Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1999, Síða 14
~WA». MAGENTA
14
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999
3
»
)
Á hverju þriðjudagskvöldi setjast nokkrir tugir Akureyringa að spila-
borðum t Hamri, félagsheimili Þórs þar t bæ. Þetta eru félagar t Bridge-
félagi Akureyrar sem var stofnað árið 1944 og er því 55 ára gamaltfé-
lag. Stefán Vilhjálmsson, formaður félagsins, segir geysimikinn áhuga á
bridge í bænum, um 50 manns keppa t.d. í Sveitakeppni Akureyrar
sem stendur yfir þessar vikumar.
Stefán segir að þetta sé aðeins
brot afþeim fjölda sem spilar
bridge á Akureyri, þar sé
spilað á vinnustöðum og í
heimahúsum og bridgeá-
hugamenn skipti ömgg-
lega hundmðum. Til-
veran kom við í Hamri
sl. þriðjudagskvöld og
ræddi við bridgespilara
þar.
Ætla að spila fram í andlátið
Held ég læri þetta aldrei
Ég er ekki forfallm bridgespil-
ari, ég leyfí mér það ekki. Ég
gæti þó hugsað mér að spila á
hverjum degi en spila svona 2-3 í
viku. Þetta er mikil hvíld frá hinu
daglega amstri og vinnunni," segir
Sunna Borg leikkona, en hún var
ein fárra kvenna sem sátu við spila-
borðið í sveitakeppninni á Akur-
eyri.
Sunna segir að fjölmargar konur
á Akureyri spili bridge en þær séu
ragar við að fara í keppni. „Ég er
bara svo köld að ég skelli mér í
keppni og á því lærir maður mest,
að spila við miklu betri spilara en
maður er sjálfur. Annars er þetta
heilmikil hugarleikfimi. Ég tel mig
eiga langt í land miðað við þá bestu.
Það eru ótal sagnakerfi í bridginum
sem þarf að læra og þau eru flókin.
En ef maður nær tökum á sagna-
kerfunum þá nær maður árangri,
það er ekki spuming.
Ég lít fyrst og fremst á bridge sem
áhugamál þótt ég leyfi mér að taka
þátt í keppni. Þetta er ýkt gaman
eins og krakkamir segja. En málið
er að þetta er svo flókið, ég held að
ég læri þetta aldrei," sagði Sunna,
hógvær að vanda.
-gk
DV-mynd gk
Sunna Borg: „Gæti
hugsað mér að spila
á hverjum degi.“
DV-mynd gk
„Heitasta"
ið emm heitasta pai'ið
hér í kvöld,“ sögðu fé-
lagarnir Helgi Helgason
og Preben Pétursson þegar
þeir stóðu upp frá bridge-
borðinu í hálfleik. Þeir
virtust nokkuð ánægðir
með sjálfa sig þetta
kvöld, þótt lítið vildu þeir
ræða frammistöðuna í
smáatriðum.
„Blessaður vertu, við sjóð-
um alla niður í kvöld,
erum alveg sjóðandi
heitir og það verður
ekkert gaman fyrir and-
stæðingana að mæta
okkur á eftir,“ sögðu
þeir félagar glottandi.
-gk
Heigi og Preben: „Við sjóðum þá niður.“
Eélagsskapurinn skiptir auðvit-
að mjög miklu máli en ann-
ars held ég að það sé
spennan sem togar mig aðal-
lega að bridginum, enda er
ég spennufikill,“ segir
Jónas Róbertsson, „gamli“
knattspyrnumaðurinn úr
Þór sem hóf að spila keppn-
isbridge af fullum krafti fyrir
um 10 ámm.
„Já, ég er hræddur um að þ;
sé keppnin sem heillar mig
mest í sambandi við þetta.
Bridge er líka íþrótt sem
sker sig úr, maður get-
ur lent í því sem byrj-
andi að spila við þá
allra bestu og vegna
þess hvernig íþrótt
þetta er getur oft far-
ið svo að þeir sem
lægra era skrifaðir
vinni þá allra bestu.
Þetta er íþrótt hug-
ans og þar getur allt
gerst.
Svo hefúr bridge
það umfram flestar
aðrar íþróttir aö það er hægt að
spila alveg fram í andlátið og
það ætla ég mér að gera.
Þótt líkaminn hrömi þá
er hægt að spila svo
lengi sem maður getur
setið uppréttur,“ segir
Jónas.
-gk
Jónas
Róberts-
son: „Ég er
spennufík-
ill.“
DV-mynd
3k
Mikill áhugi
á hridge á
Akureyri
Páll Pálsson, lengst til vinstri, fer yfir stöðuna ásamt sveitarfélögum sínum,
Birni Þorlákssyni og Þórarni B. Jónssyni.
DV-mynd gk
Miklu meiri læti áður fyrr
að vora miklu meiri læti í
5; kringum keppnina hér áður
fyrr og ekki óalgengt að sam-
heijar hnakkrifust að loknu hverju
spili. Ef til vill era menn betur
samæfðir í dag og þeir taka því líka
betur þótt eitthvað beri út af í
keppninni,“ segir Páll Pálsson.
Páll hefúr spilað keppnisbridge á
Akureyri í a.m.k. 35 ár og man því
tímana tvenna þótt ekki sé hann
ýkja gamall. Hann segist vera far-
inn að minnka spilamennskuna,
spili nú „bara“ einu sinni í viku en
ekki tvisvar til þrisvar eins og áður
var.
„Þetta gefur manni mikið, keppn-
in er alltaf jafnáhugaverð og maður
kynnist mörgum við spilaborðið.
Það er alltaf einhver endumýjun í
spilarahópnum. Við fengum t.d.
mikið af ungu fólki i spilamennsk-
una fyrir 3-4 áram og eigum fjölda
efnilegra spilara og t.d. þrjá af fjór-
um sem skipuðu unglingalandslið
íslands í siðustu keppni þess,“ segir
Páll.
-gk