Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1999, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999 T*|V
jstelkerinn
Óttar Guðmundsson gefur uppskrift að bragðmiklum réttum:
Heldur vampírum og flensu fjarri
Ég hef um langt skeið haft mikið
dálæti á bragðsterkum mat.
Kannski er það svo að bragðlaukun-
um fer hnignandi með vaxandi aldri
og mótlæti - en allavega er ég orð-
inn hundleiður á þessum bragð-
lausa íslenska veitingahúsamat þar
sem flatneskjan og hugmyndafá-
tæktin malla sitt í hvorum pottin-
um.
Þessa rétti rakst ég á eitt sinn úti
i Svíþjóð hjá bræðrunum Olsen á
Södermalm í Stokkhólmi; heillaðist,
hitti kokkinn að máli og fékk hjá
honum uppskriftirnar. Bræðumir
Olsen eru þekktir fyrir hvítlauks-
rétti sína enda er mikill hvítlaukur
í þessum réttum. Ekki veitir af á
þessum flensutímum en margsinnis
hefúr verið sýnt fram á það að ekk-
ert reynist ónæmiskerfinu eins vel
og hvítlaukur. Auk þess heldur
hann frá manni vampírum af öllum
kynjum sem er nauðsynlegt á þess-
um prófkjörs- og kosningatímum.
Marineraður hvítlaukur:
3- 5 heilir hvítlaukar (40-50 lauf)
1-2 stórir tómatar
4- 5 matsk. edik
2 matskeiðar vatn
2 teskeiðar púðursykur
1 teskeið salt
1 matskeið tómatmauk
1-2 teskeiðar sojasósa
1-2 teskeiðar sambal oelek (fer
eftir smekk)
2 matskeiðar olífuolía
slatti af timjan, dragon, myntu og
lagerblöðum.
1. Afhýða hvítlaukinn. Sjóða hann í
5 mínútur. Skola með köldu vatni.
Geyma í skál.
2. Skera rifu í toppinn í tómötunum.
Sjóða þá í vatni þangað til hýðið
losnar (30-40 sek.) Skola með köldu
vatni; taka hýðið af, fleygja kjaman-
um. Hakka tómatana.
3. Hella saman við tómatana ediki
og vatni. Blanda í þetta púðursykri,
salti, sojasósu, sambal oelek og
ólífuolíu. Hræra ofan í þetta
jurtakryddunum. Sjóða í
ca 5-10 mín. Smakka
og bæta í kryddi eft
ir smekk.
Hella þessari
blöndu síðan
yfir hvítlauks-
laufin. Geyma
í 24 klukku-
stundir í ís-
skáp áður en
þetta er borið
fram sem
meðlæti eða
bragðauki
með öllum
mat eða látið
standa í ís-
skápnum eins
og gómsætur
aukabiti til að
gæða sér á eftir
vinnu.
Skeldýr í
chili (hragð-
sterkur rækju-
eða hörpudisks
réttur):
1 laukur
12-15 hvít-
laukslauf
1 rauð paprika
4 litlir chilipiprar
2 matskeiðar olífuolia
1 dl vatn
1 dl hvítvín
fiskteningur
1 matskeið tómatpuré
1-2 teskeiðar sambal oelek, (eftir
smekk)
slatti af kummin, lagerblaði,
myntu og timjan
1 matskeið púðursykur
1 teskeið salt
1-2 tómatar
150-200 gr af rækjum eða hörpu-
diski.
1. Afhýðið lauk og hvítlauk. Hakkið
laukinn, paprikuna, hvítlaukinn og
chiliávöxtinn.
2. Hitið olíuna í potti. Steikið sam-
an lauk, hvítlauk, papriku og chili
í 3-5 mín. Bætið út í hvítvíni, vatni
og fiskteningnum.
3. Hrærið ofan í þetta tómatpuré,
sambal oelek, kummín, mulið lag-
erblað, púðursykur og salt.
4. Skerið smárifu í tómatinn. Sjóðið
hann í ca 30 sek. losið síðan hýðið
af og hakkið tómatinn. Bætið út i.
5. Leggið rækjumar út í og látið
suðuna koma upp.
Berið fram strax.
Óttar Guðmundsson læknir segir
m.a. um réttinn: „Auk þess heldur
hann frá manni vampírum af öllum
kynjum sem er nauðsynlegt á
þessum prófkjörs- og kosninga-
tímum.“
Nýkaup
Þar semferskleikinn býr
Framandi
ávaxtasalat
Fyrir 4-6
3 stk. greipaldin, rauð
1-2 stk. stjömuávextir
10-12 stk. plómur
1 stk. mangó
1 askja rifsber
1 askja hindber
3-4 dl appelsínusafi
5-6 msk. sítrónumelissa
Afhýðið greipaldin og skiptið í
lauf. Skerið stjörnuávextina í
sneiðár, plómurnar í báta og
mangóið í sneiðar. Saxið
sítrónumelissuna og blandið öllu
saman í skál. Helliö appel-
sínusafanum yfir. Setjið í kæli.
Beriö fram með ís eða eitt sér.
Hollráð
Nota má aðra ávaxtasafa en
appelsinusafa. Gott getim verið
aö bragðbæta þennan rétt með
líkjör.
