Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1999, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1999, Blaðsíða 46
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999 OV Jón Baldvin Hannibalsson Jón Baldvin Hannibals- son, sendiherra íslands í Washington, verður sextug- ur á morgun. Starfsferill Jón Baldvin fæddist á ísafirði og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1958, MA-prófi í hagfræði frá Edinborgarhá- skóla 1963, stundaði fram- haldsnám í vinnumarkaðs- hagfræði við Stokkhólmsháskóla 1963-64, lauk prófi í uppeldis- og kennslufræði við HÍ 1965 og stundaði framhaldsnám í samanburðarhag- fræði við Harvard-háskóla í Banda- ríkjunum 1976-77. Jón var kennari við Hagaskólann í Reykjavík 1964-70, blaðamaður hjá Frjálsri þjóð 1964-67 og hjá Nýju landi 1967-69, skólameistari MÍ 1970-79, ritstjóri Alþýðublaðsins 1979-82, alþingismaður Reykvíkinga 1982-97, fjármálaráðherra 1987-88, ut- anríkisráðherra 1988-95, og hefur verið sendiherra íslands í Was- hington frá 1997. Jón var formaður Félags róttækra stúdenta 1960-61, formaður Félags háskólamenntaðra kennara 1966-69, varaborgarfulltrúi í Reykjavík 1966-70, í ráðgjafamefnd til imdir- búnings inngöngu í EFTA 1968-70, bæjarfulltrúi á ísafirði 1971-78, for- seti bæjarstjómar 1975-76, sat í stjómskipaðri nefiid um flutning rík- isstofnana út á land 1972-75, í stjóm- arskrámefnd 1978-84, í Rannsóknar- ráði um skeið frá 1983 og formaður Alþýðuflokksins 1984-97. Jón hefúr skrifað mikinn fjölda Jón Baldvin Hannibalsson. greina í innlend og erlend tímarit, einkum um jafn- aðarstefnuna og stjóm- mál almennt, sem og ýmsa bókarkafla. Fjölskylda Jón kvæntist 26.9. 1959 Bryndísi Schram, f. 9.7. 1938, sendiherrafrú og fyrrv. framkvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs. Hún er dóttir Björgvins Schram, f. 3.10.1912, fyrrv. stórkaupmanns og formanns KSÍ, og k.h., Aldísar Þor- bjargar Brynjólfsdóttur, f. 23.3. 1917, d. 5.5.1991, húsmóðir. Böm Jóns og Bryndísar era Aldís, f. 21.1.1959, lögfræðingur og leikkona í Reykjavík; Glúmur, f. 13.10. 1966, MA í Evrópu-stjórnmálafræði, starfar i Bandaríkjunum; Snæfríður, f. 18.5. 1968, í framhaldsnám í hag- fræði; Kolfinna, f. 6.10. 1970, í fram- haldsnámi í Bandaríkjunum. Systkini Jóns eru dr. Amór Hanni- balsson, f. 1934, prófessor í heimspeki við HÍ, kvæntur Nínu Sveinsdóttur viðskiptafræðingi og eiga þau fimm böm; Ólafur, f. 1935, blaðamaður í Reykjavík en kona hans er Guðrún Pétursdóttir forstöðumaður og eiga þau saman tvö böm auk þess sem hann á þijú böm frá því áður; Elín, f. 1936, kennari á Flúðum í Hrana- mannahreppi og á hún fjögur böm; Guðríður, f. 1937, skrifstofumaður í Reykjavík en hún á tvö böm. Háifbróðir Jóns, samfeðra, er Ingj- aldur, f. 1951, iðnaðarverkfræðingur. Foreldrar Jóns vora Hannibal Valdimarsson, f. 13.1. 1903, d. 1.9. 1991, alþm., ráðherra og formaður Alþýðuflokksins, Alþýðubandalags- ins og Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, og k.h., Sólveig Sig- ríður Ólafsdóttir, f. 24.2. 