Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Side 8
8
%eikerinn
LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 1999 T>V
Matur stútfullur af næringu
Sólveig Eiríksdóttir á Grænum
kosti gefur uppskrift að hollum og
bragðgóðum réttum eftir ofát hátíð-
anna.
Orkusúpa
Þessi súpa er ótrúlega fljótleg og
mjög holl. Hægt er að borða hana á
hvaða tíma dags sem er, t.d. er hún
fínn morgunmatur. Einnig er hún
góður kostur 1 hádeginu með fersku
salati. Orkusúpan hjálpar líkaman-
um í jafnvægi eftir jólin.
2 dl vatn eða komsafi
Smásöl eða annar þari
2 dl spirur, s.s alfalfa eða
mung eða baunaspírur
1 dl grænt grænmeti, t.d.
lambhagasalat (eða annað
eiturefhalaust kál). Einnig má
nota ýmislegt grænmeti,
s.s. spergilkál, gulrætur,
sætar kartöflur, blómkál, fennikel
sellerí eða það sem þið eigið i
ísskápnum.
Ávextir, s.s. 1 epli eða 1 ein
pera og/eða 1 banani
1 avókadó
Allt er sett í blandara nema
avókadóið og blandað vel í ca 2 min.
Þá er avókadóinu bætt út í og bland-
að í ca 10-20 sek.
Tofubollur
m/sólþurrkuðu tómatamauki og spírusalati
Tofu er búið til úr sojabaunum og
er því sérstaklega prótínrik fæða
sem fæst í mörgum stórmörkuðum
og heilsubúðum. Heilsufæði hefur
oft haft það orð á sér að það sé afar
seinlegt að elda. En þessi réttur af-
sannar það, hann er bæði fljótlegur,
sérstaklega bragðgóður og stútfullur
Nýkaup
l’ar st'm fcisklcikiiui bvi
1 pk sólþurrkaðir tómatar,
ca 85 g.
11/2 dl þurrristaðar
heslihnetur
eða furuhnetur eða pecanhnetur
2 hvítlauksrif
ca 5 væn blöð af fersku basil
2 msk. græn ólífuolía,
kaldpressuð (má sleppa og nota
eplasafa í staðinn)
1/2 dl sítrónusafi úr ca 1
stórri sítrónu
smásalt
smácayennepipar
Hellið sjóðandi vatni yfir
tómatana og látið standa í ca 15-30
min. Setjið þá í matvinnsluvél,
geymið vatnið. Restinni af upp-
skriftinni er bætt út í
og svolitlu, ca 1/2
dl, af vatninu. Ef
þið viljið
þynnra mauk
Þú ert það
sem þú
borðar, segir
Sólvesg á
Grænum kosti.
er hægt að bæta meira vatni út í.
Allt er maukað saman og bragð-
bætt með salt og pipar.
Spírusalat
25 g graskerfræ, þurrristuð
á pönnu eða í ofni
(200‘c í ca 3-5 mín.)
1/2 haus eikarlauf (frá Lambhaga,
fæst í stórmörkuðum), rifið niður
250 g spírur, t.d. alfa alfa,
mimg, baunaspínn'.
2 vorlaukar eða 1 búnt graslaukur
1 avókadó, afhýtt og skorið í
teninga
1 kiirbitur (eða 1/2 agúrka)
skorinn í stafi
smásöl
1 hnefi af fersku kóríander
(má nota steinselju eða
annað grænt krydd)
Graskerfræin eru þmrristuð og
kæld, eikarlaufið rifið niður í skál,
spírumar settar út í, vorlaukurinn
er saxaður niður og bætt út í, avóka-
dóið er afhýtt og skorið í teninga og
bætt út í, kúrbíturinn er skorinn í
sneiðar og síðan í stafi og bætt
út í, smásöl eru klippt yfir
og ferskt kóríanderið er
saxað sett út í. Blandið
vel saman og
stráið
graskersfræjunum yfir.
af næringu.
1 pakki stíft (firm) Tofu, ca 375 g
1/2 dl brauðmylsna eða haframjöl
1/2 dl hnetusmjör (sykurlaust
úr heilsubúð er besti kosturinn),
má sleppa og nota sojamjöl
í staðinn
1 gulrót, fint rifin
1 laukur, smátt saxaður
1-2 marin hvítlauksrif
1-2 msk tamari sojasósa (má
líka nota misoið frá síðasta
heilsuflippi)
1 tsk. oregano
1 tsk. basil (einnig er gott að nota
ferskt basil og þá alveg 1 hnefa)
smácayennepipar
salt eftir smekk
2 msk. ferskt kóríander eða
fersk steinselja, smátt saxað
Tofuið er tekið úr pakkanum og
vatninu hellt af. Það er síðan vafið
inn í gamalt viskustykki eða eldhús-
rúllu og kreist (ekki of fast) svo að
afgangsvatnið fari úr.
