Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1999, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1999, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999 ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999 23 Iþróttir Sportkorn Evrópukeppnin næst C-liö Valsmanna kom skemmtilega á óvart í bikar- keppninni í handbolta í vetur og var rétt búiö aö slá út stjömu- lið Aftureld- ingar. Þar voru innan- borðs kappar á borð viö Ólaf Benediktsson, Brynjar Haróar- son, Stefán Hilmarsson söngv- ara, Bjarna Ákason, forstjóra ACO, fótboltamennina Lárus Sigurösson og Einar Örn Birg- isson, svo einhverjir séu nefndir. En þó bikarinn sé að baki hyggur Valur-C á nýja landvinninga. Forráöamenn liðsins stefna á þátttöku í Evrópukeppni næsta vetur. Þeir telja það auðsótt mál, íslensk lið séu hætt að taka þátt og þvi hljóti þeir að fá sætið, sæk- ist þeír eftir því. Valsararnir stefha á að spila báöa leikina erlendis, láta sem sagt mótherjana borga fyrir sig góða utanlandsferð og fara í gott frí í leiðinni. Kristinn meö lumbrung Það hefur ekki verið gaman að fylgjast með Kristni Björnssyni í heimsbikam- um í vetur. Það hefur hins vegar verið gaman aö fylgjast með Kristni Svanbergssyni, framkvæmda- stjóra Skíðasambandsins sem hefur tekið þátt í flestum sjón- varpslýsingum frá mótunum. Lengi vel sendi hann nafna sín- um „góða strauma" og aldrei brást það að Bjömsson datt. Á síðasta móti skýröi Svanbergsson frá því að Björnsson hefði verið með „lumbrung" alla vikuna og því ekki við miklu að búast. Þeg- ar Bjömsson var dottinn var það síðan „ljósið í myrkrinu" að Kalle Palander, æfingafélagi hans, skyldi enda í 6. sætinu. Jólabókin er komin Þaö hefur varla brugðist í manna minn- um að móta- bók Hand- knattleiks- sambands ís- lands hefur komið út löngu eftir að íslandsmótið hefst að hausti. Svo seint hefur hún stundum verið á ferðinni aö hún hefur verið kölluð Jólabók- in“. öll met voru þó slegin á þessu timabili. íþróttadefld DV barst bókin í hendur síðastliðinn fóstudag, fjórum mánuðum eftir að mótiö hófst og 17 umferðir voru búnar af 1. defldar keppni karla. Jólabókin hlýtur því að þessu sinni að fara beint á febrú- arútsölumar. Vísaöi áhorfanda á dyr Gunnlaugur „Labbi“ Hjálm- arsson hand- knattleiks- dómari lætur engan bflbug á sér finna þó kominn sé á sjötugsaldur. Labbi var á sínum tíma einn besti handboltamaður þjóð- arinnar og vanur að taka vel á mótherjum sinum. Labhi sýndi mikla röggsemi í Eyjum á dög- unum þegar hann dæmdi leik ÍBV og Selfoss. Þar varð áhorf- anda það á að grlpa boltann áöur en hann fór út af vellinum i einu hominu. Labbi brást ókvæða við og dæmdi Selfýssingum boltann. Síðan þreif hann af ákveðni í áhorfandann, gekk með hann að dyrum fram á gang, ýtti honum út og skellti. Síðan hélt leikurinn áfram eins og ekkert hefði í skorist. Umsjón: Víöir Sigurðsson Rúnar skoraði átta - í óvæntum stórsigri Göppingen á Dormagen Rúnar Sigtryggsson var í miklum ham um helgina þegar lið hans, Göppingen, vann óvæntan stórsigur á toppliði Dormagen, 33-20, í þýsku B-deildinni i hand- knattleik. Rúnar skoraði 8 mörk í leiknum, öll utan af velli, og átti jafnframt stórleik í vöm Göpp- ingen. íslendingamir þrír hjá Dormagen vom ekki áberandi, Héðinn Gilsson og Ró- bert Sighvatsson skoruðu 2 mörk hvor en Daði Hafþórsson komst ekki á blað. Gústaf