Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1999, Blaðsíða 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999
23
Iþróttir
Sportkorn
Evrópukeppnin næst
C-liö Valsmanna kom
skemmtilega á
óvart í bikar-
keppninni í
handbolta í
vetur og var
rétt búiö aö
slá út stjömu-
lið Aftureld-
ingar. Þar
voru innan-
borðs kappar á borð viö Ólaf
Benediktsson, Brynjar Haróar-
son, Stefán Hilmarsson söngv-
ara, Bjarna Ákason, forstjóra
ACO, fótboltamennina Lárus
Sigurösson og Einar Örn Birg-
isson, svo einhverjir séu nefndir.
En þó bikarinn sé að baki hyggur
Valur-C á nýja landvinninga.
Forráöamenn liðsins stefna á
þátttöku í Evrópukeppni næsta
vetur. Þeir telja það auðsótt mál,
íslensk lið séu hætt að taka þátt
og þvi hljóti þeir að fá sætið, sæk-
ist þeír eftir því. Valsararnir
stefha á að spila báöa leikina
erlendis, láta sem sagt
mótherjana borga fyrir sig góða
utanlandsferð og fara í gott frí í
leiðinni.
Kristinn meö lumbrung
Það hefur ekki verið gaman að
fylgjast með
Kristni
Björnssyni í
heimsbikam-
um í vetur.
Það hefur
hins vegar
verið gaman
aö fylgjast
með Kristni
Svanbergssyni, framkvæmda-
stjóra Skíðasambandsins sem
hefur tekið þátt í flestum sjón-
varpslýsingum frá mótunum.
Lengi vel sendi hann nafna sín-
um „góða strauma" og aldrei
brást það að Bjömsson datt. Á
síðasta móti skýröi Svanbergsson
frá því að Björnsson hefði verið
með „lumbrung" alla vikuna og
því ekki við miklu að búast. Þeg-
ar Bjömsson var dottinn var það
síðan „ljósið í myrkrinu" að
Kalle Palander, æfingafélagi
hans, skyldi enda í 6. sætinu.
Jólabókin er komin
Þaö hefur varla brugðist í
manna minn-
um að móta-
bók Hand-
knattleiks-
sambands ís-
lands hefur
komið út
löngu eftir að
íslandsmótið
hefst að hausti. Svo seint hefur
hún stundum verið á ferðinni aö
hún hefur verið kölluð Jólabók-
in“. öll met voru þó slegin á
þessu timabili. íþróttadefld DV
barst bókin í hendur síðastliðinn
fóstudag, fjórum mánuðum eftir
að mótiö hófst og 17 umferðir
voru búnar af 1. defldar keppni
karla. Jólabókin hlýtur því að
þessu sinni að fara beint á febrú-
arútsölumar.
Vísaöi áhorfanda á dyr
Gunnlaugur „Labbi“ Hjálm-
arsson hand-
knattleiks-
dómari lætur
engan bflbug
á sér finna þó
kominn sé á
sjötugsaldur.
Labbi var á
sínum tíma
einn besti handboltamaður þjóð-
arinnar og vanur að taka vel á
mótherjum sinum. Labhi sýndi
mikla röggsemi í Eyjum á dög-
unum þegar hann dæmdi leik
ÍBV og Selfoss. Þar varð áhorf-
anda það á að grlpa boltann áöur
en hann fór út af vellinum i einu
hominu. Labbi brást ókvæða við
og dæmdi Selfýssingum boltann.
Síðan þreif hann af ákveðni í
áhorfandann, gekk með hann að
dyrum fram á gang, ýtti honum
út og skellti. Síðan hélt leikurinn
áfram eins og ekkert hefði í
skorist.
Umsjón: Víöir Sigurðsson
Rúnar skoraði átta
- í óvæntum stórsigri Göppingen á Dormagen
Rúnar Sigtryggsson var í miklum ham um helgina
þegar lið hans, Göppingen, vann óvæntan stórsigur á
toppliði Dormagen, 33-20, í þýsku B-deildinni i hand-
knattleik.
