Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Page 4
LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 1999 DV éttir ■ ★ ★ Portúgalskt/ítalskt blaðamannapar stóð sem bergnumið í Perlunni á gamlárskvöld: Hefði ekki getað dreymt þessa sjón „Við vorum í Perlunni um mið- nættið á gamlárskvöld. Þaðan var mjög fallegt að sjá yfir. Fyrirfram hefðum við ekki getað látið okkur dreyma um að íbúar í heilli borg væru að skjóta upp flugeldum - ekki bara sumir heldur allir. Aðalsýning- in stóð yfir frá klukkan hálftólf til hálfeitt," sagði Portúgalinn Jorge de Carvalho sem eyddi áramótunum í Reykjavík ásamt hinni ítölsku konu sinni Simona Artanidi. Þau búa í Bologna á Ítalíu og eru bæði íþrótta- fréttamenn. Jorge sagði það fjarri lagi að hin íslenska áramótaflugelda- sýning væri sóun á fjármunum. Hann sagði að þau Simona hefðu ákveðið i byrjun desember að fara til Islands til að eyða þar áramótun- um. „Ég á vin á Ítalíu sem er full- trúi Flugleiða. Hann sagði okkur frá því að hér væri athyglisvert að vera um nýárið. Svo við sögðum: Portúgalinn Jorge de Carvalho og hin ítalska Simona Artanidi voru afar ánægð með íslensku áramótin. Gleðin skein úr andlitum þeirra þegar þau gengu niður Skólavörðustíginn á nýársdag. DV-mynd Pjetur „Allt í lagi, við fórum bara.“ Við viljum ekki ferðast þangað sem allir aðrir fara í frí, t.d. til Spán- ar, Maldiveeyja (í Indlandshafi) eða Kanaríeyja. Þess vegna ákváðum við að koma hingað og upplifa eitthvað frábrugðið. Reyndar höfðum við von- ast til að sjá norðurljósin. En senni- lega hefur ekki verið nægilegt frost til þess. Á gamlársdag fórum við í rútuferð og sáum þá ýmislegt hér á íslandi sem við höfum aldrei upplif- að áður.“ Jorge sagði að þau Simone væru ávallt heppin með veður þegar þau ferðuðust: „Já, alveg grínlaust, við finnum alltaf sól þegar við erum í fríi. Líka hér á íslandi. Á síðasta ári fórum við t.d. til London. Þá var sól alla helg- ina,“ sagði Jorge de Carvalho. Hann og kona hans fara af landi brott á morgun, sunnudag. -Ótt íslendingar eru þekktir fyrir að fagna nýju ári með miklum sprengingum og Ijósadýrð. Borgin var uppljómuð þegar Ijósmyndari DV brá sér í turn Landakotsspítala og tók mynd af herlegheitunum. Áætlað er að íslendingar hafi skotið upp flugeldum fyrir um 400 milljónir króna og sést vel að ekkert var sparað til að gera áramótin sem eftirminnilegust. DV-mynd Hilmar Pór Elínborg Hanna Andrésdóttir. DV-mynd Teitur Aldrei veriö svona heppin Elínborg Hanna Andrésdóttir, einstæð tveggja bama móðir, vann Daihatsu Sirion bifreiö aö verðmæti 988.000 krónur í Jóla- potti Sjónvarpskringlunnar. „Þiö eruð að plata mig. Ég hef aldrei á ævinni verið svona heppin,“ sagöi Elínborg þegar bíllinn blasti við henni framan við heimili hennar. Haraldur Haraldsson frá Sjónvarpskringl- unni afhenti henni lyklana að bifreiðinni. -SJ Nýársávarp forseta íslands: Samstaða um að efla og styrkja menntun Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, gerði mennta- og menn- ingarmál að höfuðumtalsefni í nýársávarpi sínu til þjóðarinnar í gær. Hann minnti á að á undan- förnum misserum hefðu íslending- ar fengið margvíslegar viðvaranir um að þeir væru að síga neðar í stigatöflu alþjóðlegs samanburðar um menntun en flestir höfðu vænst. Aðrir væru óðum að fara fram úr okkur og þar með tapaðist vígstaða sem nauðsynleg væri til að geta áfram notið þeirrar hag- sældar sem best þekktist. Forseti íslands minnti jafnframt á aö einnig gæfi að líta fjölmörg dæmi um það hvernig menntun, þekking og vísindi réðu nú á ís- landi úrslitum um vöxt nýrra at- vinnugreina, auðguðu mannlíf, listsköpun og menn- ingu ásamt því að efla orðstír okkar íslend- inga á