Bjamason og félagar í Willstatt nýttu sér þetta og tóku forystuna með stórsigri á Aue, 33-23. Gústaf skoraði 5 mörk fyrir Wiflstátt í leiknum. Þá skoraöi Haraldur Þorvarðarson 3 mörk fyrir Dússeldorf sem sigraði Leuter- hausen á útivelli, 23-28. Willsátt er í topp sætinu með 42 stig, Dormagen hefur 40 og Leuter- hausen 35. Dússeldorf er í 13. sætinu með 14 stig. -VS/GH 14. umferð 1. deildar kvenna: KR unnu Stúdínur vom með hugann við komandi bikarúrslitaleik við topplið KR er þær fengu ákveðnar ÍR-stúlkur í heimsókn í gærkvöld. ÍS hefur nú unnið 7 af 8 heimaleikjum sínum í vetur og hafði loks sigur, 52-42, eftir að hafa leitt í leikhléi, 26-20. ÍR-liðið stóð sig vel í þessum leik og léku þær Þómnn Bjamadóttir, sem gerði 15 stig og tók 12 fráköst, og Hildur Sig- urðardóttir þeirra best. Gréta Grét- arsdóttir stóð þeim ekki heldur langt að baki en Stúdínur fengu að kenna á hörðum leik gestanna sem gáfu ekk- ert eftir hvað baráttu varðar og tóku meðal annars 10 sóknarfráköst í seinni háifleik þrátt fyrir að vera með mun minna lið. Alda Leif Jónsdóttir og Signý Her- mannsdóttir fóm fyrir liði ÍS að venju. Alda Leif skoraði 14 stig á 21 mínútu og Signý gerði 10 stig auk 10 frákasta, 6 stolinna bolta og 4 varinna skota. Úkraínski leikmað- urinn hjá ÍS, Liliya Sushko, fann sig ekki, gerði aöeins 4 stig og hitti að- eins úr 2 af 10 skotum sínum. ÍS þarf að laga margt ætli þær sér að eiga möguleika gegn KR á laugardaginn. Liðið hitti aðeins 16 af 46 skotum sín- um í leiknum og tapaði alls 31 bolta. Það var því allt annað að sjá til liðs- ins en í bikarsigrinum gegn Keflavík á dögunum. Stig ÍS:Alda Leif Jónsdóttir 14. Signý Hermannsdóttir 10, María B. Leifsdóttir 6, Lovisa Guðmundsdóttir 6, Kristjana B. Zidane leikmaður ársins Zinedine Zidane frá Frakklandi var í gærkvöld útnefndur knattspymumaður ársins 1998 í heiminum af Alþjóða knatt- spymusambandinu. Zidane fékk 518 stig frá 132 landsliðsþjálfur- um víðs vegar að, þar af settu 93 hann í efsta sæti. Næstur kom Ronaldo frá Brasilíu með 164 stig og þriðji varð Davor Suker frá Króatíu með 108 stig. Síðan komu Michael Owen, Englandi, Gabriel Batistuta, Argentínu, Rivaldo, Brasilíu, Dennis Berg- kamp, Hollandi, Edgar Davids, Hollandi, Marcel Desailly, Frakk- landi, og Lilian Thuram, Frakklandi. -VS Hoddle fokinn á hádegi? Enska knattspymusambandið tilkynnir væntanlega í hádeginu í dag hvort Glenn Hoddle verður rekinn úr starfi landsliðsþjálfara. Ummæli um fatlað fólk, sem höfð vom eftir Hoddle í The Times um helgina, hafa heldur betur farið fyrir brjóstið á ensku þjóðinni en þar sagði hann að fatlaðir væra að taka út syndir sínar frá fyrra lífi. Hoddle harðneitar og segir að rangt sé eftir sér haft, sér séu gerðar upp skoðanir. Ensku blöðin fullyrtu samt flest í morgun að Hoddle yrði rekinn. Bryan Robson var sagður líklegasti eftirmaður hans, síðan Kevin Keegan og John Gregory. -VS - Arnar Grétarsson eignaðist stúlku og fór síðan beint í sigurleik gegn toppliðinu Ótrúlega öruggur sigur Magnúsdóttir 6, Liliya Sushko 4, Hafdís Helgadóttir 4, Hallbera Gunnarsdóttir 1, Georgia Kristiansen 1. Stig ÍR: Þórann Bjarnadóttir 15, Gréta M. Grétarsdóttir 11, Hfldur Sig- urðardóttir 10, Sóley Sigurþórsdóttir 3, Guðrún Sigurðardóttir 3. Njarövík upp fyrir Grindavík Leikur Grindvíkinga og Njarðvík- inga í Grindavík á laugardag var