Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1999, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 jD"V
<&lönd
stuttar fréttir
Rússar nálgast Grosní
Rússneskir hermenn réöust í
gær á bæinn Goragorskí í
Tsjetsjeníu sem er 15 km fyrir
vestan höfuöborgina Grosní.
Gíslar látnir lausir
Mannræningjar í Abkazíu í
Georgíu hafa nú látiö lausa alla
sjö starfsmenn Sameinuðu þjóö-
anna sem þeir tóku í gíslingu á
miðvikudaginn.
Kenneth Starr hættir
Óháöi saksóknarinn Kenneth
Starr, sem eyddi 5 árum og 47
milljónum dollara í rannsókn á
málum Bills Clintons Banda-
ríkjaforseta, ætlar að segja af sér
innan tíðar.
Þakkar fyrir gæslu
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
þakkaöi í gær lífvörðum sínum
þegar hann
opnaði nýjar
aðalstöðvar
leyniþjónust-
unnar. Þakkaði
Clinton lífvörð-
unum fyrir að
gæta hans, eig-
inkonunnar Hillary og Chelsea,
dóttur þeirra, allan sólarhring-
inn. Talsverð spenna hefúr verið
milli forsetans og lífvarðanna í
Hvíta húsinu. Er Clinton sagður
hafa reiðst þeim oft fyrir að hafa
greint fjölmiðlum frá rifrildi
hans við Hillary.
Irish coffee hollt
Blanda af áfengi og kaffi, eins
og í irish coffee, dregur úr skaða
eftir heilablæðingu. Þetta er nið-
urstaða rannsókna James Grotta,
prófessors í taugasjúkdómafræði,
í Houston í Texas. Blönduna á að
drekka innan tveggja klukku-
stunda eftir blæðinguna.
Listi Schindlers
Þýskt dagblað kvaðst í gær
hafa undir höndum skjöl þýska
kaupsýslumannsins Oskars
Schindlers, þar á meðal uppruna-
legan lista með þeim 1200 gyðing-
um sem hann bjargaði frá dauða.
69 urðu fyrir geislun
Japönsk yfirvöld segja nú að 69
en ekki 49 hafi fengið geislun í
kjarnorkuslysinu fyrir tveimur
vikum. Grænfriðungar telja að
mörg hundruð hafi skaðast.
Ættleiöing á Netinu
Yfirvöld í Derbyskíri á
Englandi hafa á Netinu auglýst
íjórar systur til ættleiðingar.
Heimta umbætur
Alþjóðleg samtök frjálslyndra
kaþólikka, sem funda í Róm,
krefjast i opnu bréfi til Jóhannes-
ar Páls páfa að
kaþólsku
kirkjunni
verði ekki
stýrt jafnmik-
ið ofan frá eins
og nú er.
Frjálslyndir
vilja jafnframt
að bann við getnaðarvörnum,
hjónabandi presta og kvenprest-
um verði endurskoðað.
Ruglaðir skriffinnar
Svíar eru vissir um að skriöinn-
ar Evrópusambandsins séu orðnir
ruglaðir. SkrifTmnamir vifja láta
þýða sænsk staðarheiti á ensku
fyrir ferðamenn vegna menningar-
sögu heitanna. Svíar óttast til
dæmis að flugvöllurinn Vetlanda
fái þá nafnið Know Landing.
Milljarður dollara
Lóftárásir Bandaríkjamanna
og Breta á írak, sem gerðar eru
til að hrekja Saddam Hussein for-
seta frá völdum, kosta um 1 millj-
arð dollara á ári.
Byrgi Hitlers fundið
Byggingarverkamenn fúndu af
tilviljun leifar byrgisins í Berlín
þar sem Adolf Hitler og Eva
Braun sviptu sig lífi 1945.
Eignir Bhutto og
Sharifs frystar
Seðlabankinn í Pakistan skipaði
I gær öllum fjármálastofnunum að
frysta reikninga hundraða stjóm-
málamanna, þar á meðal Nawaz
Sharifs forsætisráðherra, sem rænd-
ur var völdum, og Benazir Bhutto,
fyrrverandi forsætisráðherra. Seðla-
bankinn fékk lista frá herstjórninni
með nöfnum um 400 til 500 stjórn-
málamanna og sendi hann áfram til
banka og annarra fjármálastofnana.
