Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1999, Blaðsíða 8
FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1999
Utlönd
Stuttar fréttir x>v
1 hjálpum pf
til butri hGilsu
Verðbréfasali í Georgíu myrti tólf og svipti sig svo lífi:
Sænskt klám
Háttsettur lögreglumaður í
Östersund í Svíþjóð hefur verið
kærður af starfsfélögum sínum
fyrir að dreifa dýraklámi á neti
lögreglunnar. Lögreglumaöurinn
á að hafa sent 10 sekúndna langa
klámmynd til allra lögreglustöðva
i héraðinu þar sem kona á í
mökum við asna og hund.
Vissu um Hitler
Bandaríska utanríkisráðuneyt-
iö vissi strax 1940 af áætlunum
Hitlers um útrýmingu „gagns-
lausra“ þýskra þegna að því er
gyðingasamtök halda fram og
hefði því getað tekið málin í sínar
hendur strax þá.
1 boði eru ýmis afbrigði of kínverskum heilsumeðferðum
sem hjálpa þér gegn ýmsum streitukvillum, s.s.
vöðvabólgu, bakveiki, gigt, ofnæmi, ristilvandamálum,
olmennum stirðleiko og fleiru.
Patricia Corey þurrkar burt tárin þegar hún ræðir við Kristu Roth, samstarfskonu sína, um fjöldamorðin í tveimur verð-
bréfafyrirtækjum í Atlanta í Georgíu í Bandaríkjunum. Stúlkurnar komust að því að allir samstarfsmenn þeirra höfðu
annaðhvort verið drepnir eða særst þegar 44 ára gamall verðbréfasali hóf skothrfð.
Hillary vel tekið
í New York
Hillary Clinton kom aftur til
New York í gær eftir að hafa gert
hlé á ferð sinni í kjölfar Kennedy-
slyssins. Hún heimsótti bæinn
Elmira sem repúblikanar hafa
notað til þess að sýna fram á að
hún hefur engar rætur í fylkinu.
Hillary sagði fyrir skömmu á
blaðamannafundi að hún hefði
dvalist í bænum en þégar gengiö
var á upplýsingafulltrúa hennar
viðurkenndi hann að hún hefði
heimsótt bæinn einu sinni fyrir
40 árum. íbúar tóku þrátt fyrir
það vel á móti Hillary og virtust
flestir þeirra ekki taka það nærri
sér að hún er ekki búsett þar. Þó
mátti sjá einstaka skilti sem á
stóð: „Farðu heim, Hillary."
Drap konuna
og börnin fyrst
Maður vopnaður byssu réðst inn í
tvö verðbréfafyrirtæki í Atlanta í Ge-
orgíu í gær og skaut þar níu manns
til bana. Allt bendir til að hann hafi
ráðið eiginkonu sinni og tveimur
bömum bana næstu daga á undan.
Bill Campbell, borgarstjóri At-
lanta, sagði að morðinginn, hinn 44
ára gamli Mark Barton, hefði
framið sjálfsmorð í bíl sínum á
bensínstöð austur af borginni fimm
tímum eftir ódæðisverkin þegar lög-
reglan hafði stöðvað bifreið hans og
vildi eiga við hann orð.
Barton starfaði sem verðbréfasali
og að sögn sjónarvotta var hann óá-
nægður með tap sem hann hafði
orðið fyrir í fjárfestingum sínum
fyrir viðskiptavini sína.
„Ég vona að þetta eyðileggi ekki
viðskipti dagsins," sagði Barton áð-
ur en hann hann hóf skothríðina í
fyrra fyrirtækinu, að sögn sjónar-
votta.
Þegar skothríðin var yfirstaðin
lágu fjórir í valnum í fyrra fyrirtæk-
inu sem Barton heimsótti og fimm í
því síðara. Auk þess fengu tólf aðr-
ir skotsár.
Harmleikurinn í gær er sá síðasti
í röð margra sambærilegra í banda-
rískum skólum og opinberum bygg-
ingum. Ekki er lengra síðan en í
apríl að tveir unglingar drápu þrett-
án manns í framhaidsskóla í Little-
ton í Kólóradó og sviptu svo sjálfa
sig lífi.
