Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2000, Qupperneq 2
2
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2000
Fréttir
Trésmiður sem missti fjóra fingur á verkstæði í álverinu í Straumsvík:
Isal ber 2/3 hluta
ábyrgðar á slysinu
- „Vinnuaðstaða óforsvaranleg“ - álverið mun greiða 4ra milljóna króna bætur
íslenska álfélagiö hefur verið dæmt
til aö greiða fyrrum trésmiö hjá fyrir-
tækinu 4.161.395 krónur með rúmlega
þriggja ára dráttarvöxtum vegna
vinnuslyss sem varð á verkstæði ál-
versins í mars 1997. Með dóminum
telst fyrirtækið bera 2/3 hluta ábyrgð-
ar á slysinu.
Maðurinn starfar nú sem eftirlits-
maður hjá ísal og hefur misst vinnu
sína sem trésmiður. Daginn sem slys-
ið átti sér stað var maðurinn að vinna
við smíði á sökkli undir skáp og var
að saga fals í endann á sökkulefninu
sem var tæpir 8 metrar að lengd. Hjól-
sög var notuð við verkið. Á henni var
ekki öryggishlíf. Þegar spýtan var
reist upp á endann til að saga úr fyrir
falsinu hrökk hún til þannig að
vinstri hönd mannsins lenti á sagar-
blaðinu. Afleiðingamar urðu þær að
blaðið tók af vísifingur, löngutöng,
baugfingur og litlafingur nær alveg
frá grunni. Auk þess hlaut maðurinn
djúpan skurð ofar í vinstri lófa.
Maðurinn var fluttur á Sjúkrahús
Reykjavlkur. Ekki reyndist unnt að
bjarga fingmm hans.
Slysið dró að vonum úr starfsgetu
mannsins. Hann á erfitt með að nota
vinstri höndina og verkir em enn
stöðugir. Þá hefur hann misst vinnu
sína sem trésmiður og mim aldrei
geta starfað sem slíkur aftur þar sem
hann getur ekki haldið á verkfærum í
vinstri hendi. Þá hefur maðurinn m.a.
þurft að hætta í hestamennsku vegna
afleiðinga slyssins.
Maðurinn byggði málarekstur sinn
fyrir dómi á því að vinnuaðstæður
hefðu verið óforsvaranlegar hjá álver-
inu og hættulegar. Eftirlit og tilsögn
með vinnu hans hefðu bæði verið
ófullnægjandi og röng. Með því að
gæta ekki að þessum atriðum hefðu
yfirmenn gerst sekir um gáleysi sem
síðan leiddi til að maðurinn hefði beð-
ið alvarlegt líkamstjón. Þess vegna
beri álverið skaðabótaábyrgð.
I niðurstöðum Ólafar Pétursdóttur
héraðsdómara kemur fram að orsök
slyssins megi rekja til þess að notuð
hafi verið vél sem ekki hafi verið hæf
til framangreinds verks. Þá hafi
þrengsl í kringum vélina aukið hætt-
una þar sem ekki var unnt að nota
sleða til að leggja spýtuna í lárétta
stöðu.
„Vinnuaðstaða stefnanda var því
óforsvaranleg og á því ber stefndi
ábyrgð," segir í niðurstöðu dómsins.
„Á hinn bóginn sýndi hann (stefn-
andi) visst aðgæsluleysi að vinna
verkið undir þessum kringumstæð-
um,“ segir síðan um hlut mannsins.
Að þessu virtu er álverið dæmt til að
greiða 2/3 af samtals 6.242.093 króna
skaðabótakröfu mannsins. -Ótt
Franskt rusl
Þeir henda ekki ruslinu sínu í sjóinn, skipverjarnir á franska dráttarbátnum
sem liggur í Reykjavíkurhöfn þessa dagana. Hér handlanga sjómennirnir
rusliö eftir hafnarbakkanum í ruslagám í landi.
Mistök í könnun
10 </>
Vinsælustu vefsvæði á íslandi
»kv. könnun PrlceWatorhouso Coopers
JSm
HWS2000 %
rer
ro
>o
1 j_
I I
LL
'O
X.
iO
ffi
-E-
<7>
± <o
T«q
3
«o
2
O
■OX)
£
.. *C-.
Alvarleg mistök
voru gerð í fjöl-
miðlakönnun
Gallups er varðar
mælingu á notkim
netmiðla. Svar-
möguleikar voru
sjö en aðeins var
gefinn kostur á að
merkja viö sex
þeirra. Af þessu
leiðir að svörin
reyndust gagnlaus
og niðurstaðan þvi
ekki marktæk.
