Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1999, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1999, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1999 Viðskipti i>v Þetta helst: .. „Rólegt á Verðbréfaþingi, 354 m.kr. ,,, Hlutabréfaviðskipti 103 m.kr. ... Sæplast hækkar um 12,3% ,., Ávöxtunarkrafa húsbréfa heldur áfram að lækka ... Kíló af ýsu á 49,09 kr. .. .Kaffiverð á uppleið ... Hagnaður J.P. Morgan eykst um 64% .,. Dollar lækkar fimmta daginn í röð gagnvart jeni ... Gengi krónunnar of hátt - samkvæmt hamborgarahagfræðinni Land Bandaríkin ÍSLAND Hamborgarahagfræði _ m Verð á Big Mac 1 VerðáBigMac Vantmat(%) gjaldmiðlum Verð á Big Mac eftir kaupmáttar- Gengi gagnvart Raungengi miðað hvers lands í dollurum leiðréttingu dollar við dollar 2,43 2,43 - - 399 5.46 16420 73.03 125% Argentína 2,5 2,50 1,03 1,00 3% Ástralía 2,65 1,66 1,09 1,60 -32% Brasilía 2,95 1,71 121 1,73 -30% Bretland 1,9 3,07 0,78 0,62 26% Chile 125 2,60 0,51 0,48 7% Danmörít 24,75 3,00 1049 825 23% Evnisvæði 2,52 2,71 1,04 0,93 12% Frakkland 8,55 2,87 3,52 2,98 18% Holland 15,45 2,66 6,36 5,81 9% HongKong 102 1,32 420 7,73 -46% Indónesía 14.500 1,66 5967 8735 -32% fsrael 13,9 3,44 5,72 4,04 42% ftalía 4500 2,50 1852 1800 3% Japan 294 2,44 121 120 0% Kanada 2,99 1,98 123 151 -19% Kína 9,9 120 4,07 825 -51% Malasía 4,52 149 1,86 3,80 -51% Mexíkó 19,9 2,09 849 9,52 -14% Nýja Sjáland 3,4 1,82 1,40 187 -25% Pólland 5,5 1,38 2,26 3,99 -43% Rússland 33,5 1,35 13,79 24,81 44% Singapúr 32 1,85 122 173 -24% Spánn 375 2,43 154,3 154,3 0% Suður-flmeríka 8,6 1,38 3,54 6,23 43% Suður-Kórea 3000 2,46 1235 1220 1% Sviss 5,9 3,97 2,43 149 63% Svíþjóð 24 2,88 9,88 8,33 19% Tævan 70 241 28,81 332 -13% Tæland 52 1,38 21,40 37,7 43% Ungvetjaland 299 1,26 123,0 2372 48% Þýskaland 4,95 2,72 2,04 182 12% |iTT»3 Samkvæmt útreiknum DV á Big Mac vísitölunni er gengi íslensku krónunnar ofmetið um 125% gagn- vart Bandaríkjadollar og 81% of hátt þegar tekið er tillit til virðis- aukaskatts hér á landi. Fyrir ári voru sambærilegar tölur 112% og 70% og ljóst að krónan hefur verið að styrkjast gagnvart útlöndum. Saga Big Mac vístölunnar hófst hjá breska timaritinu The Economist sem birtir árlega spár um gengi gjaldmiðla þar sem verð á Big Mac er notað til grundvallar. Þessi fram- setning er vissulega til gamans gerð, en vísitölunni hefur gengið betur að spá um þróun gjaldmiðla en mörgum sérfræð- ingum. Til dæmis var því almennt spáð að þegar evrunni yrði hleypt af stokkunum nú um áramótin, þá myndi hún styrkjast gagnvart dollar. En annað sagði Big Mac vísitalan. Það gerðist nákvæmlega það sem hamborgarahagfræð- ingar höfðu spáð: Evr- an féll og mun sam- kvæmt þessari nýju spá halda áfram að falla. Hugmyndin að baki þessum útreikn- ingum er sú kenning sem segir að verð á einsleitum vörum eigi að vera það sama í öll- um löndum þegar tek- ið hefur verið tillit til flutningskostnaðar. Ef verðið er ólíkt þá kaupir fólk vöruna í útlöndum. Hins vegar eru fáar vörur sem uppfylla þessi skil- yrði. Big Mac hins vegar gerir það ágæt- lega því hann á að vera eins í öllum löndum og enginn flutningskostnað- ur er á milli landa, þar sem hann er framleiddur í hverju landi fyrir sig. Enginn endanlegur sannleikur Skoðum nú hvað hér stendur. í fyrsta dálknum er verð á Big Mac í hverju landi. Því næst er verðið um- reiknað yfir í dollara. í þriðja dálkn- um er sýnt