Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1999, Blaðsíða 35
nærmynd «
?
UV LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1999
Ég hef aldrei skipulagt neitt í sambandi viö minn listaferil. Þaö er eins og ég detti niður á réttu staöina.
in þetta frábæra verk í London
darferil hans og áhugamál.
dansarnir samdir fyrir hundrað og
fimmtíu árum og mér fannst ekki
þörf á því að breyta öðru þar en
sporum stóru dansaranna fjögurra.
í þriðja þættinum hélt ég tvídansín-
um en gerbreytti öðru, meðal ann-
ars hléinu. Það er venjulega hlé í
þeim þætti en ég tók þá ákvörðun
að hafa það ekki, vegna þess að
reynslan hefur kennt mér að þá fari
alltaf einhver hópur út. Þá eru ör-
lögin ráðin í ástarsögunni og aðeins
niðurlagið eftir. Breytingarnar á
þessum þætti eru svo miklar að það
má segja að hann sé algerlega
minn.“
Mikilvirkur danshöfundur
Helgi hefur ekki einungis stjórn-
að San Francisco-ballettinum í fjórt-
án ár, heldur hefur hann á þessum
tíma verið að hasla sér völl sem
danshöfundur. Hann segist reyna að
fmna tíma til að sameina þessa tvo
þætti, að semja og stjóma og er far-
inn að vinna meira með nútíma-
verk en hann gerði áður. Hann seg-
ist nota klassíska tækni en við nú-
tímatónlist, því það gefi honum
meira svigrúm. Tveir síðustu stóru
ballettamir sem hann samdi voru
með nútímatónlist en næsta verk-
efni hans eftir að hann fer frá
London, er að semja verk fyrir New
York City Ballet. Þar notar hann
tónlist Beethovens, píanókonsert
no.l. Þegar Helgi er spuröur um
þemað í þvi verki, segir hann:
„Ég er enn ekki farinn að hugsa
um það. Ég er að bíða eftir að kom-
ast í stúdíó með dönsurunum, áður
en ég ákveð það. Þetta verk verður
sýnt í maí svo ég hef timann fyrir
mér, en þetta var eini tíminn sem
ég gat fengið mig lausan til að vinna
með dönsurunum í stúdíói."
Til London flaug Helgi frá Montr-
eal í Kanada þar sem einmitt var
verið að frumsýna verk eftir hann -
rétt um það leyti sem hann flaug
yfir ísland. „San Francisco ballett-
inn fór frá Kanada á fimmtudag. Ég
fór til Kanada á miðvikudeginum og
var með ljósaæfmgar þá um kvöld-
ið. Aðalæfingin var á fimmtudag og
síðan flaug ég til London, var kom-
inn hingað á fostudag og átti æfingu
með flokknum mínum á laugardag."
Verkið sem sýnt var í Kanada var
samið við tónlist eftir Arthur Sulli-
van og þemað var Shakespeare. „Ég
var beðinn um að búa til lokaballett
fyrir kvöld sem hafði þetta þema;
verk sem yrði þannig að fólk færi
hrifið og ánægt úr leikhúsinu. Sulli-
van hafði samið tónlist við tvö verk
Shakespeares. Ofviðrið og Kaup-
maðurinn í Feneyjum og ég notaði
hana.“
En hvert sækir Helgi innblástur
þegar hann er að semja ballett?
„Ég sæki innblástur í tónlist en
. fæ hugmyndir héðan og þaðan, um-
hverfinu, myndlistarsýningum og
öllu mögulegu."
Rauðvínsframleiðsla í
frístundum
Hefurðu einhvem tíma fyrir sjálf-
an þig?
„Mér gengur stundum illa að
finna tíma fyrir sjálfan mig og tíma
til að slappa af. En þegar það tekst
fer ég í sumarbústað sem ég á í
Nappa-Valley í Kaliforníu. Þar er
lítill blettur fyrir framan húsið og
þar rækta ég vínber og bý til mitt
eigið rauðvín. Ég byrjaði á þessu
árið 1994. Fyrsta framleiðslan var
alveg misheppnuð, sú næsta aðeins
betri og frá 1996 hefur þetta verið
nokkuð gott.“
Hvað með framtíðina? Verðurðu
áfram hjá San Francisco-ballettin-
um, eða ertu með einhverjar aðrar
áætlanir, annan flokk í sigtinu?
„Ég hef aldrei skipulagt neitt í
sambandi við minn listaferil. Það er
eins og ég detti niður á réttu stað-
ina. Ef einhver hefði sagt við mig
árið 1985, þegar ég tók við San
Francisco-ballettinum, að ég yrði
þar fimmtán árum seinna, hefði ég
sagt: Nei.
En málið er að þetta er minn
flokkur. Ég hef byggt hann upp og
er þar algerlega einráður. Éf ég
tæki að mér annan flokk, segjum í
Kaupmannahöfn, þá er hann með
þannig hefðir að ég myndi reka
hann í stað þess að skapa. í dag
myndi ég segja að ég verði áfram í
San Francisco. Það tekur nefnilega
langan tíma og gríðarlega orku að
hyggja upp svona hallettflokk."
Langar til að eignast
íbúo í Reykjavík
Hvað með að snúa þér alfarið að
því að semja?
„Það er ekki auðvelt að vera
danshöfundur í lausamennsku. Mér
er sagt að ég sé góður stjómandi og
ég er með 65 dansara sem líta svo á
að ég hafi dansferil þeirra í mínum
höndum. Það er mikil ábyrgð sem
ekki er hlaupið frá svo auðveldlega.
Þetta er 24 tíma starf og því slítandi,
vegna þess að ég vinn mjög náið
með hverjum og einum dansara."
Synir Helga eru báðir fluttir að
heiman. Sá eldri er nýfluttur til San
Francisco eftir að hafa búið í Þýska-
landi í nokkur ár, þar sem hann var
bílateiknari hjá BMW. Yngri sonur-
inn býr í Toronto og er kvikmynda-
gerðarmaður. En langar hann ein-
hvern tímann til að dvelja á íslandi
til lengri tíma?
„Það væri gaman ef ég gæti eign-
ast íbúð í Reykjavík. Ég er farinn að
hugsa mikið um það í seinni tíð. Þá
gæti ég alltaf komið heim og dvalið
þar í einhverjar vikur, sérstaklega á
sumrin. Mér finnst mjög gaman að
veiða og sonum mínum flnnst alltaf
gaman að koma til íslands og dvelja
þar. Hver veit, kannski læt ég þenn-
an draum rætast."
sús