mikilvægur, en liðin berjast harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Það var því hart barist í vöminni hjá báðum liðum. Njarðvík náði 8 stiga forskoti (19-27), en heima- stúlkur náðu að minnka muninn og í hléi var staðan 25-28 fyrir gestina. Um miðjan seinni hálfleik komst Grindavík yfir, 39-38, en stúlkurnar úr Njarð- vík vora sterkari á enda- sprettinum og sigraðu með 61 stigi gegn 53. Kerri Chatt- en lék frábærlega í liði Njarðvíkur, skoraði 34 stig, þar af 20 úr vítaskotum. Stig Grindavíkun Stefania Ás- mundsdóttir 10, Sandra Guðlaugs- dóttir 10, Olexandra Siniakova 9, Sólveig Gunnlaugsdóttir 8, Rósa Ragnarsdóttir 8, Svanhildur Káradóttir 6, Sólný Pálsdóttir 2. Stig Njarðvíkur: Kerri Chatten 34, Rannveig Randversdóttir 11, Eva Stefáns- dóttir 8, Pálína Gunnarsdóttir 4, Ásdís Sig- urðardóttir 2, Berglind Kristjánsdóttir 2. 16. í röð hjá KR KR-konur unnu sinn 16. leik í röð í Sunnudagurinn síðasti var heldur betur við- burðaríkur hjá Amari Grétarssyni, knatt- spymumanni hjá AEK i Grikklandi. Um hádegið eignuðust hann og Sigrún kona hans dóttur, og Amar fór beint af fæðingardeildinni til að spila með AEK sem vann topplið- ið og meistarana í Olympiakos, 2-0, síðar um daginn. Fullkominn dagur „Þetta var fullkominn dagur. Það sem öllu máli skipti var að fæðingin gekk mjög vel, Sigrún og dóttirin era við fina heilsu, og síðan var sigurinn frábær bónus,“ sagði Amar við DV í gær en hann og Sigrún eiga fyrir átta ára dreng. Langþráö hringing í gærkvöld í gærkvöld kom síðan eitt ánægjuefnið í viðbót en fram- kvæmdastjóri AEK hringdi þá í Amar og boðaði hann á fund í næstu viku en þar á Amar Norskur kvennahandbolti: Stabæk vill Kristján Norska 1. deildar liðið Stabæk frá Ósló hafði mikinn áhuga á því að fá Kristján Halldórsson, þjálfara karlaliðs ÍR, sem þjálfara fyrir næsta tímabil. Kristján skapaði sér gott nafn í Noregi en hann þjálfaði þar Larvik um tveggja ára skeið við góðan orðstír. „Ég sagði félaginu að í augnablikinu væri þetta ekki á dagskrá hjá mér. Svona lagað er öðra hverju að koma upp á borð til manns. Það hafa verið F Georgía O. Kristiansen og stöliur hennar í fs eru í ööru sæti í deild- inni. vetur er þær sóttu bæði stig- in til Keflavíkur. KR vann með 21 stigi, 73-52, og hefur nú stiga forastu á Stúdínur á toppi deildarinnar. Bikarkeppnin í handknattleik: FH jafnaði met Víkinga -ÓÓJ/bb „Korfuboltinn i Ar- bænum að deyja út“ - Fylkismenn hættir keppni í 1. deild Fallbaráttunni lokið Fylkismenn hafa dregið lið sitt úr úr keppni í 1. deild karla í körfuknattleik. Fylkismenn töp- uðu fyrir ÍR-ingum á sunnudag- inn, 116-76, og var það síðasti leikur félagsins í bili að minnsta kosti. Svo virðist sem körfuboltinn eigi erfitt með að fóta sig í Ár- bænum því fyrir skömmu vora unglingaflokkur, drengjaflokkur og stúlknaflokkur félagsins lagðir niður. „Það er ekki bara af fjárhags- legum ástæðum sem við verðum að gera þetta heldur hefur gengið mjög illa að fá menn tfl að starfa fyrir körfuknattleiksdeildina. Það era ekki skuldir sem eru að íþyngja starfinu í deildinni held- ur vantar bara fólk til að starfa. Ég er svolítið hræddur um að körfúboltinn í Árbænum sé aö deyja út,“ sagði Sigurgeir Sigur- pálsson, formaður körfuknatt- leiksdeildar Fylkis, í samtali við DV í gær. Sigurpáll sagði að enn væra starfandi fimm yngri flokkar hjá félaginu