Herstjómin lýsti yfir herferð
gegn skattsvikurum í gær. Gagn-
rýnendur stjómar Sharifs og fyrir-
rennara hans, Bhutto, höföu kvart-
að undan því að þau legðu háa
skatta á fátæklinga en skytu sér
sjálf undan því að greiða skatta.
Innan við 2 prósent Pakistana
greiða tekjuskatta. Sharif og Bhutto,
sem bæði em í góðum efnum, era
sökuð um að hafa greitt aðeins um
220 dollara í tekjuskatt á ári.
Talsmaður Hvíta hússins í Was-
hington, Joe Lockhart, sagöi í gær
að Pervez Musharraf hershöfðingi
hefði ekkert látið uppi um hvort eða
hvenær borgaralegri stjóm yrði
komið á í Pakistan er hann ræddi
við sendiherra Bandaríkjanna í
Pakistan, William Milam, í gær.
Milam ræddi í tvær klukkustundir
við Musharraf en varð einskis vís-
ari. Musharraf var sagöur myndu
gera kunnugt í dag hverjar fyrirætl-
anir hans væra.
í gær hóf hins vegar hershöfð-
inginn að skipa herforingja í ýmis
mikilvæg embætti. Það þótti benda
til að öll von væri úti um að lýð-
ræði yrði komið á í Pakistan í nán-
ustu framtíð þrátt fyrir þrýsting
erlendis frá.
Samkvæmt heimildum leyni-
þjónustumanna tók Musharraf
ákvörðun um valdaránið eftir að
hafa i tvo daga reynt að fá þingið
til að hrekja forsætisráðherrann
frá völdum með atkvæðagreiðslu.
Hún hefði átt að fara fram í gær
þegar þing átti að koma saman.
Sharif var hins vegar steypt af
stóli síðastliðinn þriðjudag.
Þykir víst að Musharraf ætli að
skipa nefnd sem kanna á meinta
misbeitingu valds hjá stjórn
Sharifs. Sjálfur hafði Sharif, sem
komst til valda fyrir tveimur ár-
um, sakað fyrirrennara sinn og að-
alkeppinaut, Benazir Bhutto, um
spillingu. Bhutto er nú í útlegð í
London.
Tugir særðust í Kosovo í gær er friöargæsiuliðar reyndu að stöðva þúsundir Albana í bænum Kosovoska Mitrovica
sem reyndu að komast yfir í bæjarhluta Serba. Albanskir mótmælendur réðust upp á brú yfir á sem skiptir bænum.
Hópur friðargæsluliða stöðvaði einnig fjölda Serba sem safnast hafði við hinn enda brúarinnar.
Símamynd Reuter
Læknar án landamæra
friðarverðlaunahafar
Samtökin Læknar án
landamæra hljóta friðarverölaun
Nóbels í ár fyrir brautryðjandi
mannúðarstörf í mörgum heims-
álfum, að því er sagði í yfirlýsingu
friðarverðlaunanefndarinnar í
Ósló í gær. Formaður nefndarinn-
ar Francis Sejersted sagði að
Læknar án landamæra hefðu átt
þátt í að skapa andstöðu gegn mis-
beitingu valds og ofbeldi.
Það var hópur franskra lækna
sem stofnaði samtökin 20. desem-
ber 1971. Samtökin voru stofnuð
þar sem alþjóðleg hjálp er ekki
alltaf nægjanleg og beinist ekki
alltaf að þörfum fólks á átakasvæð-
um.
Yfir 2 þúsund sjálfboðaliðar
starfa í samtökunum í yfir 80 lönd-
um. Veita þeir oft neyðarhjálp áð-
ur en aðrar hjálparstofnanir koma
á vettvang. Með því að taka minna
tillit til alþjóðlegra og innlendra
James Orbinski, forseti samtakanna
Læknar án landamæra.
Símamynd Reuter
laga og takmarkana hefur Lækn-
um án landamæra tekist að koma
til aðstoðar á undan öðrum. Sam-
tökin vilja ekki vera þögulir hjálp-
arstarfsmenn heldur vekja athygli
á ómannúðlegum stríðsrekstri.
Jacques Chirac, forseti Frakk-
lands, sagði friðarverðlaunin heið-
ur fyrir Frakkland. Hrósaði
Chirac sjálfboðaliðunum fyrir
störf þeirra. „Þetta er heiður fyrir
Frakldand og umfram allt viöur-
kenning til þeirra karla og kvenna
sem, oft við dramatískar og lífs-
hættulegar aðstæður, veita þeim
sem þjást hjálp og stuðning,“ sagði
forsetinn.
