Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1999, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1999, Síða 48
w 56 FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1999 I>V nn Ummæli Óperiiheimur- inn er ljúfur heimur „Ég var varaður við því að óperuheimurinn væri fullur af ríg og samkeppni en í raun og veru er , þetta ljúfur heimur. Allar þessar klisjur og primadonnu- sögur heyra fortíðinni til.“ Kristinn Sigmundsson óperu- söngvari, i Morgunbiaðinu. Davíð orðinn leiður á djobbinu „Davíð er fyrir löngu orðinn hundleiður á djobbinu sínu og spuming hvaða virðingu þjóð- in getur vottað honum þegar karlinum þóknast að stíga nið- ur úr hásætinu að lokum. Nema hann stígi þá upp til himna eins og forveri hans fyr- ir tvö þúsund árurn." Ásgeir Hannes Eiríksson, í Degi. Hinn rétti tónn Þegar fólkið sjálft hefur fundið hinn rétta tón þá hættum við að spila og leyfum fólkinu sjálfu að eiga salinn." Geirmundur Valtýs- son, hljómsveitar- stjóri og lagahöf- undur, í Degi. Hvað á ég að borða? „Mér tókst að fá rafmagn aft- ur þegar ég lofaði þeim elli- styrknum mínum sem ég fæ um mánaðamótin - en hvað á ég þá að borða?" Kristjana Vagnsdóttir, sem lok- að var fyrir rafmagn hjá á Þingeyri, í DV. Ekki sama Jón og séra Jón „Markið fengu þeir að gjöf frá dómaranum. Litiu liðin sitja ekki við sama i borð og þau stóru." Páll Guðlaugsson, þjálfari Leifturs, eftir jafntefli við KR, í Morgun- blaðinu. Sér-menntamenn „Nú á dögum er ekki nægi- legt að vera menntaður eða fróður. Nú skulu menn vera sér-menntaðir og sér-fróðir. Nú er nóg komið því vera kann að ýmsum sér-fróðum mönnum þyki ég ekki mjög vitur í þessu sér-máli heldur bara sér-vitur. Og þá fer í verra.“ Jón Kr. Gunnarsson rithöfund- ur, í DV. L NpsI Seltjarnarnes Nesklúbburinn 9 holur r r Mn r Golfklúbbur Bakkakots 9 holur Mosfellsbær Golfklúbburinn Kjölur 9 holur Reykjavík Kópavogur Garðabær Golfklúbbur Reykjavíkur Korpúlfsstaðir 18 holur >ir jh—» r Golfklúbbur Reykjavíkur Grafarholt 18 holur r er PT _ / Golfkli og Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 18 holur Hafnarfjörður Golfklúbburinn Keilir 18 holur Golfklúbburinn Setberg 9 holur ttr berg/ / Golfklú «■■►>0 hnl Golfklúbburinn Oddur 9 holur (18 holur) Golfvellir Reykjavík og nágrenni DV Hallbjörn Hjartarson kántríkóngur á kántríhátíðinni á Skagaströnd: Ég verð eins og hver annar sýningargripur á meðal fólksins Ein af mörgum hátíðum um versl- unarmannahelgina er hin árlega kántríhátíð á Skagaströnd sem nú er haldin í áttunda sinn. Á hátíð- inni er tónlistarflutningur í háveg- um hafður og áhersla lögð á kántrí og gospell en auk þess er mikið um leiki, kántrídanskennslu og alls konar uppákomur þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Meðal tónlistarmanna sem koma fram eru Magnús Kjartansson, Rut Regin- alds, Mannakorn, _________________ hljómsveitirnar Laus- ir og liðugir og Lukkulákarnir en með ------------- þeirri hljómsveit kemur fram kán- tríkóngurinn sjádfur, Hallbjörn Hjartarson, sem er upphafsmaður hátíðarinnar. í stuttu spjalli var hann fyrst spurður um tilurð kán- tríhátíðarinnar. „Þetta var ekki upphaflega mín hugmynd. Þegar ég var á Akureyri að taka upp Kántrý 3 þá var stung- ið upp á því við mig á milli upptaka að koma á fót kántríhátíð. Ég greip hugmyndina á lofti og það voru því Akureyringar sem hjálpuðu mér að koma á fót fyrstu hátíðinni. Ég hélt síðan aðra hátíð árið eftir en hún rann eiginlega út í sandinn vegna lélegs undirbúnings. Stuttu síðar lenti ég í bílslysinu og var ekki fær um að halda hátíðina í fáein ár en sú þriðja var síðan haldin þegar ég raknaði úr rotinu, með góðum stuðningi heimamanna á Skaga- strönd, og hefur hún verið árviss viðburður og nýtur alltaf vaxandi vinsælda. I fyrra sóttu um fjög- ur þúsund manns hana og ég er viss um að það verður ekki minna í ár, enda er búið að vinna mikla og góða undirbúningsvinnu." Hallbjörn kemur ekki mikið fram þessa dagana en hann lætur samt gamminn geisa á hátíðinni: „Ég kem fram með hljómsveitinni Lukkulákunum, sem er frá Bolung- arvík og notar þetta nafn þegar hún leikur með mér, annars heita þeir Fjórir á fati. Þetta eru flinkir strákar Maður dagsins og gaman að spila með þeim. Við æfum sinn í hverju lagi og svo smellur þetta saman þegar við mætum á staðinn.