Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1999, Blaðsíða 26
íb
LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1999
» iftvaðan ertu?
... í prófil
k-
U
Hjálmar Hjálmarsson, leikari og stjórnandi skemmtiþáttarins Stutt í spunann, ólst upp á Dalvík og var byrjaður að fást við þáttagerð sjö ára gamall.
. DV mynd E.ÓI.
Katrín Júlíusdóttir, 24
ára framkvæmdastjóri
Hún heitir Katrin Júlíusdóttir og er
framkvæmdastjóri Lipurtáar sem
fiytur Inn og selur barnaföt. Hún er
einnig varaþingmaóur hjá Samfylk-
ingunni á Reykjanesi og síðast en
ekki síst er móðurhlutverkið hennar
aðaláhugamál og skemmtun.
Fullt nafn: Katrín Júlíusdótt-
ir
Fæðingardagur og ár: 23.
nóvember 1974.
Maki: Enginn.
Börn: Júlíus, 8 mánaða.
Skemmtilegast: Að dóta mér
með syni minum.
Leiðinlegast: Ef mér finnst
eitthvað leiðinlegt þá sný ég
mér bara að einhverju öðru.
Uppáhaldsmatur: Kálbögglar
með öllu.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn og
rauðvín.
Fallegasta manneskja: Fyrir
utan son minn er það Ethan
Hawke.
Spunameistarinn frá Dalvík:
Ekkifréttir í fvrsta bekk
kindur, hestar, saltfiskur og endur, fyrir löngu
„Ég fæddist á Akureyri 1963,
sama árið og Kennedy dó. Ég ólst
hins vegar upp á Dalvík sem er í
minni endurminningu alveg sér-
stakur staður. Eins og nafn staðar-
ins felur í sér er hann á mörkum
tveggja vistkerfa, þar sem dalur-
inn endar og víkin tekur við.
Þarna mætast einnig landbúnaður
og sjávarútvegur, þeir tveir at-
vinnuvegir sem frá upphafi hafa
verið undirstöðuatvinnuvegir
þjóðarinnar og ég ólst upp í snert-
ingu við þá báða.“
Þannig lýsir Hjálmar Hjálmars-
son, leikari og þáttastjórnandi,
bakgrunni sínum yst á Trölla-
skaga sem skilur að Eyjafjörð og
Skagafjörð. Margir muna eftir dag-
skrárlið í Ríkisútvarpinu sem hét
Ekkifréttir sem Hjálmar sá um í
nokkur ár. Hjálmar er inni í stofu
margra landsmanna um þessar
mundir á laugardagskvöldum við
stjórn skemmtiþáttarins Stutt i
spunann.
Love Me Tender
á Dalvík
í þekktu kvæði um Svarfaðardal
segir: „Dal einn vænan ég veit,
verndar Drottinn þann reit,“ og
síðar.... hann er öndvegi ís-
lenskra dala.“ Var þetta þjóðsöng-
ur Dalvíkinga?
„Ég heyrði þetta oft sungið en
þetta fjallar ekki beinlínis um Dal-
vík. Ég man vel eftir lagi sem ég
og skólasystkini mín fluttum í
fyrsta bekk í barnaskóla og Jó-
hann Daníelsson söngkennari
stjórnaði. Ég veit ekki hver samdi
textann en hann var við lag Pres-
leys, Love me Tender. í því voru
eftirfarandi línur: „Dalvíkin er
draumablá, dýrleg tO að sjá. Yfir
stendur Upsafjall, eins og gamall
kall. Sólin skín á stein og stekk og
stúlku í fyrsta bekk." Þetta sung-
um viö hástöfum á bekkjar-
skemmtun.“
I frægu húsi
Hjálmar er yngsta barn hjón-
anna Sólveigar Eyfeld og Hjálmars
Júlíussonar, Bomma sem svo var
kailaður. Fjölskyldan bjó í Bald-
urshaga sem er sögufrægt hús á
Dalvík, byggt 1901.
„Húsið er merkilegt fyrir margra
hluta sakir. Það byggði Þorsteinn
Jónsson, athafnamaður á Dalvík,
um aldamótin af stórhug og er haft
til marks
um metnað
hans að það
komu sér- Ólafsfjöröur'1
menntaðir
skrautmál-
arar frá
Danmörku
til þess að
mála húsið
innan.
Þarna var
fyrsta sím-
stöðin á Dal-
vík og húsið
er tengt sögu
bæjarins
með mörg-
um hætti. Þetta hús er því miður
fallið í niðurníðslu og væri þarft
verk að gera það upp og sýna því
verðskuldaðan s8ma.“
tún uppi undir Böggvisstaðafjalli
þar sem heyjað var fyrir skepn-
urnar og þeim beitt haust og vor.
Þarna uppi í fjallinu voru enn-
fremur
vinsæl
leik-
svæði
okkar
krakk-
anna þar
sem nú
DALVIK
Dal-
Akureyri
l
*\
„Þegar ég var að alast þarna upp
sást skrautmálningin ekki lengur
og búið að forskala húsið eins og
gert var við mörg timburhús. Fað-
ir minn var vélstjóri í frystihúsinu
en fékkst talsvert við frístundabú-
skap og við áttum kindur, hesta,
endur, finkur og fleiri fugla í
búrum og búpening af ýmsu tagi.