Rúnar skoraði 8 mörk í leiknum, öll utan af
velli, og átti jafnframt stórleik í vöm Göpp-
ingen. íslendingamir þrír hjá Dormagen
vom ekki áberandi, Héðinn Gilsson og Ró-
bert Sighvatsson skoruðu 2 mörk hvor en
Daði Hafþórsson komst ekki á blað.
Gústaf Bjamason og félagar í Willstatt
nýttu sér þetta og tóku forystuna með
stórsigri á Aue, 33-23. Gústaf skoraði 5
mörk fyrir Wiflstátt í leiknum.
Þá skoraöi Haraldur Þorvarðarson 3
mörk fyrir Dússeldorf sem sigraði Leuter-
hausen á útivelli, 23-28. Willsátt er í topp
sætinu með 42 stig, Dormagen hefur 40 og Leuter-
hausen 35. Dússeldorf er í 13. sætinu með 14 stig.
-VS/GH
14. umferð 1. deildar kvenna:
KR
unnu
Stúdínur vom með hugann við
komandi bikarúrslitaleik við topplið
KR er þær fengu ákveðnar ÍR-stúlkur
í heimsókn í gærkvöld. ÍS hefur nú
unnið 7 af 8 heimaleikjum sínum í
vetur og hafði loks sigur, 52-42, eftir
að hafa leitt í leikhléi, 26-20. ÍR-liðið
stóð sig vel í þessum leik og léku þær
Þómnn Bjamadóttir, sem gerði 15
stig og tók 12 fráköst, og Hildur Sig-
urðardóttir þeirra best. Gréta Grét-
arsdóttir stóð þeim ekki heldur langt
að baki en Stúdínur fengu að kenna á
hörðum leik gestanna sem gáfu ekk-
ert eftir hvað baráttu varðar og tóku
meðal annars 10 sóknarfráköst í
seinni háifleik þrátt fyrir að vera
með mun minna lið.
Alda Leif Jónsdóttir og Signý Her-
mannsdóttir fóm fyrir liði ÍS að
venju. Alda Leif skoraði 14 stig á 21
mínútu og Signý gerði 10 stig auk 10
frákasta, 6 stolinna bolta og 4
varinna skota. Úkraínski leikmað-
urinn hjá ÍS, Liliya Sushko, fann sig
ekki, gerði aöeins 4 stig og hitti að-
eins úr 2 af 10 skotum sínum. ÍS þarf
að laga margt ætli þær sér að eiga
möguleika gegn KR á laugardaginn.
Liðið hitti aðeins 16 af 46 skotum sín-
um í leiknum og tapaði alls 31 bolta.
Það var því allt annað að sjá til liðs-
ins en í bikarsigrinum gegn Keflavík
á dögunum.
Stig ÍS:Alda Leif Jónsdóttir 14. Signý
Hermannsdóttir 10, María B. Leifsdóttir 6,
Lovisa Guðmundsdóttir 6, Kristjana B.
Zidane leikmaður ársins
Zinedine Zidane frá Frakklandi var í gærkvöld útnefndur
knattspymumaður ársins 1998 í heiminum af Alþjóða knatt-
spymusambandinu. Zidane fékk 518 stig frá 132 landsliðsþjálfur-
um víðs vegar að, þar af settu 93 hann í efsta sæti. Næstur kom
Ronaldo frá Brasilíu með 164 stig og þriðji varð Davor Suker frá
Króatíu með 108 stig. Síðan komu Michael Owen, Englandi,
Gabriel Batistuta, Argentínu, Rivaldo, Brasilíu, Dennis Berg-
kamp, Hollandi, Edgar Davids, Hollandi, Marcel Desailly, Frakk-
landi, og Lilian Thuram, Frakklandi. -VS
Hoddle fokinn á hádegi?
Enska knattspymusambandið tilkynnir væntanlega í hádeginu í
dag hvort Glenn Hoddle verður rekinn úr starfi landsliðsþjálfara.
