Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1999, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1999 J3"V
Ný skoðanakönnun Markhússins fyrir Vísi.is:
Samfylkingin á
niðurleið
- Sjálfstæðisflokkurinn nærri hreinum meirihluta - Vísir. is birtir kjördæmakönnun í dag
SamfyUcingin sígur enn niður á við
í fylgi samkvæmt skoðanakönnun
sem Markhúsið gerði fyrir Vísi.is. og
birt er á kosningavef netmiðilsins
sem opnaður var í dag. Samkvæmt
könnuninni nýto Samfylkingin
stuðnings 25,3% þeirra sem afstöðu
tóku og fengi samkvæmt því 16 þing-
menn. Til samanburðar mældist fylgi
við Samfylkinguna 31,6% í skoðana-
könmm DV um miðjan síðasta mán-
uð.
Sjálfstæðisflokkurinn eykur enn
fylgi sitt og næði samkvæmt þessari
könnun hreinum meirihluta, 50,1%,
sé miðað við þá sem afstöðu tóku, og
fengi 33 þingmenn. Óvenju margir,
eða um 30,6% þátttakenda, voru óá-
kveðnir.
Frjálslyndi flokkm-inn, flokkur
Sverris Hermanssonar, nýtur stuðn-
ings 2,7% þeirra sem afstöðu tóku.
Það fylgi dugar honum hins vegar
ekki til að koma manni á þing.
Vinstri hreyfmgin - grænt framboð
nýtur stuðnings 6,7% og fær fjóra
menn kjöma. Framsóknarflokkurinn
fær í könnuninni atkvæði 15,2%
þeirra sem afstöðu tóku og 10 menn
kjöma.
Könnunin var gerð í öllum kjör-
dæmum landsins dagana 29. og 30
mars og var úrtakið 1200 manns. Hlut-
fall þeirra sem svömðu var innan við
78%. Á kosningavef Vísis.is, sem unn-
inn er í samvinnu við Tölvumyndir,
má sjá hvemig fylgi flokkanna dreif-
ist á kjördæmin og í tölvuspálíkani
Fylgi stjórnmálaflokka
Enginn þingmaöur
Skoðanakönnun DV 9.2. 1999
Skoðanakönnun DV 19.3. 1999
Skoðanakönnun Vísir.is 30.3. 1999
50,1%
39,9°/
18,6%
16,6% ,15,2%
©
má skoða hvemig breytingar á stuðn-
ingi við flokkana í hverju kjördæmi
hreyfir við því hverjir komast á þing.
Sjá nánar á www.visir.is -ÁF/SÁ
íslenska útvarpsfélagið hf. - Stöð 2 og Bylgjan:
Rúmlega 113
milljóna króna tap
Rekstrartap íslenska útvarpsfé-
lagsins hf„ sem meðal annars á og
rekur Stöð 2 og Bylgjuna, nam
113,3 milljónum króna á síðasta
ári. Þetta era veruleg um
skipti til hins verra frá fyrra
ári þegar fyrirtækið skilaði
rúmum 60 milljónum í
hagnað.
Heildartekjur ís-
lenska útvarpsfélags-
ins jukust nokkuð á
liðnu ári, 8,3%, og
námu alls 2.133 millj-
ónum króna. Rekstr-
arhagnaður fyrir fjár-
magn nam 79 milljón
um króna en nettófjár-
magnskostnaður var 221 milljón
þannig af tap af reglulegri
starfsemi var nær 142
milljónir. Veltufé frá
rekstri nam 337 millj-
ónum króna á liðnu
ári.
