Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2000, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2000, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 6o iþíatgæðingur vikunnar Nykaup yut Stitýi tH.S&ijÍjCHi/ }"i Humar með villisveppum Fyrir 6 500 g skelflettur humar 50 g smjör Villisveppasósa 30 g þurrkaðir villisveppir 1 stk. skaiottlaukur 1 stk. hvítlauksgeiri 2 msk. furuhnetur 1 peli rjómi 1 dl flsksoð eða vatn og teningur 2 msk. ijómaostur salt og pipar 1 stk. súputeningur Meölæti Laufsaiat, t.d. eikarlauf og smá- brauð. Byrjið á að laga sósuna. Hitið smjörið á pönnu uns freyðir. Þerr- ið humarinn og steikið í smjörinu, kryddið með salti og pipar. Hellið tilbúinni sósunni yfir og látið sjóða í eina mínútu. Berið strax fram. Skreytið með laufsalati og steinselju. ViUisveppasósan Sjóðið villisveppina 1 tveim dl af vatni í fímm mínútur, veiðið síðan sveppina upp úr. Saxið laukinn og steikið glæran ásamt villisveppun- um og örlítilli olíu, bætið siðan furuhnetum og hvítlauk saman við. Kryddið með salti og pipar. Bætið í ijóma, rjómaosti, sveppa- soði og teningum. Sjóðið við væg- an hita i 3-4 mínútur. HoUráð Gætið þess að ofelda ekki hum- arinn. Því minna sem hann er eld- aður því betri verður hann. Logandi ísterta Eftirlæti slökkviUðsstjórans Fyrír 4 1 stk. tertubotn, e.t.v. með döðlum og súkkulaði 1 stk. mandarína 1 stk. kiwi 1 stk. plóma l stk. ferskja 6 stk. jarðarber 4-6 stk. ískúlur Marengs 5 stk. eggjahvítur 175g flórsykur Skerið sporöskjulagað stykki úr tertubotni, afhýðið og kjarnhreins- ið ávextina, skerið þá í teninga og dreifið yflr tertuhotninn. Dreifið ísnum yfir ávextina eftir miðjum tertubotninum endilöngum og setj- ið í frysti í 2 klst. Stífþeytið mar- engs úr eggjahvítunum og flór- sykri. Smyijið tertuna með mar- engs og bakið undir grillinu i ofn- inum þar til marengsinn er orðinn fallega brúnn. Tilvalið er að hella 1 msk. af líkjör eða koníaki yfir heita tertuna og kveikja í þegar hún er borin fram. — Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi þar sem allt hráefni í þær fæst. Gísli Hafliði, matgæðingur vikunnar: Kjúklingnum gefið epli - og hann hljóp hring eftir hring Gísli Hafliði segir okkur íslendinga almennt nota allt of mikla feiti og vill skora á alla sem ekki hafa prófaö að steikja olíu- og smjörlíkislaust að prófa þaö. Matgæðingur vikunnar heitfr Gísli Hafliði, hann er hestamaður mikill og var einmitt á hestbaki þegar blaðamaö- ur talaði við hann símleiðis. „Við erum fimm sem eigum hesthús- ið og einu sinni á ári elda ég fyrir okk- ur öll og held veislu. Það eru einmitt þessar uppskriftir sem ég notaði í fyrra við mikla lukku gesta minna. Hrossa- kjöt er það besta sem ég fæ og það má auðvitað segja að hross séu í mínu upp- áhaldi því ég er mikill hestamaður þannig að ég væri illa staddur ef hross- in væru ekki til staðar," sagði Gísli og bætti svo við: „Ástæðan fyrir því að ég nota ekki smjör og ohu er sú að einhvemtíma langaði mig að prófa eitthvað öðravísi og hafði séð menn nota þessa aðferð með kjúkling og leist vel á. Kjötið verður mun safaríkara því safinn helst betur í kjötinu þar sem þetta er minna eldað. Sjálfur nota ég aldrei sósur með mat þar sem hann er nógu safaríkur með þessari eldamennsku, en auðvitað geri ég sósur fyrir aðra og þessi sósa sem ég gef upp hér er alveg „brilliant" og í miklu uppá- haldi hjá fólkinu sem ég elda fyrir.