Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1999, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1999 Fréttir sandkorn Brúökaup aldarinnar í Viöeyjarkirkju á morgun: Gullbaldyraður skaut- búningur á 2,5 milljónir - og þjóöbúningur karla þar sem hnapparnir kosta hálfa milljón Skautbúningur sem kostar í það minnsta 2,5 milljónir króna mun prýða brúðina Margréti Ragnars- dóttur í Viðey á morgun. Þá ganga í heilagt hjónaband í Viðeyjarkirkju þau Magnús Steinþórsson gullsmið- ur og fyrrum hóteleigandi á Englandi, sem er 50 ára í dag, og Margrét, 46 ára, sem er einn fjög- urra eigenda enska blaða- og tíma- ritadreifingarfyrirtækisins MMC, Magazine Marketing Company, sem veltir 12 milljörðum króna á ári. Magnús gengur að altarinu í ís- lenskum þjóðbúningi karla - en lát- únstölurnar eru horfnar. Sem sann- ur gullsmiður notar hann gull- hnappa sem hann smíðaði sjálfur. Hver tala kostar 25 þúsund krónur og tölurnar í flíkina trúlega um hálfa milljón króna. Kampavíni smalað Athöfnin í Viðeyjarkirkju hefst klukkan 11 í fyrramálið. Séra Jón Baldvinsson, sendiráðsprestur í London, gefur brúðhjónin saman, en hann er þeirra sóknarprestur. Hann mun tala á ensku og íslensku til skiptis. Þau hjón búa í Wimbledon en eiga auk þess glæsi- lega þakíbúð við Pósthússtræti sem þau hafa standsett að undanfornu. Til landsins eru komnir fjölmarg- ir gestir, flestir úr blaða- og tíma- ritabransanum, útgefendur, eigend- ur og ritstjórar, sem Margrét á við- skipti við í starfi sínu. Þetta er þotu- lið sem á mikla peninga og lifir í samræmi við það. Magnús vill veita vel í brúðkaupi þeirra hjóna en lenti í ógöngum þeg- ar kaupa átti kampavínið. Hundrað flöskur voru ekki til á lager og þurfti að skrapa saman í Ríkinu víða um land. Boðið verður upp á glæsilegt hlaðborð í veitingahúsinu í Viðey eftir athöfnina í kirkjunni og borðvín af ýmsu tagi. Þúsund tíma verk „Ég gæti trúað að búið sé að vinna í rúmlega þúsund tíma við flikina og verkið hefur staðið síð- ustu sex mánuði meira og minna,“ sagði Elínbjört Jónsdóttir, kaup- maður í Gallerí Fold, í gær. Hún hefur stjórnað verkinu eins og her- * *, < Þau Magnús Steinþórsson og Margrét Ragnarsdóttir skoðuðu í gær brúðarskartið hjá Elínbjörtu Jónsdóttur sem stjórnaði saumaskapnum. Margréti leist að vonum vel á flíkina sem kostar á þriðju milljón króna. DV-mynd E.ÓI. erlendis frá og voru flestir komnir til landsins í gær. Magnús fór ásamt enskum gestum í Esjugöngu i gær og komust þeir í hann krappan, lentu í sjálfheldu í fjallinu. Magnús segist hafa hangið á fingurgómunum utan í klettabelti þegar GSM-síminn hringdi og hann svaraði samt. „Mér varð nú ekki um sel, við vorum í hættu staddir en tókst að fikra okkur burt frá þessu. Það munaði engu að ekk- ert yrði brúðkaupið. Loks tókst mér að stynja upp að við ættum að reyna að hypja okkur niður,“ sagði Magn- ús „It¥s a jolly good idea, Magnus,“ segir Magnús að vinur sinn hafi sagt af alkunnri enskri rósemi hug- ans. -JBP Gullhnapparnir á ermum skautbúningsins eru mikil listasmíð. foringi. Móðir hennar, Elín Jóns- dóttir í Kópavogi, vann lengi að gerð þjóðbúninga, en hún var kenn- ari við Heimilisiðnaðarskólann. Sniðin að búningi Margrétar eru frá henni komin. Inda Benjamínsdóttir baldýraði með gullþræði framan á boðunga og ermar, geysivandasamt og seinlegt verk, Guðrún Edda Bald- ursdóttir saumaði út neðan á pils og í slæðu, Guðbjörg Inga Hrafnsdóttir vann alla kniplinga og Oddný Krist- jánsdóttir og Guðrún Hildur Ros- enkjær saumuðu búninginn. í sjálfheldu í Esjunni Von er á 150 gestum til giftingar- innar í Viðey. Margir þeirra koma Hópur fjárfesta: Kaupir þrjá þýska togara Hópur fjárfesta, bæði innlenda og erlenda, undir forystu Björns Sigurðssonar í Þýskalandi hefúr keypt þrjá togara frá skipasmíða- stöð'í þar í landi í þeim tilgangi að endurselja þá. Togararnir eru rúmlega fjögurra ára gamlir og voru smíðaðir fyrir aðila í Afríku sem ekki tókst að greiða þá. Togar- arnir eru ekkert notaðir en smíð- aðir sérstaklega fyrir Afríkuveið- ar. Þeir eru 26,37 og 40 metra lang- ir og með frystitækjum um borö. Búið er að láta skoða þá en ýmsar breytingar þarf að gera, eins og að skipta um vél. Björn sagði í samtali við DV að umræddur hópur manna væri stór en ekki væri endanlega búið að ganga frá öllum endum varðandi við kaupin. Skipin væru í skver- ingu og líklega færu þau til Afríku. Þyrfti að breyta þeim talsvert mik- ið ef þau ættu að nýtast hér á landi. Björn sagði þessi viðskipti áhættusöm en geta gefið ágætlega í aðra hönd ef vel gengi. Áhættan fælist hins vegar í því að afrisk fyrirtæki ættu oft í erfiðleikum með að borga reikninga sína.