í lok síðasta árs var
eigið fé 365 milljónir
króna en íslenska út-
varpsfélagið er einnig
með víkjandi lán frá Chase
Investment Bank upp á 326
milljónir króna. Heildar-
skuldir félagsins, án víkjandi
láns, námu 3.621 milljón. Heildar-
eignir voru bókfærðar á 4.313 millj-
ónir, þar af voru viðskiptavild og
áskriftarsamningar á nær fjórtán
hundruð milljónir. -hb
35,6%
31,9%
3,2% 2,6% 2,7%
S l
25,3%
6,4% 6,1% 6,7%
1 ^
Starfsmenn áhaldahússins í Hafnarfirði fundu dauða skjaldböku í Læknum.
Einhver virðist hafa sleppt dýrinu í kalt vatnið með þessum afleiðingum. Á
myndinni er Pétur Freyr Ragnarsson með skjaldbökuna. DV-mynd Teitur
Héraðsdómur Reykjavíkur telur flknó ekki hafa staðið rétt að tálbeituaðferð:
Fíkniefnastaður lögreglu „vekur furðu"
- tveir ákærðir upphafsmenn, sem voru orðnir vel heitir, fengu „slaufusýknu“
Héraðsdómur Reykjavíkur sagði í
dómi sínum yfir þremur ákærðum
ungum mönnum í 4ra kílóa hassmáli
í gær að vinnubrögð fikniefhalögregl-
unnar sættu nokkurri fúrðu. Þar var
átt við vendipunkt varðandi sörnurn-
arfærslu ákæravaldsins í umfangs-
miklu sakamáli. Því fór svo að tveir af
mönmmum, sem sterklega voru gran-
aðir tun að vera upphafsmenn í mál-
inu, vora sýknaðir og ríkissjóður
dæmdur til að greiða samtals 300 þús-
und króna kostnað vegna málsvamar-
launa verjenda þeirra. Þriðji maður-
inn, Magnús Ómarsson, sem kom með
efhin til íslands, var hins vegar dæmd-
ur í 8 mánaða fangelsi. Hann kvaðst
hafa átt að fá hálfa milljón króna fyrir
að vera „burðardýr“ fyrir hina.
Þann 26. janúar 1998 kom Magnús
með efnin frá Danmörku og var hand-
tekinn. Hann féllst síðan á að vinna
með lögreglunni - vera tálbeita til að
sanna sök á hina tvo. Svo fór að hann
var látinn stefna þeim á stað þar sem
lögreglan kæmi fyrir gervipakka sem
átti að líta út eins og sá sem Magnús
kom með til landsins. Síðan var ósýni-
legt litarefhi sett á pakkann.
í fyrstu átti að koma pakkanum fyr-
ir í Laugardal en síðan fékk Magnús
„félaga sína“ til að koma að Skalla-
sjoppunni við Laugalæk. Þar á bak
við var pakkanum komið fyrir - en úr
augsýn þeirra 9 lögreglumanna sem
vora í nágrenninu. Þannig treysti lög-
reglan á að tvimenningamir myndu
handleika pakkann og fá litarefni á
sig - þannig sannaðist sök á þá.
Svo fór að mennimir handléku
aldrei pakkann. Þeir sögðust síðan
hafa verið að ná í gramm af hassi en
ekki „stóran pakka“. Lögreglan hand-
tók þá án þess að hafa séð hvort þeir
tóku pakkann upp. Héraðsdómur
taldi þvi ósannað að mennimir hefðu
verið upphafsmenn að fikniefhasend-
ingunni - hvorki ljósmyndir né upp-
tökur hefðu sýnt fram á mannaferðir
við pakkann. „Þetta var ekki gert og
sætir það nokkurri furðu. Þetta hefur
það í fór með sér að vinna lögreglunn-
ar á vettvangi er ekki til þess fallin að
renna stoðum undir ákæraefnið ...,“
segir í dómi Guðjóns Marteinssonar
héraðsdómara. -Ótt
stuttar fréttir
ákærður
Skemmtikröft-
unum Tvíhöfða,
Jóni Gnarr og
Sigurjóni Kjart-
anssyni hefur
verið stefiit fyrir
dóm og ákæra
gefin út á hendur
þeim fyrir að
trufla störf Alþingis. Atvikið varð á
þingpöllum 18. desember sl. og eru
tvímenningamir sakaðir um að hafa
skipulagt frammíköll á þingfundi og
truflað fundarfrið Alþingis.
