Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1999, Page 57
30"V FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1999
Til hamingju með afmælið 5. apríl
90 ára
Guðmundur Guðbrandsson, Sandabraut 6, Akranesi.
85 ára
Sigursteinn Einarsson, Höim-um, Borgarbyggð. Gunnar Gíslason, Laugavegi 3, Varmahlíð.
80 ára
Hjalti Finnsson, Ártúni, Akureyri.
75 ára
Elín Frímannsdóttir, Höfðagrand 15, Akranesi. Ingimar Eydal Lárusson, Karlsbraut 16, Dalvík. Sigríður Gunnarsdóttir, Hjallavegi 5, Reyðarfirði. Hún er að heiman.
70 ára
Dýrleif Jónína Tryggvadóttir, Gnoðavogi 34, Reykjavík. Birgir Guðgeirsson, Rafstöðvarvegi 19, Reykjavík. Kristinn Ingvar Ásmundsson, Heiðarbæ 7, Reykjavík.
60 ára
Unnur Alexandra Jónsdóttir, Nýlendugötu 43, Reykjavík.
50 ára
Hannes Ragnar Óskarsson, Hjarðarlundi 7, Akureyri. Eiginkona hans er Ásta Eggertsdóttir. Þau taka á móti gestum að heimili sínu á afmælisdaginn, eftir kl. 15.00. Ólöf S. Wessman, Ofanleiti 15, Reykjavík. Felix Eyjólfsson, Gyðufelli 2, Reykjavík. Anna Sigríður Indiiðadóttir, Kolbeinsmýri 7, Seltjamarnesi. Sigurlaug Garðarsdóttir, Hegranesi 26, Garðabæ. Unnar Már Magnússon, Lyngbraut 15, Garði. Tryggvi Sæberg Einarsson, Urðarvegi 80, ísafirði. Pavao Borojevic, Skúlabraut 19, Blönduósi. ísleifur Ingimarsson, Löngumýri 34, Akureyri.
40 ára
Ásthildur Geirsdóttir, Kárastíg 6, Reykjavík. Isabelle de Bisschop, Kleppsvegi 50, Reykjavík. Morten Geir Ottesen, Hraunteigi 9, Reykjavík. Guðmundur Amarson, Smyrlahrauni 18, Hafnarfirði. Guðmundur R. Guðmundsson, Suðurvangi 17, Hafnarfirði. Hilmar Grétar Bjamason, Faxabraut 32 A, Keflavík. Francisca Alice da Cmz, Freyjugötu 2, Suðureyri. Bryndís Benjamínsdóttir, Arnarsíðu 4 C, Akureyri.
Már Ársælsson, lektor viö Tækni-
skóla íslands, til heimlis aö Hring-
braut 104, Reykjavík, verður sjötug-
ur á þriðjudaginn.
Starfsferill
Már fæddist í Reykjavík og ólst
upp í Kaupmannahöfn og Reykja-
vík.' Hann lauk stúdentsprófi frá
MR 1949, prófi í forspjallsvísindum
við HÍ 1950, stundaði nám í stærð-
fræði við Kaupmannahafnarhá-
skóla 1950-53, stundaði nám i upp-
eldis- og kennslufræði við HÍ
1957-59, lauk prófi i tölvunarfræði
við HÍ 1969 og stundaði þar nám í
tölvufræði og forritun 1967-69, lauk
BA-prófi í stærðfræði og efnafræði
við HÍ 1970, lauk námi í kerfisfræð-
um í Kaupmannahöfn 1978 og hefur
sótt fjölda námskeiða í tölvufræði,
forritun, gagnasafnsfræði og í gæða-
mati.
Már starfaði hjá Rafmagnsveitu
Reykjavikur 1953-54, hjá Almenn-
um tryggingum 1954, var kennari í
Gagnfræðaskóla Vesturbæjar
1955-69, yfirkennari þar 1960-62 og
skólastjóri í forfóllum 1960, var
stundakennari i MR 1962-75, kenn-
ari í Gagnfræðaskólanum við
Laugalæk í Reykjavík 1969-70 og í
Tækniskóla íslands frá 1970. Hann
var flokksstjóri í stærðfræði við
skólann frá 1970, reiknistofustjóri
1973-76 og hefur verið lektor þar
síðustu árin. Hann var kennari í
læknadeild HÍ haustin 1972 og 1973,
í kvöldskóla 1970-76 og Námsflokk-
um Reykjavíkur 1976-78.
Már var fulltrúi hjá
Orkustofnun 1968-73 og
vann þar við áætlana-
gerð. Þá vann hann við
áætlanagerð fyrir Ijár-
laga- og hagsýslustofriun.
Hann var prófdómari í
framhaldsdeildum, gagn-
fræðaskólum og á stúd-
entsprófum frá 1971-74.
Már var ritari Félags
tækniskólakennara og
fúlltrúi þess í launamála-
ráði BHM frá 1976-98 og
situr nú í stjórn BHM.
Hann var formaður í stjóm Kvöld-
skólans hf. í nokkur ár frá 1972.
