Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1999, Side 62
i4 myndbönd
LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1999 JL>"V
y n d b a n d a
GAGNRYNI
’in. nm
wm
Reach the Rock
Úr smiðju Hughes
. . . John Hughes, sem framleiöir og skrif-
ar handritið að Reach the Rock, hefur
skrifað handritin að mörgum af þekktustu grinmyndum undanfarinna
ára. Sumar mynda hans gera þó meira út á dramatík en grín, og má þar
t.d. nefna eina af þekktustu myndum hans, The Breakfast Club. Reach
the Rock er að mörgu leyti svipuð Breakfast Club í uppbyggingu. Báðar
hafa mjög fáar sögupersónur sem eru fastar á tilteknum stað um
skamma hríð og í gegnum samræður þeirra fáum við smám saman að
kynnast persónunum og bakgrunni þeirra. Það lætur þó minna yfir
Reach the Rock og hún gerir ekki eins ákveðið út á tiltekinn markhóp.
Myndin segir frá unga iðjuleysingjanum, Robin Fleming, sem eyðir
nóttinni í fangelsi fyrir rúðubrot. Samskipti hans og lögreglustjórans
eru þungamiðja framvindunnar. Myndin á erfitt uppdráttar framan af,
einfaldlega vegna þess að aðalsöguhetjan er óþolandi fífl sem vekur enga
samúð en myndin vinnur á og bjargar sér fyrir horn með góðum leik og
vandaðri sögubyggingu.
Útgefandi: CIC myndbönd. Leikstjóri: William Ryan. Aðalhlutverk: Allesandro
Nivola og William Sadler. Bandarísk, 1997. Lengd: 95 min. Öllum leyfð. -PJ
A Civil Action
Lögfræðingar hafnir til skýjanna
Jan Schlichtmann (John Travolta) er leiö-
togi lögfræðingahóps sem nærist á skaðabóta-
málum. í þeim bransa gefa miðaldra velstæðir karl-
menn mestan arð en böm minnstan. Jan er því ekki
hrifínn af því að taka að sér mál er varðar dauða 8
bama, sem talin em hafa fengið krabbamein vegna
mengaðs vatnsbóls. Honrnn snýst skyndilega hugur
þegar hann áttar sig á því að tvö risafyrirtæki eru
líklegustu mengunarvaldarnir. Málsóknin er þó
með eindæmum kostnaðarsöm og ekki líður á löngu
þar til Jan og félagar eru komnir á vonarvöl. Það
ætla fyrirtækin að nýta sér í samningaviðræðum.
Þaö er víst ekkert nýtt að Hollywood taki málstað umhverfíssinna í
baráttu gegn mengandi stóriðju og svo sem allt gott um það að segja. Það
er aftur á móti ný tilhneiging að gera úr lögfræðingum umhyggjusama
engla sem fóma sér af mikilli umhyggja í baráttu fyrir rétti skjólstæð-
inga sinna. John Travolta er hér í hlutverki slíks engils og fer væmni
hans langt með að „drepa“ bæði Travolta og áhorfendur. Allt er hér gert
með mikilli tiifmningaræpu sem gerir sorg hinna raunverulegu aðstand-
enda takmörkuð skil. Það er þó bragur atvinnumanna yfir öllu og Ro-
bert Duvall og Sydney Pollack skemmtilegir sem fyrr.
Útgefandi: ClC-myndbönd. Leikstjóri: Steven Zaillian. Aðalhlutverk: John
Travolta, Robert Duvall, John Lithgow og William H. Macy. Bandarísk,
1998. Lengd: 110 mín. Öllum leyfð. -bæn
Who Am I?
Minnislaus málaliði
++ Jackie Chan er málaliði í herflokki sem
rænir nokkram vísindamönnum í Suður-
Afríku sem em að þróa byltingarkennt vopn.
Vinnuveitendurnir svikja málaliðana og drepa
þá alia nema Jackie sem kemst lífs af en hefur
misst minnið vegna höfuðhöggs. Who Am I? er
það fyrsta sem hann segir þegar innfæddur þjóð-
flokkur finnur hann og spyr að nafni, og hann
gengur undir því nafni mestalla myndina.
Jakcie Chan hefur ekki verið þekktur fyrir að gera myndir í gáfulegri
kantinum og þessi er heimskari en flestar, eða kannski er bjánalegt plott-
ið bara berskjaldaðra þegar grínið klikkar. Þetta er nefnilega óvanalega
máttlaus Jackie Chan mynd. Atriði þar sem hann verður málhaltur af
því að tyggja plöntur er það eina sem framkaflar almennilegan hlátur
lengst af og þá er mikið sagt í Jackie Chan mynd. Stórskemmtilegt bar-
dagaatriði á þaki stórhýsis i Rotterdam í lokin reddar því að hennar
verður ekki minnst í mínum huga sem leiðindamynd, en óneitanlega er
hún með slappari myndum hans.
