Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1999, Page 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999
Spuriúngin
Kaustu um helgina?
Rut Sigtryggsdóttir nemi: Nei.
Katrín Magnea Jónsdóttir nemi:
Nei.
Andri Karlsson nemi: Nei.
Erna Emudóttir: Nei, ég var ekki
heima um helgina.
Guðmundin* G. Lúðvíksson vél-
stjóri: Nei.
Július Stefánsson verslunarmað-
ur: Nei, ég bý ekki í Reykjavík.
Annars hefði ég sennilega kosiö.
Lesendur
Kristna menningar-
svæðið við aldamót
Fólk hrópar „friður" og kastar aur og grjóti í meinta friðar-
spilla og meintur sannleikságreiningur er látinn sverfa til
stáls.
Þorsteinn Hákonarson
skrifar:
Við fyrirhugaðar hátíð-
ir við næstu aldamót, þá
er lítið til að halda upp á.
Ef bjálkinn er tekinn úr
auga, blasir við sérstök
mynd. - Sjöfalt yfirdrep
hernaðarmáttar, þekking
sem er talin eign ríkisins
og hersins, til þess að
þróa enn hraðari gereyð-
ingarmátt, því þekkingu
má ekki nota til að bæta
framfærslu okkar fyrr en
hemaðaryfirvöld hafa
lokið sér af.
Við búum við mikið
umtal um lausn á orku-
vandanum, en stjómvöld
reyna stíft að koma í veg
fyrir lausnir. Vandinn er
þó ekki orkuvandi, held-
ur aflvélavandi og hann
leysist með rafgeymi með
mikilli rýmd. En hann má
ekki þróa. Sá almenni
misskilningur er uppi að
kerfi sem við notum til að
lýsa eðlisatriðum segi
okkur sannleikann. Svo
er ekki. Þau kerfi hafa
einungis forsendubimdna lýsingar-
hæfni. - í því máli emm við ratar.
Fólk hrópar „friður" og kastar
aur og grjóti í meinta friðarspilla.
Meintur sannleikságreiningur er
látinn sverfa til stáls. Sá sannleikur
er oftast áunninn orðhengilsháttur.
Tugir milljóna voru drepnar á
þessarri öld lyga og þvættings í
heila ráðamanna. Miiljónir í Sovét-
ríkjunum til þess að laga efnahags-
lega tölfræði, tugir milljóna vegna
deilna um háralit, augnlit og frrnn-
stætt blóðpróf. Og margar milljónir
í Kambódíu til þess að koma fram
efhahagslegri sýndarmennsku.
Spumingin er þó einfold: Erum
við dýr eða andlegar verur? Föllum
við vegna vistkerfis-
hrests, sem verður vegna
eigin heimsku og and-
legrar fávísi? Eða getum
við skapað okkur vist-
kerfi sjáif til þess að lifa
af? Dýrin falla fyrir vist-
kerfisbresti, þar um vitn-
ar saga jarðar. En vist-
kerfi hinnar vitibomu
vem er að skapa sér sjáif
vistkerfi, koma þekkingu
milli kynslóða og lifa af
sem tegund.
Aldamótin nú bera
tveggja þúsunda tölu.
Tölu tímatals frá fæð-
ingu Krists. Þetta era há-
tíðartímamót á kristna
menningarsvæðinu. Er
það ástand sem að ofan
greinir í samræmi við
boð Krists um að gleyma
og fyrirgefa? Nei. Margir
túlka málið svo að Krist-
ur hafi dáið fyrir okkur
og Guð hafi fyrirgefið
okkur. Síðan em allir
hólpnir og geta hagað
sér eins og skepnur, og
kirkjan blessaði her-
menn til góðra verka
beggja vegna víglínunnar.
En vill nokkur skoða eðli friðar?
Nei, því þá er ekki hægt að njóta
hatursins til að kenna öðmm um. Á
tímamótum sjálfsmiklunar er al-
menningi send sú kveðja að hann sé
bæði heimskur og illgjam, öfugt við
það sem atkvæðaveiðarar segja. Á
slíkur almenningur framtíð?