Þegar lögreglan kom á heimili
Bartons blasti við henni ófögur
sjón. Eiginkona Bartons og tvö
böm þeirra voru þar látin. Líki
konunnar hafði verið troðið inn í
skáp en lík bamanna vom í rúm-
unum, vafin inn í teppi, og voru
barnaleikföng þar með. Börnin
voru sjö ára og tólf ára.
Af miðum sem Barton skildi eftir
á líkunum mátti ráða að eiginkonan
hefði hugsanlega verið drepin á
þriðjudag en börnin á miðvikudag.
Þau vora barin til bana.
Fyrir fimm árum lá Barton um
tíma undir gran um að hafa myrt
fyrstu eiginkonu sína og tengda-
móður. Hann var þó aldrei ákærður
fyrir þau morð. Konumar voru
einnig barðar til bana á tjaldstæði í
Alabama. Barton hafði stuttu áður
líftryggt eiginkonuna fyrir 40 millj-
ónir króna.
Fjðlbifiutt nudd
• Kinverskl nudd • Shintsi nudd • Svæðunudd
• Tuinu nudd • llmoliunudd • Slökunnrnudd
• Klassískt nudd • Sjúkronudd • Sogæðunudd
nmiiöa sngrtlnu
•Vux • Lilun og plokkun •Anlilsbnð
• Fóluuðgerðir • Hundsnyrting
Við bjóðum upp ó fjölbreyttor aðferðir til grenningar
sem somon stuðlo að mjög góðum órongri í baióttunni
við oukakílóin og oppelsinuhúð.
EurouiavG líhamsmeðrGrö
Mótun, grenning, cellolite-meðferð, lyfting,
stinning, bak- og vöðvubólgumeðfetð.
U.G.IU. Lfiirvalninuar
U.C.W. Leirvufningomir hieinsu og móto ollonn
likomo þinn ón strongior megrunai eðo æfinga
og geiir húðino ofoi stinno og silkimjúko.
, KfnvBrsH hBilsulind
Ármúlo 17a - Sími 553 8282
Vithíi daiju 9-tlu Z?. 00
L il II l| <11 li il I) il III'IIII rtlldin
sunnudaoH ia=oo iiþoo
Ljúsastofa
Palestmumenn
segja ísraelum
ffyrir verkum
Samningamenn Palestínumanna
sögðu israelskum starfsbræðrum
sínum í gær að þeir vildu að Ehud
Barak, forsætisráðherra ísraels,
hrinti þegar í stað í framkvæmd
öllum ákvæðum Wye River friöar-
samninganna um land í skiptum
fyrir frið.
Barak vill fresta sumum þáttum
samkomulagsins sem forveri hans,
Benjamin Netanyahu, gerði við
Yasser Arafat, forseta Palestínu-
manna, í október.
Fögur orö og fyr-
irheit í Sarajevo
Fögur orö verða látin falla um
tímamót á Balkanskaga á fundi
þjóðaleiðtoga í Sarajevo í dag þar
sem rætt verður um uppbygging-
una eftir allar styrjaldiraar. Hætt
er þó viö að fögru orðin nái ekki að
breiða yfir skiptar skoðanir austurs
og vesturs um hvers megi vænta.
Albright heimsækir Kosovo:
Hvergi fengið
betri viðtökur
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, heimsótti
Kosovo í gær og að eigin
sögn hefur hún hvergi
fengið hlýlegri viðtökur.
„Þetta var stórkostlegt.
Ég vissi alltaf að við gerö-
um hið eina rétta (að heyja
strið gegn Slobodan Milos-
evic Júgóslavíuforseta) en
það er stórkostlegt að fá
staðfestingu á því á þennan
hátt,“ sagði Albright við frétta-
menn.
Albright mátti sæta nokkurri
gagnrýni i Washington á sínum
tíma fyrir herskáa stefnu sína gegn
Milosevic. Hún var einna fyrst til að
mæla með valdbeitingu gegn
Serbum til að stöðva kúgun þeirra á
albanska meirihlutanum í Kosovo.
