Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2000, Side 50
58
Tilvera
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2000
JOV
Myndbandagagnrýni
Robert Altman:
*>
I
X
Blue Streak
★
Þjófur
verÖur
lögga
IBLUE' strerk
1 U
Martin Lawrence getur verið ansi
skemmtilegur grínleikari og var
bara fjandi góður síðast þegar ég sá
hann með Tim Robbins í Nothing to
Lose. Hversu góður sem grínistinn
er þarf hann þó á fyndnu handriti
að halda, og það klikkar í Blue Str-
eak.
Hugmyndin er ekkert 'verri en
hver önnur. Þjófur stelur risastór-
um demanti en lendir í klónum á
löggunni. Fyrst tekst honum þó að
fela demantinn í loftræstikerfi hálf-
kláraðrar byggingar. Þegar hann
sleppur úr fangelsinu kemur í ljós
að byggingin hýsir lögreglustöð. Þá
er ekki um annað að ræða en út-
vega sér fólsuð skilríki og þykjast
vera lögga til að komast inn. Gall-
inn er að hann slær strax í gegn og
nýja hetjulöggan verður allt of upp-
tekin við að slást við dópsmyglara
til að fá almennilegan tíma til að
leita að demantinum.
Martin Lawrence geiflar sig og
grettir af öllum lífs og sálar kröft-
um, en trúðslætin í honum fram-
kalla lítið meira en brosviprur á
stangli. Að einhverju leyti á þetta
einnig að vera hasarmynd, en hún
nær ekkert meiri árangri á því sviði
en í gríninu. Myndin rétt nær að
virka sem heilalaus afþreying, en
það eru bara miklu betri kostir í
boði fyrir þá sem vilja heilalausa af-
þreyingu. -PJ
Útgefandi: Skifan. Leikstjóri: Les Mayfi-
eld. Aöalhlutverk: Martin Lawrence.
Bandarísk, 1999. Lengd: 94 mín. Bönn-
uð innan 12 ára.
Convergence
★★
Yfir-
náttúr-
legur
tryllir
Morley og Ali eru blaðasnápar
sem vinna á sorpriti þar sem frétt-
irnar samanstanda af fljúgandi
diskum, andsetningum og fleira
slíku. í fréttaleit flnna þau geðsjúk-
ling á sjúkrahúsi sem spáir Ali
dauða næsta dag. í kjölfarið fara
ýmsir undarlegir atburðir að gerast
sem virðast tengjast dularfullri for-
tíð Ali á einhvem hátt. Mörk veru-
leikans og einhverra ytri heima
virðast hafa raskast og hún er lyk-
Ulinn að öllu saman.
Mér hefur alltaf fundist
Christopher Lloyd skemmtilegur
leikari. Hann leikur hér Morley,
gamlan og lífsþreyttan fréttahauk
sem lifnar aðeins við þegar hlutir
fara að gerast sem hann kann enga
skýringu á. Aðrir leikarar eru
óþekkt nöfn og leika flestir sæmi-
lega án þess að gera neinar rósir, en
Christopher Lloyd er flottur. Mynd-
in fetar svipaðar slóðir og X-Files
með heimspekilegum pælingum um
dularfull efni án þess að komast að
neinni niðurstöðu. Þetta er nokkuð
metnaðarfull tilraun til að skapa
dularfullan og taugatrekkjandi
trylli, en myndin nær sér þó aldrei
almennilega upp úr meðatmennsk-
asini og þegar henni lýkur kemur i
ljós að eftir allt erfiðið hefur hún í
raun lítið fram að færa. Hún fær þó
prik fyrir að reyna. -PJ
Útgefandl: Bergvík. Lelkstjóri: Gavin
Wilding. Aóalhlutverk: Cynthia Preston,
Adrian Paul og Christopher Lloyd. Banda-
rísk, 1999. Lengd: 94 mín. Bönnuö inn-
an 16 ára.
Enn að eftir 53
ár í bransanum
Það vantar svo sannarlega ekki
kraftinn og sköpunarþörfina i
suma. Einn af þessum athafna-
sömu aðilum í kvikmyndasögunni
er leikarinn og leikstjórinn Robert
Altman. Reyndar verður að segjast
að hann er þekktari fyrir leik-
stjórn heldur en kvikmyndaleik.