Ummæli um fatlað fólk, sem höfð vom eftir Hoddle í The Times um
helgina, hafa heldur betur farið fyrir brjóstið á ensku þjóðinni en
þar sagði hann að fatlaðir væra að taka út syndir sínar frá fyrra lífi.
Hoddle harðneitar og segir að rangt sé eftir sér haft, sér séu gerðar
upp skoðanir. Ensku blöðin fullyrtu samt flest í morgun að Hoddle
yrði rekinn. Bryan Robson var sagður líklegasti eftirmaður hans,
síðan Kevin Keegan og John Gregory. -VS
- Arnar Grétarsson eignaðist stúlku og fór síðan beint í sigurleik gegn toppliðinu
Ótrúlega öruggur sigur
Magnúsdóttir 6, Liliya Sushko 4, Hafdís
Helgadóttir 4, Hallbera Gunnarsdóttir 1,
Georgia Kristiansen 1.
Stig ÍR: Þórann Bjarnadóttir 15,
Gréta M. Grétarsdóttir 11, Hfldur Sig-
urðardóttir 10, Sóley Sigurþórsdóttir
3, Guðrún Sigurðardóttir 3.
Njarövík upp fyrir Grindavík
Leikur Grindvíkinga og Njarðvík-
inga í Grindavík á laugardag var
mikilvægur, en liðin berjast harðri
baráttu um sæti í úrslitakeppninni.
Það var því hart barist í vöminni
hjá báðum liðum. Njarðvík náði 8
stiga forskoti (19-27), en heima-
stúlkur náðu að minnka muninn
og í hléi var staðan 25-28
fyrir gestina. Um miðjan seinni
hálfleik komst Grindavík yfir,
39-38, en stúlkurnar úr Njarð-
vík vora sterkari á enda-
sprettinum og sigraðu með
61 stigi gegn 53. Kerri Chatt-
en lék frábærlega í liði
Njarðvíkur, skoraði 34 stig,
þar af 20 úr vítaskotum.
Stig Grindavíkun Stefania Ás-
mundsdóttir 10, Sandra Guðlaugs-
dóttir 10, Olexandra Siniakova 9, Sólveig
Gunnlaugsdóttir 8, Rósa Ragnarsdóttir 8,
Svanhildur Káradóttir 6, Sólný Pálsdóttir 2.
Stig Njarðvíkur: Kerri Chatten 34,
Rannveig Randversdóttir 11, Eva Stefáns-
dóttir 8, Pálína Gunnarsdóttir 4, Ásdís Sig-
urðardóttir 2, Berglind Kristjánsdóttir 2.
16. í röð hjá KR
KR-konur unnu sinn 16. leik í röð í
Sunnudagurinn síðasti
var heldur betur við-
burðaríkur hjá Amari
Grétarssyni, knatt-
spymumanni hjá AEK i
Grikklandi. Um hádegið
eignuðust hann og Sigrún
kona hans dóttur, og Amar fór
beint af fæðingardeildinni til að
spila með AEK sem vann topplið-
ið og meistarana í Olympiakos, 2-0,
síðar um daginn.
Fullkominn dagur
„Þetta var fullkominn dagur. Það sem öllu
máli skipti var að fæðingin
gekk mjög vel, Sigrún og
dóttirin era við fina heilsu, og
síðan var sigurinn frábær
bónus,“ sagði Amar við DV í
gær en hann og Sigrún eiga
fyrir átta ára dreng.
Langþráö hringing í
gærkvöld
í gærkvöld kom síðan eitt
ánægjuefnið í viðbót en fram-
kvæmdastjóri AEK hringdi þá
í Amar og boðaði hann á fund
í næstu viku en þar á Amar
Norskur kvennahandbolti:
Stabæk vill Kristján
Norska 1. deildar liðið Stabæk frá Ósló
hafði mikinn áhuga á því að fá Kristján
Halldórsson, þjálfara karlaliðs ÍR, sem
þjálfara fyrir næsta tímabil. Kristján
skapaði sér gott nafn í Noregi en hann
þjálfaði þar Larvik um tveggja ára skeið
við góðan orðstír.
„Ég sagði félaginu að í augnablikinu
væri þetta ekki á dagskrá hjá mér.
Svona lagað er öðra hverju að koma
upp á borð til manns. Það hafa verið
F
Georgía O. Kristiansen
og stöliur hennar í fs
eru í ööru sæti í deild-
inni.
vetur er þær sóttu bæði stig-
in til Keflavíkur. KR vann með
21 stigi, 73-52, og hefur nú
stiga forastu á Stúdínur á toppi
deildarinnar.
Bikarkeppnin í handknattleik:
FH jafnaði met Víkinga
-ÓÓJ/bb
„Korfuboltinn i Ar-
bænum að deyja út“
- Fylkismenn hættir keppni í 1. deild
Fallbaráttunni lokið
Fylkismenn hafa dregið lið sitt
úr úr keppni í 1. deild karla í
körfuknattleik. Fylkismenn töp-
uðu fyrir ÍR-ingum á sunnudag-
inn, 116-76, og var það síðasti
leikur félagsins í bili að minnsta
kosti.
Svo virðist sem körfuboltinn
eigi erfitt með að fóta sig í Ár-
bænum því fyrir skömmu vora
unglingaflokkur, drengjaflokkur
og stúlknaflokkur félagsins lagðir
niður.
„Það er ekki bara af fjárhags-
legum ástæðum sem við verðum
að gera þetta heldur hefur gengið
mjög illa að fá menn tfl að starfa
fyrir körfuknattleiksdeildina.
Það era ekki skuldir sem eru að
íþyngja starfinu í deildinni held-
ur vantar bara fólk til að starfa.
Ég er svolítið hræddur um að
körfúboltinn í Árbænum sé aö
deyja út,“ sagði Sigurgeir Sigur-
pálsson, formaður körfuknatt-
leiksdeildar Fylkis, í samtali við
DV í gær.
Sigurpáll sagði að enn væra
starfandi fimm yngri flokkar hjá
félaginu en svo gæti samt farið að
þyrfti að leggja einhvem þeirra
niður.
Með brotthvarfi Fylkis eru níu
lið eftir í 1. deild, en öll úrslit Ár-
bæinga verða strikuð út. Þeir
vora í áttunda sæti af tíu liðum
og í harðri fallbaráttu. Þar sem
aðeins eitt lið fellur er fallbarátt-
unni nú lokið, Fylkismenn teljast
neðstir og falla i 2. deild en hin
liðin eru sloppin. Hattarmenn frá
Egilsstöðum varpa eflaust önd-
inni léttar því þeir stóðu verst að
vígi í deildinni.
-GH/VS
Anja Andersen, sem af
mörgum er talin besta hand-
boltakona heims, lék Fann-
eyju Rúnarsdóttur og stöllur
hennar í Tertnes grátt í
norsku A-deildinni um helg-
ina.
Bækkelaget kom þá í heim-
sókn til Bergen og frammi fyr-
ir 3.140 stuðningsmönnum
Tertnes skoraði Anja 15 mörk
í 38-23 sigri Bækkelaget, og
það þó hún væri tekin úr um-
ferð mestallan leikinn.
Þramufleygar hennar þöndu
netmöskvana hvað eftir Eumað
án þess að Fanney og Nina
Hauge, markverðir Tertnes,
fengju nokkuð að gert.
Þetta er annar stórsigur
Bækkelaget á Tertnes í Bergen
í vetur en sá fyrri var í bik-
amum, 40-22. Á dögunum
vann Tertnes hins vegar úti-
sigur á Bækkelaget í Osló og
þá var Anja heillum horfin.
-VS
von á nýju samningstilboði
frá félaginu. Hann var búinn
að biða í margar vikur eftir
frekari viðbrögðum frá félag-
inu í þeim málum.
Sigurinn á Olympiakos er
geysilega mikilvægur fyrir
AEK því liðið er þar með
áfram í baráttunni um meist-
aratitilinn, og annað sætið
sem gefur þátttökurétt í
meistaradeild Evrópu.
Olympiakos er með 40 stig,
Panathinaikos 37 og AEK 36
stig.
„Þetta var í raun ótrúlega öraggur sigur
hjá okkur. Við skoraðum eftir 11 mínútur og
aftur rétt fyrir hlé, og hefðum getað verið
með meiri forystu í hálfleik. í seinni hátfleik
héldum við fengnum hlut og þeir fengu eng-
in opin færi, ógnuðu bara með langskotum,“
sagði Amar, sem lék allan leikinn á miðj-
unni. Hann fékk tvö færi til að skora, skaut
rétt yfir af 20 metra færi, og komst síðan í
góða stöðu inni í vítateig en var of lengi að
athafna sig og tækifærið rann út í sandinn.
-VS
fleiri fyrirspumir frá dönskum og norskum fé-
lögum. Ég gerði fyrir yfistandandi tímabil
tveggja ára samning við ÍR-inga. í honum er
klásúla sem segir að ég geti farið ef mér bjóðist
að fara utan. Eins og er stendur það ekki til,“
sagði Kristján Halldórsson í samtali við DV i
gærkvöld.
Stabæk er í í sjötta sæti í deildinni meö 14
stig en tólf leika í deildinni.
-JKS
Super Bowl:
Denver meistari
annað arið i roð
Denver Broncos sigraðu Atlanta Falcons í úrslitaleiknum
í Super Bowl í viðureign liðanna fór fram í Miami í
fyrrinótt. Lokatölur leiksins urðu, 34-19, og varði Denver-
liðið því titilinn en það hefúr engu liöi tekist áöur á síðustu
20 áram.
Elway maður leiksins
John Elway hjá Denver Broncos var valinn maður leiks-
ins og kom það val engum á óvart. Elway gerði eitt snerti-
mark í leiknum og átti að auki eina sendingu upp á 80 yrda
sem er ein sú lengsta í sögu Super Bowl. Elway sést hér á
myndinni hampa titlinum eftirsótta.
Áhugi fyrir þessum árlega leik er gífurlegur og fá alltaf
færri miða en vilja. Leiknum var sjónvarpað beint til yfir
170 landa og er áætlað að átta hundrað milljónir manna hafi
fylgst með beinni útsendingu í yfir 175 þjóðlöndum.
-JKS
FH-ingar jöfnuðu met Víkinga þegar þeir tryggðu sér sæti í bik-
arúrslitum í karlaflokki í handknattleik með því að bera sigurorð
af Gróttu/KR. Þetta er í 10. sinn sem FH kemst í úrslitin en Víking-
ar hafa einnig komist 10 sinnum i úrslit. I þau 9 skipti sem FH hefúr
leikið til úrslita hefur liðið 5 sinnum hamapað bikamum. Liðið vann
fyrstu 3 leikina, tapaði næstu fjórum en hefur unnið tvo síðustu bikarúr-
slitaleikina sem liðið hefur tekið þátt í. Víkingar hafa unnið oftast í bikar-
keppninni i karlaflokki, alls 6 sinnum og takist FH að leggja Aftureldingu jafnar það árangur Vík-
inga. Afturelding hefur aldrei áður komist í bikarúrslitin en það er 14. liðið sem leikur til úrslita
um bikarinn.
Framstúlkur leika sinn 14. bikarúrslitaleik
Hjá konunum leika Framkonur sinn 14. bikarúrslitaleik þegar þær mæta Haukum og það er að
sjálfsögðu met. Stjaman kemur næst með 9 bikarúrslitaleiki og hefur unnið þijá þeirra. Af þeim
13 úrslitaleikjum sem Fram hefur leikið hefúr liðið unnið 11 og það er 85% árangur. Haukastelp-
umar hafa ekki tapað bikarúrslitaleik. Þær hafa aðeins leikið einn, gegn Val árið 1997, sem þær
unnu.
-GH/ÓÓJ
Tertnes var leikið sundur og saman:
Anja var óstöðvandi
- skoraði 15 mörk með þrumufleygum
Logreglukæra
vegna fótbrots
- söguleg helgi í 2. flokki í knattspyrnu
Undankeppni íslandsmótsins í
2. flokki karla í innanhússknatt-
spymu er orðin ærið söguleg.
Eins og sagt var frá í DV í gær var
dómari rotaður á Akureyri á
fostudagskvöldið, og í Kópavogi er
fótbrot orðið að lögreglumáli.
Einn riðla 2. flokks var leikinn
í Digranesi í Kópavogi á laugar-
daginn. Þar gerðist það að leik-
maður HK fótbrotnaði í leik gegn
ÍBV. Markvörður Eyjamanna
braut á sóknarmanni HK, sem
hafði skorað fjórum sinnum hjá
honum í leiknum, með þessum af-
leiðingum. HK-ingurinn kærði at-
vikið til lögreglu, taldi að um
ásetning hefði verið að ræða, og
dómari leiksins sendi KSÍ sér-
staka skýrslu um það sem gerðist.
Málið á Akureyri var ekki kært
til lögreglu og er því alfarið í
höndum aganefndar KSÍ. Málið í
Kópavogi virðist hins vegar vera
á leið fyrir tvenns konar dóm-
stóla, til aganefndar og inn í
dómskerfið. -VS
Hartson sektaður um 2,3 milljónir króna
Velski landsliðsmaðurinn John Hartson var í gær
dæmdur til að borga 2,3 milljónir í sekt og í þriggja
leikja bann fyrir að sparka í andlit samheija síns.
Umrætt atvik átti sér stað á æfingasvæði West Ham
í Austur-Lundúnum í október sl. Hartson, sem er
þekktur skaphundur, sparkaði í ísraelska landsliðs-
manninn Eyal Berkovich og vildi svo til að mynd-
bandsupptaka var til af atburðinum.
Tveir aðrir leikmenn, Patrick Viera og Vinnie Jo-
nes, hafa verið dæmdir i hliðstæðar sektir sem era
þær hæstu sem knattspymumenn hafa verið dæmd-
ir í. John Hartson var á dögunum seldur til
Wimbledon fyrir 800 milljónir króna.
-JKS
Iþróttir
Heimsmeistaramótid í alpagreinum
sklðaíþrótta átti að heíjast í Vail I
Colarado í gærkvöld. Ekkert varð af
því en fresta varð opnunargrein
mótsins, risasvigi kvenna, vegna
snjókomu. Ef veður leyfir verður
keppt i risasvigi karla í dag.
Skjern, lió Arons Kristjánssonar,
heldur áfram að koma á óvart í
dönsku A-deildinni í handknattleik. í
fyrradag mætti Skjern meisturunum
i GOG og fór Skjem með sigur af
hólmi, 26-23. Aron skoraði 3 mörk
fyrir Skjem sem er í toppsæti deild-
arinnar með 25 stig eftir 17 leiki,
GOG er með 23 eftir 16 leiki og Hels-
inge 22 stig eftir 16 leiki. Þorvaröur
Tjörvi Ólafsson og félaagar hans í
Bjerringbro unnu botnlið Ajax, 35-21.
Bjerrinbro er næstneðst í deildinni
með 9 stig en Ajax er með 5 stig á
botninum.
Magnús Orri Schram hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri rekstrarfé-
lags meistaraflokks og 2. flokks KR í
knattspyrnu en að rekstrarfélaginu
standa nýstofnað hlutafélag KR-Sport
og knattspymudeild KR. Magnús lék
með yngri flokkum KR og var leik-
maöur meistaraflokks félagsins
1994-1995.
