Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Qupperneq 6
LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 1999 JjV
6 í (útlönd
** *
stuttar fréttír
Styttist í forsetakosningar í Bandaríkjunum:
Maöur ársins
Bill Clinton forseti er maður
ársins í Bandaríkjunum sam-
kvæmt nýrri
Gailupkönnun.
Vinsældir for-
setans eru
meiri nú en
fyrir Monicu-
málið svokall-
aða. Næstur á
eftir Clinton í
vinsældum er Jóhannes Páll páfi
jj en kona ársins var að sjálfsögðu
I forsetafrúin, Hillary Clinton.
Sex dóu í snjjóflóði
Sex manns létust og 25 slösuð-
ust í snjóflóði í bænum Rouyn-
Noranda i norðvesturhluta
j Quebec í Kanada í gær. Snjóflóð-
I ið féll á íþróttahús með fyrr-
I greindum afleiðingum. Enn er
! nokkurra saknað.
ISprenging i klósetti
Fjölskyldu í bænum Monster í
Hollandi brá heldur í brún á
i gamlárskvöld þegar klósettið á
| heimilinu sprakk skyndilega í
loft upp. Óprúttnir náungar
höfðu kveikt í flugeldum I nær-
liggjandi skolpröri.
Byltingarafmæli
2 Borís Jeltsín, forseti Rúss-
| lands, sendi í gær ámaðaróskir
til Fidels
Castrós, leiö-
toga Kúbu.
Tillefnið var
að 40 ár eru
liðin frá því
kommúnistar
undir forystu
Castrós náðu
völdum í landinu og steyptu ein-
ræðisherranum, Fulgencio
Batista, af stóli.
Vilja hefja björgun
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
j anna samþykkti í gær að krefjast
' þess af angólskum stjómvöldum
að fá að hefja leit að fjórtán manns
| sem vora í flugvél á vegum SÞ.
| Flugvélin var skotin niður.
Ófriöur í Frakklandi
Mikil ólæti vora í Frakkland á
nýársnótt. Mest voru lætin í
| Strasborg þar sem lögregla hand-
tók 17 ungmenni sem höfðu
kveikt í 38 bifreiðum. Ungmenn-
inn létu ófriðlega og grýttu lag-
anna veröi.
Sigurviss
Ekki blæs byrlega fyrir Benja-
min Netanyahu, forsætisráð-
herra ísraels,
þegar nýjustu
skoðanakann-
anir eru ann-
ars vegar. For-
sætisráðherr-
ann, sem nú
heyr kosninga-
baráttu, er þó
sigurviss og
segist alltaf fá slæma útkomu í
könnunum en góða í kosningum.
Kosningar verða haldnar í ísrael
17. maí nk.
Volvo tekur upp evru
Lars Persson, framkvæmdastjóri
Evrópudeiidar Volvo, segir í viðtali
við Svenska Dagbladet að sú ákvörð-
un Svía að taka ekki þátt í myntsam-
starfi Evrópu muni skaða fyrirtækið
um hundrað milljóna sænskra króna
árlega. „Þetta kemur okkur afar illa.
Óstöðugleiki sænsku krónunnar eyk-
ur viðskiptaáhættuna verulega en
Volvo-samsteypan er mjög viðkvæm
fyrir gengissveiflum og þátttaka Sví-
þjóðar í evrunni var tækifæri til að
snúa við þeim baki,“ sagði Persson.
Stjóm Volvo-samsteypunnar ætlar
upp á sitt eindæmi að reka öll sín við-
skipti á grundvelli evrunnar frá 1.
janúar 2001 og verður breytingunni
komið á í áföngum. Frá og með þess-
um áramótunum mun Volvo m.a.
krefjast greiðslna fyrir framleiðslu-
vörumar í evrum frá viðskiptavinum
i myntsambandslöndunum. „Við ger-
um þetta til að fá gleggri verðsaman-
burð,“ sagði Lars Persson. SÁ
Al Gore gefur kost
á sér til forseta
A1 Gore, varaforseti Bandaríkj-
anna, skilaði inn formlegu framboði
sínu í forvali vegna forsetakosning-
anna sem verða árið 2000. Þetta kom
fram í dagblaðinu Washington Post
í gær.