“ Eins og kunnugt er rekur Hallbjörn sina eigin út- varpsstöð sem hann þurfti að byggja frá grunni þegar Kántrý- bær brann fyrir þremur árum: „Stöðin verður á fullu meðan á hátíðinni stendur. Ég verð ekki við stjómvöl- inn, hef fengið mann til þess, sjálfur verð ég meira og minna sem sýning- argripur meðal fólksins. Annars er ég mjög ánægður með þær viðtökur sem stöðin hefur fengið og hún er alltaf að heyrast í fleiri og fleiri sveitum og eftir versl- unar- manna- helgina verður hún komin í Skagafjörö- inn.“ Hallbjöm segist ætla að skemmta sér vel um helgina: „Ég lofa fólki góðri skemmtun og góðu veðri, enda er ég 1 góðu sam- bandi við skaparann og hann bænheyr- ir mig.“ -HK Stuðmenn eru f Aðaldal í kvöld. Stuðmenn í Ýdölum Stuðmenn munu hefja verslunarmannahelgina með miklum krafti í Ýdöl- um í Aðaldal nk. föstudag og standa þar fyrir eins sól- arhrings úti- og innihátíð áður en sveitin flýgur þöndum vængj- um i Herjólfsdal að leika fyrir þjóðhátíðargesti. Hin mikla og skrautlega hersing dansmeyja og skemmti- krafta fylgir Stuðmönnum nú sem fyrr en í Ýdölum ætlar hljómsveitin að líta yfir farinn útihá- tíðarveg og flytja efni sem öllu jöfnu heyrist ekki nema á stórhátíðis- og tylli- dögum. Skemmtanir Réttarlæknir Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki. Konur í íslensk- um bún- ingum fyrir fram- an eitt gömlu húsanna í Árbæjar- safni. Verslunarmanna- helgin í Árbæjarsafni Árbæjarsafn er opið alla versl- unarmannahelgina fyrir þá sem vilja upplifa notalega sveitastemn- ingu í miðjum höfuðstaðnum. Á laugardeginum, kl. 14, verða þjóð- legir djasstónleikar, þar sem Sig- urður Flosason, Gunnar Gunnars- son og Gunnar Hrafsson leika, og bamadagskrá, á sunnudeginum koma hestar í hlað á Árbænum, teymt verður undir bömin og í Dillonshúsi —; ;-------- fræðir hin sögu- Utivera fræga Sire______________ Ottesen gesti um liðna tíð. Hand- verksfólk verður að störfum i hin- um ýmsu húsum safnsins á mánu- deginum og sérstök leikjadagskrá verður fyrir hörn við Kornhúsið. Vopnaskak Nú, sem endranær, er haldið á Vopnafirði hinir árvissu Vopna- fjarðardagar og Vopnaskak og hófst það 24. júlí og stendur til 1. ágúst. Þessi hátíð hefur nú þegar skipað sér veglegan sess enda hvergi til sparað að hafa dag- skrána sem glæsilegasta. Meðal þess sem boðið er upp á um helg- ina er skrúðganga og andlitsmál- un, dorgkeppni, leiktæki, Skralli trúður verður á staðnum og fjöl- skyldutónleikar verða öll kvöldin þar sem landsþekktar hljómsveitir skemmta gestum ókeypis. Þá er vert að geta þess að á sunnudaginn verður, frá kl. 14 til 17, Bustarfells- dagur. Lifandi safndagur, gömul vinnubrögð sýnd úti og inn, kaffi og lummur, harmónikuleikur. Kl. 17 - Þorbrandsstaðir. Öllum boðið í grillveislu. Leiktæki, fjársjóðs- leit, hljómsveitin Buzzy. Þrir dans- leikir eru svo um helgina. Bridge Þeir eru ekki margir sem upplifa það nokkru sinni á ferli sínum að taka upp 13 slaga hendi. Þeir sem sátu í vestur í síðustu umferð sumar- bridge BSÍ sunnudaginn 6. júní síð- astliðinn upplifðu þó þessa sjaldgæfu stund. Eins og búast mátti við enduðu sagnir á öllum borðum á sjöunda sagnstiginu. Suður gjafari og enginn á hættu: * 985 * 643 * KG72 * G104 Meðalskor fékkst fyrir að spila 7 hjörtu í AV. Verkefni vesturs í spil- inu er nokkuð sérstakt. Það felst aðal- lega í því að reyna að fiska dobl á alslemmuna frá andstæðingunum en það gekk aðeins upp á einu borði. Guðlaug- ur Sveinsson og Krist- ófer Magnússon fengu toppinn í spilinu í AV en Guðlaugur fiskaði doblið einfaldlega með því að stökkva í alslemmu í hjarta í fyrstu sögn sinni. Norður gat ekki stillt sig um doblið, hvað svo sem hann hafði fyrir sér í þeim málum. Aðeins eitt par fann fórnina í 7 spaða á hendur NS. Vörn- in tók alia þá slagi sem í boði voru og spilið fór 5 niður. Það dugði þó ekki nema í töluna 1100 og uppskeran var hreinn toppur fyrir NS, Sigurð Stein- grímsson og Óskar Sigurðsson. ísak Örn Sigurðsson 4 - «4 ÁKDG72 ♦ Á 4 ÁKD732

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.