1924, hús- móðir. Ætt Hannibal var bróðir Finnboga, fyrrv. alþm. og ritstjóra. Faðir Hannibals var Valdimar, b. í Fremri- Amardal í Norður-ísafjarðarsýslu, Jónsson, b. í Litlu-Ávík í Stranda- sýslu, Jónssonar, b. á Melum í Víkur- sveit, Guðmundssonar. Móðir Valdi- mars var Helga Guðmundsdóttir, b. á Kjörvogi í Reykjarfirði, Jónssonar. Móðir Hannibals var Elín Hanni- balsdóttir, b. á Neðribakka í Langa- dal, Jóhannessonar, b. á Kleifum í Skötufirði, Guðmundssonar, sterka á Kleifum, Sigurðssonar, föður Sigurð- ar, langafa Óskars, afa Magnúsar Óskarssonar borgarlögmanns. Móðir Elínar var Sigríður Arnórsdóttir, prófasts i Vatnsfirði, Jónssonar, bróður Auðuns, langafa Jóns, föður Auðar Auðuns. Móðir Sigríðar var Guðrún Magnúsdóttir „eymdcu- skrokks", b. í Tröð í Álftafirði, Jóns- sonar og Guðrúnar Magnúsdóttur, b. í Súðavík, bróður Ingibjargar, ömmu Jóns forseta og Jens rektors, langafa Jóhannesar Nordal. Magnús var son- ur Ólafs, ættföður Eyrarættar, Jóns- sonar, forföður Matthíasar Á. Mathiesen og Geirs Hallgrímssonar. Sólveig var systir Guðrúnar, móð- ur Jóns Helgasonar, fyrrv. formanns Einingar á Akureyri, og Friðfinns, forstjóra Háskólabíós, föður Bjöms ráðuneytisstjóra og Stefáns, forstjóra íslenskra aðalverktaka. Sólveig var dóttir Ólafs, b. í Strandseljum i Ögur- hreppi, Þórðarson, b. á Hjöllum í Skötufirði, Gislasonar. Móðir Ólafs var Guðrún Ólafsdóttir, b. á Skjald- fönn, Jónssonar og Jóhönnu, systur Guðmundar, langafa Jónu, ömmu Ólafs Þ. Þórðarsonar. Annar bróðir Jóhönnu var Sveinbjörn, langafi Al- freðs, föður Alfreðs Jolsons biskups. Sveinbjöm var einnig langafi Sófus- ar, afa Kristins Friðfinnssonar dóm- kirkjuprests. Jóhanna var dóttir Eg- ils, b. í Bakkaseli, Sigurðssonar, „réttláta" i Gilsfjarðarmúla, Jónsson- ar. Móðir Sólveigar var Guðríður Hafliðadóttir, vegghleðslumanns á Borg í Ögurhreppi, Jóhannessonar, bróður Hannibals, afa Hannibals Valdimarssonar. Móðir Guðríðar var Þóra Rósinkransdóttir, b. á Svart- hamri, bróður Sigurðar, afa Jóns Baldvinssonar, fyrsta formanns Al- þýðuflokksins og langafa Sverris Hermannssonar og Ingigerðar, móð- ur Þorsteins Pálssonar. Rósinkrans var sonur Hafliða, b. í Kálfavík, Guð- mundssonar, bróður Jóhannesar á Kleifum. Móðir Þóra var Elísabet Jónsdóttir, b. á Svarthamri, Jónsson- ar. Móðir Elísabetar var Elín, systir Karítasar, langömmu Ásmundar Guðmundssonar biskups. Elin var dóttir Illuga, prests á Kirkjubóli, Jónssonar, og konu hans, Sigríðar Magnúsdóttur, prófasts í Vatnsfirði, Teitssonar, bróður Jóns biskups á Hólum, langafa Katrínar, móður Ein- ars Benediktssonar skálds. Móðir Sigríðar var Ingibjörg Markúsdóttir, systir Herdísar, langömmu Þorbjarg- ar, langömmu Guðríðar, ömmu Guð- laugs Tryggva Karlssonar hagfræð- ings. Hrund Kristjánsdóttir Thorlacius Hrand Kristjánsdóttir Thorlacius húsmóðir, Bjarmastíg 11, Akureyri, er áttræð í dag. Starfsferill Hrand fæddist að Ytri-Tjömum í Eyjafirði og ólst þar upp. Hún stundaði nám við Húsmæðraskól- ann að Syðra-Laugalandi. Auk húsmóðurstarfa hefur Hrand verið saumakona um árabil og starf- að hjá Mjólkursamlagi KEA. Hrund hefur verið kirkju- organisti í þijátíu og sex ár, lengst af við kirkjuna að Munkaþverá og kirkjuna í Kaupangi. Þá söng hún með ýmsum kórum, s.s. með Munkaþverárkómum og síðari árin með Grundarkómum. Þá starfaði hún i kvenfélaginu Voröld. Fjölskylda Hrund giftist 9.5. 