Skjölin sem A1 Gore lét af hendi á
gamlársdag gera honum kleift að
hefja formlega undirbúning kosn-
ingabaráttunnar. Gore mun þegar
hafið ráðið starfsfólk og leigt sér
skrifstofúhúsnæði. Starfsfólki kosn-
ingaskrifstofúnnar verður meðal
annars ætlað að safna ekki minna
en 20 milljónum Bandaríkjadala en
það þykir lágmarksupphæð ætli
menn að komast áfram í
kosningabaráttu.
Tveir aðrir demókratar
kanna nú jarðveginn fyrir
framboði. Þetta era Bill
Bradley, fyrrum öldunga-
deildarþingmaður og Paul
Wellstone sem nú á sæti í
öldungadeildinni fyrir
Minnesotaríki. Gore þykir þó likleg-
astur þeirra þriggja til að verða val-
inn frambjóðandi demókrata.
Ýmsar blikur era einnig á lofti
meðal repúblikana. Öldungadeildar-
þingmaðurinn og fyrrum stríðs-
fangi í Víetnam, John McCain, varð
fyrstur flokksfélaga sinna
tll að tilkynna framboð. í
næstu viku er gert ráð fyr-
ir framboði Johns
Ashcrofts.
Þá þykja útgefandinn
Steve Forbes og fyrrum
varaforseti, Dan Quayle,
líklegir til að bætast i hóp
frambjóðenda á næstu vikum. Sá
sem hefur komið best út úr skoð-
anakönnunum meðal repúblikana
er þó forsetasonurinn George W.
Bush. Hann mun ekki gefa neitt út
um hugsanlegt framboð sitt fyrr en
í apríl næstkomandi.
Jl mlMgm
Í0
Gríöarleg stemning var á Times Square í New York á nýársnótt. Ekki er talið aö færri en hálf milljón manna hafi veriö
á torginu þegar klukkan sló tólf. Fimm þúsund lögregluþjónar gættu þess aö allt færi vel fram. Þá er áætlað aö
milljarður manna hafi horft á hátíðarhöldin í sjónvarpi. Símamynd Reuter
300 milljónir Evrópubúa deila evrunni á mánudag:
Sögulegri stund fagnað
Evran, sameiginlegur gjaldmiðill
Evrópusambandsins, tók formlega
gildi í gær. Með evrunni þykir hafa
verið stigið stórt skref i sameining-
arátt í Evrópu en evran mun leysa
gjaldmiðla ellefú aðildarlanda sam-
bandsins af hólmi. Löndin sem
standa utan evrunnar era Danmörk,
Svíþjóð, Bretland og Grikkland.
Þúsundir starfsmanna banka og
fjármálastofnana undirbjuggu sig í
gær undir notkun evrunnar á fjár-
málamörkuðum á mánudag.
Ástralir verða fyrstir til að nota
eevruna á mánudagsmorgun en
Finnar vora hins vegar fyrstir til að
fá hana því nýársdagur rann fyrst
upp hjá þeim.
Mikil eftirvænting ríkti í aðildar-
löndunum ellefu og víða var skotið
upp flugeldum bæði til að fagna nýja
árinu og ekki síst evrunni.
Mest var eftirvæntingin í Frank-
fúrt þar sem Seðlabanki Evrópu er
staðsettur, og þar áttu fyrstu við-
skiptin með evra sér staö. Það var yf-
irmaður Visa sem keypti kampavín
aðeins nokkrum sekúndum eftir mið-
nætti og greiddi fyrir með korti sínu.
f fyrstu verðu evran aðallega not-
uð í hlutabréfaviðskiptum, íjár-
magnsflutningum og öðrum seðla-
lausum viðskiptum.