en svo gæti samt farið að þyrfti að leggja einhvem þeirra niður. Með brotthvarfi Fylkis eru níu lið eftir í 1. deild, en öll úrslit Ár- bæinga verða strikuð út. Þeir vora í áttunda sæti af tíu liðum og í harðri fallbaráttu. Þar sem aðeins eitt lið fellur er fallbarátt- unni nú lokið, Fylkismenn teljast neðstir og falla i 2. deild en hin liðin eru sloppin. Hattarmenn frá Egilsstöðum varpa eflaust önd- inni léttar því þeir stóðu verst að vígi í deildinni. -GH/VS Anja Andersen, sem af mörgum er talin besta hand- boltakona heims, lék Fann- eyju Rúnarsdóttur og stöllur hennar í Tertnes grátt í norsku A-deildinni um helg- ina. Bækkelaget kom þá í heim- sókn til Bergen og frammi fyr- ir 3.140 stuðningsmönnum Tertnes skoraði Anja 15 mörk í 38-23 sigri Bækkelaget, og það þó hún væri tekin úr um- ferð mestallan leikinn. Þramufleygar hennar þöndu netmöskvana hvað eftir Eumað án þess að Fanney og Nina Hauge, markverðir Tertnes, fengju nokkuð að gert. Þetta er annar stórsigur Bækkelaget á Tertnes í Bergen í vetur en sá fyrri var í bik- amum, 40-22. Á dögunum vann Tertnes hins vegar úti- sigur á Bækkelaget í Osló og þá var Anja heillum horfin. -VS von á nýju samningstilboði frá félaginu. Hann var búinn að biða í margar vikur eftir frekari viðbrögðum frá félag- inu í þeim málum. Sigurinn á Olympiakos er geysilega mikilvægur fyrir AEK því liðið er þar með áfram í baráttunni um meist- aratitilinn, og annað sætið sem gefur þátttökurétt í meistaradeild Evrópu. Olympiakos er með 40 stig, Panathinaikos 37 og AEK 36 stig. „Þetta var í raun ótrúlega öraggur sigur hjá okkur. Við skoraðum eftir 11 mínútur og aftur rétt fyrir hlé, og hefðum getað verið með meiri forystu í hálfleik. í seinni hátfleik héldum við fengnum hlut og þeir fengu eng- in opin færi, ógnuðu bara með langskotum,“ sagði Amar, sem lék allan leikinn á miðj- unni. Hann fékk tvö færi til að skora, skaut rétt yfir af 20 metra færi, og komst síðan í góða stöðu inni í vítateig en var of lengi að athafna sig og tækifærið rann út í sandinn. -VS fleiri fyrirspumir frá dönskum og norskum fé- lögum. Ég gerði fyrir yfistandandi tímabil tveggja ára samning við ÍR-inga. í honum er klásúla sem segir að ég geti farið ef mér bjóðist að fara utan. Eins og er stendur það ekki til,“ sagði Kristján Halldórsson í samtali við DV i gærkvöld. Stabæk er í í sjötta sæti í deildinni meö 14 stig en tólf leika í deildinni. -JKS Super Bowl: Denver meistari annað arið i roð Denver Broncos sigraðu Atlanta Falcons í úrslitaleiknum í Super Bowl í viðureign liðanna fór fram í Miami í fyrrinótt. Lokatölur leiksins urðu, 34-19, og varði Denver- liðið því titilinn en það hefúr engu liöi tekist áöur á síðustu 20 áram. Elway maður leiksins John Elway hjá Denver Broncos var valinn maður leiks- ins og kom það val engum á óvart. Elway gerði eitt snerti- mark í leiknum og átti að auki eina sendingu upp á 80 yrda sem er ein sú lengsta í sögu Super Bowl. Elway sést hér á myndinni hampa titlinum eftirsótta. Áhugi fyrir þessum árlega leik er gífurlegur og fá alltaf færri miða en vilja. Leiknum var sjónvarpað beint til yfir 170 landa og er áætlað að átta hundrað milljónir manna hafi fylgst með beinni útsendingu í yfir 175 þjóðlöndum. -JKS FH-ingar jöfnuðu met Víkinga þegar þeir tryggðu sér sæti í bik- arúrslitum í karlaflokki í handknattleik með því að