Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1999, Page 30
3« ferðir
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999 DV
ÍHalda tvær kjötkveðju-
hátíðir á mánuði
Borgin Salvador í Brasilíu stát-
ar jafnan af stærstu kjötkveðjuhá-
tíð landsins. Hátíðinni lauk í vik-
unni en í kringum tvær milljónir
manna tóku
þátt i henni,
þar af 800
þúsund ferða-
menn.
Hátíðin
hefur vaxið
mjög síðustu
tuttugu árin
og nú þarf
ekki minna
en 160 þús-
und starfs-
menn og 25
þúsund lög-
regluþjóna til
þess að allt
gangi að ósk-
um á þessari sex daga hátíð.
Salvadorbúar hafa undanfarin
ár „flutt“ hátíðina út og nú er
mögulegt aö komast á almenni-
lega kjötkveðjuhátíð á tveggja
vikna fresti einhvers staðar í
Brasilíu.
Búastríðsins minnst
Á þessu ári eru hundrað ár lið-
in frá því Búastriðið hófst í Suð-
ur-Afríku. Stríðsins verður
minnst með ýmsum hætti og von-
ast ferðayfirvöld í Suður-Afríku
til þess að það muni skila sér með
auknum straumi ferðamanna.
Þegar hefur verið eytt fimmtíu
milljónum til verksins. Bardaga-
svæðin á Norðurhöfðanum verða
sérstaklega merkt þannig að
ferðamenn geti kynnst sögu
stríðsins þegar þeir fara þar um.
Vonir standa til að minnst 150
þúsund ferðamenn muni leggja
leið sína um svæðið á næsta ári.
Van Gogh-safnið opnað í sumar
Van Gogh-safnið verður opnaö
eftir miklar endurbætur þann 24.
júní næstkomandi. Safnið hefur
verið lokað undanfarna mánuöi
vegna umfangsmikilia endurbóta.
Byggðir hafa veriö nýir salir
þannig að safnið hefur nær tvö-
faldast að stærð. Þar er gert ráð
fyrir styttri sýningum.
Opnunarsýningin í sumar verð-
ur helguð Theo van Gogh, bróður
málarans, og verður meðal ann-
ars sýnt fram á hversu mikilvæg-
ur hann var í söfnun og sölu list-
verka og hversu vel hann studdi
við bakið á bróður sínum.
Öryggisráðstafanir
Skíðaíþróttin hefur til þessa
ekki þótt hættuleg í samanburði
við margar aðrar íþróttagreinar.!
Bandaríkjunum valda tíð skíða-
slys þó auknum áhyggjum. Und-
anfamar vikur
hafa sex skíða-
menn látist í
skíðaslysum 1
Vail í Colo-
radoríki. Þrír
létust er þeir
rákust á tré og er talið að þeir
hafi verið að forða sér frá öðrum
skíðamönnum. Hinir lentu svo í
árekstri við aðra skíðamenn. Sú
spuming hefur því vaknað hvort
sumir skíðamenn séu beinlínis
hættulegir í brekkunum; fari
glæfralega án tillits til annarra
skíðamanna sem verða á vegi
þeirra. Yfirvöld á hinu vinsæla
skíðasvæði Vail hafa því ákveðiö
að setja öryggisverði í brekkum-
ar. Þeim er ætlað að fara um á
skíðum og fylgjast grannt með því
að skíöamenn sýni varkámi á
niðurleið. Þeim sem ekki gera það
verður vísað frá. -aþ
Páskaferð íslenskra fjallaleiðsögumanna:
A gönguskíðum um Grænland
Átta daga gönguskíðaferð á
Grænlandi um páskana er orðinn
fastur liður hjá íslenskum
fjallaleiösögumönnum.
Grænlandsferðir hafa færst mjög
í vöxt á undanfómum ámm og æ
fleiri íslendingar leggja leið sína
þangað í skemmri og lengri ferðir.
