Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 1999 * ■ * ★ * 37 , íbúar nokkurra ríkja Miö-Ameríku munu seint gleymafyrstu dögunum í nóvember þegar fellibylurinn Mitch fór þar um og skildi eftir sig dauóa og eyöi- leggingu. Þúsundir manna týndu lífi og mikill fjöldi missti heimili sín í náttúruhamförunum sem fylgdu í kjölfar Mitch, öflugasta fellibyls sem átt hefur upptök sín í Atlantshafi í ein tvö hundruö ár. Hondúras varö verst úti í hamjorunum en einnig uröu miklar skemmdir í Níkaragva. Háttsettur starfsmaöur matvœlastofnunar Sameinuöu þjóöanna, sagöi í nóvemberbyrjun aö efnahagsklukkan í þessum heimshluta heföi fcerst aftur um tuttugu ár. Rœktarland eyöi- lagöist í stórum stíl og þar meö uppskeran. Þá varö einnig gríöarleg eyöilegging á samgöngumannvirkjum af öllum tegundum. íbúar Miö-Ameríku sendu út neyöarkall og brugöust ríki heims vel við og lofuöu mikilli aöstoö. Ekki hefur ein kona skekiö forsetaembættiö í Bandaríkjun- um jafnmikiö og Monica Lewinsky. Nánast allt nýliöið árfjölluöu bandarískir fjöl- miölar um lítiö annaö en ástar- samband þessa fyrrum lœrlings í Hvíta húsinu og Bills Clint- ons forseta. Forsetinn var meöal annars sakaöur um aö bera Ijúgvitni, misbeitingu valds og aö hindra framgang réttvísinnar í tengsl- um viö rannsókn málsins. Sér- legur saksóknari, Kenneth Starr, eyddi gífurlegum tíma ogfé í aö rannsaka samband Clintons og Monicu og í sept- ember skilaöi hann mörg þús- und blaósíöna skýrslu til full- trúadeildar Bandaríkjaþings. Þar tilgreinir hann fjölda ákœruatriöa á hendur forsetan- um. Fulltrúadeildin samþykkti síöan tvö ákæruatriöi skömmu fyrirjól. Málið er nú í höndum öldungadeildarinnar. Búist er viö aö réttarhöld hefjist yfir forsetanum á næstu dögum en nœsta víst er aö tilskilinn < meirihluti, tveir þriöju hlutar atkvœöa, er ekki til aö sakfella forsetann og hrekja hann úr embætti. Suharto Indónesíuforseti sagöi af sér í maí síöastliönum. Hann haföi þá stjórnaö landinu meö haröri hendi í þrjá ára- tugi. Tíöar róstur höföu oröiö í helstu borgum Indónesíu vik- urnar og mánuöina fyrir afsögn forsetans, meðal annars vegna mikilla efnahagsþrenginga sem landiö haföi rataö í, rétt eins og fjölmörg önnur ríki í Asíu. Námsmenn fóru fyrir andófinu gegn ríkisstjóminni og kröföust þeir meöal annars lýörœöislegra umbóta. Suharto og fjölskylda hans voru sökuö um mikla spillingu og gífurlega auösöfnun á valdaferli forset- ans fyrrverandi. Veriö er aö rannsaka mál hans nú. I$S;í$í8ÍJS-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.