Sakað um svindl
Verslanakeðjan Nóatún er sökuð
um að hafa svindlað í verðkönnun-
um sem Neytendasamtökin og
verkalýðsfélögin á höfuðborgar-
svæðinu gerðu 3. mars síðastliðinn.
í kjölfarið var gerð önnur verðkönn-
un 24. mars og sú þriðja þann 26.
mars. í ljós kom að vörur höfðu
hækkað að meðaltali um 11,3%-
12,6% miðað við fyrstu könnunina.
Landssíminn lækkar
Landssíminn hefur ákveðið að
lækka verð á farsímaþjónustu og
nemur lækkunin á mínútuverði á
dagtaxta í helstu áskriftarflokkum
10 til 18%. Fréttavefur Viðskipta-
blaðsins á Visi.is sagði frá.
Tvíhöfði
Minni hagnaður
Rekstur Stálsmiðjunnar hf. gekk
þokkalega á árinu 1998 og var hagn-
aður félagsins 31 milljón króna,
samanborið við 67 milljóna króna
hagnað árið áður. Afkoman er lak-
ari en vænst var. Viðskiptablaðið á
Vísi.is sagði frá.
Opnar heimasíðu
Kristín Hall-
dórsdóttir alþing-
iskona, sem skip-
ar efsta sæti á
lista Vinstri-
hreyfmgarinnar
- græns fram-
boðs í Reykjanes-
kjördæmi, hefur
opnað heimasíðu á Netinu. Þar má
finna þingmál og greinar þingkon-
unnar nokkur ár aftur í tímann,
minnisbók um atburði líðandi stund-
ar auk æviágrips Kristínar.
Aðstoð í Kosovo
Rauði kross íslands hefur sent
þijár milljónir króna til neyðarað-
stoðar við flóttafólk frá Kosovo sem
hefur streymt þaðan til nágranna-
landa og -héraða undanfama daga.
Hafnarfjarðardeild RKÍ ætlar að
leggja fram 500.000 krónur og sendur
verður fatnaður og ábreiður frá fata-
pökkunarstöð Rauða krossins.
Hagnaður erlendis
Dótturfyrirtæki Samheija hf. í út-
gerð í Bretlandi og Þýskaiandi skil-
uðu hagnaði af reglulegri starfsemi í
fyrra. Samanlagður hagnaður
Deutsche Fischfang Union (DFFU)
og Onward Fishing Company (OFC)
nam um 120 milljónum króna af
reglulegri starfsemi. Viðskiptablað-
ið á Vísi.is sagði frá.
Kók tii nýrra eigenda
Pétur Bjömsson og fjölskylda
hafa nú lokið gerð samnings um
kaup Coca-Cola Nordic Beverages
A/S á hlut fjölskyldunnar í Vifilfelli
ehf. Pétur Bjömsson mun áfram
eiga sæti í stjóm félagsins og fram-
kvæmdastjórinn, Þorsteinn M. Jóns-
son, verður áfram í sama starfi. Við-
skiptablaðið á Vísi.is sagði frá.
nciimim auna snuiuirildi
Skuldir heim-
ilanna jukust um
14% í fyrra.
Kaupmáttur
jókst um 11% og
einkaneysla um
hið sama en fjár-
festingar í íbúð-
arhúsnæði um
5%. Þetta kom fram í ræðu Birgis ís-
leifs Gunnarssonar seðlabanka-
stjóra á ársfundi bankans í gær.
Meiri skatttekjur
Skatttekjur bæjarsjóðs Akureyrar
á árinu 1998 námu 2.272 milljónum
króna sem er um 100 milljónum
króna hærri upphæð en gert var ráð
fyrir. -SÁ