Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1999, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1999 JÖ V
•étt/r
Umræða um dómstóla og réttarfar:
Ekkert einkamál
lögfræðinga
- segir Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður
„Umræðan snýst í grundvallarat-
riðum um þær kenningar sem Sig-
urður Líndal og að því er virðist
fleiri lögfræðingar hafa haldið á
lofti að við úrlausn á réttarágrein-
ingi hafi dómstólar að vissu marki
frjálsar hendur og séu í því hlut-
verki aö setja lagareglur en ekki að
beita þeim. Ég vísa því á bug að
þetta sé hlutverk dómstóla almennt
og bið lesendur að skoða hug sinn
um það hvort þeir telji að starf dóm-
stóla sé fólgið í þessu,“ segir Jón
Steinar Gunnlaugsson hæstaréttar-
lögmaður í samtali við DV. DV
ræddi við Jón Steinar um fræðileg-
an ágreining þeirra Sigurðar
Líndals lagaprófessors sem DV hef-
ur greint frá.
Jón segir það fráleitt að Sigurður
Líndal skuli nota orðið lýðskrum
um það að fjalla opinberlega
um meðferð dómstóla á valdi
sínu. „Það er eins og hann
telji að umfjöllun um starf-
semi dómstólanna eigi ekki
erindi til almennings i land-
inu heldur sé eitthvert sér-
verkefni sem hann og aðrir
lögfræðingar eigi einir að
þekkja og fjalla um. Ég vísa
því á bug.“
Jón Steinar segir að með-
ferð dómsmála sé þýðingar-
mikið þjóöfélagsmál og mjög brýnt
að almenningur í landinu fylgist
með því hvemig með dómsvaldið er
farið af þekkingu en ekki vanþekk-
ingu. Hann vísar því á bug að hafa
stundað það sem Sigm-ður kallar
pólitíska kappræðu um dómsmálin.
„Það sem ég hef sagt um þau opin-
berlega hefur verið rök-
ræða. Gagnrýni mín á
dómstólana hefur jafnan
verið ítarlega rökstudd.
Það er líka skrýtið að
kvarta undan skorti á rök-
ræðu um dómsmál í þessu
samhengi vegna þess að ég
skoraði á hann að mæta
mér á fundi í Lögfræðinga-
félaginu í vetur um þennan
lögfræðilega ágreining
okkar um lagasetningar-
vald dómstólanna en hann treysti
sér ekki til að mæta. Ég mætti þar
einn og flutti mitt erindi.
„Það er erfltt að átta sig á hvers
vegna prófessorinn verður svona
vanstilltur vegna þessa málefnis.
Hann gengur svo langt í viðtali við
DV að líkja réttarhugmyndum mín-
um við nasisma. Það auðvitað segir
sína sögu um hugarástand hjá pró-
fessomum sem ég kann í sjálfú sér
ekki skýringar á. Hins vegar er
þetta ekki í fyrsta sinn sem við
skiptumst á orðum opinberlega. Það
hefur gerst áður og Sigurður telur
sig áreiðnalega eiga um sárt að
binda eftir þau orðaskipti okkar þar
sem hann hefur orðið ber að
skammhugsun og orðhengilshætti í
þeim samskiptum. Það hlýtur að
vera skýringin á því hvers vegna ég
set manninn svo mjög úr jafnvægi. í
þessum samskiptum okkar þá er
það Sigurður Líndal en ekki ég sem
hefur valið viðmælanda sínum orð
og heiti sem ekki eru sæmandi í al-
varlegri umræðu um þjóðfélags-
mál,“ segir Jón Steinar Gunnlaugs-
son. -SÁ
Jón Steinar
Gunnlaugsson.
Fjöldi manns á flótta frá Þingeyri:
Skelfilegt
- segir kaupmaðurinn á horninu
Gunnar Sigurðsson, kaupmaður á Þingeyri, dyttar að sendibíl verslunar
sinnar. DV-mynd GS
Birna Lárusdóttir:
Fylgjumst vel meö
framvindu mála
DV, Þingeyri:
„Ástandið hér er skelfilegt, ég hef
nú lifað hér tímana tvenna en ég
minnist þess ekki að við höfum
staðið frammi fyrir öðru eins. Nú í
sumar eru 25 manns aö flytja héðan
úr plássinu og það eru bara þeir
sem ég veit um, sjálfsagt eru ein-
hverjir fleiri að hugsa sér til hreyf-
ings og það er sárt að þurfa að sjá á
bak þessum 70 Pólverjum sem hér
hafa verið, þetta er svo mikið sóma-
fólk og elskulegt,“ segir Gunnar Sig-
urðsson, kaupmaður á Þingeyri.
