Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Blaðsíða 28
32 LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 1999 Sirkuskeppni í Mónakó Áhuga- menn um fjölleikahús munu vænt- anlega þyrp- ast til dverg- rikisins Mónakó þann 14. jan- úar næst- komandi en þá hefst árleg hátíö sirkus- fólks þar í landi. Þetta er í 23. skipti sem hátíðin er haldin og er hún undir verndarvæng Rainiers fursta sem veröur við- staddur opnunarhátíðina. Alls munu 22 sirkushópar frá 14 löndum koma fram og keppa í hinum ýmsu greinum. Verðlaunin er að sjálfsögðu trúður, bæði úr gulli og silfri. Síðasti dansinn Einum frægasta veitingastað New York borgar, The Rain- bow Room, var lokað skömmu fyrir jól mörgum fastagestinum til hrellingar. Rainbow Room hefur einkum verið frægur meðal fína og fræga fólksins og meðal gesta i gegnum árin má nefna Frank Sinatra, Bob Hope, Bob Dylan og meðlimi Rolling Stones hljómsveitar- innar. Rainbow Room var stað- ur í fínni kantinum og það þótti tíðindum sæta þegar rokkarinn Keith Richards lét svo lítið að setja upp bindi áður en hann gekk inn á stað- inn fyrir fáeinum árum. Ástæðu lokunar hins eftirsótta veitingastaðar má rekja til þess að húseigendurnir voru orðnir of gírugir og hugðust hækka árlega leigu úr litlum þremur milljónum dollara í fjórar milijónir. Ilmandi Metró Parísarbúar þurfa ekki leng- ur að bíða neðanjarðarlestar- innar í ólykt á borð við svita- og hlandlykt. Franska metróið, en svo kallast neðanjarðarkerfl Parísar, mun nefnilega anga hér eftir af ilmnum _.Made- ur úr blóma-, trjáa- og ávaxta- lykt og ætti að öllum líkindum að falla farþegum vel í geð. í upphafi hvers mánaðar verður einu og hálfu tonni af ilmnum góða dælt i hreinsiefni sem not- uð eru í neðanjarðargöngun- um. Það er mál manna að Metróið hafa lyktað illa allt frá I opnun þess árið 1900 og nú sé mál að linni. Vara við háloftaveiki Nepalir hafa sett af stað her- Íferð sem ætlað er að gera fjall- göngumenn meðvitaðri um hættuna sem stafar af hálofta- veiki. Háloftaveiki gerir gjama vart við sig hjá fjallgöngu- mönnum sem komnir eru í meira en 3 þúsund metra hæð án þess aö leyfa líkamanum að jafna sig nægilega á leiðinni upp. Björgunarsveitir i Himalaya- fjöllum áætla að 20% þeirra 90 þúsund fjallaklifrara sem heimsækja landið árlega fái einhver einkenni háloftaveiki. Einkennin sem eru höfuðverk- ur, svimi, lystarleysi og ógleði, geta valdið dauða ef ekkert er að gert. Öruggasta meðferðin er þó alltaf að halda niður á við. Jeppadeild Útivistar með fjölbreyttar ferðir í upphafi árs: Þrettándanum fagnað í Básum Þrettándaferð Jeppadeildar Úti- vistar er örlítið seint á ferðinni þetta árið, eða þann 9. janúar. Þá verður haldið í kyrrðina i Básum. „Þetta er fyrsta ferð ársins og tilval- ið að ná úr sér áramótaskjálftanum og byggja sig vel upp í byrjun árs,“ segir Guðfmnur Pálsson hjá Útivist. Jeppadeildin er sjálfstæð eining innan Útivistar og var stofnuð árið 1995. „Tilgangurinn með stofnun sérstakrar jeppadeildar var að koma til móts við breyttar forsend- ur i ferðaháttum fólks. Við vildum leggja okkar af mörkum við að auð- velda sfvaxandi fjölda jeppaeigenda að aka af öryggi og njóta útivistar í leiðinni," segir Guðflnnur. Fleiri ferðir eru á döfinni hjá Jeppadeildinni nú í janúar. Farið verður í Landmannalaugar helgina 15. til 17. janúar. Það þykir alltaf mikið ævintýri að heimsækja Laug- amar að vetri enda náttúrufegurðin engu minni en að sumri. Gist verð- ur í Hrauneyjum fyrri nóttina en í Landmannalaugum þá