hvert gengi þyrfti að vera til að Big Mac kostaði það sama og í Bandaríkjunum. Sam- kvæmt þessu þyrfti hver dollari að kosta 164 krónur til að kaupmáttar- jafnvægi næðist á milli íslands og Bandaríkjanna. Við sjáum enn fremur að hvergi I heiminum er Big Mac eins dýr og á íslandi en ódýrastur er hann í Malasíu og Taílandi. En þessir útreikningar eru ekki gallalausir. Hér er ekki gert ráð fyr- ir þeim viðskiptahindrunum sem raunverulega eru til staðar. Hlut- fallslegur launakostnaður hamborg- arasölumanna hér á landi er hærri en t.d. í Bandaríkjunum. Nautakjöt hér er dýrt og styrkir til nautgripa- ræktar eru minni hér en víða ann- ars staðar. Hveiti í hamborgara- brauð er dýrara hér og ekki gætir sömu stærðarhagkvæmni hér í mat- reiðslu Big Mac vegna smæðar markaðarins. Mismikil samkeppni getur líka verið ástæða þess verð- munar sem hér kemur fram. Við- horf til Big Mac hafa líka áhrif. Til dæmis er Big Mac lúxusvara í Rúss- landi og Brasilíu en hér á landi er Big Mac skyndibiti. Þrátt fyrir þessa annmarka hefur Big Mac vís- tölunni gengið vel að spá fyrir um gengisþróun. En hins vegar er fátt sem bendir til að gengi krómmnar hækki gagnvart dollar eða öðrum gjaldmiðlum. -BMG Á íslandi er dýrasti Big Mac í heimi. Hátt verð hans gefur til kynna að króna sé of hátt skráð. Samband íslenskra auglýsingastofa: íslenska auglýsinga- stofan stærst Velta auglýsingastofa í SIA - tölur í milljónum króna 499 245 251 * ***** Mikil aukning hefur orð- ið hjá auglýsingastofum innan Sambands íslenskra auglýsingastofa á undan- fömum árum. Vaxandi fjöldi stórra og meðalstórra fyrirtækja hefur nýtt sér þjónustu auglýsingastofa og skilar það sér eðlilega í betri afkomu stofanna. Heildarvelta innan SÍA var 3080 milljónir, jókst mikið frá því árið áður. Jafnframt hefur starfsfólki fjölgar og velta á starfsmann hefur líka aukist nokkuð. Athygli vekur að viðskipti við fjölmiðla eru mikil. Á síðasta ári námu þau viðskipti tæpum 1600 milljónum. Á myndinni má sjá hvaða stofur eru innan SÍA og hver velta þeirra var á síðasta ári. Þessi þróun er ánægjuleg því vandaðar og metnaðarfullar íslensk- ar auglýsingar eru íslensku við- skiptalífi til sóma. Olíuverð hækkar enn Olíuverð heldur enn áfram að hækkar og var komið í 15,17 doll- ara tunnan i gær. Verðið hefur því hækkað um rúmlega 5 dollara tunnan frá því það var lægst í febr- úar. Aukin spenna ríkir nú á olíu- mörkuðum vegna átakanna á Balkanskaga. Fréttir um að Serbar hefðu farið yfir landamæri til Al- baníu og að lítið hefði gengið hjá Bandarikjamönnum og Rússum að reyna ná samkomulagi um alþjóð- legar friðargæslusveiðir juku enn fremur á spennuna. Þessar hækk- anir eru samt sem áður ekki rakt- ar beint til stríðsátakanna heldur skapa eingöngu spennu hvað, svo sem síðar verður. Sæplast hf. á Davík Kaupir tvær erlendar verksmiðjur Sæplast hf. á Dalvík og Dynoplast hafa gengið frá viljayfirlýsingu um yfir- töku Sæplasts hf. á tveimur verksmiðjum Dynoplast. Um er að ræða verksmiðjur í Salangen í Norður-Noregi og Saint John í Kanada, sem báðar framleiða hverfi- steyptar vörur. Verksmiðj- an í Kanada er af svipaðri stærð og Sæplast en Noregsverk- smiðjan er minni. Að þvi er segir í frétt frá Sæplasti er markmiðið með kaupunum að Sæplast hf. verði leið- andi aðili á alþjóðamarkaði I fram- leiðslu og sölu hverfisteyptra af- urða fyrir sjávarútveg og matvæla- vinnslu. Báöar þessar verksmiðjur