“ Gísli segir okkur íslendinga almennt nota allt of mikla feiti og vill skora á alla sem ekki hafa prófað að steikja oliu- og smjörlíkislaust að prófa það. „í matargerðarlist hér fyrr á öldum, við frönsku hirðina, var kjúklingur eld- aður þannig að hann var hamflettur lif- andi og settur i bala. Heit kol voru sett í miðju balans og við það byrjaði kjúklingurinn að hlaupa hring eftir hring, til að forðast hitann að sjálfsögðu. Þegar kjúklingurinn var orðinn vel þreyttur var honum gefið vatn, þá gat hann hlaupið lengur og þegar hann fór enn og aftur að þreytast var hon- um gefið epli og áfram heldur hann hlaupunum. Við þetta ganga innyflin út úr honum og þótti sá kokkur færast- ur sem gat tekið hann upp úr balanum um leið og allt kom út úr honum og þá var hann borinn fram,“ sagði Gísli Hafliði að lokum. Sjóbiitingur Einn tveggja kílóa slægður sjóbirting- ur eða fleiri smærri 1/2 dl olía 2 laukar, skrældir og skomir í ca 2 cm bita 2 græn epli, skorin í ca 2 cm bita 1 blaðlaukur, saxaður 1 stöngull selleri 2-3 msk. karrí 1 tsk. cayennepipar 1/2 flaska hvítvín bein og haus af sjóbirtingi vatn svo fljóti yfir 5 hvít piparkom, heil 2 lárviðarlauf 1 dós kókosmjólk 1/2 dl ijómi salt og pipar eftir smekk Aðferð Flakið sjóbirtinginn, roðflettið og beinhreinsið. Skerið flökin í u.þ.b. 2 cm bita. Skerið tálknin úr hausnum og hreinsið allt blóð af beinunum. Setjið olíu í pott og hitið. Steikið lauk, epli, sellerí og blaðlauk við meðalhita. Bætið karríi, cayennepipar og beinun- um við þegar laukurinn er orðinn mjúk- ur og steikið í u.þ.b. 1-2 mínútur i við- bót. Bætið hvítvíni út í og sjóðið niður um helming. Bætið við lárviðarlaufúm, pipar og vatni svo fljóti yfir. Sjóðið ró- lega í uþb. 45 mínútur og passið að fleyta sorann af jafnóðum. Sigtið í ann- an pott. Sjóðið niður um helming. Blandið kókosmjólk og ijóma út í ásamt salti og pipar og e.t.v. meira karríi. Sjóð- ið i u.þ.b. 10-15 mínútur. Setjið meðlæt- ið út í súpuna, takið til hliðar og látið hana standa í 2-3 mínútur í lokuðum pottinum áður en hún er borin fram með nýbökuðu brauði. Meðlæti 1 rauðlaukur í sneiðum 20 g engifer, skorið i þunnar sneiðar 4 hvítlauksgeirar, skorair i þunnar sneiðar 10 strá af graslauk, fínt skomum sjóbirtingsflök í bitum Pönnusteiktar rjúpnabringur með bláberjasosu og rauo- laukssultu Fyrir 4 2 msk. olía 6 ijúpur, hamflettar og bringumar skomar frá Aðferð Bringumar eru steiktar á pönnu u.þ.b. eina mínutu á hvorri hlið við meðalháan hita. Kryddaðar með salti, pipar og timjan og steiktar með krydd- inu í eina mínútu á hvora hlið. Teknar frá og geymdar til hliðar. Pannan er svo notuð til sósugerðarinnar. Soð: 1/2 dl olía 2 laukar, skrældir og skomir niður 1/4 sellerírót, skræld og skorin niður 2 gulrætur, skrældar og skomar nið- ur 1/2 blaðlaukur ijúpnabein, hjörtu og fóöm einiber hvít piparkom lárviðarlauf vatn svo fljóti yfir Brúnið lauk, sellerfrót og gulrætur í potti, bætið ijúpnabeinum, hjörtum og fóömum út í og brúnið vel. Bætið við vatni, lárviðarlaufi og piparkomum. Sjóðið við vægan hita í u.þ.b. 2 klst. Ath. að fleyta sorann reglulega ofan af soð- inu. Sigtið og sjóðið niður um helming. Blábeijasósa 1 msk. olia 3 saxaðir skalotlaukar 1 dl portvín 1 dl rauðvín 2 msk. hlynsýróp ijúpnasoð 3 greinar ferskt timjan 2 dl ijómi saltogpipar 2 dl aðalbláber Aðferð Hitið pönnuna og steikið laukinn í olíu þar til hann verður mjúkur. Bætið við vini og sírópi og sjóðið niður þar til þykknar. Bætið við soði, rjóma og timj- an og sjóði saman i u.