Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1999, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1999, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1999 Fréttir Starfsmenn flugstöðvarinnar óvelkomnir innan um almenning: Skapa óþrif, óþægindi og skaða ímyndina - segir í bréfi frá flugstöðvarstjóra og hans mönnum Óskað hefur verið eftir því í dreifibréfi til starfsfólks Flugstöðv- ar Leifs Eiríkssonar að það sé ekki sýnilegt innan um farþega stöðvar- innar. „Við sem vinnum hérna á transitsvæðinu erum langþreytt á ástandinu í flugstöðinni. Við skilj- um ekki afstöðu þeirra sem reka flugstöðina gagnvart okkur,“ sagði starfsmaður á Keflavíkurflugvelli sem DV ræddi við í gær. Starfsmenn fengu á dögunum bréf í hendur frá rekstrarstjóra Flug- stöðvar Leifs Eiríkssonar, Einari Má Jóhannssyni. í bréfinu segir svo: „Mikið hefur borið á því upp á síðkastið að starfsfólk FLE dvelji á svæðum sem ætluð eru almenningi. Þetta veldur óþægindum, óþrifnaði og skaðar ímynd flugstöðvarinnar. Hér með tilkynnist að starfsfólki í Flugstöð Leifs Eirikssonar er óheimilt að dvelja að óþörfu á svæð- um í flugstöðinni sem ætluð eru al- menningi. Þetta á við um veitinga- staði, barhorn, biðsvæði og önnur svæði ætluð almenningi og á við um allan sólarhringinn." Fólk sem starfar í fríhöfninni, tollverðir, starfsfólk verslana og kaupmenn, segja þetta bréf algjöra lágkúru og fullkomlega ótímabært. Einn starfsmanna sagði blaðinu að þeir hygðu á aðgerðir vegna þessara viðbragða. „Erum við einhverjir sóðar eða hvað? Okkur er sagt að við völdum óþrifum. Menn eiga ekki orð og eru brjálaðir út í flughafnarstjórann. Samgangur er auðvitað á milli búð- anna en starfsmenn eru ekkert fyr- ir farþegum og trufla þá auðvitað ekki hið minnsta," sagði starfsmað- urinn. -JBP Úr Flugstöö Leifs Eiríkssonar. Þar eru starfsmenn beðnir að fara með veggj- um vegna sóðaskapar sem af þeim leiðir, samkvæmt bréfi forráðamanna. Alagning samkvæmt álagningarskrá: Skattakóngur eft- ir sölu á kvóta Skattakóngar Reykjavíkur 1. Nafn Heildargjöld m.kr. Þráinn Hjartarson 41,31 Þar af útsvar m.kr. 10,16 2. Ingibjörg Guðmundsdóttir 24,92 1,49 3. Gunnar 1. Hafsteinsson 22,4 4,43 4. Garðar Þorbjörnsson 15,25 3,52 5. Ingimundur Ingimundarson 13,28 2,26 6. Guðleifur Sigurðsson 12,83 3,04 7. Höröur Sigurgestsson 12,61 3,107 8. Ásrún Lilja Pétursdóttir 10,94 2,34 9. Ásberg Kristján Pétursson 10,1 0,28 10. Indriðí'Pálsson 9,87 2,31 11. Gísli Jóhannesson 9,51 2,25 12. Kristinn Björnsson 9,36 2,22 13. Ketill Axelsson 9,34 1,88 14. Sigurður Sigurösson 8,97 2,21 15. Kjartan Gunnarsson 8,39 0,74 16. Þórhallur Einarsson 8,37 1,85 17. Geir Magnússon 7,87 2,1 18. Þorvaldur H. Gissurarson 7,85 1,78 19. Hildur Petersen 7,85 0,89 20. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson 7,84 1,68 21. Árni Samúelsson 7,69 0,72 22. Pálmar Guðmundsson 7,60 1,91 sa Hjálmurinn fór í mask - slapp ómeiddur „Þau voru nokkur saman að hjóla þegar drengurinn skall i götuna. Hjálmurinn fór i mask en hann slapp svo til ómeiddur," segir Stefán Ingi Óskarsson, faðir Amars Stefánssonar, 7 ára, en Amar hafði verið að hjóla fyrir utan heima hjá sér og fallið í göt- una. „Við höfum verið mjög ströng á að hann noti hjálminn og það hefur ver- ið regla að hann fer ekki á hjólið nema vera með hjálm. Það sést núna að það borgar sig að vera strangur á þessu atriði. Mér finnst að krakkarn- ir hafi mikið notað hjálma í vor en þegar liðið hefur á sumarið hefur þeim með hjálmana fækkað. Krakk- arnir verða öruggari með sig og þá fmnst þeim að þeir þurfi ekki að hafa hjálm. Strákurinn, sem er sjö ára, meiddist ekkert en var örlítið sleginn yfir þessu öllu saman. Fallið er kannski ekki svo hátt, enda hjólið lit- ið, en höggið hlýtur að hafa verið mik- ið þar sem hjálmurinn brotnaði. Þetta er viðurkenndur hjálmur og hann hef- ur eflaust bjargað stráknum. Krakk- arnir sem voru með honum sögðu að þetta væri mesti happadagurinn í lífi hans. Hann skilur núna af hverju við erum stif á því að hann noti hjálm,“ segir Stefán Ingi. Nýr skattakóngur trónar á toppi listans yfir hæstu gjaldendur í Reykjavík á þessu ári. Þráinn Hjartarson, útgerðarmaður á Pat- reksfirði, er í fyrsta sæti, nýfluttur suður eftir að hafa selt bát og kvóta fyrir vestan. Þráinn seldi bát sinn, Fjólu, í júni i fyrra með kvóta og varð fyrir bragðið skatta- kóngur í Reykjavík. í gær var birt álagningarskrá Reykjavíkur 1999 með gjöldum einstaklinga ásamt tryggingagjaldi lögaðila. Skráin mun liggja frammi til 13. ágúst nk. Að venju vekja þeir einstaklingar sem hæstu gjöJdin greiða mesta at- hygli. Á toppnum trónar Þráinn Hjartarson, útgerðarmaður frá Patreksfirði, sem fyrr sagði, en Ingibjörg Guðmundsdóttir, ekkja Þorvaldar í Síld og flski, er í öðru sæti. í þriðja sæti er síðan Gunnar I. Hafsteinsson hdl. og Garðar Þor- björnsson verktaki í fjórða sæti. Heildargjöld samkvæmt álagn- ingarskrá 1999 eru 34,8 milljarðar króna en þar vega tekjuskattur og útsvar þyngst. Á móti þessum gjöldum koma ýmsar bætur eins og barna- og vaxtabætur. Stóru fyrirtækin Af fyrirtækjum greiða Flugleiðir hæsta tryggingargjald til stað- greiðslu skatta í Reykjavík, 275 milljónir. Hins vegar er ríkið stærst á þessu sviði og innheimtir 2,26 milljarða og Reykjavíkurborg 707 milljónir. Sjúkrahús Reykjavíkur er i fjóröa sæti en fast á hæla þess er Landssíminn, Landsbankinn, ís- landspóstur, Búnaðarbankinn og Landsvirkjun. Þessi fyrirtæki eru áberandi hæst i Reykjavík og önnur eru minni. -bmg/EIR Nýr skólastjóri á Hólum DV, Skagafiröi: Doktor Skúli Skúlason liffræðing- ur hefur verið skipaður skólastjóri Bændaskólans á Hólum í Hjaltadal. Auk Skúla sótti um stöðuna Guð- mundur Sæmundsson, skólastjóri Skógaskóla. Staða skólastjóra á Hólum losnar nú þar sem Jón Bjamason skóla- stjóri hefur verið kjörinn alþingis- maður. Skúli Skúlason hefur starfað við Bændaskólann á Hólum undanfarin ár. Hann tekur við stöðunni 1. ágúst. -ÖÞ Sumarslátrun í Króksfjarðarnesi: Rífandi sala Nú er að hefjast sumarslátrun í sláturhúsi Kaupfélags Króks- fjarðarness. „Við föram seint af stað núna. Við erum farnir aö eld- ast - er það ekki?