Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1999, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999
Fréttir_____________________________________________________________________
ísafoldarprentsmiðja kærir Landssímann vegna prentunar símaskrárinnar:
Forkastanlegt aö bjóða
prentunina ekki út
- segir Kristþór Gunnarsson framkvæmdastjóri - Odda afhent verkið
íscifoldarprentsmiðja hefur kært
Landssímann hf. til Samkeppnis-
stofnunar, kærunefndar útboðsmála
hjá fjármálaráðuneytinu og ESA -
Eftirlitsstofnunar EFTA - vegna
þess að Landssíminn hefur samið
við Prentmsiðjuna Odda um prent-
um símaskrárinnar 1999 án undan-
gengins úthoðs. Kristþór Gunnars-
son, framkvæmdastjóri ísafoldar-
prentsmiðju, segir klárlega brotið
gegn útboðsreglum ríkisins með því
að rétta Odda prentun símaskrár-
innar á silfurfati.
„Sem framkvæmdastjóri annarr-
ar stærstu prentsmiðju landsins,
prentsmiðju sem búin er öllum
tækjum til að prenta símaskrána,
finnst mér forkastanlegt og i raun
óskiljanlegt að svo stórt verk skuli
ekki boðið út. Prentun símaskrár-
innar er langt yfir þeim mörkum
sem ríkið setur sér í reglum um út-
boð, þ.e. að öll verk sem eru dýrari
en 3 milljónir króna skuli boðin út.
Skiptir engu þó Landssíminn sé
hlutafélag þar sem fyrirtækið er
100% í eigu ríkisins."
Kristþór vill undirstrika að Lands-
síminn hafi ýtt undir kænnmar.
„Þegar við grennsluðumst fyrir
um prentun símaskrárinnar fyrir
ári var okkur tjáð að þá yrði
siðsata skiptið sem prentun henn-
ar yrði ekki boðin út. Það kom
okkur því verulega á óvart nú að
búið væri að gera saming við Odda
um prentun hennar. ísafoldar-
prentsmiðja er orðin önnur
stærsta prentsmiðja landsins og
mun velta 400-500 milljónum á
þessu ári. Hún hefur öll tæki og
búnað til að annast prentun síma-
skrárinnar.“
Kristþór segir Odda hafa prent-
að símaskrána í um 30 ár. Þegar
svo stór verkefni væru afhent frá
ríkinu hlyti það að skekkja alla
samkeppnisstöðu á markaðnum.
„Ef þú færð afhent svo stórt verk
ár eftir ár hlýtur það að verða
ákveðin kjölfesta í rekstrinum og
gera viðkomandi perntsmiðju sam-
keppnishæfari en aðrar. Umrædd
perntsmiðja getur þá boðið hag-
stæðari verð fyrir önnur verk. Það
getur varla verið markmið ríkisins
að hygla einu fyrirtæki á kostnað
annars.“
-hlh
Tölvuvefur
opnaður á
Vísi.is í gær
Tölvuvefur yar opnaður á
Vísi.is í gær. Á vefnum er að
finna innlendar og erlendar
fréttir úr heimi tölva, Intemets
og upplýsingatækni. Fylgst verð-
ur sérstaklega með gangi mála
hjá íslenskum tölvufyrirtækjum
en auk þess verður regluleg um-
fjöllun um leiki, annan tölvu-
hugbúnað og vélbúnað. Lesend-
um vefsins gefst einnig færi á aö
segja hug sinn um allt milli him-
ins og jarðar er varðar tölvur
jafnframt því sem viðhorf les-
enda til álitamála líðandi stund-
ar verða könnuð í atkvæða-
greiöslu. Vefurinn er samstarfs-
verkefni DV, Dags, Viöskipta-
blaðsins og Vísis og er í umsjón
Vísis.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra:
Ráðuneytið var að gera skyldu sína
- og skrifaði dómara samkvæmt ábendingu bandarískra stjórnvalda
„Samningurinn sem þetta mál
byggir á er milli bandarískra og ís-
lenskra stjórnvalda. Ráðuneytinu
ber að halda uppi réttum skilningi á
þessum samningi af hálfu islenskra
stjómvalda. Málið er að öðru leyti
útskýrt í fréttatilkynningu ráðu-
neytisins frá því á föstudag," sagði
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra, þegar DV spurði hann hvers
vegna utanríkisráðuneytið og sendi-
ráð íslands í Washington komu að
samkeppnismálum skipafélaga,
Eimskips og Atlantsskips, sem
kepptu um flutninga fyrir Varnar-
liðið á Keflavíkurflugvelli.