Hann hefur samið fjölda kennslu-
bóka í stærðfræði, tölvuvinnslu og
um tölvuforrit, og skrifað greinar
um stærðfræöi og þekkta stærð-
fræðinga.
Fjölskylda
Már kvæntist 19.5. 1953 Lilju
Kristjánsdóttur f. 12.2.1929, rann-
sóknarmanni. Hún er dóttir
Kristáns Einarssonar, bónda á Her-
mundarfelli, og Sveinbjargar Pét-
ursdóttur.
Böm Más og Lilju era Áskell, f.
21.11. 1953, tónskáld í Reykjavík,
kvæntur Sigríði Búadóttur hjúkr-
unarfræðingi og er dóttir hans Mar-
grét; Ársæll, f. 20.1. 1955, mennta-
skólakennari í Reykjavík, kvæntur
Guðlaugu Teitsdóttur skólastjóra og
era böm þeirra Lilja, Teitur og
Benta; Karólína Mcirgrét f. 17.3.
1956, kennari á Akureyri, gift Stef-
áni Jóhannssyni, starfs-
manni við HA og eru
þeirra synir Baldur Már,
Andri Snær og Ágúst; Þór-
dís f. 30.7. 1958, sjúkraliði í
Reykjavík, gift Aðalsteini
Stefánssyni og eru þeirra
böm Hildur, Valný, Ottó
og Aðalheiður; Ottó, f. 13.1.
1965, starfsmaður Securit-
as, búsettur í Reykjavík og
era synir hans Már og
Bjami.
Bræður Más era Hrafn-
kell, f. 11.1. 1938, fram-
kvæmdastjóri í Reykjavík, kvæntur
Svövu Ágústsdóttur og era þeirra
böm Ágúst og Óskar; Snorri f. 10.4.
1947, lagerstjóri, kvæntur Hjördísi
Hjörleifsdóttur og eru þeirra böm
Stefán, Guðbjörg, Guðfmna og Jón-
ína.
Foreldrar Más eru Ársæll Sig-
urðsson, f. 30.10. 1895, d. 11.8. 1973,
trésmiður og bæjarfulltrúi í Reykja-
vík og k.h., Margrét Ottósdóttir, f.
9.2. 1902, nú látin.
Ætt
Ársæll var sonur Sigurðar, b. í
Strandarhjáleigu í Landeyjum Jó-
hannessonar, b. í Þorkelsgerði í Sel-
vogi Bergsteinssonar. Móðir Ársæls
var Guðbjörg Halldórsdóttir, b. í
Strandarhjáleigu i Landeyjum Guð-
mundssonar og k.h., Guðbjargar
Guðmundsdóttur.
Margrét var systir Hendriks, rit-
höfúndar og útvarpsmanns. Mar-
grét var dóttir Ottós, skipstjóra og
fyrsta forseta ASÍ, Þorlákssonar, b.
á Korpúlfsstöðum í Mosfellssveit
Sigurðssonar, b. á Úlfarsfelli í Mos-
fellssveit, bróður Jóns á Setbergi,
langafa Vigdisar, móður Harðar
Sigurgestssonar, forstjóra Eim-
skipafélagsins. Sigurður var sonur
Guðmundar, b. i Haukadal, Eiríks-
sonar og k.h., Guðbjargar Jónsdótt-
ur, b. í Hörgsholti í Ytrihreppi
Magnússonar, ættfóður Högs-
holtsættarinnar. Móðir Þorláks var
Guðrún, systir Stefáns, afa Önnu,
ömmu Markúsar Amar Antonsson-
ar útvarpsstjóra og Bjöms Bjarna-
sonar menntamálaráðherra. Guð-
rún var dóttir Þorláks, b. í Neðradal
í Biskupstungum Stefánssonar, b. í
Neðradal Þorsteinssonar, b. í Dalbæ
Stefánssonar, pr. í Steinsholti Þor-
steinssonar. Móðir Þorláks var Vig-
dís Diðriksdóttir, b. á Önundarstöð-
um í Landeyjum Jónssonar og Guð-
rúnar Högnadóttur prestafoður á
Breiðabólstað í Fljótshlíð Sigurðs-
sonar, langafa Þuríðar, langömmu
Vigdíscir Finnbogadóttur. Móðir
Stefáns í Neðradal var Guðríður
Guðmundsdóttir, b. á Kópsvatni,
Þorsteinssonar, ættfoður Kóps-
vatnsættarinnar, langafa Magnúsar
Andréssonar, langafa Ásmundar
Guðmundssonar biskups og Sigríð-
ar, móður Ólafs Skúlasonar bisk-
ups. Móðir Ottós var Elín Sæ-
mundsdóttir, b. í Helludal í Bisk-
upstungum, Tómassonar. Móðir
Önnu var Caroline, dóttir Hendriks
Siemsen, kaupmanns í Reykjavík.
Gunnar Guttormsson
Gunnar A. Guttormsson kennari,
Litla-Bakka í Hróarstungu, verður
sjötugur á laugardaginn.
