Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1999, Blaðsíða 25
33LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999
Wlk 2
Endurfæddir mótorhjólamenn
á næsta ári í langa reisu meö konuna
en hún er aö hugsa um að taka próf
líka."
Lærði hjá Sigga Palestínu
Þorsteinn Hjaltason Bljáfjallastjóri:
„Ég lærði að hjóla hjá Sigga Palest-
ínu en þurfti aldrei að taka próf. í þá
daga fékk maður mótorhjólaprófið
með bílprófinu. Ég tók öll þau próf
sem hægt var að taka og meðal ann-
ars ökukennarapróf. Ég kenndi þá
líka á mótorhjól og notaði við það
Dodge Vipon með hátalarakerfi til að
segja þeim fyrir. Ég vann líka á verk-
stæði lögreglunnar í Reykjavík frá
1957-68 og stalst oft til að prufukeyra
hjólin meir en ég þurfti.
Draumurinn um að kaupa hjól
blundaði alltaf í mér og um haustið
1997 spurði Jón Hjartarson í Hús-
gagnahöllinni mig hvort ég kæmi
með honum hringinn ef hann keypti
sér hjól. Ég játaði því og hann keypti
hjólið en ég hafði hugsað mér að fá
gamalt Harley Davidson lögregluhjól
hjá vini mínum. Þegar ég fór að
hugsa málið var eiginlegra sniðugra
að kaupa það en hann vildi ekki selja
þannig að ég keypti mér þetta Suzuki-
hjól. Svona til að rifja upp kunnátt-
una fórum við Jón með keilur á plan-
ið hjá honum og æfðum okkur. Við
konan fórum meöal annars hringinn
á því í sumar og maður hefur svo sem
skroppið á því öðru hvoru. Einu sinni
þurfti ég að
bregða mér búð-
arferð til Akur-
eyrar svo að ég
fór á hjólinu.
Hluti af sport-
inu er líka að
hugsa um hjólið
og þrífa það en
til þess að geta
það þarf líka að
keyra það og
skíta það út.
Draumurinn er
svo að fara er-
lendis á þvi ef
að konan kem-
ur með.“
-NG
Dossi á lögreglumótorhjóli, líklega Harley 1948 módel, ásamt
syni sínum, Einari Þorsteinssyni, forstjóra íslandspósts.
Óðinn að leggja af stað í mánaðarhringferð 1974, stuttu
eftir að hringvegurinn var opnaður.
Óðinn við hjólið sitt sem hann notar mikið, Honda Shadow 600.
Hvað er nú það? Er það einhver
sértrúarflokkur? Nei, ekki er það nú
alveg. Endurfæddir mótorhjóla-
menn eru þeir sem áttu hjól fyrir
mörgum árum, eignuðust síðan
börn og buru og úti var ævintýri -
alveg þangað til fuglarnir voru
flognir úr hreiðrinu. Núna eiga þeir
allt í einu pening og tíma til að leika
sér með. Þá er hægt að láta draum-
inn rætast sem blundað hafði í þeim
allan tímann - að fá sér mótorhjól
og byrja að purra aftur. Með fjölgun
þessa hóps innan mótorhjólafjöl-
skyldunnar hafa umræður kviknað
um hvort hann sé valdur að fleiri
slysum en aðrir. Samkæmt nýjustu
tölum frá Bretlandi er svo ekki. Það
eru 35% minni líkur, miðað við
ekna kílómetra, að þú lendir í slysi
ef þú ert endurfæddur mótorhjóla-
maður og 25% minni líkur miðað
við árið í heild. Þeir eru líka í
minni hættu á
að missa hjól-
in sín á hlið-
ina eða slasa
sig og gera
síður kröfu á
tryggingafé-
lagið. Sam-
kvæmt
bresku könn-
uninni er end-
urfæddur
mótorhjóla-
maður um 38
ára gamall,
styttra en 12
mánuðir eru
síðan hann
byrjaði aftur
að hjóla og
minni hætta
er á að þeir verði stoppaðir af lög-
reglunni.
Prófið hvorki fugl ná
fiskur áður fyrr
Skyldi það sama nú eiga við hér á
íslandi? Fyrr í sumar var það í um-
ræðunni að þessi hópur væri nokk-
uö tjónfrekur og Bifhjólasamtök lýð-
veldisins bentu á það. í Bretlandi
eru þeir endurfæddu duglegir við að
taka framhaldsnámskeið og hafa
um það bil 20% þeirra farið í gegn-
um slíkt. Fyrir það fá þeir líka
lækkun á sínum iðgjöldum enda
hafa kannanir sýnt að þeir sem fara
á þessi námskeið séu í mun minni
hættu að lenda í slysum en aðrir.