seinni. Þótt jólin séu ekki liðin eru Úti- vistarmenn þegar búnir að skipu- Jeppadeild Útivistar var stofnuðu fyrir fjórum árum. Síðan þá hefur deildin staðið fyrir fjölbreyttum ferðum árið um kring. Utivistarmenn fagna þrettándanum um næstu helgi í fögru umhverfi Þórs- merkur. leggja þorrablót vetrarins. Helgina 20. til 21. febrúar ætlar Jeppadeildin að storma á Hveravelli. Ekið verður norður Langjökul, meðfram Þursa- borgum og Péturshomi áleiðis að Hveravöllum. Þorramaturinn verður að sjálfsögðu tekinn með í þessa ferð. Ferð fyrir börnin „Dagsferðimar hefjast hjá Jeppa- deOdinni þann 23. janúar og verður byrjað i nágrenni höfuðborgarinnar. Ætlunin er að heimsækja Mosfells- heiði og tilvalið að taka bömin með og jafnvel snjósleðana ef vel viðrar,“ segir Guðfinnur. Hin gamla hraundyngja, Lyngdals- heiðin, verður ekin af félögum Jeppa- deildarinnar þann 6. febrúar. Þá er stefnt áð því að aka fram hjá Hrafna- björgum, Kálfstindum og inn að Hlöðufelli. í lok febrúar er áætluð ferð að Skjaldbreiði og í bytjun mars verður farið með ljósmyndara í Hveradali en hann mun leiðbeina fólki um landslagsmyndatöku. Yfir vetrartímann heldur Jeppa- deild Útivistar fundi mánaðarlega þar sem ferðirnar fram undan em kynntar en einnig em sýndar mynd- ir úr eldri ferðum o.fl. Öllum sem hafa áhuga á að fylgjast með gangi mála er heimilt að sækja fundina. -aþ Samvinnuferðir-Landsýn byrja árið í Taílandi: Golfvellirnir líkastir skrúðgörðum Ferðaskrifstofan Samvinnuferðir- Landsýn byrjar árið með Taílands- ferð sem er einkum ætluð golfá- hugamönnum. Að sögn Kjartans L. Pálssonar fararstjóra seldist strax upp í ferðina sem hefst þann 7. jan- úar næstkomandi. Þess vegna hyggst ferðaskrifstofan nú bæta um betur og bjóða til annarrar Taílandsferðar í lok mánaðarins. Lagt verður upp þann 27. janúar og komið heim aftur 19. febrúar. Dvalið verður á Pattaya-ströndinni sem er margrómuð fyrir fegurð. Þar eru golfvellir á hverju strái en að sögn Kjartans er seinni ferðin ekki eingöngu hugsuð fyrir kylfinga þótt þeir séu að sjálfsögðu velkomnir. „Við ætlum að vera meira á al- mennum nót- kringum þúsund krónur sem þykir víst ekki mikið. Nóg framboð verður af skoðunar- ferðum og nefnir Kjartan sérstak- lega ferð til árinnar Kwai sem er frægust fyrir brúna sem Japanir létu breska hermenn byggja í seinni heimsstyrjöldinni. Um brúna var síðan gerð kvikmynd eins og marg- ir þekkja. „Þá verður auðvitað farið í skoð- unarferð til Bangkok. Borgin sjálf er afar heillandi og við munum að sjálfsögðu skoða markverðustu stað- ina, svo sem musteri sólarlagsins og búddalíkneskið fræga sem er úr skíragulli," segir Kjartan. Aðspurður um veðurlag á þessum árstíma segir Kjartan það ekki geta Golfvellirnir á Pattaya-ströndinni í Taílandi þykja afskaplega fallegir og minna margir á skrúðgarða. Fíllinn er vinsæll meðal ferða- manna sem heimsækja Taíland. um í þessari ferð. Við verð- um með marg- ar spennandi skoðunarferðir þannig að allir eiga að finna eitthvað við sitt hæfi. Hvað golfáhuga- mennina áhrærir þá er auðvitað bæði ódýrt og gott að leika golf á þessu svæði. Margir golfvall- anna eru einna líkastir skrúð- Bangkok, stundum kölluð borg englanna, er afar spennandi og falleg borg. görðum og það er afskaplega gaman að spila þarna," segir Kjart- verið betra. „Fólk ætti að geta verið hlýjan sjó í stórkostlegu umhverfi," an. Hver vallarhringur kostar í öruggt með mikla sól, gott veður og segir Kjartan L. Pálsson. -aþ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.