Útgefandi: Skífan. Leikstjórar: Jackie Chan og Benny Chan. Aðalhlutverk:
Jackie Chan. Hong Kong, 1998. Lengd: 104 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ
Half a Chance
Franskir jöfrar og frekjuskarð
Une chance sur deux hefst á þvi að föðurlausa
stúlkan Alice (Vanessa Paradis) er látin laus úr
fangelsi. Á meðan hún sat inni fyrir stuld á glæsibif-
reiðum lést móðir hennar. Stuttu áður hafði hún lesið
inn á spólu nöfn tveggja karlmanna, en annar hvor
þeirra er faðir Alice, sem rænir sér kerm og leitar þá
uppi. Annar er glæsibilasalinn Léo Brassac (Jean-Paul
Belmondo) en hinn stórþjófurinn Julien Vignal (Alain Delon). Báðir kolfalla
þeir fyrir Alice og beijast um faðemið. Þeir þurfa þó að snúa bökum sam-
an er stúlkan gerir harðsvímðum glæpamönnum óvart grikk.
Það er nú kannski dæmigert að þegar ffönsk mynd er loksins gefm út á
myndbandi er það einkar vandræðaleg Hollywood-stæling. Eltingaleikir,
sprengingar, hið fullkomna illmenni, skutlan, glæsibiffeiðar, þyrlur o.s.frv.
Og gömlu sannindin um að enginn útfæri slikar myndir betur en Hoflywood
em enn við lýði (þótt Frakki sem Luc Besson geti auðvitað lagt sitt á vog-
arskálamar í þeim bænum). Handrit Half a Chance er eitt það hriplekasta
og vandræðalegasta sem nokkm sinni hefur verið gerð kvikmynd eftir.
Engu að síður tekst því ekki að eyðileggja sjarma gömlu brýnanna
Belmondo og Delon, hvað þá frekjuskarðsins hennar Paradis. Það er ekki
laust við að það lifni yfir skjánum er þrenningin lætur til sín taka.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Patrice Leconte. Aðalhlutverk: Jean-Paul
Belmondo, Alain Delon og Vanessa Paradis. Frönsk, 1998. Lengd: 109 mín.
Bönnuð innan 16. -bæn
Home Alone myndirnar hafa verpt gulli fyrir John Hughes en hann framleiddi þær allar.
John Hughes:
Grínmyndasmiður með
John Hughes er með afkastamestu
grínhöfúndum Hollywood undanfarin
20 ár. Margar kunnuglegar myndir
skjóta upp kollinum á ferilskrá hans,
og þótt varla sé hægt að tala um nein
meistaraverk hefúr hann óneitanlega
verið með puttana í feikimörgum
myndum sem náð hafa miklum vin-
sældum.
Leiðin í kvikmyndimar
John Hughes eyddi æskuárunum í
Detroit, en 13 ára fluttist hann með
fjölskyldu sinni til Chicago, þar sem
hún bjó i útjaðri efirstéttarhverfis.
Andúð á snobbi og ríku fólki átti eftir
að skína í gegn í mörgum mynda hans.
Á þessum árum fór hann að hafa gam-
an af The Three Stooges og dreymdi
um að gera myndir í stfl þeirra, með
boðskap
yfir samkeppnina og þar með gæti
hann skapað sér sérstöðu í bransan-
um. The Breakfast Club (1985) var
fyrsta unglingahandritið hans, en
hann þurfti að sanna sig með Sixteen
Candles (1984) fyrst. Weird Science
(1985), Pretty in Pink (1986) og Ferris
Bueller’s Day Off (1986) fylgdu í kjölfar-
ið. Hann leikstýrði öllum nema Pretty
in Pink sjálfúr og var nú orðinn ein-
hver virtasti höfúndur unglingamynda
í Hoflywood. Hann stofnaði eigið fram-
leiðslufyrirtæki árið 1985 og hefur
framleitt flestar myndir sínar síðan.
John Candy heitinn var í uppáhaldi
hjá John Hughes næstu árin og lék í
tveimur mynda hans og einni að auki
sem Hughes skrifaði handritið að.
Þetta voru Plains, Trains &
Automobiles (1987), The Great Out-
doors (1988) og
Uncle Buck (1989).
En Hughes var á
leiðinni í myndir
fyrir yngri
krakka og handrit
hans varð að ein-
hverri vinsælustu
grínmynd fyrir
krakka sem um
getur, Home
Alone (1990). Eftir
Curly Sue (1991)
hefúr Hughes al-
gjörlega látið leik-
stjóm lönd og leið og lætur sér nægja
að skrifa handrit og framleiða. Meðal
mynda sem úr smiðju hans hafa kom-
ið síðustu árin eru Dennis the Menace
(1993), Miracle on 34th Street (1994), 101
Dalmatians (1996) og Flubber (1997).
