Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Qupperneq 52

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Qupperneq 52
•3 2 ln < 2 C/3 o FRÉTTASKÖTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá f síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 1999 Brenndust í andliti Tveir drengir voru fluttir á sjúkrahúsið í Keflavík á gamlárs- kvöld eftir að kínverji sprakk rétt hjá þeim við heimahús í Njarðvík. Drengimir voru að leika sér með flugelda á ellefta timanum þegar kínverji sprakk í nánd við útikerti þannig að kertavax skvettist á hend- ur þeirra og andlit. Þeir voru fluttir á sjúkrahús þar sem gert var að sár- um þeirra. Þeir hlutu fyrsta stigs brunasár en fengu að fara heim að aðhlynningu lokinni. -hb Fálkaorðan: Ellefu heiðraðir Forseti íslands sæmdi í dag ellefú íslendinga heiðursmerkjum hinnar íslensku fálkaorðu. Tveir hlutu stór- riddarakross: Haraldur Ásgeirsson, verkfræðingur í Reykjavík, fyrir rannsóknar- og þróunarstörf í þágu bygginga- iðnaðar, og Ólaf- ur Ólafsson, fyrr- verandi land- læknir, fyrir læknisstörf. * Níu hlutu riddarakross: Einar Egilsson, Kópavogi, fyrir fræðslu um náttúru landsins; Gerður G. Óskarsdóttir, fræðslustjóri í Reykjavík, fyrir störf að fraé'ðslu- og skólamálum; dr. Guð- mundur Guðmundsson, verkfræð- ingur á Akranesi, fyrir rannsóknar- og þróunarstörf í þágu sementsiðn- aðar; Helga Ögmundsdóttir, læknir í Reykjavík, fyrir vísindastörf; Ingvar Helgason, forstjóri i Reykjavík, fyrir störf að atvinnu- og líknarmálum; dr. Páll Skúlason, rektor Háskóla ís- lands, fyrir fræðistörf; Sigrún Gísla- dóttir, skólastjóri í Garðabæ, fyrir störf að máleftium grunnskóla; Svan- hildur Hermannsdóttir, skólastjóri Bamaskóla Bárðdæla, fyrir störf að æskulýðs- og menningarmálum í dreifbýli; Þórunn Pálsdóttir, hjúkr- unarforstjóri í Reykjavík, fyrir störf í þágu geðfatlaðra. -sm Ingvar Helgason, forstjóri. Vesturlandsvegur: Bíll fór út af Bíll fór út af Vesturlandsvegi við af- leggjarann þar sem keyrt er til Akra- ness á áttunda tímanum í gærmorgun. Mikil hálka var á veginum en nóttina áður hafði gert ísingu. Billinn rann til á veginum og endaði á steinsteyptum kanti utan vegar. Ökumaður var einn í bílnum og slasaðist ekki en bíllinn er • mikið skemmdur. -hb Erill var hjá lögreglu víða um land á gamlárskvöld og aðfaranótt nýársdags og fram undir morgun. Um sex þúsund manns vom saman komin í miðborg Reykjavíkur og annars staðar safnaðist fólk einnig saman í hópum. Hátíðin gekk stór- slysalaust að sögn lögreglu en ölvun var mikil. Tíu ökumenn vom grun- aðir um ölvun við akstur í Reykja- vík og þrír í Kópavogi. Lögreglan í Reykjavík segir fjölda útkalla svip- aðan og um síðustu áramót. Einn flugeldur braut rúðu í Hafnarfirði og olli skemmdum og þá var póst- kassi í Garðabæ sprengdur upp. Þar kviknaði í flugeldum á pallbíll sem skemmdist töluvert. Þá var Akur- eyringur búinn með flugeldana og skaut úr haglabyssu upp í heiðskír- an himininn. -hb Stórslysa- laus áramót Hin hamingjusömu Óttar Jónsson og Berglind Valberg sem eignuðust fyrsta barn ársins 1999 - um það leyti sem höfuðborgin lék á reiðiskjálfi í öllum sprengingunum laust upp úr miðnætti á gamlárskvöld. Þau iétu fara vel um sig með litla drengnum sínum uppi f rúmi á fæðingardeildinni þegar DV kom í heimsókn á nýársdag. DV-mynd Pjetur Fyrsta barn ársins fæddist á fæðingardeild Landspítalans klukkan 00.50: Pabbi á gamlársdag en barnið á nýársdag - foreldramir höfðu undirbúið afmæli föðurins á gamlársdag þegar hríðir hófust „Hann var dálítið að flýta sér að koma í heiminn þvi ég átti ekki að fæða fyrr en 5. janúar. Það munaði reyndar ekki nema tæpri klukku- stund að drengurinn ætti ssuna af- mælisdag og pabbinn þvi hann átti