Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1999, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999
fréttir
Samábyrgð á fiskiskipum unir dómi Héraðsdóms Vestfjarða:
Æsumáli ekki áfrýjað
- gífurlegt fordæmisgildi, segir Kolbrún Sverrisdóttir
Æsa ÍS.
„Við höfum ákveðið að greiða út
bætur í samræmi við niðurstöðu
Héraðsdóms Vestfjarða," segir Pét-
ur Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Samábyrgðar á fiskiskipum, sem
endurtryggði Æsu ÍS-87 fyrir Skel-
fisk hf. á Flateyri. Pétur segir að fé-
lagið hafi á sínum tíma greitt þær
bætur sem félaginu bar vegna slyss-
ins. Þegar síðan hafi komið upp
álitamál vegna bótakröfu Kolbrúnar
Sverrisdóttur og bama hennar þá
hafi reynst nauðsynlegt að fá úr-
skurð þar um.
„Það kom upp álitamál vegna
bótakröfunnar og okkur þótti nauð-
synlegt að úr því yrði skorið. Nú
liggur niðurstaða fyrir og henni
unum við,“ segir Pétur og leggur
áherslu á að félag hans hafi allt vilj-
að til þess vinna að upplýst yrði um
ástæður hins hörmulega sjóslyss
þar sem eiginmaður og faðir Kol-
brúnar fórust. í því skyni hafi Sam-
ábyrgð lagt peninga í sjóslysarann-
sóknir.
„Ég mun að sjálfsögðu halda
áfram að berjast fyrir auknu öryggi
sjómanna. Þessar skaðabætur koma
sér auðvitað vel og þá sérstaklega
fyrir bömin mín sem nú eiga trygga
framtíð í vændum," sagði Kolbrún
Sverrisdóttir skömmu eftir að hún
fékk staðfest að Samábyrgð á fiski-
skipum mundi ekki áfrýja dómi
Héraðsdóms Vestfjaröa sem dæmdi
útgerð kúfiskbátsins Æsu ÍS-87 og
tryggingafélag til að greiða henni og
börnum hennar 7 milljónir króna
auk vaxta. Af þeirri upphæð fá börn
Kolbrúnar og Harðar heitins
Bjarnasonar rúmar 4 milljónir
króna í sinn hlut.
„Það er greinilegt að forsvarsmenn
Samábyrgðar hafa áttað sig á því að
málið hefði einnig unnist fyrir
Hæstarétti. Ég áfellist þá ekki fyrir að
veijast kröfum mínum enda hefur
málið gífurlegt fordæmisgildi. Nú
munu tryggingafélög skipa veita út-
gerðum aðhald i því að ekki sé verið
að breyta skipum án þess að stöðug-
leikarannsóknir fari fram. Þessi dóm-
ur getur því bjargað mannslífum,"
segir Kolbrún.
„Ég el enn þá von í bijósti að Æsan
verði tekin upp og það rannsakað
hvers vegna hún sökk svo skyndilega.
Ég trúi því að stjómvöld efli veg sjó-
slysarannsókna og taki þessi'mál fost-
um tökum. Það er kominn timi til,“
segir Kolbrún. -rt
Fókus lesið í Kringlunni.
Fókus og
Páll Óskar í
Kringlunni
Viöskiptavinir Kringlunnar tóku
þakksamlega við Fókusi í gær enda
var efni blaðsins helgað nýrri og
breyttri verslunarmiðstöðinni. Þá
var ekki síður glatt á hjalla hjá
ungdóminum. Átrúnaðargoð
krakkanna, Páll Óskar, áritaði
plaggat sitt en myndin á því er hin
sama og prýdd forsíðu Fókuss í gær.
Páll Óskar áritaðl plaggat sitt í Kringlunni. Myndin prýddi forsíðu Fókuss í gær. DV-myndir Pjetur
Ragnhildur Hjaltadóttir, formaöur siglingaráðs:
Óska Kolbrúnu til hamingju
Niðurstaðan til góðs:
Breytingar á
skipum verði
löglegar
- segir lögmaður Kolbrúnar
„Þetta er niðurstaða sem ég átti
von á. En ég skil fullkomlega að
tryggingafélagið skyldi vilja láta
reyna á þessi álitaefni," sagði Vil-
hjálmur H. Vilhjálmsson, lögmað-
ur Kolbrúnar
Sverrisdóttur og
barna hennar í
Æsumálinu, þeg-
ar fyrir lá að
hann hefði unn-
ið fullnaðarsigur
- í skaðabótamáli
á hendur útgerð
Æsu ÍS.
„Þetta er mjög
mikilvægt fyrir
Kolbrúnu og
börnin að mál-
inu skuli vera lokið með þessum
hætti og þau fái réttmætar bætur.
Dómurinn lagði sönnunarbyrði á
útgerðina vegna breytinga á skip-
inu og niðurstaðan hvetur alla út-
gerðarmenn og sjómenn til að
standa löglega að breytingum
skipa sinna. -rt
„Ég vil bara óska Kolbrúnu til
hamingju. Hún er kjarkmikil kona
sem hefur barist af mikilli einurö
fyrir bættu öryggi sjómanna," segir
Ragnhildur Hjaltadóttir, formaður
siglingaráðs, um þá niðurstöðu Hér-
aðsdóms Vestfjarða að dæma Kol-
brúnu Sverrisdóttur og bömum
hennar fullar bætur í Æsumálinu.
Kolbrún sem missti mann sinn og
fóður þegar Æsa fórst á Amarfirði
fær 7 milljónir króna í bætur standi
dómurinn.