Starfsferill
Gunnar fæddist að Svínafelli í
Hjaltastaðaþinghá og ólst þar upp.
Hann lauk gagnfræðaprófi frá Eiða-
skóla og íþróttakennaraprófi frá ÍKÍ.
Gunnar var sundkennari við
Sundhöll Reykjavíkur, farkennari í
Tunguhreppi í eitt ár, skólastjóri
heimavistarskólans að Stóra-Bakka,
og var íþróttakennari hjá UÍA eitt
sumar. Hann hefur verið kennari
við Brúarásskóla mörg síðustu árin
og kennir þar enn.
Gunnar hefur verið bóndi að
Litla-Bakka frá 1965. Þá hefur hann
verið jarðýtustjóri í mörg ár og er
annar stofnandi þungavinnuvélafyr-
irtækisins Gunnar og Kjartan. Hann
hefur verið refaskytta um árabil.
Gunnar var formaður ungmenna-
félags Hróartunguhrepps í tvö ár,
umboðsmaður Branabótafélags ís-
lands í Tunguhreppi í mörg ár, sat I
hreppsnefnd Tunguhrepps í tuttugu
og fimm ár og oddviti hreppsins í
nítján ár, var formaður Sambands
sveitarfélaga á Austurlandi í eitt ár,
sat lengi í stjórn Sjúkrahúss, heilsu-
gæslu- og dvalarheimilis aldraðra á
Egilsstöðum, sat í stjórn kjördæmis-
sambands framsóknarmanna á
Austurlandi um skeið, hefur verið
formaður Lionsklúbbsins Múla á
Fljótsdalshéraði i tvígang og starfar
enn í klúbbnum.
Fjölskylda
Gunnar kvæntist 23.8. 1959
Svandísi Skúladóttur, f. 29.12. 1938,
húsfreyju og bónda að Litla-Bakka.
Hún er dóttir Skúla Sig-
bjömssonar og Ingibjarg-
ar Vilhjálmsdóttur en
þau bjuggu að Litla-
Bakka.
Böm Gunnars og Svan-
dísar era Ingibjörg, f. 8.9.
1958, kennari við Mela-
skólann í Reykjavík, bú-
sett á Seltjamamesi, gift
Óla Jóni Hertervig, bygg-
ingatæknifræðingi hjá
Reykjavíkurborg, en
böm þeirra eru Svandís
Rós, Óli Hákon og Jón
Gunnar; Jóhann Gutt-
ormur, f. 1.10. 1959, aðstoðarskóla-
stjóri Heiðarskóla, kvæntur Þor-
gerði Sigurðardóttur matreiðslu-
meistara og era böm þeirra Gunnar
Þór, Snorri Páll og Rúna Dís; Skúli
Bjöm, f. 24.3.1970, BA í bókmennta-
fræði og starfsmaður hjá Boðbera -
almannatengslum, búsettur í
Reykjavik, kvæntrn- Elísabetu Þor-
steinsdóttur þjóni og eiga
þau eina dóttur, óskírða.
Hálfbróðir Gunnars var
Magnús E. Ámason, f. 9.6.
1916, d. 3.7. 1975, var bú-
settur i Reykjavík.
Alsystur Gunnars eru
Dagbjört Unnur, f. 12.3. jf
1925, húsfreyja að Þvottá í
Álftafirði; Sólveig, f. 28.5.
1927, húsmóðir í Borgar-
nesi; Aðalborg, f. 6.4. 1933,
húsmóðir og verkakona í
Reykjavík.
Foreldrar Gunnars
voru Guttormur S. Jónas-
son, f. 1896, d. 1962, bóndi í Svína-
felli og síðar verkamaður í Reykja-
vík, og k.h., Jóhanna Magnúsdóttir,
f. 1893, d. 1949, húsfreyja.
Svandís varð sextug þann 29.12.
s.l. í tilefhi afmælanna taka Gunnar
og Svandís taka á móti gestum í
Brúarásskóla á laugardagskvöldið
frá kl. 20.00.
Gttir
Stimplagerðin flutt
Stimplagerðin ehf. flutti nú
nýverið í nýtt húsnæði í.Síðu-
múla 21, Selmúlamegin.
Stimplagerðin, sem lengst af
var starfrækt á Hverfisgötu
50, Vatnsstígsmegin, var
stofnuð árið 1955 og verður
því 45 ára á næsta ári.
Stimplagerðin býður nú jafn-
framt upp á álskilti sem ætl-
uð era m.a. til dyra-, véla- og
tækjamerkinga eða sem
barmmerki. Þau má jafnfram
nota til merkinga úti við en
þar henta þau ekki síst þvl
veðrunarþol þeirra er mikið.
Viðskiptavinir Stimplagerð-
arinnar, jafnt gamlir sem
nýir, era boðnir velkomnir á
nýja staðinn.
Verðlaunahafar úr Stóru
upplestrarkeppninni 1998
lásu valda bókmenntatexta á
íslenskudögum Mjólkursam-
sölunnar í Kringlunni um
síðustu helgi.
Gunnar A.
Guttormsson.