Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1999, Page 37
LAUGARDAGUR 16. OKTOBER 1999
Vetrarmaraþon 23. október:
Nokkrir tugir hlaupara
stefna að þátttöku
Vetrarmaraþon nálgast óðfluga
og þegar þessar línur birtast er
aðeins vika þar til hlaupið fer
fram. Hlaupaleiðin verður sú
sama og í fyrra en fyrirkomulagið
er að nokkru breytt. „Áfram verð-
ur
parakeppni en þeir sem ætla að
verða með í henni hlaupa aðeins
hálft maraþon, konan og karlinn
hvort sinn helming hlaupsins.
Ekki verður hægt að hlaupa alla
vegalengdina og láta helming
hennar gilda sem tíma í para-
keppninni,“ segir Pétur Frantz-
son, formaður Félags maraþon-
hlaupara.
Ræst verður í hlaupið klukkan
10 um morguninn við Ægisíðu.
Búist er við ágætri þátttöku að
þessu sinni. „Það kæmi ekki á
Fram undan...
Október
23. Vetrarmaraþon n
Hefst kl. 10.00 við Ægisíðu í
Reykjavík. Vegalengd er mara-
þon með tímatöku. Allir sem
ljúka keppni fá verðlaunapen-
ing. Verðlaunaafhending klukk-
an 15.00 í Vesturbæjarlaug. Af-
hending keppnisgagna og pasta-
|f veisla í Mjódd hjá Námsflokk-
1 um Reykjavíkur fóstudaginn
22. okt. kl 20.00. Upplýsingar
gefur Pétur I. Frantzson í síma
j 551 4096 og símboða 846 1756.
Nóvember
13. Stjörnuhlaup FH n
Hefst kl. 13.00 við iþróttahús-
ið Kaplakrika, Hafnarfirði.
Vegalengdir, tímataka á öllum
' vegalengdum og flokkaskipting
bæði kyn. 10 ára og yngri (600
| m), 11-12 ára (1 km), 13-14 ára
(1,5 km), 15-18 ára (3 km), 19-39
ára, 40 ára og eldri (5 km). All-
1 ir sem ljúka keppni fá verð-
laun. Upplýsingar gefur Sigurð-
ur Haraldsson í síma 565 1114.
Desember
4. Álafosshlaup n
Hefst við Álafosskvosina í
Mosfellsbæ. Skráning á staðn-
: um og búningsaðstaða við
; sundlaug Varmár frá kl. 10.30.
; Vegalengdir 3 km án tíma-
töku, hefst kl. 13.00, 6 km,
hefst kl. 12.45, og 9 km, hefst
kl. 12.30, með tímatöku. Allir
sem ljúka keppni fá verð-
launapening. Útdráttarverð-
laun. Upplýsingar gefur Hlyn-
ur Guðmundsson í síma 566
8463.
31. Gamlárshlaup ÍR n
Hefst kl. 13.00 og skráning frá
kl. 11.00. Vegalengd. 10 km með
tímatöku. Flokkaskipting bæði
kyn. 18 ára og yngri, 19-39 ára,
- 40-44 ára, 45-49 ára, 50-54 ára, 55-
I 59 ára, 60 ára og eldri. Upplýs-
; ingar gefa Kjartan Ámason í
;; síma 587 2361 og Gunnar Páll
Jóakimsson í síma 565 6228.
Vefsíða Reykjavíkur maraþons
http://WWW.TOTO.IS/RMAR
Netfang Reykjavíkur maraþons
RMAR@TOTO.IS
óvart þó keppendur yrðu á bilinu
30-50 manns. í undanförnum
keppnum hefur aðeins ein kona,
Bryndís Svavarsdóttir, keppt í
heilu maraþoni en nú er útlit fyr-
ir að þrjár konur muni hlaupa
alla leiðina," segir Pétur. Hann
benti á að aðalfundur Félags
maraþonhlaupara færi fram dag-
inn ftrir hlaup, föstudaginn 22.
október klukkan 20.00. Fundar-
staðurinn er húsnæði Náms-
flokka Reykjavíkur í Þönglabakka
í Mjóddinni.
Stefnir í átjánda mara-
þonið
Konum sem leggja að baki heilt
maraþon fjölgar stöðugt hér á landi.
Ein er þó sú kona sem ber ægis-
hjálm yfir allar aðrar í þeim efnum.
Bryndís Svavarsdóttir hefur til
þessa lagt að baki 17 maraþonhlaup
og stefnir að átjánda hlaupinu í
næstu viku. Að auki hefur Bryndís
hlaupið Laugaveginn nokkrum
sinnum. Bryndís, sem fædd er árið
1956, hefur verið iðin við kolann á
þessu ári.
„Frá þvi í apríl á þessu ári hef ég
hlaupið ein 6 maraþonhlaup, um
það bil eitt í hverjum mánuði. Ég er
nýkomin frá Englandi þar sem ég
tók þátt í maraþonhlaupi í Notting-
ham (26. september),“ segir Bryndís.
Til viðbótar þessum 6 hlaupum
var Bryndís meðal þátttakenda í
Laugavegshlaupinu í júlímánuði.
Hún hefur verið dugleg að sækja
borgarhlaup um allan heim frá ár-
inu 1995. „Fyrsta borgarhlaupið
mitt var í Stokkhólmi árið 1995.
Sama ár hljóp ég einnig heilt mara-
þon í Dublin en lét mér nægja eitt
borgarhlaup árið á eftir (New York).
