Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2000, Blaðsíða 26
26
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2000
Helgarblað
I>V
Sviðsljós
Hljómsveitin GusGus á lag í myndinni Down to You:
Hvernig er
þetta með
Viö vissum bara
Kevin
Spacey?
Kevin Spacey er leikari sem
nýtur verðskuldaðra vinsælda um
þessar mundir. Hann hefur sópað
til sín fjölda verðlauna fyrir
myndir eins og The Usual
Suspects og nú síðast American
Beauty sem þykir bera af öðrum
kvikmyndum. Hann heitir fuliu
nafni Kevin Spacey Fowler og er
fæddur 1959. Hann hóf snemma að
leika í kvikmyndum og hefur alls
leikið í 40 myndum en sú fyrsta
var Heartbum sem var gerð árið
1986 en þar lék Spacey þjóf í neð-
anjarðarlest.
Spacey hefur ekki verið giftur
né við kvenmann kenndur svo
heitið geti og það hefur kynt und-
ir orðróm um meinta samkyn-
hneigð hans. Ólíkt mörgum stétt-
arbræðrum sínum hefur Spacey
ekki sett á langar ræður um
einkalíf sitt heldur haldið því
fram að i fyrri hluta orösins felist
eðli þess, þ.e. einka-líf og neitar að
ræða málið frekar.
Það vakti athygli að þegar ósk-
arsverðlaunin voru afhent i
Hollywood á dögunum mætti
Spacey með fyrirsætuna Diane
Dryer sem hann kvaðst hafa sótt
stefnumót með í undanfarin fimm
ár. Nú gætu menn haldið að með
þessum snjalla leik hefði Spacey
kveðið niður allan kvitt um kynlíf
sitt en það er öðru nær.
Stutt er síðan amerískt slúður-
blað birti myndir af Kevin í félags-
skap óþekkts ungs karlmódels á
óþekktum stað. Á myndunum
sjást þeir félagar liggja í sólinni í
faðmlögum og telja menn að nú
þurfi vart vitnanna við lengur.
Talsmenn Kevins segja að hann
hafi sagt allt það sem hann ætli að
segja um þetta mál og fólk megi
trúa því sem því sýnist.
ekkert af þessu
- segir Birgir Þórarinsson, einn höfundanna
Um þessar mundir er verið að
sýna kvikmyndina Down to You í
Regnboganum. Hún er dæmigerð
unglingamynd sem hefði nú ekki
vakið sérstaka athygli hérlendis ef
fjöllistasveitin GusGus ætti ekki í
myndinni lagið Ladyshave. Dag-
blaðinu lék nokkur forvitni á að
vita hvemig þetta hefði komið til.
Það er Birgir Þórarinsson sem
verður fyrir svörum: „Við vissum
nú bara hreinlega ekkert af þessu
og höfum reyndar ekkert séð
myndina. Það er þó aldrei að vita
nema við kíkjum á hana.“ Spurður
að því hvernig í ósköpunum
standi á því svarar hann: „Þannig
er mál með vexti að við fáum fyr-
irframgreiðslu fyrir hverja plötu
og það er síðan útgefandinn sem
gerir hvað hann getur til að selja
hana. Við vitum ekki svo mikið
um það ferli og höfum í sjálfu sér
enga peninga upp úr þessu nema
þá að tekjumar fari fram úr fyrir-
framgreiðslunni. Kannski við ætt-
um að fara að hafa samband við
umboðsmanninn okkar.“
Lagið Ladyshave er fyrsta lag
breiðskífunnar This is Normai
sem var gefin út í fyrra. Biggi seg-
ir Sigurð Kjartansson eiga textann
og segir hann saminn af miklum
kynferðislegum galsa. Þessu til
staðfestingar fylgja hér nokkrar
línur úr laginu: „I guess I must
have messed it up when I gave you
the ladyshave lay ladyshave I can
see now that to do the ladyshave
needs a know-how. „ Biggi lýsir
þvi svo af nokkurri bersögli
hvernig hann reyndi að viðhalda
kynlegum undirtónum textans í
tónum lagsins. Hann lætur þess
einnig getið að Daníel Ágúst Har-
aldsson og Maggi Legó hafi tekið
þátt í gerð lagsins.
Hljómsveitin GusGus hefur brugöiö sér í mörg gervi í gegnum tíöina og má hér sjá hana í einu þeirra. Hún hefur þó ekki
algjöra yfirsýn yfir ímyndasköpun sína því í myndinni Down to You birtist lag hennar, Ladyshave, henni aö óvörum.
Platan GusGus vs T-WORLD
kom út í Englandi þann 11. apríl
og er að sögn Birgis þegar farin að
vekja nokkra athygli. Uppistaðan
á plötunni er gamalt efni frá hon-
um og Magga Legó frá dögum T-
WORLD. Meðlimir GusGus eru
svo að vinna að þriðju breiðskíf-
unni þessa dagana og því nóg að
gera hjá piltunum. -BÆN
Heygaröshornið
Klósettskattur á heiðna menri
Guðmundur Andri Thorsson
skrifar í Helgarblað DV.