Gunnar hefur, ásamt konu sinni,
um langt árabil rekið Verslun
Gunnars Sigurðssonar og lengst af í
harðri samkeppni við kaupfélagið.
Þegar talið berst að ástæðum
vandans er Gunnar ómyrkur í máli
Ökukennari í haldi:
Sorglegt
- segir formaöur ÖFÍ
„Það voru tveir starfsmenn hér í
vitorði með ökukennaranum og þeir
hafa verið lámir hætta,“ sagði Óli H.
Þórðarson, framkvæmdsfjóri Um-
ferðarráðs, um ökukennara sem náði
fullgildum meiraprófsskirteinum út
úr lögreglustjóraembættinu með því
að falsa gögn frá Umferðarráði. Með
hjálp ökukennarans fengu menn
skírteini án þess að hafa þreytt próf.
„Þetta er sorglegt. Það á að vera
hægt að treysta mönnum í okkar
stétt, við viljum vera trúverðugir,"
sagði Guðbrandur Bogason, formað-
ur Ökukennarafélagsins.
Umræddur ökukennari er um
fimmtugt og var hnepptur í gæslu-
varðhald í vikunni þegar upp komst
um svikin. Hann starfaði um árabil
sem lögreglumaður og hefúr rekið
umfangsmikla ökukennslu um ára-
tugaskeið. Honum var sleppt úr
gæslu í gærmorgun en rannsókn
málsins heldur áfram. Samkvæmt
heimildum DV er ljóst að ökukennar-
inn og vitorðsmenn hans hjá Umferð-
arráði fólsuðu minnst 14 umsóknir
um meirapróf og þágu fyrir rúmlega
100 þúsund krónur á stykkið. -EIR
og telur fiskveiðistefnuna vera að
leggja Vestfirði í auðn.
„Okkur vantar bara að fá að veiða
fisk sem nóg er af hér um alla firði.
Ég segi það að stefna stjórnvalda í
þessu er hryllingur og sjáðu nú sjáv-
arútvegsráðherrann, þeir finna þama
dýralækni í Hafnarfirði, sjálfsagt
þjónar hann Davíð Oddssyni sem
menn virðast halda að sé sjálfur Guð
almáttugur. Og bæjarstjómin, hún
lætur ekki sjá sig héma og kannski
líka eins gott.“
Svona feikna samdráttur, sem
verður við þaö að 100 manns missa
vinnuna á einu bretti, hlýtur að koma
mjög við verslunina á staðnum.
„Auðvitað kemur svona ástand
niður á öllum í plássinu og það
dregur úr verslun. Svo er nú Bónus
að koma hingað vestur en það skipt-
ir mig ekki máli, ef fólkið vill ekki
versla við mig þá bara loka ég og fer
að leika mér eða segi mig á sveitina.
Ég á engan lífeyrissjóð og líka eins
gott, því verður þá ekki eytt frá
manni í tóma vitleysu,“ segir Gunn-
ar. -GS
„íbúasamtökin Átak á Þingeyri
hafa ekki haft samband við bæjar-
stjórn frá stofnun samtakanna. Við
höfum rætt málið í bæjarstjórn og
höfum að sjálfsögðu miklar áhyggj-
ur. Halldór Halldórsson bæjarstjóri
hefur átt fund með þingmönnum
kjördæmisins um málið. Við erum í
sambandi við alla hluteigandi og
fylgjumst vel framvindu mála á
Þingeyri," segir Bima Lárusdóttir,
forseti bæjarstjómar á ísafirði.
Vegna ummæla Ragnheiðar
Ólafsdóttur, formanns Átaks, um að
bæjarfulltrúar sjáist aldrei á Þing-
eyri segir Bima:
„Ég bý nú á
Þingeyri og ann-
ar bæjarfulltrúi
býr í grennd við
Núp og hér dvelj-
umst við flestum
stundum. Ég vísa
þeirri gagnrýni
algjörlega á bug
að bæjarfulltrúar
vinni bara fyrir
ísafiörð. Ég nefni
dæmi um aðgerð-
ir á Flateyri,
framkvæmdir á Suðureyri og fleira.
Við eram bæjarfulltrúar allra sem
búa í sveitarfélaginu. Ummæli eins
og mannleg móðuharðindi og um að
segja sig úr lögum við íslenska rík-
ið dæma sig sjálf. Þrátt fyrir alvar-
legt ástand eru ýkjur aö héðan séu
að flytjast 15-20 manns út af málefn-
um Rauðsíðu. Flest af þessu fólki er
með atvinnu og atvinnumál ekki
meginorsök. Um málefni Pólverjana
er ekkert vitaö og ofsagt að þeir séu
allir á leið burt. Ég er sammála
flestu í ályktun sem íbúasamtökin
sendu frá sér i gær og fagna henni.