Utanríkisráðuneytið segir fyrstu
frétt DV síðastliðinn fimmtudag „gefa
villandi mynd af staðreyndum máls-
ins“. Segir í fréttatilkynningunni að í
munnlegum mál-
flutningi vegna máls
Eimskipafélags ís-
lands gegn banda-
riskum stjórnvöld-
um, 6. janúar síðast-
liðinn, hafi lögmað-
ur bandariska
dómsmálaráðuneyt-
Halldór isjns fullyrt að um-
Ásgrímsson. fjöllunarefnið í
málaferlunum væri
til diplómatískrar meðferðar banda-
rískra og íslenskra stjómvalda. Af
þeim sökum væri einkaaðila óheimilt
að höfða dómsmál.
„Fullyrðing lögmannsins var
röng, enda höföu bandarísk stjóm-
völd ítrekað hafnað ósk utanríkis-
ráðuneytisins um að eiga samn-
ingaviðræður um málið, sem varð-
ar meðal annars túlkun samnings
og samkomulags milli íslands og
Bandaríkjanna um sjóflutninga
fyrir Varnarliðið frá 24. september
1986,“ segir í fréttatilkynningu ut-
anríkisráðuneytisins.
Ráðuneytið segir að á þessu
stigi hafi þótt rétt að leiðrétta
ranga fullyrðingu og var sendiráð-
inu vestra falið að hafa samband
við bandarísk stjórnvöld í því
skyni og óska eftir að þau leiðréttu
ummæli þessi. Það töldu þau sér
ekki fært en bentu sendiráðinu á
að koma leiðréttingu á framfæri
við dómara málsins. Ritaði sendi-
herra íslands í Washington dómar-
anum bréf samkvæmt fyrirmælum
frá ráðuneytinu þar sem þessi full-
yrðing lögmanns bandaríska
dómsmálaráðuneytisins var leið-
rétt.
„Dómari málsins, sem hefur
samkvæmt reglum dómsins nokk-
uð frjálsar hendur varðandi við-
töku á bréfum sem þessum, tók við
bréfinu, en ákvað síðan að endur-
senda það,“ segir í fréttatilkynn-
ingu utanríkisráðuneytisins.
-JBP
Sjá frétt um málið á bls. 4.
Fulltrúar Landssímans og Opinna kerfa kynntu hið nýja fyrirtæki í gær.
DV-mynd E. Ól.
Landssíminn og Opin kerfi:
Stofna hátæknifyrirtæki
Landssimi íslands hf. og Opin
kerfi hf. hafa stofnað nýtt hátækni-
fyrirtæki á sviði lausna fyrir tölvur
og síma. Nýja fyrirtækið heitir
Grunnur - gagnalausnir ehf. og á
hvort fyrirtæki fyrir sig helming í
hinu nýja fyrirtæki. Hlutafé verður í
byrjun 50 milljónir króna. Stjórnar-
formarður fyritækisins er Þór Jes
Þórisson, framkvæmdastjóri hjá
Landssímanum, varaformaður
stjómar er Frosti Bergsson, forstjóri
Opinna kerfa, og framkvæmdastjóri
er Bjöm Jónsson. Á kynningarfundi
fyrirtækisins í gær sögðu forsvars-
menn að hugmyndin með stofnun
Grunns væri að þróa hugbúnaðar-
lausnir á sviði tölvu- og símkerfa.