sviðum sem æ meir mótuðu álit þjóða og áhrif. Hann sagði brýnt að samstaða skapaðist um að efla og styrkja menntun í landinu svo að kraft- urinn sem byggi í ungu fólki næði að njóta sín til hlítar svo að sérhver kynslóð fengi sjálf að nýta kosti þess að vera í senn góðir íslending- ar og sannir heims- borgarar. Forseti minntist eiginkonu sinn- ar, Guðrúnar Katrinar Þorbergs- dóttur, sem lést á ný- liðnu ári eftir harða baráttu fyrir heilsu sinni og lífi. Hann þakkaði þann samhug og hlýju sem löngum hafa á erfiðum stund- um veitt íslendingum eina sál og einn vilja og veitti honum sjálf- um og fjölskyldu hans styrk í glímu þeirra við sorg og söknuð. „Ég færi ykkur ein- lægar þakkir fjöl- skyldunnar og óskir um að hið nýja ár verði ykkur til gæfu og gleði,“ sagði forseti íslands m.a. í nýársávarpi sínu til þjóðarinnar. -SÁ Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson. IttÉHI Sumir hætta Nú er það loks staðfest að Stefán Jón Hafstein er hættur sem rit- stjóri á Degi. Sandkorn vakti Ireyndar athygli á þvi fyrir nokkru að Stefán væri á útkikki. Hann fær víst í nógu að snúast enda ætlar hann í harkið, að starfrækja eigið fyrirtæki í út- gáfu, dagskrárgerð og annars konar fjölmiðlastarfsemi. En hvaö Dag varð- ar hefur fáum dulist að litlir kær- leikar hafa verið milli nefnds Stef- áns og Kolbrúnar Bergþórsdótt- ur, bókmenntagagnrýnanda með meiru. Er skemmst að minnast þess að þau skömmuðust hvort út í annað í greinum í blaðinu þar sem þau gengu undir nöfnunum „sum- ir“. En þar sem sumir eru hættir | getur Kolbrún nú skammað Stefán umbúðalaust... Betri söngvari I nýútkomnu Sportveiðiblaði er m.a. viðtal við Halldór Nikulós- son, veiðivörð við Norðurá, sem lét af þeim starfa sl. haust eftir rúm- lega 20 ár á bökkum árinnar. Á þeim tíma hefur Halldór skiljanlega séð tD margra veiði- manna, misgóöra jað sjálfsögðu, því : ekki eru allir l)urö- ugir við veiðarnar þótt þeir vilji láta jsjá sig í hópi veiöimannanna við „flottu" árnar. Halldór segir í viðtalinu m.a. frá því að hetjutenór- inn Kristján Jóhannsson hafi komið til veiða í Norðurá með 10 manna fylgdarlið og þegar veiði- vörðurinn fyrrverandi var spurður hvort Kristján væri góður veiði- maður var svarið: „Hann er miklu betri söngvari og býsna skemmti- legur náungi sem gaman var að rabba við...“ Fram vinnur Þorbjörn Jensson, landsliðs- þjálfari í handknattleik, er áhuga- maður um stangaveiði, sérstaklega silungsveiði, og er sem slíkur í við- tali í nýútkomnu Sportveiðiblaði. Þar er víða komið við en undir lokin er Þor- björn spurður um handknattleikinn, og þá hverjir veröi ís- landsmeistarar í karlaflokki í vor. Þorbjörn heldur því þar fram að Fram verði íslands- meistari og muni mestu að Titov línumaður verði kominn til liðs við Framara í mars og april þegar úr- slitakeppnin fer fram. Varla þarf að taka fram að Eggert Skúlason fréttamaður, sem skrifaði viðtalið við Þorbjöm, brosti niður að oln- bogum við þetta svar, enda gegn- heill Framari sjálfur.... Skífuþeytir Samkeppni skemmtistaðanna er grimm og neyta þeir hvers færis sem gefst til að olnboga sig áfram. Skuggabarinn er búinn að vera með auglýsingu i gangi upp á síðkastið þar sem segir „lofúm engu, gerum fullt“. Segja kunnugir að þetta sé skot á ann- an skemmtistað sem lofaði að fljúga til landsins fullri vél af berum Play- boy-stelpum en stóð víst ekki nákvæmlega við það. En fyrst verið er að tala mn Skuggabar þá var Björk þar með partí og iðkaði þá list að þeyta skif- ur af kappi ásamt breskum köppum. Er samdóma álit að Björk sé barasta nokkuð lagin við að þeyta... Umsjón Haukur L. Hauksson Netfang: sandkorn @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.