Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1999, Side 56

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1999, Side 56
 FRETTASKOTI0 SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Sölukössum er lokað kl. 19.30 á laugardögum og dregið kl. 19.45 Breiðafjörður: Fundust eftir leit í nótt Björgunarsveitir leituðu í alla 'Tiótt að þremur mönnum sem höfðu farið á gúmbát frá Flatey í gærdag. Þegar þeir komu ekki til baka um kvöldmatarleytið, eins og áætlað var, var farið að óttast um þá. Um miðnætti í gærkvöld hófst leitin og stóð hún yfir alla nóttina. Leitarskilyrði voru mjög slæm vegna þoku. Skyggni var á bilinu 50 til 300 metrar um nóttina og var því ekki hægt að leita flugleiðina. 20-30 menn leituðu á sex gúmbátum og undir morgun átti að fjölga í leitar- hópnum um 20 manns frá Björgun- arsveitinni Baldri. Stuttu síðar hringdu mennimir úr farsíma frá Hvallátrum. Þeir voru heilir á húfi en þreyttir, að sögn Baldurs Gísla- **enar, svæðisstjóra leitarinnar. -íbk Sól og þoka Allt gistirými á Akureyri er á þrot- um ef frá eru talin tjaldstæði og heimahús. í morgun var glampandi sól á Akureyri, logn og hlýtt og sögð- ust lögreglumenn ekki muna annan eins morgun: „Hér er allt að fyllast af fólki og þeir sem ekki eru komnir eru á leiðinni." í Vestmannaeyjum var þoka í morgun en töluvert af gestum kom til Vv'Syja í gær: „Ætli við verðum ekki að kynda olíuelda við flugbrautina ef þokunni fer ekki að létta,“ sagði lög- reglumaður í Vestmannaeyjum, léttur í bragði. -EIR Grunaður um að nauðga 12 ára stúlku Lögreglan í Keflavík handtók og yfirheyrði sautján ára dreng í gær sem grunaður er um að hafa nauðg- að tólf ára stúlku úr Garði í fyrra- dag. Lögreglan stóð fyrir viðamikilli leit að drengnum eftir árásina og fann hann ekki fyrr en um nóttina. ttrengnum var sleppt eftir yflr- v neyrslur seint í gærkvöld. Málið er enn í rannsókn. -íbk DV kemur næst út þriðjudaginn 3. ágúst. Smáauglýsingadeild DV er opin til kl. 18 í dag. Lokað laugardag og sunnudag. Opið verður á mánudag frá kl. 16-22. Blaðaafgreiðsla DV er opin til kl. 20 í dag. Lokað verður laugcurdag, sunnudag og mánudag. Opið verður á þriðjudag frá kl. 6-20. Síminn er 550 5000. Góöa ferö og akiö varlega! KEMUR EKKI BRJÓSTBIRTA í EYJUM? Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, 'ÓHÁÐ DAGBLAÐ FOSTUDAGUR 30. JULI 1999 Brúðkaup að sið ásatrúarmanna var haldið í Skansinum, við Heimaklett í Vestmannaeyjum, í gær. Þar gaf Jörmundur Ingi allsherjargoði saman þau Björn Guðjohnsen og Bjarneyju Valgeirsdóttur en þau eru saman í skiprúmi á togara frá Eyjum - hann vélstjóri en hún háseti. Þá var haidin brúðkaupsveisla í Eyjastfl langt fram eftir nóttu og markaði hún upphaf þjóðhátíðar. í horni alisherjargoðans er kampavín af ffnustu gerð því engan fornan mjöð var að hafa í Vestmannaeyjum í gær. DV-mynd Ómar KEA-Nettó í Reykjavík: „Þetta eru ómerkilegar aðfarir, fmnst okkur. Júlíus var á fundi í hádeginu og svo beðinn að rýma skrifstofu sína. Starfsfólk fékk ekk- ert að vita,“ segir ónefndur starfs- maður KEA við DV en hann vildi ekki láta nafns sins getið. KEA hef- ur rekið verlsunarstjórann, Júlíus Guðmundsson, sem hefur séð um verslun Nettó í Breiðholti, og er mikill urgur í starfsfólki út af mál- inu. Samkvæmt heimildum DV er ástæðan tap Nettó og miklir sam- starfsörðugleikar milli Júlíusar 'og yfirmanns verslunarsviðs KEA, Sig- mundar Ófeigssonar. Samkvæmt upplýsingum DV hef- ur Eiríkur Jóhannsson, forstjóri KEA, verið í fríi. „Þá notaði Sig- mundur tækifærið og rak Júlíus," sagði starfsmaður Nettó. Einn starfsmaður hefur sagt upp vegna málsins en margir munu vera að íhuga stöðuna. KEA-Nettó hefur verið að reyna að tryggja sér stöðu á matvöru- markaðnum i Reykjavík og boðið í ýmis húsnæði til þess að opna versl- anir. Ef tap er á Nettó má þó líklega búast við einhverjum breytingum. Ekki náðist í Július Guðmundsson en hann er fyrir norðan og GSM- sími, sem hann var með vegna vinnu sinnar, var tekinn af honum í hádeginu í gær. Ekki náðist í Eirík Jóhannsson en hann er 1 fríi. Sömu- leiðis náðist ekki í Sigmund Ófeigs- son en hann var við veiðar í Fnjóskadal. Starfsmannastjóri KEA á Akureyri vildi ekki tjá sig um málið. -EIS Júlíus Guðmundsson, fyrrverandi verlsunarstjóri KEA-Nettó. Veðrið um helgina: Hægviðri um allt land Hægviðri og bjart veður verður norðanlands en skýjað sunnan- lands og hætt við skúrum eða lít- ils háttar rigningu síðdegis. Hiti verður yfirleitt 11 til 16 stig en allt að 20 stig í innsveitum norð- anlands. Veðrið í dag er á bls. 57. Velkomin á þjóðhátíð! Ú FLUGFÉLAG ÍSLANDS 570 3030 í Verslunarstjoranum / sagt upp störfum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.