Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1999, Blaðsíða 44
52 ifeiðivon
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999 I 'lV
Bikarafhending SVFR:
Hilmar fékk Gull- og silfur-fluguna
- laxarnir oft verið vænni
Þau voru mörg verðlaunin sem afhent voru á árshátíð Stangaveiðifélags
Reykjavíkur sfðastliðinn laugardag á Hótel Sögu enda gekk laxveiðin vel
síðasta sumar.
Þau voru mörg verðlaunin sem
afhent voru á árshátíð Stangaveiði-
félags Reykjavíkur síðastliðinn
laugardag á Hótel Sögu enda gekk
laxveiðin vel síðasta sumar. Árshá-
tíð Stangaveiðifélagsins var óvenju-
lega glæsileg þetta árið enda verður
félagið 60 ára seinna á árinu.
Þorbjörg Kristjánsdóttir fékk af-
reksbikar kvenna en hún veiddi 14
punda hæng á fluguna garry númer
10 í Bæjarstreng í Sogi í Alviðru í
ágúst. Afreksbikarinn er eignarbik-
ar, gefinn cif Sjónarrönd, útgefanda
íslensku stangaveiðibókarinnar.
Hann er veittur þeirri konu sem
veiðir stærsta laxinn á flugu á
svæðum félagsins.
Vigdís Ólafsdóttir fékk Skóstofu-
bikarinn sem er gefinn af Skóstof-
unni, Dunhaga, en hún veiddi í Efri-
Brúarstreng í Fáskrúð í Dölum 16
punda hæng á maðk í júlí. Bikarinn
er veittur þeirri konu sem veiðir
stærsta laxinn á svæðum félagsins.
Útilífsbikarinn er gefinn af versl-
unni Útilífi og veittur þeim veiði-
manni sem veiðir stærsta iaxinn á
flugu í Elliðaánum. Tveir veiði-
menn veiddu 10 punda fisk á flugu í
Elliðánum síðasta sumar, Ólafur
Haukur Ólafsson sem veiddi 10
punda hrygnu á collie dog hálf-
tommu í Kistunum og Erling Krist-
jánsson sem veiddi 10 punda
hrygnu á svarta franses á þrí-
krækju númer 12 í Hólsstreng. Var
dregið milli þeirra og kom upp hlut-
ur Erlings sem hlýtur því bikarinn
þetta árið.
Magnús veiddi þann
stærsta í Norðurá
Norðurárbikarinn er gefinn af
Kaffíhúsinu Mílanó og er veittur
þeim sem veiðir stærsta laxinn á
flugu í Norðurá í Borgarfirði. En í
ágúst veiddi Magnús M. Norðdahl
14,5 punda hæng í Torfafit á collie
dog númer 10 og hlýtur hann því
þennan bikar í ár. Veiðivonarbikar-
inn er gefin af versluninni Veiðivon
og er veittur þeim sem veiðir
stærsta laxinn á flugu í Soginu. En
tveir veiðimenn veiddu 14 punda
lax á flugu í Soginu. Það voru þau
Þorbjörg Kristjánsdóttir með áður-
nefndan bikarlax á flugu úr Bæjar-
streng í Alviðru í Sogi og Þorlaugur
Gunnarsson sem veiddi 14 punda
hrygnu á rauða snældu - tommu
túbu á Landaklöpp í Syðri-Brú í
september. Dregið var á milli þeirra
og kom upp hlutur Þorbjargar sem
fær Veiðivonarbikarinn.
Cortlandbikarinn er gefinn af
Sportvörugerðinni þeim sem veiðir
stærsta laxinn á flugu í Hítará á
Mýrum. Og þar voru líka tveir
veiðimenn með jafnstóra laxa. Jón
Hættu að blekkja sjálfan þig!
Rétti dagurinn til aö byrja er í dag.
Það eru engar afsakanir teknar gildar.
Fáðu þér stimpilkort í næstu sundlaug, eða hjá
samstarfsaðilum okkar, mættu tíu sinnum í febrúar og þú
færð bókina Betri línur eftir heilsuræktargúrúinn Covert
Bailey að gjöf! Þú gætir einnig komist frítt til London eða
unnið einn af tugum glæsilegra vinninga!
Bergmundsson með 8 punda hæng á
rauða franses - tveggja tommu túbu
- í Langadrætti í september og Birg-
ir Guðmundsson með 8 punda
hrygnu á rauða franses númer 8 í
Túnstreng í júlí. Var dregið á miili
þeirra og nafn Birgis kom upp og
hlýtur hann Cortlandbikarinn.
Vatnaskilin gáfu væna
fiska íTungufljóti
ABU-Garcis-bikarinn er gefin af
ABU-umboðinu og er veittur þeim
sem veiðir stærsta fiskinn á leyfí-
legt agn í Tungufljóti. Og enn voru
það tveir veiðimenn sem voru jafn-
ir. Jón Orri Magnússon fékk 14
punda sjóbirting í Vatnaskilum í
september á grænan devon og Karl
Udo Lukas fékk 14 punda lax á
brúnan devon, líka í Vatnaskilum í
ágúst. Og enn var dregið og kom
upp nafn Karls Udo og hlýtur hann
því ABU-Garcia-bikarinn.
