Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1999, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1999, Page 8
FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1999 Utlönd Stuttar fréttir x>v 1 hjálpum pf til butri hGilsu Verðbréfasali í Georgíu myrti tólf og svipti sig svo lífi: Sænskt klám Háttsettur lögreglumaður í Östersund í Svíþjóð hefur verið kærður af starfsfélögum sínum fyrir að dreifa dýraklámi á neti lögreglunnar. Lögreglumaöurinn á að hafa sent 10 sekúndna langa klámmynd til allra lögreglustöðva i héraðinu þar sem kona á í mökum við asna og hund. Vissu um Hitler Bandaríska utanríkisráðuneyt- iö vissi strax 1940 af áætlunum Hitlers um útrýmingu „gagns- lausra“ þýskra þegna að því er gyðingasamtök halda fram og hefði því getað tekið málin í sínar hendur strax þá. 1 boði eru ýmis afbrigði of kínverskum heilsumeðferðum sem hjálpa þér gegn ýmsum streitukvillum, s.s. vöðvabólgu, bakveiki, gigt, ofnæmi, ristilvandamálum, olmennum stirðleiko og fleiru. Patricia Corey þurrkar burt tárin þegar hún ræðir við Kristu Roth, samstarfskonu sína, um fjöldamorðin í tveimur verð- bréfafyrirtækjum í Atlanta í Georgíu í Bandaríkjunum. Stúlkurnar komust að því að allir samstarfsmenn þeirra höfðu annaðhvort verið drepnir eða særst þegar 44 ára gamall verðbréfasali hóf skothrfð. Hillary vel tekið í New York Hillary Clinton kom aftur til New York í gær eftir að hafa gert hlé á ferð sinni í kjölfar Kennedy- slyssins. Hún heimsótti bæinn Elmira sem repúblikanar hafa notað til þess að sýna fram á að hún hefur engar rætur í fylkinu. Hillary sagði fyrir skömmu á blaðamannafundi að hún hefði dvalist í bænum en þégar gengiö var á upplýsingafulltrúa hennar viðurkenndi hann að hún hefði heimsótt bæinn einu sinni fyrir 40 árum. íbúar tóku þrátt fyrir það vel á móti Hillary og virtust flestir þeirra ekki taka það nærri sér að hún er ekki búsett þar. Þó mátti sjá einstaka skilti sem á stóð: „Farðu heim, Hillary." Drap konuna og börnin fyrst Maður vopnaður byssu réðst inn í tvö verðbréfafyrirtæki í Atlanta í Ge- orgíu í gær og skaut þar níu manns til bana. Allt bendir til að hann hafi ráðið eiginkonu sinni og tveimur bömum bana næstu daga á undan. Bill Campbell, borgarstjóri At- lanta, sagði að morðinginn, hinn 44 ára gamli Mark Barton, hefði framið sjálfsmorð í bíl sínum á bensínstöð austur af borginni fimm tímum eftir ódæðisverkin þegar lög- reglan hafði stöðvað bifreið hans og vildi eiga við hann orð. Barton starfaði sem verðbréfasali og að sögn sjónarvotta var hann óá- nægður með tap sem hann hafði orðið fyrir í fjárfestingum sínum fyrir viðskiptavini sína. „Ég vona að þetta eyðileggi ekki viðskipti dagsins," sagði Barton áð- ur en hann hann hóf skothríðina í fyrra fyrirtækinu, að sögn sjónar- votta. Þegar skothríðin var yfirstaðin lágu fjórir í valnum í fyrra fyrirtæk- inu sem Barton heimsótti og fimm í því síðara. Auk þess fengu tólf aðr- ir skotsár. Harmleikurinn í gær er sá síðasti í röð margra sambærilegra í banda- rískum skólum og opinberum bygg- ingum. Ekki er