Árið 1997 fór ég í tvö borgarhlaup, í
Kaupmannahöfn og á Möltu. í fyrra
gerði ég víðreist, fór fyrst í borgar-
hlaupið í Búdapest og tók síðan þátt
í Honolulu-hlaupinu á Hawaii. Það
var mikið ævintýri. Á þessu ári hef
ég tekið þátt í tveimur borgarhlaup-
um í sama landinu, London og Nott-
ingham."
Ætla mætti að Bryndís hefði
verið algjörlega laus við meiðsli á
ferlinum að afreka slíkt. Því er þó
alls ekki þannig varið því Bryndís
hefur átt við meiðsli að stríða síð-
astliðin tvö ár. „Ég er búinn að
glíma við lausa mjaðmagrind,
grindarlos, um nokkurt skeið sem
angrar mig sífellt. Ég er orðin ansi
þreytt á þessu en þessi vandamál
hafa þó ekki megnað að stöðva mig
ennþá frá hlaupunum," segir Bryn-
dís.
Bryndís, sem er húsmóðir, seg-
ist ekki æfa neitt sérstaklega mikið
þó að hún hafi nægan frítíma til
æfinga. „Ég hef verið að hlaupa
svona 50-60 km á viku sem þykir
ekki mikið."
-ÍS
Víðavangshlaup Islands 9. október 1999:
Góð þátttaka
Þátttaka var góð í Víðavangs-
hlaupi Islands sem fram fór 9. októ-
ber síðastliðinn. Þar voru margir
þekktir hlauparar landsins meðal
þátttakenda, eins og systumar
Martha og Bryndís Ernstsdætur,
Sveinn Margeirsson, Daniel Smári
Guðmundsson, Amaldur Gylfason
og Guðmann Elísson, svo einhverjir
séu nefndir.
í Víðavangshlaupi íslands er
keppt i styttri vegalengdum, styst 1
km og lengst 8 km í flokkum fullorð-
inna. Keppt var bæði í einstaklings-
og flokkakeppnum. í flokki stelpna
12 ára og yngri (1 km) varð Sóley
Emilsdóttir (UBK) hlutskörpust á
3,18 mínútum en á hæla henni kom
Berglind Óskarsdóttir (Fjölni) á 3,20
mínútum. í sama aldursflokki
stráka varð Haukur Lárasson
(Fjölni) fyrstur í marki á 2,55 mínút-
um en næstur á eftir honum varð
Sigurður Lúðvík Stefánsson (Fjölni)
á 3,02 mín.
Yngri flokkar
í flokki telpna 13-14 ára varð
Rakel Ingólfsdóttir (ÍR) fyrst í
mark í 1 km hlaupi á 2,59 mín.
Hólmfríður Katla Ketiisdóttir
(UMSE) varð í öðru sæti á 3,09
mín. Sveinn Elías Jónsson
(UMSE) varð fljótastur pilta í
þessum aldursflokki á 2,51 mín.,
en á hæla honum kom Sigurkarl
Gústavsson (UMSB) á 2,57 mín.
Anna Kaspersen (UBK) varð fyrst
í flokki meyja (15-16 ára) í 1,5 km
hlaupi á 7,14 mínútum en Fanney
Blöndal Kjartansdóttir (Víkingi)
kom á sama tíma í mark, sjónar-
mun á eftir. Piltar í sama aldurs-
flokki hlupu 3 km. Ólafur Mar-
geirsson (UMSS) varð þar hlut-
skarpastur á góðum tíma, 11,51,
en Björgvin Víkingsson (FH) náði
öðru sætinu á 12,27 mín.
17-18 ára
Drengir 17-18 ára hlupu einnig
3 km. Þar varð Stefán Ágúst Haf-
steinsson (ÍR) fyrstur i mark á
tímanum 11,59, en Daði Rúnar
Jónsson (FH) náði öðra sætinu á
12,41 mín. Það kom fáum á óvart
að systumar Martha og Bryndís
Emstsdætur (ÍR) skyldu ná tveim-
ur fyrstu sætunum í flokki
kvenna í 3 km. Martha hljóp á
12,23 mínútum en Bryndís á 13,34
mín.
Karlar
Sveinn Margeirsson (UMFT)
varð öruggur sigurvegari í flokki
karla í 8 km á tímanum 27,09 min-
útum. Á hæla honum komu
nokkrir ÍR-ingar, Daníel Smári
Guðmundsson kom í mark á 28,34
mín., Amaldur Gylfason á 30,46
mín. og Guðmann Elísson á 30,49
min. Guðmann fékk einnig tíma
sinn skráðan i öldungaflokki (40
ára og eldri) þar sem hann varð
fyrstur. Ingvar Garðarsson (HSK)
varð annar í þeim flokki á 33,49
mín.
A-sveit UMSE vann sigur í svk.
stelpna, A-sveit Fiölnis í svk.
stráka, A-sveit UMSE í svk.
telpna, A-sveit UMSE í svk. pilta,
A-sveit FH í svk. drengja og A-
sveit ÍR í svk. karla.
-ÍS
imm
45
Á þessum tíma árs er allra veöra von og vissara að vera vel búinn. Vetrar-
maraþonið fer fram laugardaginn 23. október.
_________
Norðurlandameistaramótið
í Karate
I ÚTILÍF
The Nordic
Open Karate
Championship
1999
Glasiba - Slmi 581 2922
Danmörk
Finnland
Noregur
ísland
Svíþjóð
Eistland
N-írland
Skotland
erískir
darstólar
Hvíldarstdll úr leðri
kr. 65.900,-
TILBOÐ
L
r
Kósý
V* Húsgögn
HvíldarstóH
úrtaui
kr. 39.900,-
Símmúla 28 - 108 Reykjavík - Sími 588 0606