1942 Einari Thorlaciusi frá Öxnafelli, f. 25.12. 1913, fyrrv. bónda og síðar starfs- manni hjá Mjólkursamlagi KEA. Hann er sonur Jóns Thorlaciusar og Þuríðar Jónsdóttur, bænda að Öxnafelli í Eyjafjarðar- sveit. Böm Hrundar og Einars era Þuríður, f. 29.6. 1943, húsfreyja og bóndi að Hóls- húsum í Eyjafjarðarsveit, gift Reyni Helga Schiöth, f. 25.10. 1941, bónda, og eiga þau tvo syni; Einar Hrund Kristjánsdóttir Thoriacius. Tryggvi, f. 25.10. 1955, bóndi í Átröö I í Eyjafjarðarsveit, kvæntur Ragn- heiði Gunnbjömsdóttur, f. 6.5. 1951, og eiga þau þijú böm. Systkini Hrandar: Laufey Sigríð- ur, f. 2.11. 1899, nú látin, lengst af húsfreyja á Sílastöðum; Benjamín, f. 11.6.1901, nú látinn, lengst af prest- ur á Syðra-Laugalandi í Eyjafirði; Inga, f. 29.7. 1903, nú látin, lengst af kaupmaður í Reykjavík; Auður, f. 14.12.1905, nú látin, lengst húsfreyja að Gimli í Kanada; Theódór, f. 12.3. 1908, nú látinn, vélamaður og bóndi á Ytri-Tjörnum og síðar húsvörður í Freyvangi í Eyjafirði; Svafa, f. 26.5. /1910, lengst af húsmóðir á Akureyri, nú búsett í Kjarnalundi; Baldur Helgi, f. 7.6. 1912, lengst af bóndi á Ytri-Tjömum í Eyjafirði; Bjartmar, f. 14.4. 1915, nú látinn, prestur á Mælifelli í Skagafirði og síðar á Syðra-Laugalandi; Val- garður, f. 15.4.1917, d. 5.2.1999, borg- ardómari í Reykjavík; Dagrún, f. 1.5. 1921, nú látin, húsmæðrakennari og dagskrárgerðarmaður í Reykjavík, síöar á Akureyri; Friðrik, f. 29.5. 1926, lengst af húsgagnasmiður og síðar húsvörður við Hrafnagils- skóla, búsettur í Reykárhverfi. Foreldrar Hrandar vora Kristján Helgi Benjamínsson, f. 24.10.1866, d. 10.1. 1956, bóndi og hreppstjóri að Ytri-Tjömum í Eyjafirði, og k.h„ Fanney Friðriksdóttir, f. 6.1.1881, d. 13.8. 1955, húsfreyja. Ætt Kristján var sonur Benjamíns, hreppstjóra á Ytri-Tjörnum, Flóvents- sonar, b. á Hömrum i Eyjafirði Þor- steinssonar, b. á Hömrum, Jónssonar. Móðir Kristjáns var Sigríður Jónsdóttir, b. á Bringu, Gottskálks- sonar, b. í Bitra, Oddssonar, b. í Hólshúsum, Gottskálkssonar. Móðir Sigríðar var Guðrún Stefánsdóttir, b. í Bringu, Jónssonar, halta Eyj- ólfssonar. Móðir Stefáns var Sigríð- ur Tómasdóttir, hreppstjóra á Tjömum, Egilssonar, b. í Stóra-Dal, Sveinssonar, b. á Guðrúnarstöðum, Magnússonar. Móðir Sigríðar var Katrin Sigurðardóttir, b. í Kristnesi, Þorlákssonar. Fanney var dóttir Friðriks Páls- sonar, b. á Brekku í Kaupvangs- sveit, og Yngveldar Bjarnadóttur. Hrand og Einar bjóða ættingjum og vinum i kaffi að Ártröð I í Eyja- fjarðarsveit í dag, laugard. 