Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Síða 29
LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 1999
Með neyðarhnapp
um hálsinn
Höfðaborg í Suður-Afríku
hefur mátt þola fækkun ferða-
manna undanfarið og ástæðan
helst sú að borgin þykir ekki
örugg. Fyrir skemmstu létust
tveir ferðamenn og 27 slösuð-
ust á vinsælum ferðamanna-
stað í borginni. Nú ætla borg-
aryfirvöld að koma upp eftir-
litsmyndavélum úti um alla
borg og einnig hefur komiö til
tals að bjóða ferðamönnum að
bera hálsfesti sem á er festur
neyðarhnappur. Þegar ferða-
maöurinn ýtir á hnappinn
hringir hjá lögreglu sem hrað-
ar sér væntanlega á vettvang.
Hvort ferðamönnum hugnast
síðastnefhdi kosturinn á eftir
að koma í Ijós.
iar sökkva inn-
an aínar
ítölsk þingnefnd sem hefur
fjallaö irni vanda Feneyja und-
anfarið hefur afturkallað áætl-
un upp á rúmlega himdrað
miiljarða. í áætluninni fólust
margháttaðar björgunarað-
gerðir til að bjarga borginni frá
því að sökkva í sæ. Á fyrra
helmingi aldarinnar voru flóð
fremur fátíð, aðeins nokkur á
ári en nú eru þau ekki undir
80. Breskir flóðasérfræðingar
segja að árið 2050 megi reikna
meö flóðum á degi hverjum og
í lok næstu aldar verði borgin
að eilífú sokkin í sæ.
Hrikaleg lífsreynsla
Nýjasta vetrarsportiö í
Bandaríkjunum er risavaxinn
plasthnöttm- sem rúmar einn
mann. Hnettinum er komið fyr-
ir á fjallsbrún þar sem farþeg-
inn kemur sér fyrir. Síðan er
hann einfaldlega látinn gossa.
Mikil eftirsókn er í hnettina og
fara sögur af því að niðurferð-
in sé engu lík og tala sumir far-
þeganna um hrikalega lífs-
reynslu. Það er hins vegar ekki
mælt með þungri máltíð á und-
an því veltingurinn getur orðið
óviðráðanlegur.
Týnda borgin á
sýningu
Týnda
borgin
Petra í
Jórdaníu er
efniviður
stórrar sýn-
ingar sem
nýverið var
opnuð í
Washington
í Bandaríkjunum. Jórdanir
hafa sett í gang tveggja ára
áætlun til þess að fá fleiri
ferðamenn til landsins. Týnda
borgin Petra hefur verið aðai-
aðdráttarafl landsins og þang-
að hafa 1,4 milljónir ferða-
manna lagt leið sína árlega. Á
sýningunni er saga borgarinn-
ar rakin í myndum og máli.
Þar er einnig að finna fjöl-
marga listmuni, bronsstyttur,
keramik, olíulampa og margt
fleira sem fornleifafræðingar
hafa grafið upp. Bandaríkja-
menn þekkja borginni aðailega
úr kvikmyndinni vinsælu um
Indiana Jones og er sýning-
unni ætlað að ýta enn frekar
undir áhugann.
33
Þýskaland - hátíðir í anda miðalda og Goethe minnst
I fótspor riddara og prinsa
Þjóðverjar leggja mikla áherslu á
að taka vel á móti ferðamönnum og
víst er að þetta ár verður engin und-
antekning frá því. Þýska ferðamála-
ráðið kynnti nýverið nýja ferðabæk-
linga fyrir árið 1999 og þcir kennir
margra grasa.
Samband þýskra kastala fagnar
aldarafinæli í ár og þess vegna hef-
ur ferðamálaráðið útnefnt árið 1999
Ár þýskra kastala. Af því tilefhi
verða um það bil 200 kastalar opnir
gestum og gangandi. Megináherslan
verður lögð á menningu og líf mið-
alda. í bæklingnum „í fótspor ridd-
ara og prinsa“ er stiklað á dag-
skránni sem hvert hérað stendur
fyrir. Það er von ferðamálaráðsins
að ár þýskra kastala fari ekki fram
hjá nokkrum ferðamanni. Þýsku
kastalamir eiga sér allir langa og
merka sögu sem best er að kynna
sér með heimsókn á staðinn. Þá
verða fjölmargar kastala- eða mið-
aldahátíðir sem ferðamenn geta
sótt. Á þessum hátíðum verður lífið
á miðöldum í brennidepli.
