Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1999, Side 34
*
*á
42 *■(
iróttir
LAUGARDAGUR 16. OKTOBER 1999
Samningurinn um kaup ísienskra fjárfesta á meirihluta í Stoke City er tiibúinn:
Guðjón íþróttastjóri
Stoke City
- ovist um arftaka Guðjóns en,
Eggert Magnússon, formaður KSÍ,
vili Atla Eðvaldsson
og kynntu þér málið!
Við höfum eitthvað
fyrirþig.
BÆJARLIND 6 200 KÓPAVOGI
Sími: 554 6300 Fax: 554 6303
Ásgeir Sigurvinsson er hugmyndafræðingurinn á bak við meirihlutakaup á Stoke. Guðjón Þórðarson verður
íþróttastjóri og stjórnar uppbyggingu féiagsins. DV-mynd Hilmar Þór
Samkomulag hefur náðst um
öll grundvaUaratriði vegna
kaupa íslenska fjárfesta-
hópsins á meirihluta hlutaijár í
enska knattspyrnufélaginu Stoke
City. Samkvæmt heimildum DV úr
innsta hring fjárfestanna liggur
kaupsamningurinn fyrir og er stefnt
að því að hann verði undirritaður
næstkomandi þriðjudag.
íslensku fjárfestarnir hafa frá
fyrstu tíð gengið út frá því að Guð-
jón Þórðarson landsliðsþjálfari yrði
knattspymustjóri enska liðsins.
Vandinn fram til þessa hefur hins
vegar verið velgengni Gary Meg-
sons, núverandi stjóra, en stuðn-
ingsmenn Stoke standa þétt við bak-
ið á honum um leið og þeir fagna ís-
lensku fjárfestunum. Þannig lýstu
tveir af þekktustu knattspymuhetj-
um Stoke City yfir stuðningi við
Megson í vikunni. Gordon Banks og
Terry Conroy segjast fagna nýjum
hluthöfum, en telja það Stoke fyrir
bestu að knattspymustjórinn haldi
áfram. Gömlu kempumar telja hins
vegar að Megson og Guðjón geti
unnið saman á einhvem hátt. Sam-
kvæmt áreiðanlegum heimildum
DV virðist sem það hafi einmitt orð-
ið niðurstaðan.
Stjárnar uppbyggingu
Akveðið hefur verið aö Guðjón
Þórðarson fari til starfa hjá Stoke
sem svokallaður Sport director eða
eins konar yfirmaður íþróttamála
sem stýra á uppbyggingu félagsins á
knattspymusviðinu. Guðjón mun
því ekki stýra iiði Stoke sem knatt-
spymustjóri fyrst um sinn aö
minnsta kosti.
Bikarmeistari
fyrir 27 árum
Stoke City var stofnað árið 1863 og er
þvi næstelsta knattspymufélag Eng-
lands. Stoke getur ekki státað af mörg-
um stóram sigrum en félagið varð þó
bikarmeistari árið 1972. Stoke hefúr ekki
leikið í efstu deildinni í hálfan annan
áratug eða síðan árið 1984.
Stoke hefúr hins vegar sárasjaldan verið eins iila statt og það er núna, leik-
ur í annarri deild, en það hefur félagið aðeins þurft að j>ola fimm sinnum í
136 ára sögu sinni. Stoke vann sig upp úr annarri deild leiktímabilið 1992 til
1993 og lék í fyrstu deild þar til liðið féll aftur í aðra deiid í fyrra. Bestum ár-
angri náði liðið á þessu tímabili á leiktíðinni 1995 til 1996, fjórða sæti, og var
hársbreidd frá að tryggja sér langþráð sæti í úrvalsdeildinni að nýju.
Stoke hefúr alið af sér ýmsar stórstjömur og þekkja menn í dag kannski
einna helst ofurmarkverðina Gordon Banks og Peter Shilton en einnig má
nefna Sir Stanley Matthews.
Helsti styrkur Stoke er hinn tryggi stuðningsmannahópur sem þó hefur
örlítið misst taktinn að undanfómu, að því er menn telja vegna óánægju með
eigendur liðsins. Þess utan er auðvitað slæm staða liðsins sjálfs ein eðlilegra
orskaka minnkandi áhuga fyrir leikjum félagsins.
íbúar Stoke er um 400 þúsund talsins og að því er fram kemur í úttekt
Kauþings hf. á stöðu Stoke er talið að félagið ætti að geta dregið að sér um
17 þúsund áhorfendur á heimaleiki léki liðið í fyrstu deild.
Borgir sem em svipaðar að stærð og eiga lið i úrvalsdeiidinni em Derby,
Coventry og Nottingham Forrest.
Aðaláhersla stjómenda Stoke hefur á undanfómum árum verið að byggja
upp heimavöll liðsins en Kaupþing segir fjárfestingar í leikmönnum sjálfúm
hafa verið ýtt til hliðar. Því sé umgjörð liðsins í dag í lagi en leikmannakaup
höfuðnauðsyn og eiga þau að vera forgangsverkefni verði af kaupum á félag-
inu.
Heimavöllur Stoke, Brittania Stadium, var tekinn í notkun 1997 og tekur
28 þúsund manns í sæti og þykir því vel frambærilegur fyrir úrvalsdeildar-
lið. Kaupþingshópurinn vill auka aðhald í rekstri leikvangsins og leita ann-
arra tekjumöguleika fyrir hann. -GAR