lengra síðan en í apríl að tveir unglingar drápu þrett- án manns í framhaidsskóla í Little- ton í Kólóradó og sviptu svo sjálfa sig lífi. Þegar lögreglan kom á heimili Bartons blasti við henni ófögur sjón. Eiginkona Bartons og tvö böm þeirra voru þar látin. Líki konunnar hafði verið troðið inn í skáp en lík bamanna vom í rúm- unum, vafin inn í teppi, og voru barnaleikföng þar með. Börnin voru sjö ára og tólf ára. Af miðum sem Barton skildi eftir á líkunum mátti ráða að eiginkonan hefði hugsanlega verið drepin á þriðjudag en börnin á miðvikudag. Þau vora barin til bana. Fyrir fimm árum lá Barton um tíma undir gran um að hafa myrt fyrstu eiginkonu sína og tengda- móður. Hann var þó aldrei ákærður fyrir þau morð. Konumar voru einnig barðar til bana á tjaldstæði í Alabama. Barton hafði stuttu áður líftryggt eiginkonuna fyrir 40 millj- ónir króna. Fjðlbifiutt nudd • Kinverskl nudd • Shintsi nudd • Svæðunudd • Tuinu nudd • llmoliunudd • Slökunnrnudd • Klassískt nudd • Sjúkronudd • Sogæðunudd nmiiöa sngrtlnu •Vux • Lilun og plokkun •Anlilsbnð • Fóluuðgerðir • Hundsnyrting Við bjóðum upp ó fjölbreyttor aðferðir til grenningar sem somon stuðlo að mjög góðum órongri í baióttunni við oukakílóin og oppelsinuhúð. EurouiavG líhamsmeðrGrö Mótun, grenning, cellolite-meðferð, lyfting, stinning, bak- og vöðvubólgumeðfetð. U.G.IU. Lfiirvalninuar U.C.W. Leirvufningomir hieinsu og móto ollonn likomo þinn ón strongior megrunai eðo æfinga og geiir húðino ofoi stinno og silkimjúko. , KfnvBrsH hBilsulind Ármúlo 17a - Sími 553 8282 Vithíi daiju 9-tlu Z?. 00 L il II l| <11 li il I) il III'IIII rtlldin sunnudaoH ia=oo iiþoo Ljúsastofa Palestmumenn segja ísraelum ffyrir verkum Samningamenn Palestínumanna sögðu israelskum starfsbræðrum sínum í gær að þeir vildu að Ehud Barak, forsætisráðherra ísraels, hrinti þegar í stað í framkvæmd öllum ákvæðum Wye River friöar- samninganna um land í skiptum fyrir frið. Barak vill fresta sumum þáttum samkomulagsins sem forveri hans, Benjamin Netanyahu, gerði við Yasser Arafat, forseta Palestínu- manna, í október. Fögur orö og fyr- irheit í Sarajevo Fögur orö verða látin falla um tímamót á Balkanskaga á fundi þjóðaleiðtoga í Sarajevo í dag þar sem rætt verður um uppbygging- una eftir allar styrjaldiraar. Hætt er þó viö að fögru orðin nái ekki að breiða yfir skiptar skoðanir austurs og vesturs um hvers megi vænta. Albright heimsækir Kosovo: Hvergi fengið betri viðtökur Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, heimsótti Kosovo í gær og að eigin sögn hefur hún hvergi fengið hlýlegri viðtökur. „Þetta var stórkostlegt. Ég vissi alltaf að við gerö- um hið eina rétta (að heyja strið gegn Slobodan Milos- evic Júgóslavíuforseta) en það er stórkostlegt að fá staðfestingu á því á þennan hátt,“ sagði Albright við frétta- menn. Albright mátti sæta nokkurri gagnrýni i Washington á sínum tíma fyrir herskáa stefnu sína gegn Milosevic. Hún var einna fyrst til að mæla með valdbeitingu gegn Serbum til að stöðva kúgun þeirra á albanska meirihlutanum í Kosovo. Bandaríski utanríkisráðherrann lofaði þeim fjölmörgu sem komu að hlýða á mál henn- ar í héraðshöfuðborginni Pristina að þeir fengju að dvelja í Kosovo að eilífú. „Aldrei framar munu menn með þyssur koma um hánótt," sagði Albright í tilfmningaþrungmni ræðu sinni. „Aldrei framar verða hús og þorp brennd og aldrei framar verða fjöldamorð og fjölda- grafir.