Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Síða 52
•3
2 ln
<
2
C/3 o
FRÉTTASKÖTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá f síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 1999
Brenndust í
andliti
Tveir drengir voru fluttir á
sjúkrahúsið í Keflavík á gamlárs-
kvöld eftir að kínverji sprakk rétt
hjá þeim við heimahús í Njarðvík.
Drengimir voru að leika sér með
flugelda á ellefta timanum þegar
kínverji sprakk í nánd við útikerti
þannig að kertavax skvettist á hend-
ur þeirra og andlit. Þeir voru fluttir
á sjúkrahús þar sem gert var að sár-
um þeirra. Þeir hlutu fyrsta stigs
brunasár en fengu að fara heim að
aðhlynningu lokinni. -hb
Fálkaorðan:
Ellefu
heiðraðir
Forseti íslands sæmdi í dag ellefú
íslendinga heiðursmerkjum hinnar
íslensku fálkaorðu. Tveir hlutu stór-
riddarakross: Haraldur Ásgeirsson,
verkfræðingur í
Reykjavík, fyrir
rannsóknar- og
þróunarstörf í
þágu bygginga-
iðnaðar, og Ólaf-
ur Ólafsson, fyrr-
verandi land-
læknir, fyrir
læknisstörf.
* Níu hlutu
riddarakross:
Einar Egilsson,
Kópavogi, fyrir fræðslu um náttúru
landsins; Gerður G. Óskarsdóttir,
fræðslustjóri í Reykjavík, fyrir störf
að fraé'ðslu- og skólamálum; dr. Guð-
mundur Guðmundsson, verkfræð-
ingur á Akranesi, fyrir rannsóknar-
og þróunarstörf í þágu sementsiðn-
aðar; Helga Ögmundsdóttir, læknir í
Reykjavík, fyrir vísindastörf; Ingvar
Helgason, forstjóri i Reykjavík, fyrir
störf að atvinnu- og líknarmálum; dr.
Páll Skúlason, rektor Háskóla ís-
lands, fyrir fræðistörf; Sigrún Gísla-
dóttir, skólastjóri í Garðabæ, fyrir
störf að máleftium grunnskóla; Svan-
hildur Hermannsdóttir, skólastjóri
Bamaskóla Bárðdæla, fyrir störf að
æskulýðs- og menningarmálum í
dreifbýli; Þórunn Pálsdóttir, hjúkr-
unarforstjóri í Reykjavík, fyrir störf í
þágu geðfatlaðra. -sm
Ingvar Helgason,
forstjóri.
Vesturlandsvegur:
Bíll fór út af
Bíll fór út af Vesturlandsvegi við af-
leggjarann þar sem keyrt er til Akra-
ness á áttunda tímanum í gærmorgun.
Mikil hálka var á veginum en nóttina
áður hafði gert ísingu. Billinn rann til
á veginum og endaði á steinsteyptum
kanti utan vegar. Ökumaður var einn
í bílnum og slasaðist ekki en bíllinn er
• mikið skemmdur. -hb
Erill var hjá lögreglu víða um
land á gamlárskvöld og aðfaranótt
nýársdags og fram undir morgun.
Um sex þúsund manns vom saman
komin í miðborg Reykjavíkur og
annars staðar safnaðist fólk einnig
saman í hópum. Hátíðin gekk stór-
slysalaust að sögn lögreglu en ölvun
var mikil. Tíu ökumenn vom grun-
aðir um ölvun við akstur í Reykja-
vík og þrír í Kópavogi. Lögreglan í
Reykjavík segir fjölda útkalla svip-
aðan og um síðustu áramót. Einn
flugeldur braut rúðu í Hafnarfirði
og olli skemmdum og þá var póst-
kassi í Garðabæ sprengdur upp. Þar
kviknaði í flugeldum á pallbíll sem
skemmdist töluvert. Þá var Akur-
eyringur búinn með flugeldana og
skaut úr haglabyssu upp í heiðskír-
an himininn. -hb
Stórslysa-
laus áramót
Hin hamingjusömu Óttar Jónsson og Berglind Valberg sem eignuðust fyrsta barn ársins 1999 - um það leyti sem
höfuðborgin lék á reiðiskjálfi í öllum sprengingunum laust upp úr miðnætti á gamlárskvöld. Þau iétu fara vel um sig
með litla drengnum sínum uppi f rúmi á fæðingardeildinni þegar DV kom í heimsókn á nýársdag. DV-mynd Pjetur
Fyrsta barn ársins fæddist á fæðingardeild Landspítalans klukkan 00.50:
Pabbi á gamlársdag
en barnið á nýársdag
- foreldramir höfðu undirbúið afmæli föðurins á gamlársdag þegar hríðir hófust
„Hann var dálítið að flýta sér að
koma í heiminn þvi ég átti ekki að
fæða fyrr en 5. janúar. Það munaði
reyndar ekki nema tæpri klukku-
stund að drengurinn ætti ssuna af-
mælisdag og pabbinn þvi hann átti
afmæli á gamlársdag," sagði Berg-
lind Valberg, 25 ára, úr Reykjavík,
sem fæddi fyrsta bam ársins 1999
þegar fimmtíu mínútur voru liðnar
af árinu. Óttar Jónsson, sendibíl-
stjóri hjá Istaki og nemi í rafeinda-
virkjun, er faðir bamsins. Hann er
líka áramótabam - fæddist klukkan
sex, um það leyti sem messað var, á
gamlársdag fyrir 26 árum.
