Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1999, Page 16
FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1999
i6 ^fðtal
”★ ★
Ríkharður Hördal við málverkið frá baróninum á Hvítárvöllum. Þetta verk er nú til viðgerðar og mats við Lista- og hönnunarháskólann í Helsinki þar sem
Ríkharður er deildarstjóri.
DV-mynd Gfslí Kristjánsson
búið til að flytja inn. Ekkert hik,“
segir Ríkharður og bendir á að það
sama gerist á öðrum sviðum
menningar í landinu. Ópera, lista-
safn og tónlistarhús eru byggð á
mettíma um leið og ákveðið hefur
verið að byggja.
„Viðhorfin breyttust mikið hér
við inngönguna í Evrópusamband-
ið. Það var ákveðið á einni nóttu
að héðan í frá skyldu Finnar vera
Evrópubúar og síðan hafa Finnar
verið staðráðnir í að vera fremstir
allra Evrópubúa," segir Ríkharð-
ur.
Baróninn á Hvítárvöllum
Nemendur við skólann fást við
viðgerðir á öllum mögulegum
hlutum um leið og þeir læra
handverk sitt. Söfn, stofnanir og
félög senda myndir, bækur, kjóla
og stóla til viðgerðar og nú eru
nemendur Ríkharðs m.a. að rann-
saka og gera við mikið málverk
úr eigu barónsins á Hvítárvöllum
- enska tónlistarmannsins sem
fómaði öllu fyrir að koma upp
kúabúi í Borgarfírði og léði Bar-
ónsstígnum í Reykjavík nafn.
Listasafn íslands á verkið nú en
enginn veit hvaðan það er og
hvers virði það er. Nemendur
Ríkharðs hallast að því að það sé
ítalskt eða_ franskt en viðgerð og
mat á málverkinu stendur nú
yflr.
Glsli Kristjánsson
Falsanir á íslenskum málverkum eru og verða vandamál:
Vantar tækni-
lega rannsókn
- segir Ríkharður Hördal, deildarstjóri við forvarðadeild háskóla í Helsinki
DV, Helsinki:__________________
„Það vantar tæknilega rannsókn
á málverkum íslenskra lista-
manna. Ekki bara listasögulega
rannsókn heldur og tæknilega
rannsókn á efnunum sem þeir not-
uðu, bindiefnunum í málningunni,
striganum og öllu sem hægt er að
rannsaka efhafræðilega. Þangað til
þetta er gert er og verður auðvelt
að falsa íslensk málverk og koma
þeim í verð,“ segir Ríkharður Hör-
dal, forvörður og deildarstjóri for-
varðadeildarinnar við Listaháskól-
ann í Helsinki, við DV.
Ríharður segir að tæknilegar
upplýsingar af þessu tagi flýti
mjög fyrir rannsókn á fölsuðum
málverkum og að á skömmum
tíma megi skera úr um hvort verk
er falsað eða ekki. Ríkharður er
einn af eigendum Morkinskinnu í
Reykjavík og vann þar allt til þess
að hann flutti til Finnlands fyrir
sex árum til að byggja upp og síð-
ar að stýra forvarðadeildinni viö
Lista- og hönnunarháskólann í
Helsinki.
„Falsanir á málverkum eru
vandamál úti um allan heim og
verða vandamál. Þetta vandamál
er sérstakega erfitt á íslandi vegna
þess að við vitum ekki nógu mikið
um hina tæknilegu hlið á íslensk-
um málverkum," segir Ríkharður
og vísar til nýgengins dóms í fols-
unarmálinu kenndu við Gallerí
Borg.
Lýsir eftir íslendingum
Ríkharður á enn hlut í Morkin-
skinnu en hann hefur undanfarin
ár ekki unnið þar enda nóg að
gera við deildina í Helsinki. Upp-
haflega fór hann til Finnlands til
að kenna í sex vikur. Það þótti
honum spennandi. Síðar var hann
beðinn að koma aftur og vera í
nokkra mánuði við að skipuleggja
námskrá fyrir deildina sem þá var
stokkuð upp frá grunni. Þetta starf
leiddi til þess að Ríkharður tók við
stjórn deildarinnar og hefur gegnt
því starfl síðan.
Við deildina eru 54 nemendur og
sami hópurinn er i fjögur ár sam-
fleytt. Þá eru nýir nemendur tekn-
ir inn og verða í fjögur ár. Síðast
sóttu nær 500 um plássin 54. Einn
þeirra eru íslendingurin Friðrik
Bertelsen sem nú er á þriðja ári.
„Ég vil hiklaust hvetja íslend-
inga til að sækja um. Það er eng-
inn kvóti á hvaðan nemendurnir
mega koma og engin skólagjöld.
Allir eru metnir út frá fyrra námi
og reynslu. Því ættu íslendingar
ekki að standa verr að vígi en aðr-
ir. Það er bara að sækja um,“ seg-
ir Ríkharð og beinir orðum sínum
til landa vorra. Inntökupróf verða
í mars-apríl á næsta ári og tölvu-
póstfang Ríkharðs er: rikhard.hor-
dal@evamk.fi
Bágborið ástand
„Það er þrennt sem forverðir verða
að kunna: Efnafræði, efnafræði og
efnafræði,“ segir Ríharður og hlær.