Forseti læknasamtakanna,
James Orbinski, kvaðst vona að
heiðurinn sem samtökunum væri
sýndur ógnaði ekki sjálfstæði
þeirra. Hann lagði þó áherslu á að
verðlaunin vektu athygli á þeim
jarðarbúum sem gleymdir væru.
Chris Patten
strikaður út af
gestalistanum
| Síðasti landstjóri Breta í Hong
s Kong, Chris
Patten, er ekki á
listanum yfir
boðsgesti í
veislu sem El-
ísabet Englands-
drottning held-
ur í tilefni opin-
berrar heim-
sóknar Jiangs Zemins Kínafor-
s seta til Bretlands í næstu viku.
j Breskir íjölmiðlar greina frá því
| að öðram háttsettum Bretum,
| sem tengjast Hong Kong, hafi
verið boðið til veislunnar.
Talsmenn breska utanríkis-
ráðuneytisins segja að þar sem
S Patten sé einn af framkvæmda-
I stjóram Evrópusambandsins hafi
s hann ekkert með heimsókn Ji-
j angs að gera. Fullyrt er að stjóm-
; arerindrekar vilji ekki að gömul
| deila milli Pattens og kínverskra
í yfirvalda skyggi á heimsóknina.
! íslendingar með
lengstan vinnu-
tíma í Evrópu
í nýrri könnun Evrópusam-
bandsins kemur fram að íslend-
' ingar eru með lengstan vinnu-
tíma Evrópuþjóða. Þeir vinna að
! meðaltali í 49,5 klukkustundir á
; viku en Norðmenn, sem era með
| stystan vinnutíma, 39,7 stundir.
J íslendingar eiga einnig metið í
; barnsfæðingum utan hjóna-
3 bands, 65 prósent, og þeir eiga
| einnig flest böm, 2,04 á mann.
Meðal-Evrópusambandskarl-
inn er 177,5 sentímetrar að hæð
og vegur 72,6 kíló. Meðalkonan er
165,5 sentiimetrar að hæð og veg-
ur 59,4 kíló. Hollendingar eru
hæstir vexti ásamt Dönum og
3 Þjóðverjum. Lúxemborgarar era
/ feitastir með Þjóðverja og Aust-
urríkismenn á hælunum. Lúxem-
borgarar drekka mest eða 14,5
lítra af hreinu alkóhóli á ári.
Norðmenn drekka minnst, ekki
nema 4,8 lítra. Franskar konur
I verða allra kerlinga elstar. Með-
I allífslengd þeirra er 82,1 ár.
| Sænskir karlar lifa lengst eða
| 76,7 ár.
Verstu bilstjóramir í Evrópu
er Portúgalar og Grikkir. Þeir
siðamefndu reykja tvöfalt meira
en meðal Evrópubúinn, alls 3020
í sígarettur á ári. Svíar og Finnar
1 era neðstir á reykingalistanum
með 900 sígarettur á ári.
Poul Nyrup
gagnrýndur í
Færeyjum
Poul Nyi-up Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur, sætti
; harðri gagn-
rýni á lögþing-
inú í Færeyj-
um í gær þeg-
ar umræður
fóra fram um
sjálfstæðis-á-
ætlanir lands-
stjómarinnar.
Petur í Grund, leiðtogi Sjálf-
stjórnarflokksins, sagði að
danska stjómin hefði blandað sér
|í í umræðuna á röngum tíma með
því að ítreka yfirlýsinguna um
að slíti Færeyingar ríkjasam-
bandinu skuli þeir ekki reikna
meö að dregið verði úr fjárhags-
3 stuðningi til þeirra á löngum
; tíma. í færeysku hvítbókinni er
; gert ráð fyrir aö stuðningur verði
; minnkaður smátt og smátt á 15
3 til 20 áram.
Kanadískur prófessor í ríkis-
J rétti, Barry Bartman, bendir á það
; í blaðinu Dimmalætting að tillaga
| Nyraps líkist tillögu færeyskra
; jafnaðarmanna um sjálfstjórn.
; Segir Bartman fáheyrt að stjóm
| Danmerkur skuli tala máli stjóm-
* arandstöðunnar í Færeyjum. Fær-
eyskir jafnaðarmenn segja Nyrap
| hafa rétt til að tjá sig.