Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Side 29
LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 1999 Með neyðarhnapp um hálsinn Höfðaborg í Suður-Afríku hefur mátt þola fækkun ferða- manna undanfarið og ástæðan helst sú að borgin þykir ekki örugg. Fyrir skemmstu létust tveir ferðamenn og 27 slösuð- ust á vinsælum ferðamanna- stað í borginni. Nú ætla borg- aryfirvöld að koma upp eftir- litsmyndavélum úti um alla borg og einnig hefur komiö til tals að bjóða ferðamönnum að bera hálsfesti sem á er festur neyðarhnappur. Þegar ferða- maöurinn ýtir á hnappinn hringir hjá lögreglu sem hrað- ar sér væntanlega á vettvang. Hvort ferðamönnum hugnast síðastnefhdi kosturinn á eftir að koma í Ijós. iar sökkva inn- an aínar ítölsk þingnefnd sem hefur fjallaö irni vanda Feneyja und- anfarið hefur afturkallað áætl- un upp á rúmlega himdrað miiljarða. í áætluninni fólust margháttaðar björgunarað- gerðir til að bjarga borginni frá því að sökkva í sæ. Á fyrra helmingi aldarinnar voru flóð fremur fátíð, aðeins nokkur á ári en nú eru þau ekki undir 80. Breskir flóðasérfræðingar segja að árið 2050 megi reikna meö flóðum á degi hverjum og í lok næstu aldar verði borgin að eilífú sokkin í sæ. Hrikaleg lífsreynsla Nýjasta vetrarsportiö í Bandaríkjunum er risavaxinn plasthnöttm- sem rúmar einn mann. Hnettinum er komið fyr- ir á fjallsbrún þar sem farþeg- inn kemur sér fyrir. Síðan er hann einfaldlega látinn gossa. Mikil eftirsókn er í hnettina og fara sögur af því að niðurferð- in sé engu lík og tala sumir far- þeganna um hrikalega lífs- reynslu. Það er hins vegar ekki mælt með þungri máltíð á und- an því veltingurinn getur orðið óviðráðanlegur. Týnda borgin á sýningu Týnda borgin Petra í Jórdaníu er efniviður stórrar sýn- ingar sem nýverið var opnuð í Washington í Bandaríkjunum. Jórdanir hafa sett í gang tveggja ára áætlun til þess að fá fleiri ferðamenn til landsins. Týnda borgin Petra hefur verið aðai- aðdráttarafl landsins og þang- að hafa 1,4 milljónir ferða- manna lagt leið sína árlega. Á sýningunni er saga borgarinn- ar rakin í myndum og máli. Þar er einnig að finna fjöl- marga listmuni, bronsstyttur, keramik, olíulampa og margt fleira sem fornleifafræðingar hafa grafið upp. Bandaríkja- menn þekkja borginni aðailega úr kvikmyndinni vinsælu um Indiana Jones og er sýning- unni ætlað að ýta enn frekar undir áhugann. 33 Þýskaland - hátíðir í anda miðalda og Goethe minnst I fótspor riddara og prinsa Þjóðverjar leggja mikla áherslu á að taka vel á móti ferðamönnum og víst er að þetta ár verður engin und- antekning frá því. Þýska ferðamála- ráðið kynnti nýverið nýja ferðabæk- linga fyrir árið 1999 og þcir kennir margra grasa. Samband þýskra kastala fagnar aldarafinæli í ár og þess vegna hef- ur ferðamálaráðið útnefnt árið 1999 Ár þýskra kastala. Af því tilefhi verða um það bil 200 kastalar opnir gestum og gangandi. Megináherslan verður lögð á menningu og líf mið- alda. í bæklingnum „í fótspor ridd- ara og prinsa“ er stiklað á dag- skránni sem hvert hérað stendur fyrir. Það er von ferðamálaráðsins að ár þýskra kastala fari ekki fram hjá nokkrum ferðamanni. Þýsku kastalamir eiga sér allir langa og merka sögu sem best er að kynna sér með heimsókn á staðinn. Þá verða fjölmargar kastala- eða mið- aldahátíðir sem ferðamenn geta sótt. Á þessum hátíðum verður lífið á