Hann var natinn við skepnur og
var oft kallaður á vettvang á sauð-
burði í fæðingarhjálp og gaf orma-
lyf og þess háttar. Peningshúsin
voru inni á lóðinni en við leigðum
er skíðasvæði
víkinga.
Ég ólst upp við að
aðstoða föður minn
við gegningar og bú-
störf og um tíma
ætlaði ég mjög
ákveðið að verða
bóndi. Þá ætlaði ég
að búa í afskekktri
sveit með nokkrar
hænur og kindur og
eiga snjósleða til að fara á í kaup-
stað og sækja mér vistir.
Ég hafði mikinn áhuga á hestum
sem unglingur og stundaði það
talsvert en hef forðast á láta þá
ólæknandi bakteríu ná tökum á
mér héma í þéttbýlinu."
Pabbi og mamma
með Ungó
En Hjálmar ólst einnig upp við
leiki í fjörunni og allt það sem
sjávarþorp hefur upp á að bjóða en
í nágrenni Dalvíkur eru víðlendar
fjörur og mikið fuglalíf við ósa
Svarfaðardalsár sem nú er friðlýst
griðland. En hinn stóri heimur
var skammt undan.
„Foreldrar mínir sáu lengi um
rekstur samkomuhússins á Dalvík
sem var kallað Ungó. Þar voru bíó-
sýningar og leiksýningar og þess
háttar og þarna fékk maður inn-
sýn inn í heimsmenninguna í
gegnum kvikmyndir og þótti mik-
ið varið i það. Faðir
minn tók einnig virkan
þátt í starfsemi leikfé-
lagsins sem var lífleg á
þessum árum og ég
kynntist leikhúsinu
fyrst með þeim hætti.“
Ekkifráttir í
fyrsta bekk
Hjálmar byrjaði ung-
ur að fást við að
skemmta fólki með líkum hætti og
hann hefur verið að gera siðan.
„Ég man eftir því að þegar ég var
i fyrsta bekk barnaskóla, sjö ára
gamall, var ég að dunda við að búa
til nokkurs konar útvarpsþætti inn
á segulband sem ég síðan spilaði
fyrir skólasystkini mín. Þetta
voru skemmtiþættir sem byggðu
á því að snúa út úr því sem var í
fréttum og gera grín að stjórn-
málamönnum sem voru meira
áberandi þá en nú. Það má segja að
þetta hafi verið nokkurs konar
ekkifréttir þess tíma.“
Eins og flest börn sem alast upp
í sjáÆrþorpi fór Hjálmar að vinna
í fiskinum strax þegar hann hafði
aldur til.
„Ætli ég hafi ekki byrjað urn
fermingu og vann bæði í saltfiski
og frystihúsinu. Þannig vil ég
meina að ég hafi kynnst báðum
þeim atvinnuvegum sem eru mikil-
vægastir þjóðinni, frá fyrstu hemji.
Ég ætlaði einu sinni að verða Bak-
ari og síðan kennari en datt inn í
leiklistina og ílentist þar.“
Heldur Hjálmar tryggð við æsku-
stöðvarnar?
„Ég fer norður annað slagið. Fað-
ir minn býr á Akureyri en ég á fáa
ættingja á Dalvík lengur. Þangað
fer ég bara til að vitja minning-
anna.“ PÁÁ
Fallegasta röddin: Það er
alltaf þægilegt að heyra rödd-
ina í Magnúsi Bjarnfreðssyni
og Ellen Kristjánsdóttur.
Uppáhaldslikamshluti: Negl-
ur (á ekki við táneglur).
Hlynnt eða andvíg ríkis-
stjórninni: Andvíg.
Með hvaða teiknimyndaper-
sónu myndirðu vilja eyða
nótt? Steinríki.
Uppáhaldsleikari: John Way-
ne var harðjaxl að mínu skapi.
Uppáhaldstónlistarmaður:
Edith Piaf, Portishead og ekta
„lummó tónlist".
Sætasti stjórnmálamaður:
Þingflokkur Samfylkingar eins
og hann leggur sig.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur:
FR-in 3. Þ.e. fréttir, Friends og
Frasier.
Leiðinlegasta auglýsingin:
Ég veit ekki með þá leiðinleg-
ustu en skemmtilegustu finnst
mér BYKO-auglýsingamar.
Leiðinlegasta
kvikmyndin: Postman
kannski en annars legg ég ekki
nöfnin á leiðinlegum kvik- j
myndum á minnið.
Sætasti sjónvarpsmaðurinn: j
Hinn fjallmyndarlegi RóbertJ
Marshall.
Uppáhaldsskemmtistaður:
Kaffibarinn og Vegamót.
Besta „pikk-öpp“-línan: Ég
fila einfaldar hallærislínur
eins og „Hvar hef ég séð þig
áður?“
Hvað ætlar þú að verða þeg-
ar þú ert orðinn stór? Eg
þyrfti heilsíðuviðtal við því
svari.
Eitthvað að lokum: Breytum
rétt.