Bandaríski utanríkisráðherrann
lofaði þeim fjölmörgu sem
komu að hlýða á mál henn-
ar í héraðshöfuðborginni
Pristina að þeir fengju að
dvelja í Kosovo að eilífú.
„Aldrei framar munu
menn með þyssur koma
um hánótt," sagði Albright
í tilfmningaþrungmni
ræðu sinni. „Aldrei framar
verða hús og þorp brennd og aldrei
framar verða fjöldamorð og fjölda-
grafir.“
Albright sagði albanska meiri-
hlutanum, sem hefur mátt þola
miklar hörmungar hálfu Serba, að
umburðarlyndis væri þörf í Kosovo
og að hefnd væri ekki valkostur.
Líkin óþekkjanleg
Fómarlömb gljúfraslyssins í
Sviss eru nær óþekkjanleg og eft-
ir aö 10 lík hafa verið rannsökuö,
var aðeins hægt að bera kennsl á
2 þeirra. Þá eykur það á erfiðleik-
ana að fólkið var í leigðum fatn-
aði án skilríkja eða skartgripa.
Biair vill konur
Breski forsætisráöherrann
Tony Blair hækkaði margar kon-
ur í stöðu þeg-
ar ríkisstjómin
var stokkuð
upp í gær. Eftir
uppstokkunina
voru 13 nýir
ráðherrar skip-
aðir í minni
háttar ráðu-
neytum, 14
sögðu af sér og aðrir 14 voru færð-
ir til. Skoðanakannanir sýna nú
að traust kjósenda á ríkisstjórn-
inni fer þverrandi, sem endur-
speglar vonbrigöi með hægar
framfarir á opinberri þjónustu.
Kina vill Falun Gong
Bandaríkjamönnum bárust í
gær í gegnum Interpol beiöni Kín-
verja þess efnis aö foringi Falun
Gong, sem er eins konar sértrúar-
söfnuður, verði settur í varðhald.
Hann er búsettur í Bandaríkjun-
úin. Enginn framsalssamningur er
milli ríkjanna.
Allt kjöt prófað
Fulltrúar Belgíu sögðu á fúndi
ESB i gær að allt kjöt þaöan yrði
rannsakað áöur en til útflutnings
kæmi allt fram til loka ágústmán-
aðar. Þetta er gert í kjölfar díoxín-
vandans þar.
Laura Bush á fundi
Laura Bush, eiginkona George
W. Bush, kom ein fram á pólittsk-
um fundi í gær
og dásamaði
mann sinn og
hjónaband
þeirra. Hún
sagði Bandarík-
in þurfa mann
sem sameinaði
þjóðina í stað
þess að sundra henni.
11 drepnir í Indónesíu
Mikil óöld hefur verið í
Indónesíu í þessari viku og hafa
11 manns verið drepnir í deilum
tveggja þjóðarbrota.
Sú Ijóta handsömuð
Yfirvöld í Arizona telja sig hafa
gómaö glæpakvendi nokkurt sem
haföi hlotiö viðurnefnið „sú
ljóta“. Konan gerði sig seka um
fjölda bankarána í Phoenix.
Átta féllu í írak
Átta óbreyttir borgarar féllu í
loftárásum vestrænna herflugvéla
á suðurhluta íraks í gær, að sögn
talsmanns íraska hersins.
Rússar lugu
Forráðamenn Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins viðurkenndu í gær að
Rússar hefðu áður fyrr logið til
um gjaldéyrisvaraforða sinn. Þeir
sögðu þó að betur horfði í efna-
hagslífinu nú og að hagvöxtur
væri byrjaður.
Clinton frestar ræðu
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
neitar að flytja ávarp við setningu
allsherjar-
þings Samein-
uðu þjóðanna
þar sem um-
ræðumar fara
fram á Yom
Kippur, mikl-
um helgidegi
gyðinga. Þess í
stað mun
Clinton ávarpa
inn eftir, það er
ræðnanna.
Vilja meira fé
Stjarnfræðingar sem rannsaka
sólkerfið gagnrýndu í gær harka-
lega áformaðan niðurskurð á
framlögum til geimrannsókna í
Bandaríkjunum.