Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1999, Blaðsíða 62
FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1999 IjV
78 tkvikmyndir
ALVÖRU BÍÓ! mpolby
STflFRÆNT . STÆKSTfl tJfiUHe MIH
SPACEK DAVEFOLEY
Sýnd kl. 5 og 7.
Sími 551 9000
SIMI 551 6500
http:/ty vw.yrj .yp/,t e* /stj otnubio/
imi
REGNIBOGINN
eru opin yfir alla páskana
Laugarásbíó - Living Out Loud -
Nýtt líf
Richard LaGravenese er sjálfsagt einn besti handritshöf-
undurinn sem starfar í Hollywood, um það vitna innihaldsrík
handrit á borð við The Horse Whisperer, Bridges of Madison
County og The Fisher King. Handrit hans að Living Out Loud,
sem hann byggir lauslega á tveimur smásögum eftir Anton
Chehkov og færir í nútímann, er mjög gott, dramatískt og kó-
mískt og það er ekki við handritshöfundinn LaGravenese að
sakast að Living Out Loud nær aldrei almennilegu flugi, held-
ur leikstjórann LaGravenese sem ekki nær að blása nógu miklu
lffi í gott handrit sitt. LaGravenese hefur sem sagt gert sömu
mistök og margir
aðrir góðir handrits-
höfundar hafa gert,
að leikstýra eigin
handriti án þess að
hafa burði til þess.
Það er ekki bara
að handritið sé gott
heldur sýnir Holly
Hunter stórleik i
hlutverki hinnar
forsmáðu læknisfrú-
ar Jutith Nelson,
sem allt i einu
stendur frammi fyr-
ir því að eiginmað-
urinn, forríkur
hjartaskurðlæknir,
hefur fengið sér
yngra módel. Judith
hafði helgaö líf sitt
eiginmanninnum
sem ekki vildi fjölga
mannkyninu og
stendur þvi uppi al-
ein, á enga yini eða
kunningja. í sjálfs-
morðshugleiðingum
fer hún á djassklúbb og lendir óvænt i smá ástarævintýri sem
gerir það að verkum að hún sér að til er líf eftir hjónbandið og
i kjölfarið breytir hún um lífsstíl. Meðal þess sem hún gerir er
að stofna til kunningsskapar við lyftuvörðinn Pat (Danny
DeVito) í fina fjölbýlishúsinu sem hún býr i. Pat hefur jafnhliða
því að vera sjálfum sér verstur nýlega misst einkadóttur sina
og á því um sárt að binda. Eins óiík og þau eru tekst með þess-
um tveimur einstæöingum góður kunningsskapur sem á eftir
að duga þeim báðum í erfiðri lífsbaráttu.
Living Out Loud er fyrst og fremst ágæt skemmtun, hún ger-
ir grín að aðalpersónunum um leið og þær eru gerðar áhuga-
verðar. Sterkur undirtónn myndarinnar um litinn mátt ein-
stæðingsins í samfélaginu kemur upp g yfirborðið, en veröur
aldrei afgerandi. Þaö er eins og leikstjórinn hafi ekki getað
ákveðið sig hvaða leið á að fara með efniö og því vantar tilfinn-
anlega kraft í myndina, hún liður áfram án átaka þó tilefnin
séu fyrir hendi.
Leikstjóri og handritshöfundur: Richard LaGravenese.
Kvikmyndataka: John Bailey. Tónlist: George Fenton. .
Aðalleikarar: Holly
Hunter, Danny
DeVito, Queen
Latifah, Martin
Donovan og Elias
Koteas.
Hilmar Karlsson
KVIKMYIjDA
^rrfffitír
Laugarásbíó:
Leiftur
ur
fortíð
Brendan
Fraser
Blast From the Past, sem Laugarásbíó hefur hafið sýningar á, er
splunkuný kvikmynd sem frumsýnd var í Bandaríkjunum fyrir fáum vik-
um. I myndinni segir frá Adam sem hefur alist upp í kjamorkuskýli for-
eldra sinna öll þau 35 ár sem hann hefur lifað. Ástæðan er að faðir hans,
vísindamaður, hélt að kjamorkusprengja hefði sprungið þegar flugvél
nauðlenti i nágrenninu. Þetta var á þeim dögum sem Kúbudeilan stóð
sem hæst. Hann lokaði því sjálfan sig og eiginkonu sina í kjamorkuskýl-
inu sem hann hafði búið til og þar hafði fjölskyldan lifað síðan. Adam
hefur fengið gott uppeldi, hefur lært allt sem þarf að læra um vísindi,
íþróttir og kommúnista, en ástæðan fyrir dvöl ijölskyldunnar í byrginu
er fyrst og fremst vegna hræðslu fóðurins við kommúnista.
Adam er þó eins og álfúr út úr hól þegar hann loks kemur upp á yfir-
borðið i Los Angeles. Þar hittir hann fyrir nútimastúlkuna Evu, sem alist
hefur upp í Los Angeles og er samnefnari fyrir þeim breytingum sem orð-
ið hafa á lífi ungs fólks. Eva er samt ósköp mikill lánleysingi þegar að er
gáö, hefur hvorki haldist á vinum né kærustum og er því ung stúlka með
brostnar vonir. Eva fær áhuga á þessum unga manni sem ávarpar hana
afltaf ungfrú og hefur aldrei séö litasjónvarp. Þessar tvær ólíku mann-
eskjur virðast ekki eiga mikla möguleika í hörðum heimi markaðshyggj-
unnar nema þau mætist á miðri leið og hjálpi hvort öðru. í aðalhlutverk-
um eru tvær af vinsælustu kvikmyndastjörnum ungu kynslóðarinnar,
Brendan Fraser og Alicia Silverstone. Brendan Fraser sló í gegn i Geor-
ge of the Jungle, þar sem hann lék ekki ósvipaðan sakleysingja og í Blast
From the Past, sá hafði aö vísu alist upp i frumskóginum en var jafn
blásaklaus þegar í stórborginna kom. Fraser hefur verið á mikilli uppleið
Christopher Walken og Sissy Spacek leika foreldra Adams.
sem leikari og var ný-
lega kosinn besti leik-
arinn á kvikmyndahá-
tíðinni i Seatfle fyrir
leik sinn í Still Breat-
hing og hefur fengið
góða dóma fyrir leik
sinn í Gods and Mon-
sters. Næsta kvik-
myndin sem
sýnd verður
með honum
er stórmynd-
in The Mum-
my og þar
starfa þeir
aftur sam-
an Fraser
og Hugh
Wilson,
leikstjóri
Blast From
the Past.
Alicia Silver-
stone varð uppá-
hald allra eftir
að hún hafði
leikið í
Cluless, áður
Brendan Fraser og Alicia Silverstone ásamt leikstjóranum Hugh
Wilson.
haföi hún aðallega vakið athygli fyrir leik í tónlistarmyndböndum
rokksveitarinnar Areosmith og var eitt þeirra, Cryin’, valiö besta mynd-
band allra tima á MTV tónlistarstöðinni. Silverstone hefur ekki alveg
staðið við væntingar eftir Clueless, en er þessa dagana að leika í Love’s
Labour Lost, nýjustu Shakespeare-kvikmynd Kenneth Brannagh.
Hugh Wilson hafði víða komið við i kvikmynda- og sjónvarpsbransan-
um þegar hann sló í gegn með The First Wives Club, hafði leikstýrt
tveimur kvikmyndum, Rusfler’s Rhapsody og Guarding Tess, sem litla at-
hygli höföu vakið og leikstýrt og skrifað handrit fyrir fiölda sjónvarps-
þátta ,-HK