Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1998, Blaðsíða 34
DV, Ósló:
Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígræn
eðaltré, í hæsta gæðaflokki og prýða þau nú
mörg hundruð íslensk heimili.
ti-10 ára ábyrgð
10 stærðir, 90
Stálfótur fylgir
Ekkert barr að ryksuga
Truflar ekki stofublómin
rr
Eldtraust
370 cm ** Þarf ekki að vökva
..íslenskar leiðbeiningar
**■ Traustur söluaðili
Skynsamleg fjárfesting
H3 BANDALAG ÍSLENSKRA SKATA
(£%£)
Rökke er nú sakaður um
að hafa:
• látið móðurfyrirtækið, Aker
RGI, kaupa risatogarann American
Monarch á uppsprengdu verði af
Norway Seafood og þannig forðað
því frá stórtapi á síðasta ári.
0kokrim holder
med Rokke
ssane etterfcrEkrisg pa egjet íxntsaúv
Listasmíðjan
Keramikhús
SkeiSunni 3a
s. 588 2108
• Ytublað og vökvalögn f. hamar
• Hliðarfærsla á bómu
1 Rúmgott hús, gott þjónustuaðgengi
• Yanmar dísilvél, 58,5 hö
Skútuvogi 12A, s. 5681044
Vandinn er ekki að 12 milljarðar
af eign Kjell Inge Rökke í Norway
Seafood hafa brunnið upp í kaup-
höllinni i Ósló á árinu. Það eru bara
tölur á blaði. Vandinn er að rann-
sóknarlögreglan hefur hug á að vita
hvemig Rökke hefur haldið lífi i
fyrirtækinu síðustu tvö árin.
Verðbréfahrunið er svo sem nógu
slæmt en rannsóknarlögreglan er
verri. Verðbréfamarkaðurinn er
miskunnarlaus en lögreglan vill fá
að vita hvort farið hefur verið að
lögum. Næstu vikur kunna að reyn-
ast Norway Seafood erfiðar ef rann-
sóknarlögreglan norska gerir al-
vöra úr hótunum sínum um að
hefja rannsókn á fjárreiðum Rökke.
Áhugasöm lögregla
„Við fylgjumst náið með þessu
máli. Þetta er mál sem varðar al-
mannahag og ekki óeðlilegt að rann-
sóknarlögreglan hefji sjálfstæða
rannsókn," segir Anstein Gjengedcd
rannsóknarlögreglustjóri um áhuga
sinn á Rökke.
Það sem lögreglan og margir
minni fjárfestar vilja vita er hvern-
ig fé hefur verið flutt milli fyrir-
tækjanna í fyrirtækjasamsteypu
Rökkes. Og líka frá fyrirtækjunum
til Rökkes sjálfs. Hann er frægur
fyrir að lifa hátt og þurfa umtals-
verða vasapeninga.
• látið Aker RGI kaupa einkafyr-
irtæki sitt, Tiger, og með því fót-
boltaliðin Wimbleton og Molde.
Daglega er Kjell Inge Rökke forsíðuefni blaða í Noregi. Hann er bæði ríkasti maður landsins og eftirsóttasti pipar-
sveinninn.
• greitt sjálfum sér fjóra milljarða
íslenskra króna í arð í október í
haust frá Aker RGI til að fjármagna
einkaneyslu sína.
• sóað fé Aker RGI við árangurs-
lausa tilraun til að ná tökum á
tryggingafyrirtækinu UNI Store-
brand.
Öfundsjúkir smákarlar
Þetta eru alvarlegar ásakanir og
gætu leitt til ákæru fyrir ljárdrátt
sem nemur í það minnsta fjórum
milljörðum íslenskra króna. Það
eru ýmsir fjárfestar sem keypt
hafa hlutabréf i fyrirtækjum Rökk-
es sem una sínum hag illa. Þar á
meðal eru voldugar stofnanir eins
og lífeyrissjóðir. Þessir fjárfestar
hafa engan arð haft af að velja
Rökke til að ávaxta eigur sínar
meðan hann veður sjálfur í pen-
ingum.