bera sigurorð af Gróttu/KR. Þetta er í 10. sinn sem FH kemst í úrslitin en Víking- ar hafa einnig komist 10 sinnum i úrslit. I þau 9 skipti sem FH hefúr leikið til úrslita hefur liðið 5 sinnum hamapað bikamum. Liðið vann fyrstu 3 leikina, tapaði næstu fjórum en hefur unnið tvo síðustu bikarúr- slitaleikina sem liðið hefur tekið þátt í. Víkingar hafa unnið oftast í bikar- keppninni i karlaflokki, alls 6 sinnum og takist FH að leggja Aftureldingu jafnar það árangur Vík- inga. Afturelding hefur aldrei áður komist í bikarúrslitin en það er 14. liðið sem leikur til úrslita um bikarinn. Framstúlkur leika sinn 14. bikarúrslitaleik Hjá konunum leika Framkonur sinn 14. bikarúrslitaleik þegar þær mæta Haukum og það er að sjálfsögðu met. Stjaman kemur næst með 9 bikarúrslitaleiki og hefur unnið þijá þeirra. Af þeim 13 úrslitaleikjum sem Fram hefur leikið hefúr liðið unnið 11 og það er 85% árangur. Haukastelp- umar hafa ekki tapað bikarúrslitaleik. Þær hafa aðeins leikið einn, gegn Val árið 1997, sem þær unnu. -GH/ÓÓJ Tertnes var leikið sundur og saman: Anja var óstöðvandi - skoraði 15 mörk með þrumufleygum Logreglukæra vegna fótbrots - söguleg helgi í 2. flokki í knattspyrnu Undankeppni íslandsmótsins í 2. flokki karla í innanhússknatt- spymu er orðin ærið söguleg. Eins og sagt var frá í DV í gær var dómari rotaður á Akureyri á fostudagskvöldið, og í Kópavogi er fótbrot orðið að lögreglumáli. Einn riðla 2. flokks var leikinn í Digranesi í Kópavogi á laugar- daginn. Þar gerðist það að leik- maður HK fótbrotnaði í leik gegn ÍBV. Markvörður Eyjamanna braut á sóknarmanni HK, sem hafði skorað fjórum sinnum hjá honum í leiknum, með þessum af- leiðingum. HK-ingurinn kærði at- vikið til lögreglu, taldi að um ásetning hefði verið að ræða, og dómari leiksins sendi KSÍ sér- staka skýrslu um það sem gerðist. Málið á Akureyri var ekki kært til lögreglu og er því alfarið í höndum aganefndar KSÍ. Málið í Kópavogi virðist hins vegar vera á leið fyrir tvenns konar dóm- stóla, til aganefndar og inn í dómskerfið. -VS Hartson sektaður um 2,3 milljónir króna Velski landsliðsmaðurinn John Hartson var í gær dæmdur til að borga 2,3 milljónir í sekt og í þriggja leikja bann fyrir að sparka í andlit samheija síns. Umrætt atvik átti sér stað á æfingasvæði West Ham í Austur-Lundúnum í október sl. Hartson, sem er þekktur skaphundur, sparkaði í ísraelska landsliðs- manninn Eyal Berkovich og vildi svo til að mynd- bandsupptaka var til af atburðinum. Tveir aðrir leikmenn, Patrick Viera og Vinnie Jo- nes, hafa verið dæmdir i hliðstæðar sektir sem era þær hæstu sem knattspymumenn hafa verið dæmd- ir í. John Hartson var á dögunum seldur til Wimbledon fyrir 800 milljónir króna. -JKS Iþróttir Heimsmeistaramótid í alpagreinum sklðaíþrótta átti að heíjast í Vail I Colarado í gærkvöld. Ekkert varð af því en fresta varð opnunargrein mótsins, risasvigi kvenna, vegna snjókomu. Ef veður leyfir verður keppt i risasvigi karla í dag. Skjern, lió Arons Kristjánssonar, heldur áfram að koma á óvart í dönsku A-deildinni í handknattleik. í fyrradag mætti Skjern meisturunum i GOG og fór Skjem með sigur af hólmi, 26-23. Aron skoraði 3 mörk fyrir Skjem sem er í toppsæti deild- arinnar með 25 stig eftir 17 leiki, GOG er með 23 eftir 16 leiki og Hels- inge 22 stig eftir 16 leiki. Þorvaröur Tjörvi Ólafsson og félaagar