Félagar fá „frítt" í bíó
Helgi Kristinsson skrifar:
Jólagjöf Háskólabíós og Máls og
menningar til klúbbfélaga í Uglu-
klúbbnum var bíómiði í Háskólabíó.
- Sonur minn mætti kl. 5 með mið-
ann (,jólagjöfina“). Frímiðann átti
að afhenda honum í staöinn á mynd-
ina Antz kl. 3 eða 5, 27. desember sl.
í miðasölunni er honum sagt að
þama sé prentvilla; myndin sé ekki
sýnd kl. 5. Hann megi þó koma á
myndina seinna og sýna þá miðann.
Það gerði hann, fór aðra ferð. En þá
var honum sagt að miðinn væri því
miður úfrunninn og var ekkert
hlustað á útskýringar hans.
Ég hringdi daginn eftir þar sem
mér fannst þessi framkoma ekki við
hæfi. Starfsmaöur Háskólabíós
sagði þá að þeim þætti þetta leitt og
mætti drengurinn velja sér mynd
sunnud. 10. jan. á 5- eða 7-sýningu.
Einu sinni enn mætti drengurinn
og átti nafnið hans að vera á lista í
miðasölu. Stúlka í miðasölunni las
listann án þess að finna nafnið þar.
- Og því miður - eins og hún sagði,
þá er þetta alltaf að gerast, sá sem
lofar frísýningunni gleymir að láta
nafn viðkomandi á listann, en ég
má alls ekki hleypa þeim inn sem
ekki em á listanum.
Nú hefúr drengurinn gert þijár
tilraunir til að „opna“ jólagjöfina en
það virðist alveg ómögulegt, hann
hefur þurft að kaupa sér miða í öll
skiptin og hugsar sig því tvisvar um
áður en hann fær boð frá Máli og
menningu og Háskólabíói aftur.
Sameining sveitarfélaga
- skiptar skoöanir
Frá nýlegum fundl í Garðl um sameinlngu Gerðahrepps og Reykjanesbæjar.
- Ekkert liggur á í þessum efnum, segir m.a. í bréfinu.
Sandgerðingur skrifar:
Er sameining sveitarfélaga sú
himnasending sem íbúar viðkom-
andi staða eiga að gleypa hráa og
taka fagnandi? Sums staðar getur
sameining átt vel við og verið jafn-
vel nauðsynleg, en annars staðar
ekki. Nýlega var haldinn fundur í
Garðinum hér nyrst á Suðumesjum
þar sem rædd var sameining Garðs
og Sandgerðis annars vegar og sam-
eining Garðs og Reykjanesbæjar
hins vegar. - Siðari sameiningin er
talin vænlegri kostur, að mati fyrir-
tækis eins í höfuðborginni sem sér-
hæfir sig í ýmsum álitsgerðum og
hugmyndum.
Ég er ekki í vafa um að samein-
ing Garðs við Reykjanesbæ er ekki
sú heppilegasta ráðstöfun sem
hreppsnefnd Gerðahrepps leggur
upp með til framtíðar. Og þótt túlka
megi framtíðarsýn eins sveitarfé-
lags eins og Gerðahrepps þymum
stráða vegna tímabundinna skulda
og framkvæmda sem nauðsynlegt er
að ljúka þá era það smámunir mið-
að við að sameinast stóm sveitarfé-
lagi eins og Reykjanesbæ. í því sam-
floti myndi bæjarfélag eins og Garð-
urinn stöðugt þurfa að sækja á
brattann í öllum málum. - Garðbú-
ar eiga að hugsa sinn gang í þessum
málum. í þessu máli er biðin þeim
til tekna, ekki öfugt.