Síðan er það maukað í höndunum
og restinni af uppskriftinni er bætt
út i. Þetta er hnoðað vel saman i
nokkrar mínútur og síðan eru mót-
uð buff sem eru sett á bökunarpapp-
ír á ofnplötu. Þetta er síðan bakað
við ca 180"c i 15 mín. eða þar til þau
eru orðin gyllt.
Mauk úr
sólþurrkuð-
um tómöt-
tgæðingur vikunnar
Sítrónusoðin
smálúða með
grænmeti
Fyrir 4.
800 g smálúða i bitum, roðflett
og beinlaus
2 dl vatn
1 tsk. salt
2 msk. sítrónusafi
Meðlæti og sósa
1 bakki smámaís
12 stk. vorlaukar
2 stk. paprika, græn
og rauð
4-5 stk. sellerístilkar
1-2 stk. gulrætur
3 msk. ólífuolía
1 tsk. rósmarín
4 dl kjúklingasoö
1/2 dl sítrónusafi
4 msk. maizenamjöl eða
sósujafnari
Sjóðið 2 dl af vatni með salti
og sítrónusafa. Gufusjóðið smá-
lúðubitana í 6-7 mlnútur. Skipt-
ið á diska og berið fram meö
meðlæti og sósu.
Meðlæti og sósa
Hreinsið vorlaukinn, sneiðiö
og skerið annað grænmeti í ten-
inga, smámaísinn í strimla. Létt-
steikið í olíunni. Bætið
sítrónusafa og kjúklingasoði
saman við ásamt rósmarín. Lát-
ið suöuna koma upp, þykkið
meö maizenamjöli eða sósujafn-
ara. Sjóðið áfram í 1-2 mínútur.
Annað meðlæti
Berið fram með soönum, smá-
um kartöflum. Áætlið 3-4 stk. á
mann.
Uppskriftirnar eru fengnar frá
Nýkaupi þar sem allt hráefni í
þær fæst.
Maríneruð lúða að hætti Ásu
Gerður G. Bjarklind er matgæð-
ingur DV í fyrsta helgarblaði árs-
ins. Hún gefúr uppskrift að rétti
sem í Mexíkó er nefndur Chevitche,
en Gerður kýs að kalla maríneraða
lúðu.
„Þennan rétt fékk ég fyrst hjá
Ásu systur minni sem býr í
Mexíkó. Hann er ofboðslega
sterkur en þegar ég bauð upp
á hann, bæði í fertugs- og
fimmtugsafmæli mínu,
hvarf hann ofan í fólk eins
og dögg fyrir sólu. Jafnt
ungir sem gamlir boröuðu
réttinn með bestu lyst,“ seg-
ir Gerður.
Það sem þarf að hafa
er 450 g af lúðu. Lúðan
verður að vera mjög góð
og ný og nauðsynlegt að
hafa flskinn feitan. Hor-
aðan fisk er ekki hægt að
nota. Byrjað er á að taka
bein og annað frá og
skera stykkið í lengjur,
en síðan litla bita þannig
að þeir verði á stærð við
sykurmola. Bitamir eru
lagðir í fat og klappað vel
ofan á. Á þessi 450
grömm er notað innan úr
fjórum sitrónum, þær
kreistar vel í sítrónu-
pressu og safanum hellt
yfir fiskbitana. Mikil-
vægt er að vera með tá-
hreinar hendur, því að
fiskurinn er fergður vel;
það er klappað ofan á
hann til þess að hann nái
allur að sósast í
sitrónusafanum. Laukur,
tómatar og paprikur eru
skorin í litla bita og
grænmetið hrært saman
og sett á fiskinn. Til þess
að dreifa því sem best Gerður G.
yfir lúðuna eru aftur not- að sterkri
aðir guðsgafflamir. Gerður segist
ekki nenna að vera með neinn
pempíugang í því. Grænmetinu og
lúðunni er blandað vel saman og
aftur fergt með hendinni, örlítilli
ólífuolíu bætt út í og salti og pipar
eftir smekk. Grænar ólífur er einnig
gott að setja með og skera þær þá í
sneiðar. Tabascosósa er síðan sett
eftir hendinni, ekki hellt með lát-
um, heldur smáhellt og kokkurinn
verður að smakka sig áfram, því
mjög misjafnt er hversu mikið
tabasco fólk þolir.