verði þannig hluti af Sæplasti sem verði þá með starfandi verksmiðjur á íslandi, í Noregi, í Kanada og á Indlandi. Þetta muni styrkja mjög stöðu fyrirtækisins í samkeppni á alþjóðamörkuðum vegna hagræð- ingar í markaðs- og sölumálum, ásamt hagræðingu í innkaupum hráefna og í framleiðslu. Þetta muni einnig skapa tækifæri til frek- ari þróunar nýrra afurða með meiri nálægð við markaði. Næstu vikur verði unnið frekar að þessum mál- um og stefnt að því að ljúka samn- ingum í júní. Þetta kemur fram á viðskiptavef Vísis.is. Mesta álverðshækkun í langan tíma Álverð hækkaði í fyrradag um 37 dollara, eða 3%, þegar fréttir bárust af lægri birgðastöðu álbræðslna. Þetta er mesta hækkun álverðs í meira en tvö og hálft ár. Þrátt fyrir þessa hækkun eru likur á að álverð verði enn lágt þar sem framleiðsla er meiri en eftirspurn. Búist er við að framleidd verði um 22,6 milljón tonn en eftirspurn verði aðeins 20 milljón tonn. Gróði hjá Rsk- markaði Suður- nesja Rekstur Fiskmarkaðs Suðumesja hf. gekk ágætlega á síðasta ári og nam hagnaður félagsins 9,6 milljón- um króna, samanborið við 13,3 miiljónir í fyrra. Hagnaður sam- stæðu, fyrir áhrif dóttur- og hlut- deildarfélaga og fjármagnsgjöld, nam 19,7 milljónum króna. Dótturfé- lög FMS eru Fiskmarkaðurinn ehf. í Hafnarfirði og Reiknistofa fisk- markaða. Hlutdeildarfélögin eru Umbúðamiðlun hf., Fiskmarkaður Homafjarðar hf. og íslandsmarkað- ur hf. Stjóm félagsins gerir tiilögu um að greiddur verði 10% arður af hlutafé. Ekki frekari vaxtalækkanir Aðstoðar- bankastjóri Seðlabanka Evrópu, Christian Noyer, sagði í gær að ekki væri von á frek- ari vaxtalækkunum í þeirri hag- sveiflu sem Evrópa væri nú í. Marg- ir sérfræðingar í Evrópu áhta að vaxtalækkunin í síðustu viku muni ekki duga til að örva hagvöxt og fjárfestingar og telja stefnu Seðla- banka Evrópu ranga. Botninum náð í Japan Talsmenn innan OECD sögðu í gær að botninum i japönsku efna- hagslífi væri sennöega náð. Að minnsta kosti væri nækvæður hag- vöxtur úr sögunni, en ekki væri út- ht fyrir neinn hagvöxt á þessu ári. Japanska jenið hefur styrkst nokkuð undanfarið, enda hafa hlutabréf farið hækkandi upp á síðkastið. En sérffæðingar segja hækkun jensins ekki æskilega fyrr en efhahagur Japans gefi tilefni til. Tæknival með sýningu Tæknival hf. efnir til sýningar á nýjum heildarlausnum fýrir versl- anir og heildsölur í Akoges-salnum í Reykjavík, 16. apríl næstkomandi. Á sýningunni mun Dierk Grunzig frá Metrologic halda fyrirlestur um nýj- ungar og tækni skanna og handskanna. Margar nýjungar verða kynntar á sýningunni, m.a. i vörumerkjakerfúm og rafrænum hihumerkingum. Þar að auki verð- ur kynnt ný heildarlausn fyrir heildsölur, sem Tæknival hefúr sett saman úr Microsoft-lausnum og Axapta, til þess að halda utan um viðskiptamannakerfi. Útflutnmgshand- bókin komin út Útflutningshandbókin, Iceland Export Directory, er nú komin út i fimmta sinn. í bókina eru skráð um 500 íslensk útflutningsfyrirtæki og um 400 vöruflokkar. Bókin er því ómetanlegt uppflettirit um íslenska útflytjendur um leið og hún þjónar sem kynning á íslenskum vörum er- lendis. Bókin er nú með nokkuð breyttu sniði frá því sem verið hef- ur og búið er að einfalda aha notk- un og uppflettingu í henni. Það er Útflutningsráð sem gefur út bókina í samvinnu við Miðlun ehf., sem sér jafnffamt um dreifingu á henni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.