Ferðalanaur-
nqi
inn Goetne
Þótt árið 1999 sé
helgað sögu kastala
í Þýskalandi verður
annarrar merkrar
ártíðar minnst. I ár
eru nefiiilega liðin
250 ár frá því höfuð-
skáld Þjóðverja, Jo-
hann Wolfgang von
Goethe, fæddist í
Frankfurt. Margt
verður gert til að
minnast skáldsins
sem sjálfur férðaðist
mikið og hafði imun
af. í 20 borgum
Þýskalands verða
viðburðir Goethe til
heiðurs; svo sem
tónleikar, leiksýn-
ingar, upplestrar,
ráðstefnur og margt
fleira.
Goethe ólst upp í
Frankfurt og hafði
. . - :
Nú eru 250 ár liðin frá fæðingu þýska skáldsins
Goethe. Þess verður minnst með veglegri dagskrá
víða um Þýskaland.
Árið 1999 er helgað þýskum köstiil-
um og verða 200 þeirra opnir gest-
um og gangandi þetta árið.
alla tið dálæti á borginni. Á afmæl-
isdegi skáldsins þann 28. ágúst verð-
ur haldin gríðarmikil hátíð um
gjörvalla Frankfurt. Hápunktur af-
mælisdagsins verður síðan þegar
Goethe-verðlaunin verða afhent í
Pálskirkjunni um kvöldið. Þýska
ferðamálaráðið hefur gefið út sér-
stakan bækling, tOeinkuðum minn-
ingu Goethes og þar má lesa nánar
um dagskrárliði hverrar borgar.
Ferðamenn eygja því marga
möguleika þegar Þýskaland er ann-
ars vegar. Fyrir íslendinga verður
æ auðveldara að komast tO Þýska-
lands en Flugleiðir fljúga nú fjórtán
sinnum í viku tO Hamborgar og í
sumar er gert ráð fyrir daglegu flugi
tO Frankfúrt.
Þeir sem vilja kynna sér nánar
ferðamögiOeika í Þýsklandi geta far-
ið á slóð þýska ferðamálaráðsins
www.germany-tourism.de á Netinu.
-aþ
byrjar 4. janúar
20-60% afsláttur
QshKosh
F| ONI
SPÉ^OPíRR
BARNAFATAVERSLUN
Laugavegi 35, sími 5521033
Hverafold 1-3, sími 567 6511
Brotthvarf Akraborgar
breytir engu:
Fleiri hópar heim-
sækja Skagann
DV, Akranesi:________________
Mynstur þeirra ferðamanna sem
koma tíl Akraness hefur breyst eftir að
Akraborgin hætti að ganga mOli Akra-
ness og Reykjavíkur, að sögn Bjöms S.
Lárussonar, markaðs- og atvinnumáia-
fúOtrúa Akraneskaupstaðar.
Áður fóru margir ferðalangar i dags-
ferðir tO Akraness og nýttu sér Akra-
borgina. Nú bregður svo við að er-
lendu ferðamennimir koma í hópum
með rútum og em þeir hópar mun
fleiri en áður. Minna er um ferðalanga
á eigin vegum. „Ástæðan fyrir þessum
aukna áhuga hópa er auðvitað sú að
hér er margt að skoða og dugar vart
dagurinn tO. Einnig era göngin enn þá
forvitnOeg. Ástæðan fyrir fækkun er-
lendra ferðamanna á eigin vegum er
sú að Akraborgin hafði mikið aðdrátt-
arafl og hún siglir ekki lengur. Það
sem er hvað ánægjulegast er að hópum
íslenskra ferðamanna hefur fjölgað tO
muna og þar er um að rasða starfs-
mannahópa, klúbba og félagasamtök.
Mest er umferðin um helgar þegar þrír
tíl fjórir hópar hafa komið sama dag-
inn. Við þurfum að einbeita okkur að
því að þeir sem sjá um að taka á móti
þessum hóþum, þ.e. söfn, veitingastað-
ir og gistiátaðir, herði enn á samstarfi
í kynnihgarmálum ásamt Akranes-
bæ,“ saéöi Bjöm S. Lárusson í samtaO
við DV.
-DVÓ
Útscilci
á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum
á Grand Hótel Reykjavík
0|' .
X°/o
tú-
HÓTEIy
REYKJAVIK
Verðdæmi Stærð Verð áður Nú staðgreitt ^
Pakistan sófaborðastærð ca 25 x 175-200 36-42.600 28.300
Chachun, Afghanistan 196x169 84.900 52.400
Balutch, bænamottur 10-16.200 8.900
LOg margt, margt fleira >
Raðgreiðslur
'föfra teppig