20.2., milli kl. 15.00 og 19.00. Kristín H. Andrésdóttir Kristin H. Andrésdóttir kaupmað- ur, Rjúpufelli 40, Reykjavík, verður fimmtug á morgun. Starfsferill Kristín fæddist á Patreksfirði og ólst þar upp. Hún lauk þar hefð- bundnu bamaskólanámi og stund- aði síðan hin ýmsu fiskvinnslustörf á Patreksfirði. Kristin flutti til Reykjavíkur er hún var sextán ára. Hún stundaði afgreiðslustörf í Reykjavík til 1969, var heimavinnandi húsmóðir á ár- unum 1969-86 en hefúr verið at- vinnurekandi frá 1986. Hún starf- rækir nú tískuvöraverslunina CHA CHA í Kringlunni og í JL-húsinu. Fjölskylda Kristín giftist 20.2. 1969 Ingi- mundi Jónssyni, f. 3.9.1947, verslun- armanni. Hann er sonur Jóns Ingi- mundarsonar og Ingiríðar Helgu Leifsdóttur. Böm Kristínar og Ingimundar era era Andrea, f. 22.11.1971, hjúkr- unarfræðingur en maður hennar er Amar Þór Sævarsson og er sonur þeirra Amar Freyr, f. 14.3. 1996; Inga Ýr, f. 14.8.1973, verslunarstjóri og er dóttir hennar Fanney Hlín Sigurðardóttir, f. 11.4. 1995;Unnur, f. 7.1. 1979, nemi; Jón Róbert, f. 7.8. 1985, nemi. Systkini Kristínar, sammæðra, era Jón Gunnar Sigfús Björgólfs- son, f. 23.9. 1931, d. 19.4. 1971; Ólöf Vilhelmína Ás- geirsdóttir, f. 23.7. 1935; Gunnhildur Björgólfsdótt- ir, f. 24.12. 1937; Erla Vil- borg Björgólfsdóttir, f. 25.3. 1940; Daníel Svavar Jónsson, f. 1.8.1943; Ólafía Jónsdóttir, f. 10.6. 1945. Foreldrar Kristínar vora Andrés Teitur Karls- son, f. 5.11. 1901, d. 1980, verkamaður, og Jámbrá Jónsdóttir, f. 22.12.1907, d. 1956, hús- móðir. Kristín H. Andrésdóttir. Ætt Andrés Teitur var sonur Karls Hinriks, b. í Botni í Patreksfirði og húsmanns í Hænuvík og í Kollsvík, sonar Kristjáns Oddssonar og Ingibjargar Maríu Gunnarsdóttur. Móðir Andrésar Teits var Mikalína Guðbjarts- dóttir, b. í Hænuvík Ólafssonar, Halldórsson- ar. Móðir Guðbjarts var Guðbjörg Brandsdóttir. Móðir Mikalínu var Magdalena Kolvig Hall- dórsdóttir, skipherra í Stykkishólmi, Einarssonar, ættföö- ur Kollsvíkurættar, Jónssonar. Jámbrá var af Reykjahlíðarætt. Kristin er í útlöndum á afmælisdaginn. Til hamingju með afmælið 20. febrúar 80 ára______________ Aðalheiður Ámadóttir, Hjallabraut 5, Hafnarfirði. Magnús S. Bergmann, Kirkjuvegi 11, Keflavík. 75 ára Lára Kristjana Olafson, Stekkjarhvammi 74, Hafnarfiröi. Marta Jóhanna Loftsdóttir, Kastalagerði 5, Kópavogi. 70 ára Sigurbjörg Einarsdóttir, Hjallavegi 6, Reyðarfirði. Sigurbjörg Snorradóttir, Grettisgötu 57 A, Reykjavík. 60 ára PáU Ingi Jónsson bifreiðarstjóri, Útskálum 3, Hellu. Hann tekur á móti vinum og ættingjum í Mosfelli, laugard. 20.2. milli kl. 14.00 og 20.00. Elísabet Kristín Ólafsdóttir, Kleppsvegi 122, Reykjavík. Sigrún Gunnarsdóttir, Stórholti 4, Akureyri. Svava Ásdis Davíðsdóttir, Dyrhömrum 10, Reykjavík. 50 ára Birgir B. Sigurjónsson, Víðihlið 41, Reykjavík. Júliana Pétursdóttir, Kirkjubraut 30, Njarðvík. 40 ára Aðalheiður Svansdóttir, Unufelli 40, Reykjavík. Björgvin Guðjónsson, Vesturgötu 133, Akranesi. Einar Jónsson, Hringbraut 48, Reykjavík. Elin Karólina Kolbeins, Reykjafold 15, Reykjavík. Guðjón Kristinn Ó. Halldórsson, Maríubakka 6, Reykjavík. Pálina R. Theódórsdóttir, Dísaborgum 9, Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.