“ Albright sagði albanska meiri- hlutanum, sem hefur mátt þola miklar hörmungar hálfu Serba, að umburðarlyndis væri þörf í Kosovo og að hefnd væri ekki valkostur. Líkin óþekkjanleg Fómarlömb gljúfraslyssins í Sviss eru nær óþekkjanleg og eft- ir aö 10 lík hafa verið rannsökuö, var aðeins hægt að bera kennsl á 2 þeirra. Þá eykur það á erfiðleik- ana að fólkið var í leigðum fatn- aði án skilríkja eða skartgripa. Biair vill konur Breski forsætisráöherrann Tony Blair hækkaði margar kon- ur í stöðu þeg- ar ríkisstjómin var stokkuð upp í gær. Eftir uppstokkunina voru 13 nýir ráðherrar skip- aðir í minni háttar ráðu- neytum, 14 sögðu af sér og aðrir 14 voru færð- ir til. Skoðanakannanir sýna nú að traust kjósenda á ríkisstjórn- inni fer þverrandi, sem endur- speglar vonbrigöi með hægar framfarir á opinberri þjónustu. Kina vill Falun Gong Bandaríkjamönnum bárust í gær í gegnum Interpol beiöni Kín- verja þess efnis aö foringi Falun Gong, sem er eins konar sértrúar- söfnuður, verði settur í varðhald. Hann er búsettur í Bandaríkjun- úin. Enginn framsalssamningur er milli ríkjanna. Allt kjöt prófað Fulltrúar Belgíu sögðu á fúndi ESB i gær að allt kjöt þaöan yrði rannsakað áöur en til útflutnings kæmi allt fram til loka ágústmán- aðar. Þetta er gert í kjölfar díoxín- vandans þar. Laura Bush á fundi Laura Bush, eiginkona George W. Bush, kom ein fram á pólittsk- um fundi í gær og dásamaði mann sinn og hjónaband þeirra. Hún sagði Bandarík- in þurfa mann sem sameinaði þjóðina í stað þess að sundra henni. 11 drepnir í Indónesíu Mikil óöld hefur verið í Indónesíu í þessari viku og hafa 11 manns verið drepnir í deilum tveggja þjóðarbrota. Sú Ijóta handsömuð Yfirvöld í Arizona telja sig hafa gómaö glæpakvendi nokkurt sem haföi hlotiö viðurnefnið „sú ljóta“. Konan gerði sig seka um fjölda bankarána í Phoenix. Átta féllu í írak Átta óbreyttir borgarar féllu í loftárásum vestrænna herflugvéla á suðurhluta íraks í gær, að sögn talsmanns íraska hersins. Rússar lugu Forráðamenn Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins viðurkenndu í gær að Rússar hefðu áður fyrr logið til um gjaldéyrisvaraforða sinn. Þeir sögðu þó að betur horfði í efna- hagslífinu nú og að hagvöxtur væri byrjaður. Clinton frestar ræðu Bill Clinton Bandaríkjaforseti neitar að flytja ávarp við setningu allsherjar- þings Samein- uðu þjóðanna þar sem um- ræðumar fara fram á Yom Kippur, mikl- um helgidegi gyðinga. Þess í stað mun Clinton ávarpa inn eftir, það er ræðnanna. Vilja meira fé Stjarnfræðingar sem rannsaka sólkerfið gagnrýndu í gær harka- lega áformaðan niðurskurð á framlögum til geimrannsókna í Bandaríkjunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.