Leikstjórinn
Hann hefur leikstýrt slíku
ógrynni mynda að ómögulegt er að
nefna þær allar hér. Þekktastir
þáttanna sem hann hefur leikstýrt
eru Bonanza. Meðal nýlegra kvik-
mynda sem hann hefur leikstýrt
má nefna: Cookieís Fortune, Gin-
gerbread Man, Kansas City, Prét-á-
Porter, The Player og Short Cuts.
Langt er frá að Robert Altman
telji það vera fyrir neðan viröingu
sína að leikstýra þáttum í sjón-
varpi þó hann sé mun kunnari
kvikmyndaleikstjóri nú til dags.
Nokkur grunnatriöi um
Robert Altman
Hann fæddist 20. febrúar 1925 í
Kansas City í Bandaríkjunum. í
Rockhurst gagnfræðaskólan-
um byrjaði hann að
kynna sér þá list
að rannsaka
hljóð sem tek-
in voru upp á
kassettu-
tæki.
Robert vann hjá Calvin Co. eftir
herskylduna og lærði þar loks um
kvikmyndagerð, gerð heimilda-
mynda, auglýsinga og þjálfunar-
mynda fyrir starfsmenn. Hann
hætti hjá Calvin Co. 1955 og gerði
nokkrar sjálfstæðar myndir sem
enginn tók eftir á þeim tima.
Ekki minni maður en Alfred
Hitchcock gaf honum tækifæri til
leikstjómar. Þaðan lá leiðin til að
leikstýra fjölmörgum sjónvarps-
þáttum og loks fékk hann að leik-
stýra mjmd sem bar nafnið
M*A*S*H. Myndin varð geipilega
vinsæl. Þetta var fyrsta kvikmynd-
in sem Ro-
bert
Tim Robins í The Player.
varð
ÍP
mennilega þekktur fyrir. Reyndar,
þegar honum var sýnt handritið að
M*A*S*H, var hann 16. leikstjór-
inn sem framleiðendurnir leituðu
til því enginn sýndi handritinu
neinn áhuga.
Eldri borgarinn
Ekkert lát virðist vera á athafna-
semi þessa manns. Þrátt fyrir að
margir væru sestir í helgan stein
75 ára heldur Robert Altman áfram
að leikstýra myndum. Augljóst er
að leikarar henda ekki frá
sér boði um að leika í
kvikmyndum hans
enda eru nýrri
myndir hans
ávallt stjörnum
prýddar.
Stíll hans,
eins og
kemur
fram í
Cooki-
eís
Mennta-
skólaárin var hann
í Wentworth herskól-
anum í Lexington. 1945
skráði hann sig í flug-
herinn og varð aðstoðar-
flugmaður á B-24.
Robert Altman
Þrátt fyrir aö margir væru sestir í helgan stein 75 ára heldur Robert Altman áfram aö ieikstýra myndum.
Myndbandagagnryni
Hér gerðist
ekkert, hefur
aldrei neitt gerst
né mun gerast!
Bandarískir smábæir, og þá sérstak-
lega í suðurríkjunum, eru einhvem
veginn þannig að maður kannast
ósjálfrátt við einkennin - væntanlega
frá öðrum myndum. Fátt er í gangi og
stærsti glæpurinn er að borga ekki
stöðumælasektimar. Á þeim rólega-
heitanótum byijar enn ein mynd Ro-
berts Altmans.
Fjölmargar persónur koma við sögu
en náungi að nafhi Willis þræðir í
gegnum flest sögusvið myndarinnar.
Hann býr hjá Cookie og gerir ýmis við-
vik fyrir hana. Jafnframt fáum við að
kynnast systrunum Camille og Com,
dóttir Coru: Emmu. Ixigreglufúlltrúan-
um Jason ásamt fleiri af hans starfs-
stétt. Emma og Cora talast ekki við og
frænkan Cookie er í litlu uppáhaldi
hjá Camille og Cora. