Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1999, Qupperneq 22
22
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999
formúla 1
Sepanq
Malasíu Formúla 1 kappaksturinn
15. keppni 17. október 1999
Heimildir; FIA
Lengd brautar: 5.542 km
Eknir Hringir: 56 hringir
Keppninslengd: 310.4 km
Einkenni brautar:
Alveg spáný braut sem
var fullkláruð í fyrra. i
nágrenni hðfuðborgar Malasfu,
erþessi bautsem ersamblandaf
hröðum sprettum og begjum, einnig
eru krappar U-begjur. Allar tölur á
kortinu eru fengnar úr tölvum sem
reikna ut hugsanlegan girog hraöa.
Séð yfir pyttinn á hinni nýju Sepang-
braut i Malasfu.
ÚtsendingarRÚV:
Sunnudagur kl 5.30
Endursýning kl 11.30
! nágrenni Kuala Lumpur hefur
verið byggt mikið mannvirki fyr-
ir tilstuðlan forseta Malasíu sem
hefur geysilegan áhug á Formúlu
1 kappakstri og hefur ríkistjóm
landsins lagt 9 milljarða í að
koma mannvirkinu í það horf sem
það er núna. Það óvenjulega við
Sepang-brautina er að við hana
liggja tvær samsíða 800 m langar
stúkur sem bera 30.000 áhorfend-
ur. Brautin er hönnuð samkvæmt
öllum nýjustu kröfum en samt
reynt að skapa hraðar beygjur í
bland við hægu U-beygjurnar.
Einnig var Sepang einungis byggð
með það að markmiði að fá For-
múlu 1 til Malasíu og hefur það
tekist. Enginn Formúlu 1 bíll
hafði ekið þessa braut fyrr en
klukkan 9 á fóstudagsmorguninn
og urðu því keppnisliðin að geta
sér til um hvernig best væri að
undibúa bilana fyrir brautina.
Tölvulíkön og háþróaðar líkinda-
tölvur hafa verið notaðar til að
líkja eftir aðstæðum svo það væri
hægt að velja gírhlutfóll og for-
Enn eiga fjórir öku-
menn möguleika á að
ná heimsmeistaratitl-
inum, Hakkinen, Ir-
vine, Coulthard og
Frentzen. Þeir mæta
allir á sömu forsend-
um til leiks því enginn
fékk að prófa nýju
Sepang-brautina fyrr
en tveimur dögum fyr-
ir keppni
uppsetningar. En það eru mörg at-
riði sem verða að lærast á staðn-
um fyrir keppnina, svo sem
stífleiki fjöðrunar, dekkjaslit og
veðuráhrif. Allir fara með jafn-
litla þekkingu og er því lið eins og
BAR á sama grundvelli og hin
stóru liðin.
Það er aðeins einn af íjórum
mögulegum ökumönnum sem get-
ur tryggt sér heimsmeistaratitil
ökumanna á Sepang-brautinni í
Malasíu á morgun, Mika
Hakkinen. Það þarf að leita mörg
ár aftur í tíman til að finna eins
jafna keppni á milli jafnmargra
ökumanna og nú er. Það er ein-
stakt að flórir ökumenn hafi allir
tölfræðilegan möguleika þegar að-
eins tvær keppnir eru eftir. En til
þess að Mika Hákkinen geti fagn-
aö á morgun verður hann að sigra
og vona að Eddie Irvine lendi ekki
ofar en í fimmta sæti. Irvine, sem
er tveimur stigum undir
Hákkinen, reiðir sig talsvert á að
taugar Finnans gefi sig og færi
honum lukku því hann veit að
McLaren bílamir verða fljótastir
sem fyrr. Hinir tveir, þeir David
Coulthard og Heinz H. Frentzen,
eru 12 og 14 stigum á eftir
Hákkinen og eru vonir þeirra
mikið fremur bundnar við það að
Irvine og Hákkinen geri mistök.
Þeir gætu þó komið verulega á
óvart og gert góða hluti. Ekki síst
Frentzen sem hefur verið sívinn-
andi í allt sumar og gert fá mistök
en alltaf verið í stigum þegar
hann klárar og verður nú með afl-
meiri Hondavél. Ökumaður sem
flestir koma til með að fylgjast
með er fyrrum sjúklingurinn
Michael Schumacher sem kemur
aftur til leiks eftir þriggja mánaða
fjarveru og virðist vera í feykilega
góðu formi. Af ummælum hans að
dæma er hann tilbúinn að keppa
til sigurs og aðstoða Irvine, þó að-
eins ef sá er fyrir aftan hann. Þá
gæti hann hleypt honum fram fyr-
ir.
í liðakeppninni er aðalslagur-
inn milli McLaren og Ferrari um
framleiðendabikarinn, skilja þá
ekki nema 6 stig og er endurkoma
Schumachers mikil lyftistöng fyr-
ir Ferrari. Neðar í röðinni er Jor-
dan nánast á lygnum sjó og þarf
ekki að hafa áhyggjur af þriðja
sætinu, annað en Williams sem
fékk Stewart óþægilega nærri sér
eftir að Johnny Herbert sigraði á
Núrburgring. Þar er ekki nema
þriggja stiga munur og verður
spennandi að sjá hvort liðið hefur
betur í baráttunni um að verða í
hópi þeirra fjóru stærstu. Síðan er
það Jaqcues Villeneuve og félagar
í BAR-liðinu sem er eitt eftir
stigalaust. Þrátt fyrir 5 milljarða
eyðslu á þessu ári er árangur liðs-
ins ótrúlega lélegur en Villeneuve
á eftir að leggja allt í sölumar til
að breyta þessu áður en tímabil-
inu lýkur.
-ÓSG
Formúla 1 í Malasíu:
Gæti orðið önnur
lottó-keppni
McLaren Mercedes-ökumennirnir verða
báðir í eldlínunni um þessa helgi. Mika
Hákkinen hefur nauma forystu í heimsmeist-
arakeppninni og þarf að standa sig vel ef
hann á að geta haldið titli sínum annað árið í
röð. Mika Hákkinen: „Ég er mjög spenntur að
takast á við þessa nýju braut. Á siðasta ári
fékk ég tækifæri til að aka nokkra hringi um
Sepang á Mercedes-fólksbíl. Ég
geri þó ráð fyrir að við komum
til með að aka talsvert hraðar
um þessa helgi. David Coult-
hard fær eflaust beiðni frá liði
sínu um að aðstoða félaga sinn
í baráttunni við Eddie Irvine
en það fer eftir hvernig upp-
röðun skipast í timatökum.
„Ég geri ráð fyrir því að við verðum fljótastir
á þessari nýju braut þar sem við höfum verið
samkeppnishæflr á öllum keppnisbrautmn
það sem af er árinu. Þessi braut hefur verið
hönnuð til þess að skapa spennandi kappakst-
ur og tækifæri til framúraksturs eru nokk-
ur.“
Réttir ökumenn hjá Ferrari
Ferrari verður nú í fyrsta sinn síðan í júlí
með báða „réttu“ ökumennina sina. Eftir að
Michael Schumacher ákvað að skipta um
skoðun og keppa á tveimur síðustu mótum
ársins hefur Eddie Irvine fengið vítamín-
sprautu i baráttunni um heimsmeistaratitil-
inn. Hann er þó, eins og allir aðrir, einungis
með hugboð um hvernig best
sé að stilla upp bílnum fyrir
brautina. „Hún lítur út fyrir
að þurfa milli-grips uppsetn-
ingu á vængina og er ekki ólík
Núrburgring, en það verður
ekki fyrr en við byrjum að aka
brautina að við getum farið að
setja upp bílinn. Það verður
mikil ögrun að ná sem bestri uppsetningu á
sem skemmstum tíma.“ Þar gæti endurkoma
Schumachers spilað stórt hlutverk, sem og
veðráttan, því það er spáð mikilli rigningu.
„Þetta gæti endað með annarri lottókeppni
þar sem hver sem er gæti sigrað," sagði Eddie
Irvine sem er með 60 stig á móti 62 hjá
Hákkinen.
Allt að vinna, engu að tapa
Jordan hefur átt besta keppnisár sitt til
þessa og er nærri búið að tryggja sér þriðja
sætið í stigakeppni keppnisliðanna. Hefur
liðið þar með náð því takmarki sem Eddie
Jordan setti fyrir 1999-tímabilið. En í
tvígang hefur Heinz H. Frentzen sigrað og
er hann ekki nema 12 stigum á eftir
Hakkinen í stigakeppni ökumanna og hefur
enn möguleika á að slá hann og Eddie Ir-
vine út. Markmið Jordans fyrir tvö loka-
mótin í Malasíu og Japan er
„allt að vinna en engu að
tapa“ og fær hann mikla
hjálp frá vélaframleiðandan-
um Honda sem ætlar að út-
vega Jordan aflmeiri vélar
fyrir bæði mótin. „Evrópski
kappaksturinn á Núrbur-
gring olli okkur miklum von-
brigðum, bæði fyrir Damon Hill og
Frentzen, en við höfum sett það til hliðar
og gleymt því. Heinz hefur möguleika á að
tryggja sér þriðja sætið á ökumannslistan-
um og við vonumst til aö geta fest okkur
enn betur í sama sessi á keppnisliðalistan-
um,“ sagði Jordan vongóður.
Athyglisverðar beygjur
Ralf Schumacher kom verulega á óvart í
síðustu keppni á Núrburgring og missti þar
af nærri öruggum sigri þegar afturhjól-
barði sprakk. Hann hefur nú
í kjölfarið gert stóran samn-
ing við Williams sem hljóðar
upp á 2,1 milljarð og er til
þriggja ára. Sir Frank Willi-
ams segir að Ralf sé framtíð-
ar-heimsmeistari og hefur
því ekki viljað missa hann í
hendur Jaguar sem gerði ör-
lítiö lægra tilboð í kappann. En Ralf fer
ekki með neinar sérstakar væntingar til
Sepang í Malasíu aðrar en að koma í veg
fyrir að Stewart ræni af þeim fjóröa sæti
stigalista keppnisliða. „Af teikningum að
dæma eru nokkrar mjög athyglisverðar
beygjur í brautinni og ég vonast til að geta
sett FW21 vel upp svo við verðum sam-
keppnishæfir."
-ÓSG