Mér finnst hártoganir í fiölmiðlum
engu að síður ekki rétti leikurinn,"
segir Bima. -EIS
Birna Lárusdótt-
ir, forseti bæjar-
stjórnar.
stuttar fréttir
Urskurðarnefnd
Ingibjörg
Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra
hefur skipaö úr-
skurðamefnd al-
! mannatrygginga
sem í eru þrír
fulltrúar, þar af
tveir tilnefhdir af
Hæstarétti. Nefndin sker úr um
ágreiningsmál milli Tryggingastofn-
j unar ríkisins og viðskiptavina
hennar.
Aurskriða
Aurskriða féll úr fiallinu ofan Isa-
:i fiarðar seinnipartinn í gær og á tvö
j hús. Engin slys urðu á fölki en ein-
‘ hver vatnsskaði.
Lengri greiðslustöðvun
Héraðsdómur Norðurlands hefur
heimilað framlengingu á greiðslu-
[ stöövun Kaupfélags Þingeyinga í
: þrjá mánuði. Lögmaður eigenda við-
• skiptavíxla hjá KÞ upp á 55 milljón-
ir króna ætlar að kæra úrskurðinn.
Nýir eigendur Aldins
Eignir þrotabús viðarvinnslufyr-
j irtækisins Aldins á Húsavik hafa
l verið seldar. Nýir eigendur eru
Parket og gólf ehf. í Reykjavík og
Hömlur ehf., auk sænskra aðila sem
mikla reynslu hafa af timbur-
[ vinnslu.
Tal fagnar
Tal hf. fagnar
úrskurði Sam-
} keppnisráðs um
j jöftiun samkeppn-
isaðstöðu á síma-
I markaönum. í yf-
irlýsingu frá fyr-
irtækinu segir
[ það að allar kröf-
;[ m- þess hafi verið staöfestar.
Lífræn starfsemi vottuð
Þörungaverksmiðjan hf. á Reyk-
hólum veitir viðtöku vottun um líf-
: ræna starfsemi næsta mánudag og
: verða afurðir hennar framvegis
j merktar lífrænar. Þetta er í fyrsta
skipti sem íslenskur sjávargróður
: og afurðir hans hljóta þann stimpil
: og styrkir það samkeppnisstöðu
;l verksmiðjunnar.
Breytingar hjá Básafelli
Nýr framkvæmdastjóri og nýr
? stjómarformaður hafa tekið til
j starfa hjá Básafelli hf. Svanur Guð-
; mundsson tók við starfi Amars
; Kristinssonar sem framkvæmda-
stjóri en Ragnar J. Bogason tók sæti
í stjóm og var kjörinn formaður
' hennar.
Aðstoðarmaður
Jónmundur Guðmarsson hefur
: verið ráðinn aðstoðarmaður Bjöms
Bjamasonar menntamálaráðhema.
Hann hefúr meistaragráðu í alþjóða-
■ stjómmálum frá Oxfordháskóla og
s hefur starfað í ráðuneytinu frá 1995.
Landssíminn undrandi
Landssíminn lýsir furðu sinni á
þeimi ákvörðun Samkeppnisráðs að
honum sé óheimilt að veita magnaf-
j slátt og sérstakan áskriftarflokk fyr-
| ir þá sem nota mikið farsíma og seg-
j ir úrskurðinn ganga gegn hagsmun-
um neytenda. Ákveðið hefur verið
að áfrýja úrskurðinum til áfrýjunar-
; nefhdar samkeppnismála.
Landssiminn lækkar
Landssíminn
[ hefur ákveðið að
[ lækka verð á
: símtölum til
Bandarikjanna í
sumar. Lækkun-
in er í tilrauna-
• skyni og nemur
20 prósentum á
dagtaxta. Næturtaxtinn verður eins.
[ Mínútugjald lækkar þannig úr 40
• krónum í 32 krónur sem er svipað
og til Evrópu. Mbl.is sagði frá.
Svínakjöti eytt
Hollustuvemd rikisins hefur,
| vegna ótta um díoxíneitrun, látið
í eyða um 20 kílóum af svínakjöti
: sem talið var að væri af belgískum
s uppruna. Einnig hafa verið innkall-
: aðar belgískar eftirréttakökur.
Mbl.is sagði frá. -fin