Kolbrún hef-
ur varla haft
undan að taka
við hamingju-
óskum vegna
sigursins og
henni hafa
borist kveðjur
hvaðanæva
að. Sjómenn á
hafi úti hafa
sent henni
blómaskreyt-
ingar og hlýj-
ar kveðjur í
þakklætis-
skyni.
Æsumálið
hefur vakið þjóðarathygli og um-
ræðan í kringum það hefur skilað
m.a. því að Rannsóknarnefnd sjó-
slysa hefur verið stórefld. Þá hefur
nefndin fengið sitt eigið aðsetur en
áður heyrði hún beint undir sam-
gönguráðherra. Ragnhildur sem átt
hefur sæti í Rannsóknamefnd sjó-
slysa segir baráttu Kolbrúnar hafa
skilað miklu.
„Sem dæmi má neftia að framlög
til rannsókna sjóslysa hafa verið
stóraukin á undanförnum árum,“
segir Ragnhildur. -rt
Kolbrún Sverrisdóttir ásamt yngri börnum sínum.
Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson.
stuttar fréttir
Ráögjöf í forsjármálum
Karlanefhd Jafn-
réttisráðs hefur
sent frá sér frétta-
tilkynningu, þar
sem fagnað er
ákvörðun Sólveigar
Pétursdóttur dóms-
málaráðherra um
að gerð skuli tímabundin tilraun
með ráðgjöf í forsjár- og umgengnis-
málum fyrir foreldra sem standa í
skilnaði eða sambúðarslitum. Nefnd-
in telur .aö skortur á slíkri ráðgjöf
hafi leitt af sér margar ertiðar for-
ræðisdeilur.
Brotnaöi og rotaðist
Lögreglunni í Reykjavík barst til-
kynning um Neyðarlínuna á sjöunda
tímanum í gærkvöldi um mótor-
hjólaslys i Mosfellsdal.
Piltur á rallykrosshjóli haíði verið
á ferð um Stardal og síðan verið í tor-
færuakstri í Mosfellsdal. Að sögn lög-
reglu virðist sem maðurinn hafi dott-
ið og rotast, en vaknað nokkur
seinna og hringt þá í Neyðarlínu í
gegnum GSM-síma. Vissi pilturinn
þá ekki hvar hann var staddur, en
gat leiðbeint lögreglu- og sjúkraliði
með því að lýsa lit á þaki húss sem
hann sá í fjarska. Þurfti hjálparlið að
fara yfir á og torfæra leið að piltin-
um sem reyndist vera fótbrotinn og
var hann fluttur á slysadeild.
Forstjóri Osta- og smjör
Á fúndi sfjómar
Osta- og smjörsöl-
unnar sf., sem hald-
inn var 1. október,
var ákveðið að ráða
Magnús Ólafsson
sem forstjóra Osta-
og smjörsölunnar
frá og með næsta aðalfundi fyrirtæk-
isins, þann 4. mars árið 2000. Núver-
andi forstjóri, Óskar H. Gunnarsson
sem hefur gegnt starfmu um árabil,
lætur af daglegri stjóm fyrirtækisins
frá og með sama tíma. Hann mun
sinna sérverkefnum fyrir Osta- og
smjörsöluna út árið 2000.
474 kamrar
474 kamrar verða á Kristnitökuhá-
i tíðinni á næsta ári. Samkvæmt út-
:i reikningum kristnitökunefndar er
? nauðsynlegt að hafa 474 kamra á
Kristnitökuhátíðinni á næsta ári.
j Þetta em mun fleiri kamrar en vora
a Lýðveldishátíðinni fyrir 5 árum. Þá
vora alltof fáir kamrar og biðraðir
mynduðust. Bylgjan greindi frá.
Hætt aö blása
Borholan við Kleifarvatn, sem oft
j hefur verið nefnd túristaborholan
; eða stundum drottningarhola, hætti
að blása aðfaranótt sunnudags. Hún
| er talin hafa blásið óslitið frá því
þama var borað fyrir meira en 4 ára-
\ tugum. Hugsanleg skýring er að hol-
an hafið hrunið saman en önnur
' skýring gæti verið sú að þama hafi
. orðið landbreytingar eöa sprungu-
* hnik sem sé ástæða þess að dregur
úr jarðhitavirkninni á þessu svæði.
Örvar til umhverfismats
Hrafnkell A.
Jónsson, umhverf-
isvemdarsinni á
Austurlandi, telur
að ný frummats-
skýrsla Nýsis hf.
um umhverfisáhrif
álvers á Reyðarfirði
| ætti að örva menn til að láta fara
jj fram lögformlegt umhveríismat á
| Fljótsdalsvirkjun. Skýrslan lýsir já-
\ kvæðum áhrifum á flestum sviöum.
j Hrafnkell segir að fóik sem vilji láta
- fara fram umhverfismat sé ekki að
| biðja um það til að stöðva frarn-
j kvæmdir, heldur séu þetta eðlileg
| vinnubrögð í nútímasamfélagi. Hann
segir að skýrslan sanni að ekki þarf
að hræðast niðurstöður umhverfis-
j mats á Fljótsdalsvirkjun. Bylgjan
í greindi frá.
Fínn miðill og Sjónvarpið
1 gær kl. 15 var undirritaður sam-
starfssamningur milli Fíns miðils og
Sjónvarpsins sem kveður á um að út-
varpsstöðvar þær sem heyra undir
Finan miðil munu á daginn vera
með kynningu (teaser) á þeim frétt-
um sem helstar verða í fréttatíma
Sjónvarpsins á kvöldin. Viðskipta-
blaðið greindi frá. -ÞA/Hkr.