Rocco Mediate frá Bandaríkjunum
sigraði á opna Phoenix-mótinu i golfi
sem lauk í fyrrinótt. Mediate lék á
273 höggum eða 11 höggum undir
pari. Þetta var þriðji sigur Mediate á
ferlinum og sá fyrsti síðan 1993 en
hann hefur átt við erfið bakmeiðsli
að striða undanfarin ár. Bandaríkja-
menn röðuðu sér i öll efstu sætin.
Justin Leonard varð annar á 275
höggum. Tiger Woods þriðji á 276
höggum.
Frœóslunefnd FRÍ í samvinnu við
Félag íslenskra frjálsíþróttaþjálfara
gengst fyrir fræðslufundum i vetur
sem ætlaðir em bæði þjálfurum og
íþróttamönnum. Næsti fundur er fyr-
irhugaður föstudaginn 14. febrúar kl.
20-22, í húsnæði ÍSÍ í Laugardal í
Reykjavík, 2. hæð (MÍ er 13. og 14. feb
í Reykjavík). Fyrirlesarar verða Gisli
Sigurósson og Gunnar Páll
Jóakimsson.
Siguröur Jónsson lék sinn fyrsta
leik með Dundee United í skosku A-
deildinni í knattspymu í langan tíma
vegna meiðsla þegar liðið gerði 1-1
jafntefli gegn Dunfermline. Sigurður
lék allan tímann.
Jóhann B. Guömundsson lék ekki
með Watford um helgina þegar liðið
skeflti toppliði Sunderland, 2-1, í
ensku B-deildinni í knattspymu.
Bjarnólfur Lárusson lék allan tím-
arm fyrir Walsall sem tapaði á heima-
velli fyrir Cardiff, 1-2, í ensku C-
deildinni. Stoke lið Lárusar Orra
Sigurðssonar tapaöi á heimavelli
fyrir Manchester City, 0-1, og lék
Láras Orri allan tímann.
Þorvaldur Örlygsson var ekki i liði
Oldham sem sigraði York City á úti-
velli, 0-1. Oldham er í 8. sætinu neð-
an frá með 30 stig og hefur heldur
verið að rétta úr kútnum. Fulham er
efst í C-deildinni með 58 stig, Preston
er í öðra sæti með 55, Walsall er í
þriðja sæti með 51 stig og Stoke í
fjórða sæti með 48 stig.
Hermanni Hreiöarssyni og félögum
hans í Brentford er allt í óhag i ensku
D-deildinni í knattspyrnu þessa dag-
ana. Liðiö er komiö niöur i 6. sæti eft-
ir 4-1 ósigur gegn toppliði Cardiff.
Hermann lék allan tímann í vörn-
inni. Cardiff er efst með 55 stig og er
10 stigum á undan Brentford.
Ólafur Gottskálksson stóð að vanda
í marki Hibeminan sem sigraði Air-
drie á útivelli í skosku B-deildinni,
l-A. Mark Airdrie kom úr vítaspymu.
Hibemian er með yfirburðalið í deild-
inni og hefur unnið níu leiki í röð.
Liöið er með 14 stiga forskot á næsta
lið sem er Falkirk.
Einar Þór Daníelsson lék síðustu 15
mínúturnar með OFI frá Krít þegar
liðið tapaði, 1-0, fyrir Panathinaikos í
grísku A-deildinni í knattspymu á
sunnudaginn. OFI er í fimmta sæti
deildarinnar. Kristófer Sigurgeirs-
son átti aö leika sem vinstri bakvörð-
ur hjá Aris Saloniki gegn Proodeftiki,
en leiknum var frestað vegna snjó-
komu í Norður-Grikklandi.
Daninn Brian Laudrup var út-
nefndur í gær besti erlendi leikmað-
urinn í spænsku knattspymunni sl.
25 ár að mati spænska knattspymu-
tímaritsins Don Balon. Laudrap
skelti mönnum aftur sig á borð viö
Johan Gruyjf, Hugo Sanchez og
Ronaldo.
-GH/VS/JKS