- EIS 698 króna skuld í Kópavogi: Hótað að selja húsið nauðungarsölu Hjón sem keyptu fasteign í Kópavogi í apríl í vor fengu í síð- ustu viku hótun um að húsið þeirra yrði selt nauðungarsölu til lúkningar á van- goldnu skipulags- gjaldi að upphæð 698 krónur. Ari Magnús- son, kaupmaður í Antikmunum á Klapparstíg, sagði að hann og Kolbrún Hulda, kona hans, hefðu í fyrstu haldið að þetta væri eins konar „velkomin í Kópavog" en svo reyndist ekki. Hann segir að svona hótun sé hvimleið og að þau hafi hrokkið við. Skuldin var þannig tilkomin að greitt Ari Magnússon í Antikmunum - hrökk við þegar hann fékk bréf þar sem tilkynnt var að selja ætti nauðungarsölu nýkeypt hús vegna 698 króna skuldar sem hann vissi ekki af. hafði verið skipulags- gjald við flutninginn í nýja húsið, rúmar fjörutíu þúsund krónur. Greiðslan barst of seint og eftirstöðvar urðu 696 króna höfuðstóll og 2 króna vextir. „Það er leiðinlegt að hafa sent fólkinu þetta bréf og ég skil það vel að fólki er ekki vel við að fá svona nokkuð í póstinum, en þetta voru mistök og ég hef beðist afsökunar á því,“ sagði ívar Páll Bjartmarsson, starfs- maður sýslumanns- embættisins i Kópa- vogi. Hann segir að auðvitað innheimti embættið á ljúfari nót- um en þetta þangað til allt annað þrýtur. -JBP Kosningaskjálfti Taugaveiklun er sögð hafa gripið um sig í herbúðum Jónasar Þórs Guðmundsson- ar, annars frambjóðandans í fyrirhuguðum formannskosn- ingum í SUS. Jónas og menn hans töldu sig eiga mikinn stuðning úti á landi en annað mun hafa komið í ljós. Virðist sem mótframbjóð- andi hans, Sigurður Kári Kristjánsson, sé mun sterkari en gert hafði verið ráð fyrir. Heyrst hefur að menn Jónasar séu farnir að grípa til þess ráðs að láta stuðningsmenn sína mæta á alla stuðningsfundi hjá Sigurði Kára úti á landi. í her- búðum hins síðamefnda þykir þetta bera vott um að Jónas sé farinn að fyllast örvæntingu... Súlumeyjar Nokkur umræða hefur verið um meinta ljósfælna starfsemi sem á að þrífast i skjóli nektar- dansstaða borgarinnar. í því sambandi er bent á nýlegt lögreglumál þar sem for- stöðumaður eins staðarins og tvær dans- meyjar sitja í gæsluvarð- haldi. Meyj- arnar voru eðlilega vistaðar í kvennafangels- inu í Kópavogi. í því sambandi sögðu gárungar að ekki væri nóg að hafa þar rimlana eina heldur væri tilefni til að setja þar upp súlu. Þá gætu meyjarn- ar í það minnsta haldið sér við... Engin notkun á viti Umræðan um kamphylobakt- er og óþrifnað á kjúklingabú- um varð Ragnari Inga Aðalsteins- syni tilefni til þessara limrusmíða: Það greip um sig heiftúð og hiti sem hindraði notkun á viti, þó er umræðan öll, bæði andrík og snjöll, en ber keim af kampylosmiti. Björgun? Mörgum Isfirðingnum svíður nú þegar Olíufélagið hefur selt 28% hlut sinn í Básafelli til Guð- mundar í Rifi. Ekki er það vegna þess að þeir sakni Geirs Magnússonar og félaga svo mikið eða vegna þess að þeim sé illa við Guðmund heldur eru þeir margir minnugir þess að þ( kvótinn var seldur fyrir þremur vikum var haft eftir Olíufélags- mönnum að það yrði hreinlega að gera til aö bjarga félaginu og um leið landvinnslunni. Lítið verður nú um bjögunaraðgerðir af hálfu olíugreifa enda sitja þeir ekki lengur í stjórn félags- ins. Óttinn er enn til staðar vestra þó stöðunni i bókhaldinu á Suðurlandsbraut kunni að hafa verið bjargað fyrir hom... Umsjón: Haukur L. Hauksson Netfang: sandkom @ff. is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.