonar arkitekts. „Við höf-
um heyrt að byggingin sé tilnefnd
til arkitektaverðlauna á meginlandi
Evrópu." -SJ
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri opnaði í gær formlega leikskólann
við Mururima í Grafarvogi. DV mynd E. Ól.
stutiar fréttir
Ólögmæt
Hæstiréttur
|: úrskurðaði í
| gær að ákvörð-
un Guðmundar
Bjamasonar
umhverfísráð-
| herra um að
' ilytja starfsemi
; Landmælinga
Sríkisins til Akraness væri ólög-
mæt. Guðmundur ætlar þrátt fyr-
Íir dóminn að reyna að afla sér
lagaheimildar til flutningsins áð-
ur en jólafrí Alþingis hefst, svo
hægt verði að flytja starfsemina
til Akraness sem íýrst. RÚV sagði
frá.
Metaösókn að Visi.is
Metaðsókn var að netmiðlinum
Vísi.is í gær. Undir kvöld stefhdi í
að heimsóknir yrðu nærri þrjátíu
þúsund. Fram að þessu höfðu
gestakomur ekki farið upp fyrir
tuttugu þúsund á sólarhring. Vís-
ir.is greindi í gær stöðugt frá eld-
gosinu í Vatnajökli og birti fyrir
hádegi fyrstu ljósmyndina sem
tekin var á gosstað eins og ffam
| kemur annars staðar í DV i dag.
Skiltiö tekiö niður
ILyfsalinn í Borgarapóteki
slökkti í gær á skiltinu umdeilda
sem á stóð LYFJAbúð í kjölfar
lögbannsbeiðni sem barst Sýslu-
mannsembættinu í Reykjavík í
/ gær, en hann hafði áður lýst þvi
[í yflr að hann myndi ekki slökkva
á því þrátt fyrir úrskurð Sam-
I keppnisstofnunar um að skiltið br
Deilur um kvótann
Harðar deil-
| m- voru á Al-
! þingiígærum
breytingar á
flmmtu grein
laga um fisk-
/ veiðistjórnun
og varðist Þor-
steinn Pálsson
árásum gagnrýnenda af mikilli
j hörku.
Lyfjakostnaður hækkar
| Gert er ráð fyrir að greiðslur al-
| mannatrygginga í lyfjakostnaði
verði 200 milljónum io-óna hærri
| á næsta ári en gert var ráð fyrir í
j fjárlögum ársins 1998.
yti í bága við samkeppnislög.
Tölvuleikir og spil á Vísi.is
Vöruflokkum á Hagkaup@Vis-
j ir.is hefur fjölgað. Nú em í boði
auk bóka, geisladiska og mynd-
f banda, tölvuleikir og spil. Net-
í verslunin hefur verið opin í þijár
j’ vikur og hafa Islendingar tekið
þeirri nýjung vel að versla heima
| eða í vinnu og fá vöruna senda
heim næsta dag.
Fordæmia loftárásir
l Sósíalistafélagið hefur sent frá
| sér ályktun um loftárásir Breta og
* Bandraikjamanna á írak. Þar kem-
ur fram að félagið fordæmir að-
gerðimar og krefst þess að íslensk
stjómvöld dragi stuðning sinn við
* þessar villimannlegu árásir tfl
; baka og beiti sér fyrir því að við-
skiptabaimið á írak verði afnumið
: og irösku þjóðinni aftur leyft að
j færa líf sitt i eðlflegt horf.
Thor Heyerdahl til íslands
Landkönn-
I uðurinn og
: fræðimaðurinn
t Thor Heyer-
dahl kemur
j ásamt eigin-
konu sinni
; Jaqueline tU ís-
lands í næstu
; vUcu og dvelja þau hér tU 29. des-
j ember. Þau era gestir forseta ís-
; lands og munu auk dvalar í Reykja-
vik verða um jól á sveitabæ í ná-
; grenni Skálholts.
Ástþór vill skýringar
Astþór Magnússon, talsmaður
Friðar 2000, krefur Halldór Ás-
: grímsson utanríkisráðherra um
nánari skýringar þeirri ákvörðun
| utanrikisráöuneytisins að synja
j því að senda áfram tU Sameinuðu
f þjóðanna erindi Friðar 2000 um
j mannúðarflug tU íraks. -BÓE
ákvörðun