þ.b. 5 mínútur. Bragðbætið með salti og pipar. Bætið aðalblábeijunum út í ásamt rjúpna- bringunum og setjið lokið á pönnuna, takið pönnuna af hitanum. Látið standa í 5 mínútur og berið fram. Sykurbrúnaðar kartöflur Grand Marnier 12 meðalstórar kartöflur, skrældar og nánast fullsoðnar 2 dl sykur safi úr 2 sítrónum 1 dl rjómi Grand Mamier eftir smekk Sykurinn er brúnaður á pönnu , sítrónusafa og ijóma bætt út í og látið samlagast. Kartöflunum bætt út í, lokið sett á pönnuna og látið sjóða í nokkrar mín. eða þar til kartöflumar era soðnar. Að lokum er Grand Mamier bætt út i. Rauðlaukssulta 1 msk. olía 2 rauðlaukar, fint saxaðir 2 msk. balsamicedik 2 msk. sykur 1 dl rauðvín rifinn börkur af einni appelsínu salt og pipar 1 dl aðalbláber Rauðlaukurinn er steiktur í olíu við vægan hita í potti. Ediki, sykri, appel- sínuberki og rauðvini bætt út í og soðið í 5 mín. Að lokum er blábeijunum bætt i og bragðbætt með salti og pipar. Steikt sellerírót 1 sellerírót, skorin i teninga 1 búnt söxuð steinselja 2 msk. smjör Steikt á pönnu við meðalhita þar til gullbrúnt, kryddað með salti, pipar og steinselju. Eigum við ekki að leyfa Randver leikara, sem átti að vera í þessari viku, að spreyta sig i matargerðinni um næstu helgi. Nykaup bwtn&nt ItoiskMitiim ö# IÖðals-steik Frábær steik sem allir ráða við. Fyrírfióra. 800 g ungnautafilé, skorið í f]ór- ar steikur tacomix Meðlæti 1/4 stk. hvítkál 2 stk. paprika 1 stk. laukur 100 g óðalsostur, skorinn í 4 sneiðar 4 stk. heilir maísstönglar salt og smjör 1 dl sýrður ijómi Nautasteikurnar eru flattar þunnt út, 1 sm, með buffhamri, kryddaðar með tacokryddblöndu og grillaðar á heitu grilli í 3-4 min- útur á hvorri hlið. Óðalsostur er settur á steikumar. Þeim er síðan : rúllað upp og skomar í sneiðar. Hvítkálið, paprikan og laukurinn skorið í strimla og steikt 1 olíu á pönnu, kryddað með salti. Ferskur mais er soðinn í léttsöltu vatni með. hýðinu í u.þ.b. 10 mínútur. Síðan er hýðinu flett af og maísinn penslað- ur með smöri og salti. Þá er hann grillaður í 5-10 mínútur og penslað- ur öðru hveiju með smjöri. Meðlæti Sýrður rjómi, maísstönglar og steikta grænmetið. Hvít súkkulaðimús Fyrir 6 3 stk. eggjarauður 11/2 dl mjólk 1/2 tsk. maisenamjöl 25 g sykur 21/2 dl ijómi 200 g hvítt súkkulaði 50 g smjör 2 blöð matarlím Súkkulaðisósa Bræðið smjörið og setjið súkkulaðið i, takið til hliðar. Setjið matarlímið í bleyti í kalt vatn. Þeytið eggjarauður og helming af sykri uns það er ljóst og létt. Leys- ið maisenamjöliö upp í mjólkinni og sjóðið upp ásamt afganginum af sykrinum. Hrærið hægt út í eggja- blönduna. Setjið í skál og þeytið ró- lega yfir gufu uns blandan þykkn- ar. Þá er skálin tekin af og matar- límsblöðin sett í og smjör. Hrært hægt í súkkulaðiblöndunni með sleif þar til blandan er orðin köld. Bætið þeytta ijómanum í með sleif. Setjið í form og látið stífiia 1 kæli. Skorið niður og borið fram með súkkulaðisósu og ávöxtum. Súkkulaðisósa Sjóðið rjóma og mjólk, bætið í hunangi og súkkulaði. Hrærið þar til súkkulað- ið er uppleyst Kælið. Hollráð Gott er að setja smá- skvettu af koníaki og/eða Nescafé í súkkulaðimúsina. I _____________________________ Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi þar sem alft hráefni í þær fæst.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.