Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1999, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1999, Blaðsíða 31
É J'W LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 31 0ðtal máls því „svarti plásturinn" sem hann og forverar hans í grasalækningum hafa notað hefur virkað enn betur og það án þess að eyðileggja nokkum skapaðan hlut. Hann er aðeins lagður við sárið og það er allt sem þarf. Það leiðir hugann að smyrslameðferðun- um sem Erlingur, afi hans, varð kannski frægastur fyrir á sínum tíma, einkum smyrslameðferð á brunasár- um. „Það á enginn að þurfa að fá ör eftir bruna,“ segir Einar, „ekki ef sár er meðhöndlað á réttan hátt, með réttum græðismyrslum sem eru notuð eins og húð á meðan húðin sjálf er að gróa. Það er til dæmis algengt að við séum að græða 20-30 ára gömul sár sem al- menna heilbrigðisþjónustan ræður ekki við, til dæmis fótasár sem eru erf- ið viðfangs. Við höfúm líka fengið til meðferðar mikið af sykursýkisgjúk- lingum til okkar en þeir þurfa öðru hveiju að liggja á sjúkrahúsum til að láta græða sár sín. Okkur hefúr geng- ið mjög vel að græða slík sár og þetta sparar þeim sjúkrahúsvist og heil- brigðiskerfinu gríðarlegar upphæðir í daggjöldum. Enda verð ég að segja eins og er að mér fmnst ekkert eins erfitt og að heyra af fólki sem hefúr brennst illa í slysi og fær ekki bót meina sinna. Og hér sit ég og veit að ég á miklu betri græðissmyrsl og aðferðir en boðið er upp á.“ Geturðu ekki bara hringt í fólkið? „Nei, ég má það ekki.“ Hvað með að auglýsa það sem þið hafið upp á að bjóða? „Nei, það samrýmist ekki siðaregl- um.“ Fáið þið starfsfrið fyrir hinu al- menna heilbrigðiskerfi sem hefur ráðuneyti, landlæknisembætti og allt hvað heitir og er? „Já, við höfum lítið þurft að kvarta. Ólafúr Ólafsson fyrrverandi landlækn- ir er bæði greindur maður og víðsýnn og okkar samskipti við hann voru góð. Við erum ekki í neinu stríði við lækna, enda vísa þeir heiimikið til okkar og sumir nota frá okkur smyrsl. Það sem við höfum verið að gera hefúr verið gert hér frá landnámstíð og við gerðum engar athugasemdir við það þegar vestrænir læknar tóku til starfa. Því skyldu þeir amast við okkur? Langamman var kærð „Hafið þið alltaf fengið að starfa óáreitt? „Nei, það væri nú of mikið sagt að halda því fram. Hver kynslóð hefúr fengið sinn skammt af mótmælum. Það átti til dæmis að taka langömmu mína, Þórunni Gísladótlur, úr umferð upp úr 1920. Hún var þá ljósmóðir í Vestmannaeyjum - og auðvitað grasa- læknir. Sonur hennar, Gissur Filippusson, brenndist í slysi í togara í Vestmanna- eyjum. Hann henti sér í sjóinn, alelda, og var með brunasár um ailan lík- amann. Hún græddi hann það vel að það var aldrei hægt að sjá að hann hefði brennst. Sjómennimir í Vest- mannaeyjum leituðu mikið til hennar eftir sárasmyrslum vegna þess að á þeim tíma voru menn í dagróðrum og allt var unnið með höndunum á krók og línu. Amma var kærð af apótekaranum og lækninum á staðnum, sem líklega hafa ekki haft nóg að gera, en hún sagði að það þýddi ekkert fyrir þá að taka hana úr umferð; hún hefði þegar kennt öllum sínum sonum lækninga- kúnstimar og hún myndi byrja aftur að starfa um leið og hún slyppi út.