“ sagði Sigurður Bjarnason sláturhússtjóri og hló við. „Það kemur víst fyrir okkur alla. Annars voraði seint og lömbin hafa verið frekar smá fram undir þetta. Við erum vanir að byrja upp úr miðjum júlí og höldum síðan á með vikulega slátrun fram í des- ember. Ég veit ekki hvað við náum miklu núna, kannski hundrað til hundrað og fimmtíu lömbum. Þetta er allt selt ferskt og það er rífandi sala í þessu. Við munum slátra alla mánudaga sem fram undan eru og síðan bætum við bara við dögum eftir því sem að berst. Það er allt heimafólk af bæjum hér í kring sem vinnur við þetta,“ sagði Sigurður sláturhús- stjóri. -HKr. Stuttar fréttir i>v Skattakóngur Gjaldhæsti einstaklingur í Reykjanesumdæmi í ár er Garðar Brynjólfsson, Keflavík, sem greið- ir rúmar 24 milljónir króna í op- inber gjöld. Umferðarútvarp í hönd fer mesta umferðarhelgi ársins, verslun- armannahelgin. Umferðarráð verður með vakt alla versl- unarmanna- helgina og í gangi verður „Útvarp Um- ferðarráð", sem kemur heilræð- um til þeirra sem um landið þeysa þessa helgi. Sækja í Hvalfjörð Jón Valgarðsson að Eystra-Mið- felli, oddviti Hvalijarðarstrandar- hrepps, segist í samtali við Dag hafa orðið var við stóraukna eftir- spurn eftir sumarbústaðalóðum síðustu árin, ekki síst eftir að Hvalfjaröargöngin vora tekin í notkun. Hagnaður Eimskips Hagnaður Eimskips hf. nam 635 milljónum króna fyrstu sex mán- uði þessa árs. Velta Eimskips og dótturfélaga var 8.027 milljónir k'róna og hagnaður af reglulegri starfsemi nam 408 milljónum, samanhorið við 401 milljón á sama tímabili í fyrra. Siv leitar ráða Siv Friðleifsdóttir umhverfis- ráðherra ætlar að leita ráða hjá Hollustuvernd ríkisins og Land- lækni um hvort innkalla eigi úr verslunum alla kjúklinga frá Ás- mundarstöðum, eins og Neytenda- samtökin hafa krafist. Skuldajafnað Þeir sem eiga inni vaxtabætur hjá skattinum mega búast við því að fá þær ekki greiddar út um mánaðamótin ef þeir skulda hjá íbúðalánasjóði. Samkvæmt nýjum lögum, sem gengu í gildi um áramótin, hafa skattayfir- völd leyfi til að skuldajafna van- skil hjá íbúðalánasjóði með vaxtabótum. Besti leikstjórinn Ágúst Guð- mundsson var í dag valinn besti leikstjórinn á kvikmyndahá- tíðinni í Moskvu fyrir myndina Dans- inn. Uppsagnir Vinnslustöðin í Vestmannaeyj- um hefur sagt upp öllum starfs- mönnum fyrirtækisins í Þorláks- höfn, rúmlega 20 manns. Nýtt fyrirtæki Stjórn Byggðastofnunar sam- þykkti samhljóða, með öllum greiddum atkvæðum á fundi sín- um í gær, að gerast þátttakandi í stofnun sjávarútvegsfyrirtækis á Þingeyri með 100 milljóna króna hlutafjárframlagi. Hagnaður Útgerðarfélag Akureyringa hf. skilaði 180 milljóna króna hagn- aði á fyrstu sex mánuðum þessa árs en hagnaður félagsins af reglulegri starfsemi fyrir skatta nam 262 milljónum króna, saman- borið við 23 milljónir á sama tímabili í fyrra. Halldór fundar Halldór Ásgrímsson, utanríkis- ráðherra og for- maður ráð- herranefndar Evrópuráðsins, fundaði í gær í Sarajevo, höfuð- borg Bosníu- Hersegóvínu, og ræddi stöð- ugleikasáttmála fyrir Balkan- skaga. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.