Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Qupperneq 32
* ★ 36 * ■* ttmni ■ ____ ★ ★ LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 1999 JLlV ‘T’P' -W * r fc * T< A $7 i \Y*-> Á * AiV'/ Með Leppin í líkamsræktina ALVORU ORKA H www.iin.is/iappin iBppin ■ ISPORT Frábær fæðubótaefni! AAA/ * F 4AAÍ * Ti A^/ i V jr .*/ \ i I Allir langhlauparar þekkja hve erfitt það er að hlaupa í miklum kulda. Heitt kakó „Tvær drykkjarstöðvar voru á leiðinni, annars vegar við Grafar- vogslaugina og hins vegar við Ár- bæjarlaugina. Þar voru hinir hefð- bundnu orkugjafar, bananar og orkudrykkir, en við Grafarvogs- laugina var reynd sú nýjung að bjóða upp á heitt kakó. Margir voru hræddir við að bjóða upp á slíkan drykk fyrir langhlaupara, en hann reyndist vel við að ná hlýju í kalda kroppa á þessum degi. Kakóið hafði einnig að geyma mikla orku,“ sagði Krist- ján. Kristján Ágústsson var einn þeirra 8 sem hlupu allan tímann á meðan dagsbirtunnar naut. Hann er búinn að vera virkur í lang- hlaupum á árinu. „Þetta er sjö- unda hlaupið á árinu sem er 42 km eða lengra hjá mér. Ég er ekki viss um að ráðlegt sé að hlaupa svo mörg langhlaup á einu ári, allavega ef stefnan er að bæta tíma sinn,“ sagði Kristján. Það virðist þó ekki hafa dregið úr ár- angri Kristjáns því hann bætti tíma sinn i mörgum langhlaupum á árinu. Mest var bætingin hjá Kristjáni í Laugavegshlaupinu (milli Landmannalauga og Þórs- merkur) 55 mínútur. -ÍS Fróðleikur fyrir skokkara ur lengi vel verið af skomum skammti. Á síðustu árum hefur þó orðið breyting í þeim efnum. Þeir sem til dæmis hafa aðgang að tölvu og Netinu geta fylgst með fréttum og áhugaverðum greinum á heima- síðu Félags maraþonhlaupara, en þar em birt úrslit hlaupa og ýmsar fróðlegar upplýsingar fyrir skokk- ara. Heimasíða Torfa H. Leifssonar hefur einnig þjónað vel sama hlut- verki. Heimasíðu Félags maraþon- hlaupara er hægt að nálgast á slóð- inni - http://rvik.is- mennt.is/~gisasg - og heimasíðu Torfa H. Leifssonar á http://www.mmedia.is/hlaup/ -. Það búa ekki allir svo vel að hafa aðgang að Netinu þó þeim fari ört fjölgandi. Tvö áhugaverð tímarit fyrir skokkara em gefin út hér á landi. Trimmsíðan hefúr þegar greint frá tímaritinu Hlauparinn sem Sigurður Pétrn- Sigmundsson gefur út. Hitt tímaritið, sem að stórum hluta er ætlað skokkurum, er Frjálsíþróttamaðurinn og gefið út af Frjálsíþróttadeild ÍR. Ritstjóri er Kjartan Rolf Ámason. í því riti em margar áhugaverðar greinar fyrir skokkara, birt úrslit í helstu götuhlaupum, hlaupaskrár, afreka- skrár og viðtöl við fremstu lang- hlaupara landsins. -ÍS Aðgangur áhugamanna að upp- lýsingum um almenningshlaup hef- fVILTU MINNKA FITUHLUTFALL UKAMANS? HA, játakk! flmino Lean toflurnar viðhalda vöðvamassa og auka fitubrennslu. 2 töflur tvisvar á dag. Góð þátttaka í Sólstöðuhlaupi: Hlaupið í 8 stiga frosti Þátttaka í almenningshlaupum hefur verið með besta móti á líð- andi ári þrátt fyrir að framboð hafi aldrei verið meira. Eitt af síð- ustu langhlaupum ársins er Sól- stöðuhlaupið sem fram fór síðast- liðinn laugardag, 19. desember. Það er erfitt hlaup, þrátt fyrir að vera félagshlaup en ekki keppnis- hlaup. Þeir sem hlaupa lengst hlaupa sleitulaust frá sólampprás til sólarlags og leggja því að baki ansi mikla vegalengd. Umsjón Isak Örn Sigurðsson Sólstöðuhlaup var haldiö hér í fýrsta sinn á síðasta ári og er þetta því í annað sinn sem hlaup- ið er haldið. HQaupadaginn sjálfan vom aðstæðin- ekki eins og best verður á kosið. í Reykjavik var þá 8 stiga frost, en þó var það hlaup- urum í hag að veður var stillt og götur snjólausar. Allir lang- hlauparar þekkja hins vegar hve erfitt það er að hlaupa í miklum kulda, en það aftraði samt ekki einum 19 þekktum langhlaupur- um frá því að leggja af stað í þessu hlaupi klukkan 11.20 að morgni (við sólarupprás). Meðal þeirra var Kristján Ágústsson, þekktur hlaupari sem tekur þátt í flestum lengri al- menningshlaupum ársins. „Sól- stöðuhlaupið er fyrst og fremst fé- lagshlaup en ekki keppnishlaup og af þeim sökum var stefnt að því að hver kílómetri yrði hlaupinn á 5,5-6 mínútum. Af einhverjum or- sökum var hraðinn miklu meiri í upphafi hlaupsins. Við fengum þær upplýsingar að loknum 15 km að meðalhraðinn væri 5.04 mín. á hvem kílómetra,“ sagði Kristján. “Það var fullmikill hraði við þessar aðstæður og hópurinn hægði á sér eftir það. Fimmtán manns komu inn í hlaupið á ein- hverjum stigiun þess og þvi voru það alls 34 sem tóku þátt í Sól- stöðuhlaupinu. Þeir voru samt sem áður ekki nema 8 sem hlupu allan tímann, frá sólaruppkomu til sólarlags (klukkan 15.30). Þá hafði reyndar eitthvað teygst úr hópnum. Þeir sem hlupu lengst höfðu lagt að baki um 47 km, en þeir sem hlupu „styst" voru búnir að fara um 42 km. Af þessum 8 var einn hlaupari sem aldrei hafði hlaupið lengri vegalengd en hálft maraþon (um 21 km). Hann var að vonum ánægður að hlaupinu loknu, enda hissa á því að hafa haldið út allan þennan tíma í 8 stiga frosti." 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.