„Það ríkir cdveg einstök stemning á
Grænlandi og að mörgu leyti mjög
ólík því sem við eigum aö venjast
hér á íslandi. Landslagið á Austur-
Grænlandi, þangað sem ferðinni er
heitið um páskana, er til dæmis
mjög frábragðið því íslenska. Fjöll-
in era úr graníti og em bæði hærri
og hvassari en hér. Þau minna
kannski svolítið á landslag í Ölpun-
um. Á Ammassalikeyjunni sjálfri
rísa fjöllin í um 1500 m h.y.s. en á
fastalandinu norðan við eyjuna ná
þau hæstu tvö til þrjú þúsund metr-
um,“ segir Einar Torfi Finnsson hjá
íslenskum fj allaleiðsögumönnum.
Gerviefni og gervihnattadiskar
Páskaferðin hefst þann 27. mars
með flugi til Kulusuk á Austur-
Grænlandi. Þaðan verður flogið
með þyrlu til Tasiilaq og hin eigin-
lega skíðaganga hefst. íslenskir
fiallaleiðsögumenn útvega allan
helsta búnað, mat og tjöld.
„Daginn eftir göngum viö yfir lít-
ið fiallaskarð við Polheimsfiall og
síðan yfir ísinn til Qemertivartivit
á lítilli klettaeyju í Ammassalikfirð-
inum. Engar reglulegar samgöngur
era við þorpið yfir vetrartímann en
þama búa nokkrar fiölskyldur sem
lifa á veiðum. Á þessum slóðum hef-
ur ótrúlega lítið breyst frá því
fyrstu hvítu mennimir komu þang-
að fyrir rúmri öld. Það er kannski
helst að gerviefni hafi leyst skinn-
klæðnaðinn af hólmi og svo má sjá
gervihnattadiska á sumum hús-
anna,“ segir Einar Torfi. Tíaldað
verður við þorpiö og að sjálfsögðu
keypt nýtt selkjöt af veiðimönnum í
kvöldmatinn.
Með hundasleða út á ísinn
Á þriðja degi ferðarinnar verður
veiðimönnu fylgt eftir út á ísinn.
„Við fylgjumst með þeim við veiðar,
án þess þó að trufla þá. Síðan göng-
um við yfir lagnaðarísinn á Imiilaa-
Gönguskíðamennirnir voru heppnir með veður í síðustu páskaferð. Stillt veður og sólskin er oft á þessum árstíma.
Allt gert klárt fyrir nóttina, búið að
koma upp tjöldum og ekkert eftir
nema henda sér ofan í svefnpok-
ann.
firðinum og upp í lágt skarð um
miðbik Ammassalik-eyju. Útsýnið á
þessum slóðum er ótrúlega stórfeng-
legt,“ segir Einar Torfi. Leið vatna-
búanna er viðfangsefni næsta dags
en þá er gengið niður úr skarðinu
Kugarmit Avquta. „Við göngum nið-
ur í þorpið Tiniteqilaaq sem stend-
ur við Sermilik-Qörðinn sem ber
nafn sitt, Isafiörður, með rentu.
Fjörðurinn er ægifagur og þar eru
jafnan risastórir borgarísjakar."
Þjóðlegur matur
Qorlotoq-vötnin em áfangastaður
næstu tveggja daga. Gist verður í
fiallaskála við vötnin fyrri nóttina
en þá síðari í þorpinu Tasiilag þar
sem ferðalangamir dvelja í tvær
nætur í svefnpokaplássi. „Þegar
komið er til Tasiilaq er stutt að fara
í skíðaferð upp í fiöllin fyrir ofan
þorpið. Uppi í fiöllunum er mjög
gott útsýni yfir fiörðinn og eftir að
hafa rennt sér niður verður bærinn
skoðaður og tekið til við að smakka
þjóðlegan mat hjá Grænlendingun-
um. Á síðasta degi skoðum við þorp-
ið Kulusuk sem er þrátt fyrir ná-
lægðina við flugvöllinn og fiölda
túrista á sumrin langt frá því að
vera mjög nútímalegur bær. Margt
veiðimanna er í þorpinu og fróðlegt
að sjá hversu vel innfæddir halda í
ýmsar hefðir sínar,“ segir Einar
Torfi Finnsson. -aþ
Sumarbæklingar ferðaskrifstofanna komnir út
Sólarlandaferðir
fyrirferðarmestar
Um síðustu helgi kynntu allflestar
ferðaskrifstofur sumarbæklinga sína.