Ekki sjóflugvöll
við Reykjavík
Finnbogi hringdi:
Nokkur orð um Reykjavíkur-
flugvöll og Vatnsmýrina. Ég er
sammála þeim sem vilja koma
innanlandsfluginu frá Reykjavík
til Keflavíkur. Önnur lausn er
ekki umræðuhæf. Að fá eins kon-
ar sjóflugvöll úti í Skerjafirði er
fásinna. Bæði óþarfa kostnaður
og svo væri hann jafn hættulegur
þar, með aðflug og flugtök yfir
þéttbýlið rétt eins og í dag. Auð-
vitað er ekkert vit í því að lappa
upp á Reykjavíkurflugvöll fyrir
nokkra milljarða króna og teppa
um langa framtíð hið dýrmæta
landsvæði við borgarkjamann. -
Ég bendi hins vegar áhugasömum
íbúum borgarinnar á þessu máli
að lesa forystugrein i DV sl. föstu-
dag þar sem ég las nokkuð ítar-
lega umfjöllun um mál þetta.
Vísað frá
ísafirði
Brottfluttur ísfirðingur skrifar:
Þar sem enn upphefst umræða
um mál byggðanna á Vestfjörðum
norðanverðum vegna slysanna
hörmulegu og bætur vegna
þeirra, vil ég lýsa undrun minni á
því að ekki skuli fleiri flytjast
brott frá þessum afskekktu byggð-
um sem enga framtíð eiga fyrir
sér. ísafjarðarkaupstaður, einn og
sér, á heldur enga ffamtíð fyrir
sér - landrými ekkert og hvergi
má byggja. Fólki er vísað frá um-
svifúm á kaupstaðnum og sagt að
nóg landrými sé í Önundarfirði.
Það er bara ekki staðurinn sem
fólk lítur til í dag. Án landrýmis
er uppbygging ísafjarðarkaup-
staöar úr myndinni. Þetta á líka
við um nágrannabyggðimar,
Súðavík, Flateyri, Suðureyri og
Bolungarvík. Einnig Þingeyri
sem er orðin einna afskekktasta
byggöarlagið vestra, vegna sam-
gönguerfiðleika.
Dómgreindar-
leysi í utanríkis-
ráðuneyti
Giurnar Kristjánsson skrifar:
Ég er undrandi yfir því dóm-
greindarleysi sem íslenskir emb-
ættismenn sýna af sér æ ofan í æ
í afskiptum sínum af hinum ýmsu
málum. Ekki síst í samskiptum
við erlenda aðila, fyrirtæki eða
einkaaðila. Fréttir um aö sendi-
herrann okkar í Washington hafi
gengiö erinda utanríkisráðuneyt-
isins hér í máli Eimskips hf.,
vegna málaferla fyrirtækisins
gegn bandarískum stjómvöldum
og freistað þess að hafa áhrif á
dómarann með sendibréfi, er ein-
stakt dómgrendarleysi ráöuneyt-
isins. Ekki endilega sendiherrans,
sem gerir það sem fyrir hann er
lagt. Spumingin er svo sú hvort
Eimskip hf. getur yfirleitt krafist
þess aö fá til sín alla flutninga
Bandaríkjamanna fyrir vamarlið-
ið hingað til lands. Flutningamir
eru í höndum íslensks-bandarísks
skipafélags. Nægir okkur íslend-
ingum það ekki í bili?
Flugleiðaþotur
í hættu?
HaHdóra hringdi:
Hvers vegna að taka Flugleiða-
þotur sem dæmi um stórslys
fremur en einhverjar aörar þotur
eða hara önnur samgöngutæki yf-
irleitt? Eða t.d. jarðskjálfta eða
náttúrahamfarir almennt, þegar
borin er saman dánartíðni hér af
völdum reykinga? Ég verð að taka
undir lesendabréf í DV sl.
fimmtudag og finnst að forseti ís-
lands hafi tekið verulega skakkan
pól í hæðina þegar hann tekur
dæmi af Flugleiðaþotum sem
kynnu að farast. Ekki bara ein,
heldur margar, hver á eftir
annarri. Eru þessar þotur
kannski í meiri hættu en aðrar
flugvélar? - Er nema von aö mað-
ur spyrji, þótt ekki sé nema sjálf-
an sig, þeirrar spumingar?