Auk áðurgreindra mistaka var
ekki spurt um Leit.is sem sam-
kvæmt nýrri könnun PriceWater-
house Coopers er þriðja stærsta net-
svæði landsins. Könnunin, sem gerð
var á svipuðum tíma og fjölmiðla-
könnun Gallups, leiddi í ljós að Vís-
ir.is var vinsælasta netsvæðið en
Mbl.is var nokkuð þar á eftir.
Gallup mun ætla að reyna að leið-
rétta þessi mistök með því að gera
sérstaka símakönnun um notkun
Netsins.
-rt
Sænska dagblaðið Expressen/GT:
Hættulegur
íslendingur
- á lista yfir 56 forhertustu glæpamenn
Sænska dagblaðið Ex-
pressen/GT hefur birt lista yfir 56
harðsvírustu glæpamenn í Vest-
ur-Svíþjóð og á þeim lista er einn
íslendingur. Birt er úrklippt
skuggamynd af íslendingnum,
hann sagður 27 ára og hafa gerst
sekur um
grófar grip-
deildir. At-
hygli vekur
að á listan-
um eru 26
útlendingar
af þeim 56
sem hættu-
legastir
þykja í
sænskum
undirheim-
um. Um það
segir Sven Alhbin, rannsóknar-
lögreglustjóri í Gautaborg:
„Þessi listi sýnir okkur sænskt
þjóðfélag í hnotskum. Hér búa
orðið margar þjóðir og það endur-
speglast einnig í undirheimunum.
Einnig má
vera að hluti
þessara
manna hafi
flúið eigin
heimahaga
vegna af-
«3T 9
brota og sé
því hér.“
Þrátt fyrir
ítrekaðar til-
raunir hefur
DV ekki tek-
ist að festa
hendur á
hver hinn 27 ára gamli íslending-
ur er sem á fyrrgreindan hátt hef-
ur skotist til þessara vafasömu
metorða meðal sænskra glæpa-
manna..
-EIR
Fjölmiðlakönnun Gallups:
Dregið hefur úr blaðalestri
- Viðskiptablaðið, Fókus og Skjár einn í sókn
-Eittlivað lesið í vikunni
80'----------P-9a>,o
60 .66,0 65,7
-
22.6 20,7
DV Morgunblaðlð Dagur
Meðallestur
minnkar
—breyting milli ára
Viðskiptablaðið +2,8%
Dagur -0,4%
Morgunblaðið -24%
DV -2,6%
Egg
Samkvæmt fjölmiðlakönnun
Gallups, sem framkvæmd var i lok
mars, hefur heldur dregið úr lestri
dagblaðanna frá sama tíma i fyrra.
Þannig mælist nú meðallestur DV
2,6 prósentustigum minni en í fyrra,
Morgunblaðið hefur misst 2,2 pró-
sentustig og Dagur 0,4 stig. Þegar sá
hópur sem eitthvað las í blöðunum í
könnunarvikunni er skoðaöur kem-
ur i ljós að þeim sem eitthvað lásu í
Morgunblaðinu fækkar um 1,9 pró-
sentustig i 80 prósent. Hjá Degi fækk-
ar lesendum sömuleiöis um 1,9 pró-
sentustig i 20,7 prósent en hjá DV er
lækkunin 0,3 prósentustig í 65,7 pró-
sent.
Á einu ári hefur lestur Viðskipta-
blaðsins hækkað úr 6,1 prósenti í 9
prósent eða um tæpan helming. Með-
allestur Fókus mælist samkvæmt
könnuninni 40
prósent hjá öllum
aldurshópum en
49 prósent hjá
fólki yngra en fer-
tugt og 53 prósent
hjá fólki yngra en
þrítugt. Það má
því segja að um
eða yfir helming-
ur þjóðarinnar
sem er yngri en
fertugt lesi Fók-
us.
Samkvæmt
könnuninni dreg-
ur nokkuð á milli
Stöðvar 2 og Ríkissjónvarpsins en
áhorf á Sýn minnkar á sama tíma og
Skjár einn bætir sig. Að meðaltali
stilltu um 67 prósent einhvem tima
dagsins á Ríkissjónvarpið, 58 prósent
á Stöð 2, um 18 prósent á Skjá einn
og um 9 prósent á Sýn. Þegar aðal-
fréttatimar stöðvanna eru bomir
saman kemur í ljós að að meðaltali
horfa 40,4 prósent á Ríkissjónvarpið,
30,4 prósent á fréttir Stöðvar 2 en að-
eins rúm 4 prósent á fréttir Skjás
eins. Það eru því ekki fréttirnar sem
standa að baki ágætri útkomu Skjás
eins. Þeir þættir stöðvarinnar sem
ná meira áhorfi en 10 prósent vom
Worlds Most Amazing Videos og eró-
tísk stuttmynd Davíðs Þórs Jónsson-
ar.