Rökke vísar öllum þessum ásök-
unum á bug og segir að hér sé á
ferðinni öfundar- og áróðursher-
ferð. Hann viðurkennir þó um leið
að rekstur fyrirtækjanna gæti
gengið betur. Þarna er Norway
Seafood þungur baggi. Fyrirtækið
á meðal annars lítið arðhæra fisk-
réttaverksmiðju í New Bedford í
Bandaríkjunum. Þama gæti sam-
starf við íslenskar sjávarafurðir
komið sér vel. Bæði fyrirtækin
þurfa að rétta sinn hag vestra.
Stöðugur flótti frá
Rökke
Hjá Norway Seafood er nú ekki
gert ráð fyrir að nokkuð gerist í
viðræðunum við íslenskar sjávar-
afurðir fyrr en á næsta ári. Sturla
Lyberg, upplýsingafulltrúi hjá
Norway Seafood , segir við DV að
málið sé enn spennandi þótt vart
þurfi að vænta skjótra ákvarðana.
Sturla er einn þeirra sem nú yf-
irgefur Norway Seafood og segir
hreint út að hann hafi ekki fengið
þau laun sem honum var lofað.
Undanfarin ár hafa margir verið
bæði ráðnir og reknir hjá Norway
Seafood og meiri órói verið innan
fyrirtækisins en hluthafarnir hafa
talið æskilegt.
Fá togara í hausinn
Nú er allt á huldu um hver
verða örlög Norway Seafood.
Reynist það rétt að fyrirtækið hafi
fengið miklu meira en markaðs-
verð fyrir togarann American
Monarch getur svo farið að kaupin
verði látin ganga til baka eða hluti
kaupverðsins endurgreiddur.
Þetta gæti riðið Norway Seafood
að fullu en fyrirtækið er rekið með
tapi og er mjög skuldsett.
Rökke stofnaði Norway Seafood
fyrir fjórum árum og sló þá saman
American
Seafood , einka-
fyrirtæki sínu,
og fisksölufyrir-
tækinu Frionor.
Feitasti fiskur-
inn í þessu búi
er togaraútgerð
Rökkes frá
Bandaríkjunum
en annars ná
umsvifin til
Tailands, Dan-
merkur og Noregs.
Kvennagull
Rökke er sjálfur fyrrum togara-
sjómaður og hefur enga menntun
á sviði viðskipta. Hann segir sjálf-
ur að þeir sem nú leggi hann í ein-
elti öfundi hann vegna velgengn-
innar. Og það er satt að margir öf-
unda þennan rikasta mann Nor-
egs. Hann er líka eftirsóttur pipar-
sveinn og fær nær daglega bónorð
frá konum sem senda honum jafn-
vel myndbönd til staðfestingar á
yndisþokka sínum.
Hraðskreiðir bátar, einkaþota,
skyndiferðir á fótboltaleiki hér og
þar og sumarhöll með bara níu
salernum auk annarra vistarvera,
þetta er myndin sem flestir Norð-
menn hafa af Rökke. Hann þarf
hvorki að kvarta undan sinnuleysi
fjölmiðla né fjarveru kvenna.
Hann er bæði glaumgosi og
draumaprins.
Fellur á eigin bragði
En það er dýrt að lifa hátt. Svo
dýrt að Rökke hefur orðið að seil-
ast í kassa fyrirtækisins sem hann
á ekki að fullu sjálfur. Það er ólög-
legt að mis-
muna hluthöf-
um og nú kann
það að verða
sægreifanum
umtalaða að
falli.
Á vissan
hátt fellur
hann þá á eig-
in bragði því
hann útnefndi
sjálfur þrjá
menn í nefnd til að rannsaka
hvort hann hefði seilst í kassann.
Nefndin komst að því að svo væri.
Nú bíður Rökke það verkefni að
koma sér úr klípunni. Kannski er
eina leiðin að endurgreiða það
sem tekið hefur verið en til þess
skortir Rökke fé.
Gísli Kristjánsson
Erlent
fréttaljós
tilbúin jólatré
með ljósum
tilvalin jólagjöf
Snúningsgrafa frá
Hvunnra
Robex 55,3
5,4 tonn
FRABÆR
KAUP
- flug vél
K(SíJ®ÍjlfiS3,
■éttaljós
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998
Framtíð Norway Seafood í óvissu vegna fjármálaóreiðu Kjell Inge Rökke:
Blankur sægreifi