Uppskriftirnar eru fengnar frá
Nýkaupi þar sem alft hráefni í
þær fæst.
wmmmmmmmmmmmmmmmm
fáatgæðingur vikunnar
Heillandi kjúklingaráttur
Linda Hansen býður upp á
kjúklingarétt sem gefur heillandi
bragð og getur auöveldlega haft
heillandi áhrif.
4 kjúklingabringur, grillaðar eða
steiktar og skornar í bita
1 rauð paprika, skorin í strimla
1 dós vatnshnetur, þerraðar og
skomar til helminga
5 vorlaukar, skomir í strimla
Ein askja sykurbaunir, hitaðar í
sjóðandi saltvatni í 3-5 mín.
100 g cashewhnetur (hjartahnet-
ur) ristaðar
2 msk. parsley í krukku
1/2 bolli teriyaki sósa
1/4 bolli sesamolía
1/4 bolli safflowerolía
2 tsk. hrísgrjónaedik
2 tsk. sérrí
1 msk. púðursykur
2 tsk. kóríanderkrydd
3 tsk. sesamfræ, ristuð
1. Cashewhnetum og sesamfræjum
er ágætt að smella undir grillið í
ofninum í u.þ.b. 2-3 mín.
2. Kjúklingur, paprika, hnetur, vor-
laukur, sykurbaunir og cashew sett
í skál.
3. Sett í mixara með stálblaði:
parsley, hvítlaukur, teriyaki, sesam-
olía, safflowerolía, hrísgijónaedik,
sérrí, púðtmsykur og kóríander.
4. Hellt yfir salatið og látið standa í
ísskáp yfir nótt.
5. Sesamfræjum stráð yfir í lokin.
Með réttinum er gott að hafa
basmatic hrísgrjón og brauð.
Þar sem hann Þórhallur Gunnars-
son kann ekki að gera nanbrauð, þá
hef ég hugsað mér að kenna honum
það:
1,5 tsk. þurrger (1/2 pk.)
1 tsk. salt
1 tsk. sykur
1 tsk. lyftiduft
3 bollar hveiti
1,5 dl mjólk
2 msk. olía
1 egg
4 msk. jógúrt án bragðefna
Blandið saman þurrefnum, hit-
aðri mjólk og afganginum (gott að
hafa jógúrt við stofuhita). Hnoða
vel, lyfta í 30 mínútur, fletja út í nan
með höndunum og láta standa í 15
mín. Grilla ofarlega í ofni í 2-3 mín.
á hvorri hlið.
Ég ætla að skora á systurson
minn, ívar Örn, en hann er mat-
reiðslunemi hjá Veislunni, sem
næsta matgæðing DV. Ég hef mikla
trú á honum sem verðandi meistara
á þessu sviði og vona að ég eigi eft-
ir að njóta góðs af því.
Linda Hansen vígbúin í eldhúsinu.
Hún kennir okkur að búa til kjúklinga-
rétt með margvíslegu kryddi og
heimabakað nanbrauð.
Nykaup
Þar sem ferskleikinn býr
Grafinn
lambahryggur
Fyrir 4
600 g lambahryggsvöðvi, fitu-
og sinalaus
6 msk. Provence-krydd (frá
Pottagöldrum)
2 msk. fimmpiparblanda
(Gevalia)
1-2 msk. púðursykur
1 msk. salt
Rauðvinssósa (vinaigrette)
1 dl rauðvínsedik
1 dl ólifuolía
3 msk. púðursykur
2 msk. Worchestershiresósa
1/2 dl kjúklingasoð
1 stk. laukur
6 msk. rifsber, fersk eða fros-
Blandið vel saman kryddi og
púðursykri og hjúpið lamba-
l vöðvann. Leggið í ísskáp í 3 sól-
arhringa, snúið af og til. Skafið
síðan kryddið utan af vöðvan-
um og skerið í þunnar sneiðar.
1 Sett á miðja diska, sósan í
kring.
Rauðvínsedikssósa
■ (vinaigrette)
Saxið laukinn og merjið ber-
in. Blandið öllu saman og látið
standa í 4-5 klst fyrir notkun.
Annað meðlæti
Berið fram meö grófu brauði.
Marineraður lax
í eplasafa og
kóríander
Fyrir 4
500 g lax, roðflettur og bein
í laus
Marinering
1 msk. gróft salt
2 msk. sykur
j 6 msk. kóríanderlauf, söxuð
! 3 dl eplasafi
1 dl kjúklingasoð, kælt (vatn
og Knorr-teningur)
Sósa
2,5 dl eplasafí
2 tsk. sítrónusafi
2 tsk. sesamfræ
Skraut
12-16 stk. kóríandergreinar,
ferskar
Blandið saman salti, sykri,
kóríanderlaufum, eplasafa og
kældu kjúklingasoði. Leggið
laxinn í marineringuna í 16-18
klst. Geymið í kæli. Skerið síð-
an í þunnar sneiðar og leggið í
kross á diska með kóríander-
grein á milli. Berið fram með
sósu og ristuðu brauði.
Sósa
Brúnið sesamfræin á heitri,
þurri pönnu. Blandið síðan öllu
saman og látið standa í 5-6 klst.
fyrir notkirn
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupí
þar sem allt hráefni í þær fæst.