Auk þess yrði unniö að því að veita
heildarlausnir á sviði síma-, tölvu-
og netkerfa fyrir stærri fyrirtæki og
stofnanir. Til að byrja með verða fáir
starfsmenn hjá fyrirtækinu en til
greina kemur að Landssíminn og
Opin kerfi færi starfsmenn sína í
tímabundin verkefni hjá nýja fyrir-
tækinu. Landssíminn og Opin kerfi
hafa áður unnið í sameiningu að
heildarlausnum á sviði tölvu- og sím-
kerfa en tölvukerfi Neyðarlínunnar
er t.a.m. unnið i samvinnu þessara
fyrirtækja. -hb
Stuttar fréttir r>v
Vilja varaformennsku
Geir H. Haar-
de fjármálaráð-
herra og Sól-
veig Pétursdótt-
ir þingflokks-
formaður sækj-
ast bæði eftir
þvi að verða
varaformenn
Sjálfstæðisflokksins. Geir er
ósammála hugmyndum Bjöms
Bjamasonar um að leggja varafor-
mannsembættið niður. Morgun-
blaöiö sagði frá.
Aðgangur að markaði
Ernesto Zedillo, forsætisráð-
herra Mexikó, sagði þegar hann
bauð Davíð Oddsson forsætisráð-
herra velkominn til Mexíkó að
Mexíkóstjórn væri tilbúin til að
greiða leið íslenskrar framleiðslu
inn á Ameríkumarkað.
Leiðbeinandi fékkst
RÚV segir að kennt verði sam-
kvæmt stundaskrá í dag í 11 ára
bekk í Austurbæjarskóla. Maggý
Hrönn Hermannsdóttir hætti um
sl. mánaðamót. Tekist hefur að
ráða leiðbeinanda fyrir bekkinn.
Réttindakennari fékkst ekki.
Hávaðarok
Snemma í morgun tók að
hvessa mjög á höfuðborgarsvæð-
inu, Suðvestur- og Suðurlandi.
Rafmagn fór af hluta Grafarvogs í
hálftíma upp úr kl. 5.30 vegna
roks, slyddu og seltu á raflinum.
Ófært var um Hellisheiði vegna
stórhríðar í morgun og Þrengslin
illfær.
Segist nú saklaus
Annar tvíburanna sem dæmdir
voru fyrir morð á manni í Heið-
mörk á síðasta ári segist nú vera
saklaus. Bróðir hans tekur undir
þann framburð.
Nýr útibússtjóri
Þorsteinn
Ólafs hefur ver-
ið ráðinn úti-
bússtjóri Aust-
urbæjarútibús
Búnaðarbanka
íslands hf.
Þorsteinn
lauk prófi í við-
skiptafræði frá HI árið 1982 og
varð löggiltur verðbréfamiðlari
áriö 1987. Þorsteinn var ráðgjafi
hjá Fjárfestingarfélagi íslands hf.
1984-1987. Hann var forstöðumað-
ur Verðbréfaviðskipta Samvinnu-
bankans (síðar Samvinnubréfa
Landsbankans) 1987-1996. Þor-
steinn var framkvæmdastjóri
Handsals hf. áður en hann réðst
til Búnaðarbankans.
Nýherji lækkar
Hlutabréf Nýherja lækkuðu
verulega í verði í gær eða um
10,4% í þremur viðskiptum, alls
að fjárhæð 4,1 milljón. Síðasta
gengi í gær var 9,50. Hins vegar
hækkuðu hlutabréf Pharmaco um
nær 10% í viðskiptum fyrir liðlega
36 milljónir. Alls námu hluta-
bréfaviðskipti 120 milljónum
króna í gær.
Verðhækkun á áfengi
Verð á áfengi breyttist í gær.
Bjór hækkaði að meðaltali um
0,33% og annað áfengi að meðal-
tali um 0,85%.
Öskur og eyðilegging
Kennari eyðilagði lokaverkefni
stúdents og annar öskraöi á nem-
anda í miðri kennslustund á nið-
urlægjandi hátt. Bæði þessi mál
og fleiri hafa komiö til úrlausnar
hjá Réttindaskrifstofú stúdenta.
Stúdentablaðið sagði frá.
Fréttamaður handtekinn
Logi Berg-
mann Eiðsson
fréttamaður var
handtekinn og
færður í lög-
reglubíl þegar
hann var að
afla frétta á
vettvangi brun-
ans viö málnir
Hörpu sl. sunnudagskvöld. Búið
var að opna svæðið fyrir frétta-
mönnum. -sÁ