“ „Á 4. áratugnum átti svo að taka afa minn, Erling Filippusson, úr umferð. Þá var gerð mikil rassía og margir hómópatar teknir úr umferð. Það átti að banna afa að vera grasalæknir og honum var gefið að sök að hafa með- höndlað berklaveikan mann sem átti að vera á Vifdsstöðum. Sannleikurinn var sá að maðurinn hafði strokið það- an og leitað til afa sem brenndi berklana út.“ Hvað áttu við með að hann hafi „brennt berklana út?“ „Það er gert með því að leggja bakstra með hreinsaðri steinoliu yfír bijóstkassann. Síðan er þessu pakkað rækilega inn og látið vera í sólarhring. Þegar bakstramir era teknir af er alit fullt af brunablöðrum með öllu gums- inu í. Það er skorið í blöðrumar og sárin hreinsuð. Eftir það era þau grædd sem þýðir að það þurfa að vera til græðandi smyrsl til þess að maður- inn verði ekki aisettur örum.“ Hvers vegna er svona mikil þögn um starfsemi ykkar grasalæknanna? „Aðalástæðan er sú að við getum ekki auglýst. Jafhvel þótt fólk fái góð- an árangur hjá okkur þá get ég ekki farið út á torg og hrópað þar eins og loddari. Þótt ég bendi á ýmsa hluti þá era þeir ósannað mál og fjaliað um þá sem tilviljanir. Lyflæknisfræðin gerir ráð fyrir að allt sé vísindalega sannað og lyfjafyrirtæki hafa engan fjárhags- legan ávinning af því að sanna að ákveðnar jurtir beri árangur vegna þess að þau fá aldrei einkaleyfí á þess- um jurtum. Enda snýst lyfjaiðnaður- inn ekki endilega um árangur heldur Lyfjafyrirtækin hafa engan fjárhagslegan ávinning af því að sanna að ákveðnar jurtir beri árangur. um að auka hlutabréf í fyrirtækinu; auka markaðsvirði fyrirtækisins, eins og það heitir. Ef það á að sanna eitt- hvað í þessum efnum þá þarf að fara út í rándýrar rannsóknir og fá einkaleyfi á seyðum. Það er ekki hægt því að um leið og þú veist hvaða jurtir era í seyð- unum getur hver sem er farið út og tint þær.“ Nú fer grasatínslunni senn að ljúka og þegar Einar er spurður hver séu helstu verkefni vetrarmánuðanna seg- ir hann þau helst vera að rífa fólk út úr vítahring eftir flensu. Ekki sé óal- gengt að fólk sitji uppi með afleiðingar haustflensunnar fram á sumar. Það þurfi því að vera til nóg af grösum til að styrkja og byggja upp ónæmiskerfið og mótstöðuaflið til að við þurfum ekki að sitja uppi með flensuslappleikann í allan vetur. -sús Opið alla daga vikunnar frá kl. 10.00 - 19.00 Gífurlegt úrval af geisladiskum á hreint ótrúlegu verði! Þú finnur allar tegundir tónlistar: Rokk - Popp - Blús - Djass - Klassík - Heimstónlist - Kántrý -Þýska og Skandinavíska tónlist og margt, margt fleira. Fjölbreytt úrval af myndböndum! W ^ PC tölvuleikir á góðu verði! ■ Póstkröfusími: 567 1830 The Three Tenors Oscar Peterson You’ll never 20 Jazz Favourites walk alone Verð 199,- Verð 399,- Jet Black Joe Fuzz Verð 199,- Marilyn Monroe Diamonds Verð 399,- Ari Jónsson Allt sem þú ert Verð 799,- The Essential Country Collection 3 CD BOX Verð 899,- Richard Clayderman ln Amore Verð 999,- Perez Prado Mambos Verð 699,- Smokie The Best of Verð 799,- Ástarperlur 2 Ýmsir Verð 999,- Di Stefano Great Opera Tenors 2 CD Verð 1.499,- Engelbert My Favourite Songs Verð 799,- The Magic of Pan Pipes 2CD Verð 1.499,- Karaoke The songs of Celine Dione Verð 999,- Dr. Hook Orginal Gold 2 CD Verð 1.499,- The World's Greatest Pan Pipe album 2 CD Verð 999,- The Golden Gate Quartet 2 CD Verð 999,- Duo Accordions Band Accordions Verð 799,-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.