Hilmar Hansson fékk síðan Gull-
og silfur-fluguna og Sportkringlu-
&ridge
bikarinn fyrir að veiða stærstu lax-
ana í Stóru-Laxá í Hreppum. En
þangað fór Hilmar frægan veiðitúr í
ágúst og veiddi hann þá 16 punda
hrygnu í Gunnbjamarhyl á svarta
franses tommu túbu og í september
veiddi Hilmar annan 16 punda lax,
einnig á svarta franses tommu túbu.
Þetta var hængur og tók hann flug-
una i Skarðsstreng. Þessir tveir lax-
Gunnar Bender
ar voru þeir stærstu úr Stóru-Laxá
og stærstu laxamir á flugu. Hilmar
fékk því gull- og silfur-fluguna.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur gaf
öllum sem fengu bikar verðlauna-
pening. Laxamir, sem verðlaun
hafa verið veitt fyrir, hafa oft verið
stærri, en lax er lax, sama hver
stærðin er.
Kristján Kristjánsson, forseti Bridgesambands íslands, setur Bridgehátíð
‘99 með því að segja fyrstu sögnina fyrir Pakistanan Zia Mahmood.
Bridgehátíð Flugleiða, BSÍ og BR:
Sjöundi sigur Zia í sveitakeppninni
Bridgehátíð ‘99 lauk sl. mánudag og
fóru erlendu bridge-meistaramir
heim með drjúgan hluta verðlauna-
fjárins. Norðmennimir Tor Helness
og Jon Egil Furunes unnu tvímenn-
ingskeppnina nokkuð létt, þótt Sig-
urður Vilhjálmsson og Ragnar Magn-
ússon skytu þeim skelk í bringu í síð-
ustu umferðinni.
Röð og stig efstu para i tvímenn-
ingskeppninni var annars þessi:
1. Helness-Funmes Noregi 858
2. Ragnar Magnúss.-Siguröur Vilh. 840
3. Zia-Barnett Shenkin USA/Skotland 719
4. Anton Haraldss.-Sigurbjörn Haralds. 653
5. Jón Þorvarðars.-Sverrir Kristinsson 651
6. Blakset-Bjerregárd Danmörku 626
7. Valur Sigurðss.-Guðmundur Sveinss. 580
í sveitakeppninni röðuðu gestirnir
sér í þijú efstu sætin og varð Zia hlut-
skarpastur á endasprettinum. Röð og
stig efstu sveita var þessi:
1. Zia Mahmood, USA 195
2. Lars Blakset, Danmörku 189
3. Noregur 183
4. Landsbréf 178
5. Strengur 178
6. Þröstur Ingimarsson 177
7. Grandi hf. 177
8. Samvinnuferðir/Landsýn 176
í síðustu umferð sveitakeppninnar
röðuðust saman sveitir Zia og Noregs.
Auðvitað var leikurinn sýndur á sýn-
ingartöflunni og var hann fjörugur,
skemmtUegur og vel spilaður frá upp-
hafi tU enda.
TU að byrja með hlóð Zia upp stigum
með frábærum sóknar- og vamarleik,
en síðan tóku norsku landsliösmennim-
ir við og jöfnuðu leikinn og gott betur,
unnu 17-13. Skoðum skemmtUegt vam-
arspU hjá Shenkin og Zia.
S/a-v
♦ G7654
Aq
♦ G932
♦ A7
* 1032
«* * D42
* A1065
* G64
N
V A
S
* K
* G73
* 874
* D109853
* AD98
* K10865
* KD
* K2
í n-s sátu Norðmennimir Sæ-
lensminde og Brogeland, en a-v vom
Zia og Shenkin. Sagnimar voru ekki
margbrotnar. Suður opnaði á einu
hjarta, norður hækkaði í tvö og sögnum
lauk með fjögurra hjarta sögn suðurs.
Fljótt á litið virðist spUið standa á
borðinu, vegna þess að tromplegan er
hagstæð. En ekki er aUt sem sýnist!
Shenkin lagði af stað með lítinn spaða,
lítið, kóngur og ás. TU þess að nokkur
vinningsvon sé, verður vestur að eiga
trompás og Brogeland losaði tígulhjón-
in áður en hann spUaði trompi. Shenk-
in tók sér nú góðan tíma tU umhugsun-
ar áður en hann lét hjartaásinn. Á
meðan hafði Zia fylgt lit í tíglinum
með áttunni og sjöunni og í trompið lét
hann gosann. Fleiri skUaboð þurfti
Shenkin ekki, hann spUað minnsta
spaða, Zia trompaði og spUaði laufi tU
baka. Enda þótt Brogeland væri viss
um að Shenkin ætti laufásinn, þá lét
hann kónginn eftir nokkra umhugsun.
TUhugsunin að gera spUið upp á eftir,
ef Zia hefði átt laufásinn, vóg þar
þyngst á metunum. En þar með var
hann orðinn tvo niður á spUi sem
vannst á hinu borðinu og reyndar á
flestum öðrum borðum.
Stefán Guðjohnsen.