miðöldum í brennidepli. Ferðalanaur- nqi inn Goetne Þótt árið 1999 sé helgað sögu kastala í Þýskalandi verður annarrar merkrar ártíðar minnst. I ár eru nefiiilega liðin 250 ár frá því höfuð- skáld Þjóðverja, Jo- hann Wolfgang von Goethe, fæddist í Frankfurt. Margt verður gert til að minnast skáldsins sem sjálfur férðaðist mikið og hafði imun af. í 20 borgum Þýskalands verða viðburðir Goethe til heiðurs; svo sem tónleikar, leiksýn- ingar, upplestrar, ráðstefnur og margt fleira. Goethe ólst upp í Frankfurt og hafði . . - : Nú eru 250 ár liðin frá fæðingu þýska skáldsins Goethe. Þess verður minnst með veglegri dagskrá víða um Þýskaland. Árið 1999 er helgað þýskum köstiil- um og verða 200 þeirra opnir gest- um og gangandi þetta árið. alla tið dálæti á borginni. Á afmæl- isdegi skáldsins þann 28. ágúst verð- ur haldin gríðarmikil hátíð um gjörvalla Frankfurt. Hápunktur af- mælisdagsins verður síðan þegar Goethe-verðlaunin verða afhent í Pálskirkjunni um kvöldið. Þýska ferðamálaráðið hefur gefið út sér- stakan bækling, tOeinkuðum minn- ingu Goethes og þar má lesa nánar um dagskrárliði hverrar borgar. Ferðamenn eygja því marga möguleika þegar Þýskaland er ann- ars vegar. Fyrir íslendinga verður æ auðveldara að komast tO Þýska- lands en Flugleiðir fljúga nú fjórtán sinnum í viku tO Hamborgar og í sumar er gert ráð fyrir daglegu flugi tO Frankfúrt. Þeir sem vilja kynna sér nánar ferðamögiOeika í Þýsklandi geta far- ið á slóð þýska ferðamálaráðsins www.germany-tourism.de á Netinu. -aþ byrjar 4. janúar 20-60% afsláttur QshKosh F| ONI SPÉ^OPíRR BARNAFATAVERSLUN Laugavegi 35, sími 5521033 Hverafold 1-3, sími 567 6511 Brotthvarf Akraborgar breytir engu: Fleiri hópar heim- sækja Skagann DV, Akranesi:________________ Mynstur þeirra ferðamanna sem koma tíl Akraness hefur breyst eftir að Akraborgin hætti að ganga mOli Akra- ness og Reykjavíkur, að sögn Bjöms S. Lárussonar, markaðs- og atvinnumáia- fúOtrúa Akraneskaupstaðar. Áður fóru margir ferðalangar i dags- ferðir tO Akraness og nýttu sér Akra- borgina. Nú bregður svo við að er- lendu ferðamennimir koma í hópum með rútum og em þeir hópar mun fleiri en áður. Minna er um ferðalanga á eigin vegum. „Ástæðan fyrir þessum aukna áhuga hópa er auðvitað sú að hér er margt að skoða og dugar vart dagurinn tO. Einnig era göngin enn þá forvitnOeg. Ástæðan fyrir fækkun er- lendra ferðamanna á eigin vegum er sú að Akraborgin hafði mikið aðdrátt- arafl og hún siglir ekki lengur. Það sem er hvað ánægjulegast er að hópum íslenskra ferðamanna hefur fjölgað tO muna og þar er um að rasða starfs- mannahópa, klúbba og félagasamtök. Mest er umferðin um helgar þegar þrír tíl fjórir hópar hafa komið sama dag- inn. Við þurfum að einbeita okkur að því að þeir sem sjá um að taka á móti þessum hóþum, þ.e. söfn, veitingastað- ir og gistiátaðir, herði enn á samstarfi í kynnihgarmálum ásamt Akranes- bæ,“ saéöi Bjöm S. Lárusson í samtaO við DV. -DVÓ Útscilci á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum á Grand Hótel Reykjavík 0|' . X°/o tú- HÓTEIy REYKJAVIK Verðdæmi Stærð Verð áður Nú staðgreitt ^ Pakistan sófaborðastærð ca 25 x 175-200 36-42.600 28.300 Chachun, Afghanistan 196x169 84.900 52.400 Balutch, bænamottur 10-16.200 8.900 LOg margt, margt fleira > Raðgreiðslur 'föfra teppig

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.