Óttar og Berglind, sem starfaði
hjá Júmhósamlokum áður en hún
tók sér barneignarfrí, áttu von á
sínu fyrsta bami og vora eiginlega
að búa sig undir að halda upp á af-
mæli hins tilvonandi fóður þegar
konan fór að fá fæðingarhríðir.
„Það var búið að gera ráðstafanir
meðal annars með því að kaupa
tívolíbombur. Við áttum ekki von á
þvi að eyða gamlárskvöldi á fæðing-
ardeildinni," sagði Óttar. „Þetta
byrjaði eiginlega ekki af alvöru hjá
Berglindi fyrr en klukkan hálfeitt
um nóttina. Svo var hún bara búin
klukkan tiu mínútur fyrir eitt. Við
fréttum síðan um morguninn að
þetta væri fyrsta bam ársins," sagði
faðirinn sem hélt stoltur á fmm-
burði sínum, myndarstrák, uppi í
-fúmi hjá mömmunni. Fjölskyldan
hafði sofið nánast í einum faðmi
þegar foreldramir tóku góðfúslega á
móti DV í gær.
En var það ekki skrýtin tilfinning
að eiga stutt eftir í að eiga bam -
þegar allt er á öðrum endanum?
„Jú, það var verið að sprengja á
fullu. En við reyndum bara að taka
sem mest af efni upp á myndband út
um gluggann fyrir Berglindi þannig
að hún gæti séð þetta síðar," sagði
Óttar.
„Þegar ég var með sem mestar
hríðir varð ég varla vör við þetta -
heyrði bara smásprengingar. Ég
held ég hafi verið að hugsa um eitt-
hvað annað. Síðan gekk fæðingin
eins og í sögu,“ sagði Berglind.
Drengurinn, sem svipar óneitanlega
mjög til fóðurins, reyndist vera 13
merkur að þyngd og 49 sentímetra
langur. Hann hefur ekki verið
nefndur enn þá. -Ótt
Framsókn í Reykjavík:
Ólafur Örn og
Alfreð berjast
Blóðugur próf-
kjörsslagur er haf-
irm í Framsóknar-
flokknum i
Reykjavík. Hann
hófst þegar Alffeð
Þorsteinsson borg-
arfúlltrúi lýsti því
yfir að hann gæfi
kost á sér í annað
sætið gegn Ólafi
Emi Haraldssyni
alþingismanni. Al-
freð Þorsteinsson
tiikynnti formlega
um þátttöku sína í
prófkjörinu
skömmu fyrir kl.
17 þann 30. desem-
ber og lagði jafh-
framt ffarn inn-
tökubeiðni 396
manns í Fram-
sóknarfelag
Reykjavíkur.
Stuðningsmenn Ólafs Amar Har-
aldssonar hafa einnig unnið hörðum
höndum undanfama daga. DV hefúr
ekki nákvæmar upplýsingar um
hversu marga nýja félagsmenn þeir
hafa krækt í, en eftir því sem næst
verður komist er fjöldinn svipaður.
Stuðningsmenn Ólafs Amar er eink-
um að flnna meðal náttúmvemdar-
sinna og útivistarfólks, en Ólafúr gekk
sem kunnugt er gegn samþingmanni
sinum Páli Péturssyni og barðist gegn
hálendiskafla nýju sveitarstjómarlag-
anna. Samkvæmt heimildum DV em
hinir nýju framsóknarmenn Aifreðs að
stórum hluta starfsmenn hjá veitu-
stoftiunum borgarinnar og lögreglu-
menn. Það er rakið til þess að veitu-
stofnanir keyptu af felagi lögreglu-
manna jörðina Hvammsvík í Kjós sem
var félaginu þung byrði. -SÁ
Ólafur Örn Har-
aldsson alþingis-
inaður.
Alfreð Þorsteins-
son borgarfulltrúi.
Veðrið á morgun
og mánudag:
Norðaustlæg
átt í byrjjun árs
Á morgun og mánudag er gert
ráð fyrir norðaustlægri átt. Víða
er búist við kalda en stinnings-
kaldi eða allhvasst verður á
Vestfjörðum. Gert er ráð fyrir
rigningu eöa slyddu í flestum
landshlutum, einkum austan til.
Hiti verður yfhieitt á bilinu 0 til
5 stig.
Veðrið í dag er á bls. 49.
MERKiLEGA MERKIVELIN
brother PT-220 nv véi
Islenskir stafir
Taska fylgir
8 leturgerðir, 6 stærðir
6, 9, 12, 18 mm borðar
Prentar í 4 línur
Aðeins kr. 10.925
n
Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
-gœði, úrval og gott verð