Jón Ormur Halldórsson stjórn-
málafræðingur hefur manna mest
og best reynt að útskýra fyrir Is-
lendingum þann hugsunarhátt í
samskiptum manna sem kenndur er
við frjálslyndi. í sínum framúrskar-
andi pistlum um stjómmál á rás eitt
Ríkisútvarpsins hefur hann rakið
ýmis sláandi dæmi um það hversu
erfitt frálslyndi virðist eiga upp-
dráttar hér á landi þegar kemur að
stjómvaldsákvörðunum, enda svo
sem ekki að undra í landi þar sem
kosningaréttur er minni en í
nokkru öðru vestrænu lýðræðisríki.
Eitt dæmi um undarlegan þver-
girðingshátt í Stjórnarráöinu bætt-
ist við í vikunni. Ásatrúarmönnum
er af ríkisvaldinu gert að greiða
eina og hálfa milljón fyrir tjaldað-
stöðu og afnot af salemum þegar
þeir ætla með sínum hætti aö miim-
ast þeirra tímamóta sem urðu hér á
landi árið 1000 þegar sáttargjörð var
gerö milli kristinna manna og heið-
inna - á Þingvöllum. Einhver spek-
ingur í einhverju ráðuneyti er sem
sagt að koma því til leiðar að efna
til ófriðar milli kristinna manna og
heiðinna, nú þegar minnast á þús-
und ára sáttargjörðar - út af salem-
isaðstöðu.
Aðeins ein skýring getur verið á
svo fráleitri gjaldtöku: verið er að
reyna að leggja stein í götu Ásatrú-
armanna. Verið er að reyna að
flæma þá frá Þingvöllum. Verið er
að reyna að draga fjöður yfir það að
til sé enn í landinu heiðinn siður.
Sá kristilegi kontóristi sem for-
göngu hefur haft um þessar
óskammfeilnu rukkanir hlýtur að
hafa hugsað með sér að heiðnir
menn mættu ekki vanhelga Kristni-
tökuhátíðina með því að nota sömu
salemi og hinir kristnu þegar þeir
koma átta dögum síðar. Hér eru
menn vissulega ekki ofsóttir fyrir
aðrar trúarskoðanir en fjöldinn tel-
ur sig aðhyllast - heldur bara skatt-
lagðir. Og útkoman á þessari rauna-
legu skattheimtu á því hvemig
menn ganga öma sinna er slík að
manni verður hugsað til þess hvem-
ig hindúar á Indlandi neita að deila
salernum með óæðra fólki.
Eitthvað dálítið íslenskt við þetta
samt: Hátíöin nálgast og menn að
þjarka um einhver klósett.
Heiðni hefur lifað með þjóðinni
allar götur frá því að einn siður var
lögfestur í landinu, enda var þannig
staðið að trúskiptunum að naumast
er hægt að kenna við annaö en
frjálslyndi. Heiðnum mönnum
leyfðist sem sé að blóta á laun sem
kallað var, og úrskurður Þorgeirs
þegar hann kom undan feldinum
einkennist af nokkurs konar trúar-
legum pragmatisma fremur en trú-
arhita eða löngun til sálnaveiða - en
Hér eru menn vissulega
ekki ofsóttir fyrir aðrar
trúarskoðanir en fjöldinn
telur sig aðhyllast - held-
ur bara skattlagðir.
Og útkoman á þessari
raunalegu skattheimtu
á því hvemig menn
ganga öma sinna er
slík að manni verður
hugsað til þess hvemig
hindúar á Indlandi
neita að deila salemum
með óœðra fólki.
umfram allt umburðarlyndi í garð
annarra og virðingu fyrir fjöl-
breytni í hugmyndalegum efnum.
Heiðni rann síðan saman við
kristni í alþýðutrúnni á áreynslu-
lausan hátt og birtist í margs konar
vættatrú en einnig í þeirri örlaga-
hyggju sem löngum hefur legið
djúpt í lífsviðhorfi margra íslend-
inga. Ævisaga séra Áma Þórarins-
sonar eftir Þórberg er sennilega
magnaðasti vitnisburðurinn um ís-
lenska alþýðutrú: þennan einkenni-
lega graut af bjargfastri Guðstrú og
óhlýðni við kennivald og fádæma
trúgimi þegar svokallaðar bábiljur
og hindurvitni eru annars vegar.
Hér á landi hefur þannig löngum
ríkt það viðhorf að maður sjálfur
hafi eitthvað um það að segja á hvað
maður trúi, ólíkt því sem er í mörg-
um öðrum löndum. Trúarlega henti-
stefnu mætti kalla þetta, að fólk
velji það úr sem því henti hverju
sinni að trúa - eða að minnsta kosti:
að fólk umgangist trúarkerfin af
vissu virðingarleysi og taki hlutina
ekki alltof bókstaflega.
Allt er þetta arfur frá þvi hvemig
staðið var að kristnitökunni í land-
inu. Þá sýndu heiðnir menn með
Þorgeir ljósvetningagoða fremstan í
flokki þann þroska að leggja niður
sið sinn - sem virðist þannig ekki
hafa verið sérlega niðumjörvað kerf
- til þess að geta átt í eðlilegum sam-
skiptum við útlönd. Það má nánast
segja að þeir hafi verið að fóma ein-
hverju í stefnu sinni til að geta geng-
ið í Evrópusambandið síns tíma, sem
var auðvitað katólska kirkjan.
Heiðna menn á því sérstaklega að
hylla á Alþingi á hátíðinni í sumar
fremur en að leggja á þá sérstakar
klósettálögur.