Efnafræðin úr menntaskóla er nægur
grundvöllur en allt sem er umfram
það er að sjálfsögðu til bóta og svo að
sjálfsögðu reynsla af forvörslu.
„Ástandið í þessum málum er sann-
ast sagna bágborið á íslandi. Sérstak-
lega stendur Þjóðminjasafnið illa að
vígi með bara hálfa stöðu forvarðar,"
segir Ríkharður. Atvinnumöguleikar
ættu því að vera góðir á íslandi.
Forverðir hafa það hlutverk að
veija og gera við fomgripi, málverk,
bækur og hvað eina sem illa stenst
tímans tönn. Og svo geta þeir komist
að hvort verk eru fólsuð.
Hverfa úr landi
í Finnlandi hefur nú verið byggt
upp alþjóðlega viðurkennt for-
varðanám. Sömu sögu er að segja
frá Ósló, þar sem Kristín Helga
Sigurðardóttir réðst til að koma
deildinni á fót. Bæði hún og Rík-
harður eru lærð í Kaupmannahöfn
og farin til kennslustarfa í útlönd-
um eftir störf á íslandi.
Um brottför sína frá íslandi seg-
ir Ríkharður að hann hafi fyrst og
fremst viljað breyta til: Skipta um
starfsvettang og gert það þegar
staðan í Finnlandi bauðst. Á ís-
landi elur litið samfélagið þó oft af
sér illdeilur og togstreitu en Rík-
harður brosir bara þegar hann er
spurður um hrepparíginn á ís-
landi. Þetta er víst svona víðar.
„Það var töluverð andstaða við
mig hér í fyrstu. Það náði svo
langt að mér voru send hótunar-
bréf. Ég var staðráðinn í að breyta
deildinni, opna hana og gera hana
alþjóðlegri. Áður var þetta mjög
flnnsk deild og einangruð frá um-
heiminum. Þetta gekk ekki átaka-
laust í fyrstu en nú er viðhorfið
allt annað. Það er búið að taka mig
í sátt,“ segir Ríkharður.
Nú eru kennarar við deildina
frá Danmörku og Englandi auk
Finnlands og svo Ríkharður frá ís-
landi - reyndar Vestur-íslending-
ur. Mikið er sótt til stundakennara
og fýrirlestrar jafnvel sendir frá
útlöndum með nýjustu tækni.
Skólinn hefúr fengið nýtt húsnæöi
í verslunarmiðstöð sem aldrei
náði að gegna sínu hlutverki.
Gert með stíl
„Finnar gera allt með stíl sem
þeir gera. Það var ákveðið að hafa
skólann í verslunarmiðstöðinni og
fáum mánuðum síðar var allt til-
Friðrik Bertelsen með bómullarpinnann við viðgerð á gömlu málverki.
DV-mynd GK
Friðrik Bertelsen, nemi í forvörslu í Helsinki:
Byrjaði heima
DV, Helsinki:_____________________
„Ég fékk áhugann á þessu starfl
þegar ég reyndi að gera við mál-
verk í eigu fjölskyldunnar heima.
Ég leitaði eftir upplýsingum, las
mér til og komst svo í samband við
Morkinskinnu. Þar var ég lærling-
ur í eitt ár og kom svo hingað fyr-
ir þremur árum,“ segir Friðrik
Bertelsen, íslenskur nemandi Rík-
harðs Hördal við forvarðadeildina
í Helsinki, við DV.
Friðrik er einn þeirra 54 nem-
enda sem slapp inn í skólann við
síðustu inntöku fyrir þremur
árum. Nú lýkur hann prófl á
næsta ári með viðgerðir á mál-
verkum sem sérgrein og þá vænt-
anlega nógu lærður til að geta gert
við málverkin í stofunni heima.
Hvað þó verður að námi loknu er
óráðið. Síðasta sumar var Friðrik
við störf í Munch-safninu í Ósló og
gæti hugsað sér að halda áfram
þar.
Námið við skólann fer að mestu
fram á ensku en einnig á skandi-
navísku þannig að ekki er skilyrði
að læra finnsku. Friðrik undirbjó
sig þó með því að fara á finnsku-
námskeið áður en hann fór utan.
Finnskuna hefur hann hins vegar
ekki lært nema rétt svo það dugar
til daglegra nota. Finnska er eitt
erfiðasta tungumál sem um getur
og kostar margra ára nám að ná
tökum á málinu.
Friðrik er kominn það langt í
námi að hann gerir við verk sem
send eru til stofnunarinnar. Þetta
er handverk sem krefst mikillar
nákvæmi og einnig þekkingar á
efnafræði og aftur efnafræði. Og
það er eins og leynilögregluvinna
að komast að uppruna verka - og
meta hvort þau eru fölsuð.
Það þarf líka að meta hve langt
á að ganga í að gera við verk.
Stundum hefur of mikið tapast til
að hægt sé að gera nokkuð í mál-
inu annað en að varðveita leifarn-
ar.
Spennandi? „Já,“ segir Friðrik.
„Þetta er draumastarfið."
Gísh Kristjánsson