hans í Bjerringbro unnu botnlið Ajax, 35-21. Bjerrinbro er næstneðst í deildinni með 9 stig en Ajax er með 5 stig á botninum. Magnús Orri Schram hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrarfé- lags meistaraflokks og 2. flokks KR í knattspyrnu en að rekstrarfélaginu standa nýstofnað hlutafélag KR-Sport og knattspymudeild KR. Magnús lék með yngri flokkum KR og var leik- maöur meistaraflokks félagsins 1994-1995. Rocco Mediate frá Bandaríkjunum sigraði á opna Phoenix-mótinu i golfi sem lauk í fyrrinótt. Mediate lék á 273 höggum eða 11 höggum undir pari. Þetta var þriðji sigur Mediate á ferlinum og sá fyrsti síðan 1993 en hann hefur átt við erfið bakmeiðsli að striða undanfarin ár. Bandaríkja- menn röðuðu sér i öll efstu sætin. Justin Leonard varð annar á 275 höggum. Tiger Woods þriðji á 276 höggum. Frœóslunefnd FRÍ í samvinnu við Félag íslenskra frjálsíþróttaþjálfara gengst fyrir fræðslufundum i vetur sem ætlaðir em bæði þjálfurum og íþróttamönnum. Næsti fundur er fyr- irhugaður föstudaginn 14. febrúar kl. 20-22, í húsnæði ÍSÍ í Laugardal í Reykjavík, 2. hæð (MÍ er 13. og 14. feb í Reykjavík). Fyrirlesarar verða Gisli Sigurósson og Gunnar Páll Jóakimsson. Siguröur Jónsson lék sinn fyrsta leik með Dundee United í skosku A- deildinni í knattspymu í langan tíma vegna meiðsla þegar liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Dunfermline. Sigurður lék allan tímann. Jóhann B. Guömundsson lék ekki með Watford um helgina þegar liðið skeflti toppliði Sunderland, 2-1, í ensku B-deildinni í knattspymu. Bjarnólfur Lárusson lék allan tím- arm fyrir Walsall sem tapaði á heima- velli fyrir Cardiff, 1-2, í ensku C- deildinni. Stoke lið Lárusar Orra Sigurðssonar tapaöi á heimavelli fyrir Manchester City, 0-1, og lék Láras Orri allan tímann. Þorvaldur Örlygsson var ekki i liði Oldham sem sigraði York City á úti- velli, 0-1. Oldham er í 8. sætinu neð- an frá með 30 stig og hefur heldur verið að rétta úr kútnum. Fulham er efst í C-deildinni með 58 stig, Preston er í öðra sæti með 55, Walsall er í þriðja sæti með 51 stig og Stoke í fjórða sæti með 48 stig. Hermanni Hreiöarssyni og félögum hans í Brentford er allt í óhag i ensku D-deildinni í knattspyrnu þessa dag- ana. Liðiö er komiö niöur i 6. sæti eft- ir 4-1 ósigur gegn toppliði Cardiff. Hermann lék allan tímann í vörn- inni. Cardiff er efst með 55 stig og er 10 stigum á undan Brentford. Ólafur Gottskálksson stóð að vanda í marki Hibeminan sem sigraði Air- drie á útivelli í skosku B-deildinni, l-A. Mark Airdrie kom úr vítaspymu. Hibemian er með yfirburðalið í deild- inni og hefur unnið níu leiki í röð. Liöið er með 14 stiga forskot á næsta lið sem er Falkirk. Einar Þór Daníelsson lék síðustu 15 mínúturnar með OFI frá Krít þegar liðið tapaði, 1-0, fyrir Panathinaikos í grísku A-deildinni í knattspymu á sunnudaginn. OFI er í fimmta sæti deildarinnar. Kristófer Sigurgeirs- son átti aö leika sem vinstri bakvörð- ur hjá Aris Saloniki gegn Proodeftiki, en leiknum var frestað vegna snjó- komu í Norður-Grikklandi. Daninn Brian Laudrup var út- nefndur í gær besti erlendi leikmað- urinn í spænsku knattspymunni sl. 25 ár að mati spænska knattspymu- tímaritsins Don Balon. Laudrap skelti mönnum aftur sig á borð viö Johan Gruyjf, Hugo Sanchez og Ronaldo. -GH/VS/JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.