afmæli á gamlársdag," sagði Berg- lind Valberg, 25 ára, úr Reykjavík, sem fæddi fyrsta bam ársins 1999 þegar fimmtíu mínútur voru liðnar af árinu. Óttar Jónsson, sendibíl- stjóri hjá Istaki og nemi í rafeinda- virkjun, er faðir bamsins. Hann er líka áramótabam - fæddist klukkan sex, um það leyti sem messað var, á gamlársdag fyrir 26 árum. Óttar og Berglind, sem starfaði hjá Júmhósamlokum áður en hún tók sér barneignarfrí, áttu von á sínu fyrsta bami og vora eiginlega að búa sig undir að halda upp á af- mæli hins tilvonandi fóður þegar konan fór að fá fæðingarhríðir. „Það var búið að gera ráðstafanir meðal annars með því að kaupa tívolíbombur. Við áttum ekki von á þvi að eyða gamlárskvöldi á fæðing- ardeildinni," sagði Óttar. „Þetta byrjaði eiginlega ekki af alvöru hjá Berglindi fyrr en klukkan hálfeitt um nóttina. Svo var hún bara búin klukkan tiu mínútur fyrir eitt. Við fréttum síðan um morguninn að þetta væri fyrsta bam ársins," sagði faðirinn sem hélt stoltur á fmm- burði sínum, myndarstrák, uppi í -fúmi hjá mömmunni. Fjölskyldan hafði sofið nánast í einum faðmi þegar foreldramir tóku góðfúslega á móti DV í gær. En var það ekki skrýtin tilfinning að eiga stutt eftir í að eiga bam - þegar allt er á öðrum endanum? „Jú, það var verið að sprengja á fullu. En við reyndum bara að taka sem mest af efni upp á myndband út um gluggann fyrir Berglindi þannig að hún gæti séð þetta síðar," sagði Óttar. „Þegar ég var með sem mestar hríðir varð ég varla vör við þetta - heyrði bara smásprengingar. Ég held ég hafi verið að hugsa um eitt- hvað annað. Síðan gekk fæðingin eins og í sögu,“ sagði Berglind. Drengurinn, sem svipar óneitanlega mjög til fóðurins, reyndist vera 13 merkur að þyngd og 49 sentímetra langur. Hann hefur ekki verið nefndur enn þá. -Ótt Framsókn í Reykjavík: Ólafur Örn og Alfreð berjast Blóðugur próf- kjörsslagur er haf- irm í Framsóknar- flokknum i Reykjavík. Hann hófst þegar Alffeð Þorsteinsson borg- arfúlltrúi lýsti því yfir að hann gæfi kost á sér í annað sætið gegn Ólafi Emi Haraldssyni alþingismanni. Al- freð Þorsteinsson tiikynnti formlega um þátttöku sína í prófkjörinu skömmu fyrir kl. 17 þann 30. desem- ber og lagði jafh- framt ffarn inn- tökubeiðni 396 manns í Fram- sóknarfelag Reykjavíkur. Stuðningsmenn Ólafs Amar Har- aldssonar hafa einnig unnið hörðum höndum undanfama daga. DV hefúr ekki nákvæmar upplýsingar um hversu marga nýja félagsmenn þeir hafa krækt í, en eftir því sem næst verður komist er fjöldinn svipaður. Stuðningsmenn Ólafs Amar er eink- um að flnna meðal náttúmvemdar- sinna og útivistarfólks, en Ólafúr gekk sem kunnugt er gegn samþingmanni sinum Páli Péturssyni og barðist gegn hálendiskafla nýju sveitarstjómarlag- anna. Samkvæmt heimildum DV em hinir nýju framsóknarmenn Aifreðs að stórum hluta starfsmenn hjá veitu- stoftiunum borgarinnar og lögreglu- menn. Það er rakið til þess að veitu- stofnanir keyptu af felagi lögreglu- manna jörðina Hvammsvík í Kjós sem var félaginu þung byrði. -SÁ Ólafur Örn Har- aldsson alþingis- inaður. Alfreð Þorsteins- son borgarfulltrúi. Veðrið á morgun og mánudag: Norðaustlæg átt í byrjjun árs Á morgun og mánudag er gert ráð fyrir norðaustlægri átt. Víða er búist við kalda en stinnings- kaldi eða allhvasst verður á Vestfjörðum. Gert er ráð fyrir rigningu eöa slyddu í flestum landshlutum, einkum austan til. Hiti verður yfhieitt á bilinu 0 til 5 stig. Veðrið í dag er á bls. 49. MERKiLEGA MERKIVELIN brother PT-220 nv véi Islenskir stafir Taska fylgir 8 leturgerðir, 6 stærðir 6, 9, 12, 18 mm borðar Prentar í 4 línur Aðeins kr. 10.925 n Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport -gœði, úrval og gott verð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.