Eins og í öðrum könnunum kemur
fram að útvarpshlustun utan frétta-
tima er ekki umtalsverð. Þannig ná
aðeins Rás 1 og 2 og Bylgjan aö lyfta
meðalhlustuninni yfir 2 prósent ein-
hvem tíma dagsins en níu aðrar
stöðvar, sem mældar vora, eru með-
alhlustun frá nánast engu og upp að
þessum 2 prósenta múr.
-rt
Ingibjörg til Seattle
Borgarstjórinn í Reykjavik, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, heimsækir
Seattle í Bandaríkj-
unum dagana 29.
apríl til 3. mai.
Heimsóknin er lið-
ur í dagskrá Landa-
fundanefndar sem
víðs vegar um
Bandaríkin minnist
þess að 1000 ár eru
liðin frá því aö Leifur Eiríksson
nam land í Ameríku. Sérstök kynn-
ing verður í Seattle á Reykjavík sem
einni af niu menningarborgum Evr-
ópu árið 2000. Vísir.is greindi frá.
Vonbrigði
Stjóm Félags hjúkmnarfræðinga
lýsir yfir undrun og vonbrigðum
með þau vinnubrögð sem viðhöfð
vom við fyrirspum Ögmundar Jón-
assonar alþingismanns og formanns
BSRB á Alþingi um launaþróun í
heilbrigðisþjónustu og svör við
henni. Vísir.is greindi frá.
Pínleg villa
Stafsetningarvilla var í fyrirsögn
í samræmdu prófi í íslensku sem
lagt var fyrir grunnskólanemendur
á fimmtudag. Deildarstjóri prófa-
deildar Rannsóknarstofnunar upp-
eldis- og menntamála segir þetta
pínlega villu. Bylgjan greindi frá.
■ miiuvgi ICIVIIIII
Stjóm Samherja hf. hefur sam-
þykkt að ráða Finnboga Jónsson
sem starfandi
stjómarformann fé-
lagsins frá og með
1. júní nk. Auk al-
mennra starfs-
skyldna stjómarfor-
manns mun Finn-
bogi vinna að
stefnumörkun og
framtíðarskipulagi fyrir félagið og
erlend dótturfélög þess og að nýjum
tækifærum á þeirra vegum. Við-
skiptavefurinn á Vísi.is greindi frá.
Mikilvægt skref
Dómsmálaráðherra telur að með
skráningu upplýsinga um erfðagerð
úr lífsýnum sem tekin hafa verið
vegna rannsóknar opinberra mála
verði stigið mjög mikilvægt skref í
að auðvelda uppljóstrun alvarlegra
afbrota hér á landi. Ráðherra segir
að með ýmsum hætti verði leitast
við að tryggja öryggi við meðferð
upplýsinganna og slegnir vamaglar
við hvers kyns misnotkun. Vísir.is
greindi frá.
Samþykktu samninginn
Félagar í Verkalýðsfélaginu
Baldri á Isafirði samþykktu nýjan
kjarasamning sem undirritaður var
13. apríl sl. milli Alþýðusambands
Vestfjarða og Samtaka atvinnulífs-
ins í allsherjaratkvæðagreiðslu sem
stóð yfir frá 26. tfi 28. aprfi. 67,16%
þeirra sem greiddu atkvæði sam-
þykktu samninginn en 32,84% höfn-
uðu honum. Vísir.is greindi frá.
Nýr vararíkisskattstjóri
Fjármálaráðherra hefur ráðið
Ingvar J. Rögnvaldsson i stöðu
vararíkisskattsj óra
frá og með 1. ágúst
nk. Ingvar lauk
lögfræðiprófi frá
Háskóla íslands
árið 1977 og stund-
aði framhaldsnám
við Kaupmanna-
hafnarháskóla á
árunum 1977 til 1979. Hann hefur
verið starfsmaður Skattstofu
Reykjavíkur frá 1979 og gegnt
stöðu skrifstofu- og varaskatt-
stjóra frá árinu 1986. Vísir.is
greindi frá.
-AA