Eins og fyrri ár streymdi mikill
mannfiöldi á ferðakynningar víðs
vegar um borgina. Fjölmargir bók-
uðu sumarleyfin strax um síðustu
helgi og ekki annað að heyra á for-
ráðamönnum ferðaskrifstofanna en
árið í ár sé líklegt til að verða metár
i utanferðum landsmanna.
Rimini vinsæl
í bæklingi Samvinnuferða-Land-
sýnar era sólarlandaferðimar mest
áberandi og megináherslur svipaðar
og í fyrra. í fyrra hóf ferðaskrifstofan
að bjóða beint flug til Rimini á Ítalíu
og i sumar verður sæta-
framboð þangað tvöfald-
að vegna mikillar eftir-
spumar.
Mest fiölbreytnin er
þó á ferðum tU MaUorca
en þar er boðið upp á sjö
mismunandi dvalar-
staði, þar af tvo sem ekki hafa verið
áður. Það eru Port d’Antratx á suð-
vesturhomi eyjarinnar og Cala Mar-
sal á austurströndini. Ýmsar sérferð-
ir hafa notiö mikUla vinsælda undan-
farin ár og hjá SL verður úr nægu að
velja. Meðal áfangastaöa má nefiia
Prag, Taíland, Keniu og Kúbu
Borgarferðir eru á sínum stað og
verða 14 þúsund sæti boðin tU stór-
borga Evrópu. Genf, Berlín og Gauta-
borg eru meðal nýjunga í þeim ferðum.
Vikulega tíl Mallorca
Úrval Útsýn gefur út tvo bæklinga
fyrir sumarið; Sumarsól ’99 og Sér-
ferðir. Eins og fyrri ár era Mallorca
og Portúgal helstu áfangastaðir sólar-
landafarþega. í sumar verða einnig
vikulegar ferðir tU Viareggio í
Toscanahéraðinu á Ítalíu og í fyrsta
sinn verða íslenskir fararstjórar á
staðnum.
Fimm gististaðir verða í boði á
)ar af einn nýr. Það er
fiskimannabærinn Cala
MUlor á austurströnd-
inni.
Af nýjungum má
nefna flug og bíl tU
Portúgals og er væntan-
leg ferðahandbók fyrir
þá sem hyggjast ferðast
á eigin vegum um landið.
Af spennandi sérferðum Úrvals Út-
sýnar má nefna ferðir tU Asíulanda;
Kína og Malasíu, Hong Kong og
TaUands.
London - París í einni ferð
Costa del Sol og Benidorm eru
MaUorca,
Sólarlandaferðir eru vinsælli en nokkru sinni. í vetur hafa þúsundir manna
dvalið á Kanaríeyjum og ekki er reiknað með minni aðsókn í sumar.
áfangastaðir Heimsferða þegar
kemur að sólarlandaferðum.
I aUt sumar verða einnig vikulegar
ferðir tU Barcelona og i fyrsta skipti
ætlar ferðaskrifstofan að efna tU
vikulegra ferða til London yfir
sumartímann.
Flogið verður á miðvikudögum en
farþegum gefst einnig kostur á að
kaupa sér pakkaferð sem felur í sér
miða með Eurostar-hraðlestinni tU
Parísar.
Lúxemborg tvisvar í viku
Sumar 99 nefnist bæklingur Ferða-
skrifstofu Reykjavíkur. Þar er eins
og hjá öðrum ferðaskrifstofum lögð
áhersla á sólarlandaferðir. Tíunda
árið í röð boðar ferðaskrifstofan ferð-
ir til Benidorm. Annar kostur er ferð
tU Barcelona með dvöl í strandbæn-
um Sitges.
Þá er ferðaskrifstofan með mikið
úrval af ýmiss konar sumarhúsagist-
ingu í Þýskalandi og Evrópu. Borgar-
ferðir tU Parísar og London er aö
finna í bæklingnum auk Lúxemborg-
ar en þangað verða boðnar ferðir
tvisvar í viku meö flugfélaginu
Luxair i aUt sumar. -aþ