Rétturinn er látinn standa í sex
klukkustundir og borðaður innan
sólarhrings frá því hann er gerður.
Þegar maríneraða lúðan hefur
verið borin fram er best að hafa
með henni seytt rúgbrauö með
svolitlu smjöri. Líka er hægt að
hafa með henni annars konar brauð
eða litlar kexkökur, ekki með
sterku bragði þó, því að bragðið af
réttinum er svo sérstætt og gott að
ekki má skyggja á það. Gott er að
hafa réttixm sem forrétt en hann er
einnig hentugur i kokkteilboðum og
þá jafnvel hægt að setja litla
skammta af honum í múffuform.
Gerður skorar á umsjónarmann
Samfélagsins í nærmynd, Sigríði
Pétursdóttur, að vera næsti mat-
gæðingur DV.
Bjarklind las jólakveðjurnar fyrir okkur í útvarpið en gefur okkur nú uppskrift
lúðu frá Mexíkó. DV-mynd Pjetur
Nykaup
iHtrSt'm b'isLlt'iUim l’\ i
Tortellini með fyllingu
og grænmeti
Fyrir 4.
500 g fyllt tortellini, ferskt
2- 3 1 vatn
2 tsk. salt |--------I
1-2 msk. ólífúolía í 1
vatnið I
Meðlæti 1
3- 4 stk. gulrætur 1
1 stk. kúrbítur
1 stk. paprika, rauð 1
1 bakki smámais I
4 stk. hvítlauksrif 1 _
2 msk. nýr engifer
1 bakki baunablanda, fersk
2 dl ostrusojasósa
2 msk. appelsínumarmelaði
2 dl grænmetissoð (vatn og
teningur/kraftur)
1 tsk. kóríanderduft
salt og svartur pipar úr kvöm
5 msk. matarolía til steikingar
Skraut
6 stk. vorlaukar
Sjóðið pastað í 3 mínútur og
kælið síðan.
Meðlæti
Fínsaxið hvítlauk og engifer,
steikið í olíu en látið ekki brenna.
Skerið gulrætur og kúrbít í þunn-
ar flögur (t.d. með ostaskera eða
flysjara). Bætið öðru grænmeti á
pönnuna, nema fersku baimun-
um. Bætið síðan ostrusojasósu,
marmelaði, grænmetissoði og
kórianderdufti út í og látið sjóða
áfram í 1-2 mínútur. Að síðustu er
pastanu bætt saman við og látið
hitna i gegn. Skipt á diska.
Baunablöndunni stráð yfir og
vorlauknum, skáskomum í þimn-
ar sneiðar, í kring.
Kjúklingabrínga
meí rauðvínssósu
og sveppum
Fyrir 4.
4 stk. kjúklingabringm-,
beinlausar
3 msk. matarolía
salt og pipar
Rauðvínssósa með sveppum
400 g sveppir
3 stk. laukur
1 tsk. oregano
1 tsk. timian
4 dl rauðvín, óáfengt
1 bréf rauðvínssósa, Knorr
eða Toro
3 msk. matarolía
Meðlæti
4 stk.
bökunarkartöflur
Snöggsteikið kjúklingabringum-
ar í heitri olíunni, bragðbætið með
; salti og pipar. Setjið í eldfast form
og steikið í ofiii við 200" C í 20 mín-
útur. Takið úr ofhin-
um, skerið hverja 1
bringu í þrjá hluta
og leggið ofan á sós-
una þegar borið er
fram.
Rauðvínssósa með
sveppum
Sneiðið lauk og brúnið í heitri
oliu, sneiöið sveppina og bætið á
pönnuna. Bætið þá kryddi, rauð-
víni og rauðvínssósudufti á pönn-
una, hrærið vel saman og sjóðið í
2-3 mínútur. Setjið á diska og
kjúklingabringumar ofan á.
Meðlæti
Bakaðar kartöflur henta vel
meö þessum rétti. Bakið þær í
45-60 mínútur við 180-200'C (eftir
stærð).
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni í þær fæst.
HWWIH