Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1999, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1999, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999 ífjirúðuleikhús ». Sýnishorn úr söluskrá: BMW318Í1991. kr. 1.180.000. Opel Corsa 1997, kr. 995.000. Mazda 323F 1998. kr. 1.445.000. F.Explorer 1991, kr. 1.180.000. Volvo 760 1990, kr. 1.050.000. Hyundai Elantra st. 1996, kr. 1.180.000. VW Golf 1998, kr. 1.330.000. VW Golf 1996, kr. 990.000. VW Golf 1995, kr. 910.000. Ford Escort 1600 Skrd. 10/98, ek. 3 þús. km. Verð 1.420.000. Lars og Pia í leikmyndinni. Brúðurnar búa hver í sinni skúffu og reyna sífellt að troða Þumalínu ofan í skúffuna hjá sér. Anderse Lene, Lars og Pia: Leikhúslistafólk á heimsmælikvarða. DV-mynd Pjetur Jóhann Hannó Jóhannsson, lögg. bifreiðasali Sigríður Jóhannsdóttir, lögg. bílasali Friöbjörn Kristjánsson, sölufulltrúi. Jóhann M. Ólafsson sölufulltrúi Opiö alla daga - 600 m2 innisalur Alltaf hlýtt í Evrópu! Á sunnudaginn verður frumsýnt í Gerðubergi brúðuleikhús af því tagi sem við höfum aldrei séð fyrr. Allt verður þar að brúðum: skæri, klemmur, gatarar og heftarar, og má nærri geta að foreldrar bam- anna sem fá að sjá sýninguna verða að gæta vel að tækjum sínum og áhöldum næstu vikurnar! Það eru listamenn frá danska barnaleikhúsinu Gadesjakket í Óð- insvéum sem hingað eru komnir með sýningu á ævintýrinu um Þum- alínu sem þeir hafa þegar sýnt 200 (tvö hundruð!) sinnum í heimaland- inu en aldrei fyrr utan þess og þeir eru barmafulir af spenningi eftir að hitta íslensk börn og gá hvemig þeim líst á. Leikritið sjálft sýna tónlistarmað- urinn Lars Holmsted og leikarinn Pia Gredal en með þeim er mynd- listarkonan Lene Degett sem ætlar að hafa listasmiðju fyrir böm fyrir og eftir sýninguna þar sem þau geta teiknað myndir af Þumalínu. Sagði Lene að skemmtilegt væri að sjá muninn á myndunum af Þumalínu sem bömin gerðu fyrir sýninguna og eftir hana en stundum verða þó ungu áhorfendumir hastarlega ósammála leiksýningunni um það hvemig Þumalína lítur út! Gadesjakket-barnaleikhúsið hef- ur bækistöð í Teaterhuset í Óðins- véum sem stofnað var fyrir tæpum tveimur árum. Þar hafa þrjú leik- hús fasta aðstöðu, tvö bamaleikhús og eitt fullorðins, en auk þess er það EVRÓPA BÍLASALA „TÁKN UM TRAUST“ Faxafen 8 Sími 581-1560 Fax 581-1566 Opnum kl. 8.30 Þumalína - grunnhug- myndin kemur frá rósa- blöðum. opið utanaðkomandi leikhópum, innlendum og erlendum. Að jafnaði em tvær sýningar á dag hjá Gadesjakket fyrir böm og unglinga sem koma á veg- um skólanna sinna eða með foreldr- um sínum. En sýningin um Þumal- ínu hefur þróast cdveg á sérstakan hátt utan hússins þó að hún hafi líka verið sýnd í Teaterhuset. Leik- húsið keypti sem sé strætisvagn, tók úr honum allt innvolsið og bjó til lítið leikhús í staðinn með sviði og rými fyrir 30 smávaxna áhorf- endur. Svo lögðu Lars og Pia vagn- inum fyrir utan leikskólana, eina viku við hvem, og náðu að leika verkið tvisvar fýrir hvert bam í skólanum. Auk þess unnu leikar- amir að brúðugerð með börnunum, bæði inni í strætó og í leikskólan- um, úr alls konar dóti og drasli sem bömin komu með heiman að. Þetta varð mikil upplifun fyrir unga fólk- ið. „Þumalína skilur sig frá öðrum persónum i sýningunni af því hún er eina mennska veran,“ segir Pia, „og grunnhugmyndin að henni kemur ekki frá áhaldi heldur rósa- blöðum. Börnin tengja sig við hana og hafa samúð með henni, enda eru allir stærri en hún í leikritinu og það er ráðskast með hana fram og aftur. Þetta kannast blessuð bömin við og fara undir eins í vörn fyrir Þumalínu þegar aðrar persónur hafa um hana óvirðuleg orð.“ Pia er búin að læra sögumannstexta sinn á íslensku og ætlar að ávarpa bömin í Gerðubergi á móðurmáli þeirra á sunnudaginn. „Foreldrar þurfa alls ekki að ótt- ast að börnin skUji ekki söguna. Sýningin er mjög sjónræn, það er alltaf verið að gera eitthvað á svið- inu,“ segir Lars. Sýningin verður sett upp í sér- stöku tjaldi í Gerðubergi og inni í tjaldinu er veröld Þumalínu sem bömin mega skoða og snerta. Piu og Lars finnst nauðsynlegt að leikhús- ið skapi sinn eiginn heim. „Leikhús hjálpar börnunum að dýpka skilning sinn á alls konar hlut- um í lífinu," segir Lars. „Þumalína fjallar auðvitað um grafalvarleg tU- vistarvandamál, en með brögðum leikhússins er enginn vandi að láta aUt niður í þriggja ára börn skUja þau djúpum skilningi. Böm kljást við aUs konar erfiðleika í sínu eigin lífi - þau fara ung í leikskóla eða tU dag- mömmu og eru að heiman aUan dag- inn, þau þurfa að átta sig á ókunnug- um af ýmsu tagi og leysa aUs konar vandamál. í leikhúsinu upplifa þau að maður lifir erfiðleikana af og verð- ur sterkari fyrir vikið.“ „Áður vom ævintýrin sögð upp- hátt á heimilinum," segir Lene, „nú er minna um slíkt. En böm verða að fá ævintýri og í leikhúsinu fá þau það beint í æð!“ „Við eram auðvitað skömmuð stundum fyrir að snúa út úr fyrir H.C. Andersen og eyðUeggja ævin- týrið hans, en hver tími verður að fá að segja ævintýrin á sinn hátt. Reyndar tók hann sjálfur mörg göm- ul ævintýri og umsamdi þau eftir sínu eigin höfði. Hann skapaði for- dæmið!“ segir Lars. Sýningin hefst kl. 14 á sunnudag- inn en listasmiðjan verður opnuð strax kl. 13. -SA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.