Fram á nýja öld
Það er oft alvarlegur undirtónn í
myndum Hughes og hann er þekktur
fyrir að blanda hlýlegum boðskap við
fjörlegan ærslaleik. Auðvitað er auð-
velt að fara yfir strikið í bjánalegri
melódramatik og það hefúr Hughes
stundum gert en margar af myndum
hans, sérstaklega gömlu unglinga-
myndimar, búa yfir meira innsæi en
aðrar myndir af sama tagi.
Meðal hugsanlegra verkefna hjá
John Hughes á næstunni er New Port
South, mynd sem skrifuð er af syni
hans, James Hughs. Einnig eru í burð-
arliðnum framhald af 101 Dalmatians
og endurgerð frönsku myndarinnar
Les Visiteurs. Orðrómur er einnig á
kreiki um að hann sé að hugsa um
endurgerð eða framhald af The Break-
fast Club, sem væri mjög vel við hæfi
ef annar orðrómur reynist sannur, að
hann sé að hugsa um að láta fram-
leiðslufyrirtæki sitt í hendur sona
sinna og hætta afskiptum af kvik-
myndagerð á aldamótaárinu, fimmtug-
asta æviári sínu. -P J
Ein vinsælasta kvikmyndin, sem
John Hughes hefur framleitt og
skrifað handrit að, er 101 Dalmati-
ans.
yfirkeyrðum slapstick-húmor.
Einhverjar beygjur urðu þó á leið
hans að þessum draumi sínum, því að
þegar hann hætti í háskóla á fyrsta ári
gerðist hann auglýsingahöfundur. Átt-
unda áratugnum eyddi hann í þetta
starf, ásamt því að skrifa stuttsögur,
blaðagreinar, (óútgeinar) skáldsögur
og brandara fyrir uppistandsgrínara.
Árið 1979 fór hann að vinna fyrir
National Lampoon timaritið. Eftir að
National Lampoon’s Animal House sló
í gegn, en hún var byggö á smásögu úr
tímaritinu, fóm gyfliboð að streyma til
annarra höfunda hjá tímaritinu, og
brátt koma að John Hughes. Hann
skrifaði nokkur kvikmyndahandrit í
byrjun níunda áratugarins áður en
hann sló í gegn með unglingamyndum
sínum, en ekki fengust öll handritin
hans samþykkt. Hann skrifaði meðal
annars háðskt handrit að þriðju Jaws-
myndinni og kallaði það Jaws Three,
People Zero, en Universal var ekki
hrifið.
Skjótur frami
I byrjun ferilsins var hann mikið til
settur í að lagfæra og endurskrifa ann-
arra manna handrit. Honum þótti
þetta afar leiðinlegt og ákvað að vinna
einungis að eigin verkefnum þaðan í
frá. Honrnn fannst unglingamyndir
þess tima ekki merkilegur pappir og
taldi sig geta skrifað skemmtiefai fyrir
unglinga sem bæri höfuð og herðar
Myndbandalisti vikunnar
SÆTI FYRRI VIKA VIKIIR A LISTAl TITIIL ÚTOEF. TEG.
1 3 2 J Ariinton raod Háskólabíó j Spenna
2 2 4 J 8mm Skrfan Spenna
3 1 1 3 Austin Powers II Myndfonn Gaman
4 NV 1 1 Civil action CIC Myndbönd Spema
5 NÝ 1 j Message in a bottle Wamer Mymfir Drama
6 4 7 Payback WamerMynfir Speona
7 5 2 1 At first sight WamerMymfir 1 Drama
8 NV 1 Existenz Mymtform Spenoa
9 8 2 The deep end of the ocean sun Dnnu
10 7 . > 6 ’* She's ail that Skifan Gaman MRHI
11 6 5 1 Shakespesre in love CICMyndbönd j Caman
12 11 j 1 ♦ i Waking Ned Berrrft Ganun
13 9 ; 8 j Patch Adams CIC Myndböod 1 Gaman
14 10 4 i Varisty biues CIC Myndbénd Drama
15 12 3 ) 200 cigarettes Háskólabfó , Gaman
16 NV 1 111 be home for Christmas SAMMyndböod Gaman
17 13 7 < Festen Háskólabtó 1 Drama
18 15 3 ; . i; One true thing \ -v • K'. CIC Myndbönd Drarna
19 16 Cupe Stjömubió Spenna
20 Al 8 Comiptor Myndfonn Spenna