Það verður ekki fyrr en árið 2002
að seðlar og mynt verða formlega
tekin i notkim.
j Bretar rann-
saka mannrán-
ið í Jemen
| Bresk stjómvöld ákváðu í
2 gær að senda Ijóra rannsöknar-
| menn til Jemen til þess að
! rannsaka hvemig björgunarað-
| gerðum var háttað þegar her
j landsins gerði tilraun til að
frelsa 16 erlenda feröamenn
J sem voru í gíslingu þjá róttæk-
! um hryöjuverkasamtökum.
| Þrír Bretar og Ástrali létu lífið
: í áhlaupi hersins.
| í gær sagði Brian Smith, einn
| þeirra sem komust af, við
! Reutersfréttastofuna að ómögu-
| legt væri að segja til um hvor
J aðilinn hefði hafið skotárásina.
j „Enginn okkar sem lifðum af
| árásina mun geta svarað því,“
| sagði Brian meðal annars.
| Auk bresku rannsóknar-
mannanna mun fulltrúi ástr-
I alskra stjómvalda á leið til
Jemen og þá hefúr FBI-alríkis-
1 lögreglan einnig sent sína
menn á staöinn.
j Shakespeare
í maður árþús-
| undsins
I William Shakespeare var
t kosinn maður árþúsundsins í
í breskri útvarpskönnun. Meira
j en 45 þúsund hlustendur tóku
? þátt í valinu. Yfirgnæfandi
| meirihluti taldi að Shakespeare
S hefði með ódauðlegum
3 bókmenntaverkum sínum lagt
1 mest allra Breta af mörkum á
5 síðustu þúsund árum.
Meðal annarra kandidata á
I listanum voru stórmenni á
j borð við Winston Churchill,
3 William Caxton, Oliver
!! Cromwell, Charles Darwin og
sir Isaac Newton.
Hásætið fyrir
bæði kynin
Danir vilja breyta lögunum
um rétt elsta sonar til krúnunn-
ar. Sex af hverjum tíu sem svör-
uðu könnun danska blaðsins
Jyllands Posten vora á þessari
skoðun. í ljósi þess að Margrét
drottning hefur verið farsæll
þjóðhöfðingi þykir ekki stætt á
því að neita hugsanlegri
prinsessu um hásætið í framtíð-
inni. Danir era nefnilega famir
að hugsa til hugsanlegra bama
Friðriks krónprins sem tekur
við krúnunni af móður sinni í
framtíðinnL _J§|____
[ Hlynntir evrunni
I Danir era hlynntari evrunni,
2 nýrri mynt Evrópubandalags-
‘ ins, en nokkru sinni áöur. Sam-
! kvæmt nýrri Gallupkönnun
R sögðust 48% Dana styðja aðild
j; að EMU en 42% voru andvígir.
1 Óákveðnir vora 10% aðspurðra.
Í' Ekki áður hefur meirihluti fylg-
ismanna aðildar að myntbanda-
laginu verið umfram skekkju-
mörk. Hvenær Danir fá að
kjósa um aðildina í þjóðarat-
kvæðagreiöslu liggur ekki fyrir
á þessari stundu.
Lestur kemur í
: veg fyrir fituát
Þeir sem lesa á umbúðir mat-
væla era líklegri til að kaupa
hollari og fitusnauöari mat en
hinir sem ekki nenna að kynna
sér innihaldslýsingar. Þetta
kemur fram í nýrri rannsókn á
vegum Fred Hutchinson sjúkra-
hússins í Seattle í Bandaríkjun-
um.
Alls tóku 1450 manns þátt í
rannsókninni og kom í ljós
mikill munur var á vali fólks á
I matvælum. Um 80% sögðust
lesa á umbúðir en stærstur
hluti þess hóps reyndust há-
skólagengnar konur. Reykmga-
menn komu illa út og virðast
ekki fast mikið um hvað þeir
láta ofan í sig.