Margir fengu í raun enga kennslu
og fengu mótorhjólaprófið gefms
með bílprófinu á meðan réttindalög-
gjöfin var þannig. Þangað til fyrir
nokkrum árum var mótorhjólapróf-
ið þannig að viðkomandi tók 1-2
tíma hjá ökukennara og fór svo í
próf sem hvorki var fugl né fiskur.
Reyndar hefur mikil breyting orðið
á síðustu árum og prófin oröið mun
erfiðari og krefjandi. Við fengum
nokkra endurfædda mótorhjóla-
menn í viðtal og spurðum þá um
þeirra reynslu af sportinu og hvað
hafi orðið þess valdandi að þeir
komu að því aftur.
Tók sár frí í aldarfjórðung
Óðinn Gunnarsson jámsmiður:
„Ég tók prófið 1972 en hafði þá ver-
ið á skellinöðrum síðan 1961. Fyrsta
stóra hjólið var gamalt BSA en fyrsta
alvöruhjólið var Triumph 500
Daytona sem ég notaði mikið. Ég
þvældist um allt á þessu hjóli, fór
Vestfirði og þá yfir Steingrímsfjarðar-
heiði sem þá var bara varðaður veg-
arslóði. Við fórum mikið saman, ég
og Gústi (Ágúst Hálfdánarson í Gler-
tækni). Eitt sinn ætluðum við í ævin-
týraferð upp á hálendi og lögðum af
stað á mánudegi. Við fórum upp að
Illakamb og höfðum hugsað okkur að
gista i gamalli rútu þar, sem notuð
var sem gangnakofi. Um nóttina gerði
svo ausandi rigningu þannig að allar
ár fylltust og við vorum veðurtepptir
fram á laugardag, þegar við náðum að
komast yfir Skyndidalsá.
Ég hætti svo að hjóla um það leyti
sem fyrsti strákurinn fæddist 1976.
Hann tók nú upp á því að kaupa sér
mótorhjól í fyrravor og ég fór að stel-
ast út á því. Svo vissi ég ekki fyrr en
konan min, Auður Hallgrímsdóttir,
keypti handa mér hjól í 50 ára afmæl-
isgjöf. í sumar fór ég í styttri ferðalög
með bömin en ég nota hvert tækifæri
til að skreppa á hjólinu og fer oft á
því í vinnuna. Draumurinn er að fara
Þorsteinn, nú 63 ára, við stoltið mikla sem er Suzuki Intruder 1500,1998.
Tækin eru tii sýnis
á bílasölunni Braut.
Sími 561-7510
HEKLA
véladeild
Laugavegur174
sími 569 5700
heimasíða www.hekla.is
netfang hekla@hekla.is
NOTUÐTÆKI
EH-0399 CASE 580
traktorsgrafa.Árg. 1989, vst. 6500,
4x4,skotbóma, opnanlegframskófla,
Ástand gott, nýsprautuð.
Verð 1.000.000 + vsk
EH-0599 CAT 438 traktorsgrafa.
Árg. 1990, vst. 7300,4x4, skotbóma,
opnanleg fiamskófla með göfflum,
uppteknar bremsur, nýsprautuð.
Verð 1.700.000 + vsk
EA-0002, CAT 206 hjólagrafa.
Árg. 1990. Vinnustundir 5000.
Lagnir fyrir fleyg og / eða annan
aukabúnað. Stuðningsfætur og
tönn. Vélin er í mjög góðu ástandi.
Verð 3.000.000 + vsk
EH-0551 CASES80K
traktorsgrafa. Árg. 1989, vst. 6500,
4x4, skotbóma, opnanleg
framskófla, Ástand gott.
Verð 1.000.000 + vsk
EH-0034 Cat 428 traktorsgrafa
Árg. 1988. Vst. 9.600 4x4
skotbóma, opnanleg framskófla.
Vél í góðu ástandi.
Verðl .200.000 + vsk
EH-0662 Cat 438 traktorsgrafa
Árg. 1991. Vst. 8.400 4x4,
skotbóma, opnanleg framskófla.
Vél í sérlega góðu ástandi
Verð 1.700.000 + vsk
EH-0763 Cat 436B,traktorsgrafa
Árg. 1993 Vinnustundir 6000,4x4,
skotbóma. Fast bachoe, opnanleg
framskófla. Vélin er sem ný.
Verð 2.800.000 + vsk
EH-0833 Cat 438B traktorsgrafa
Árg. 1993. Vst. 5.000 4x4
skotbóma, opnanleg framskófla
Topp vél.
Verð kr. 3.300.000. + vsk.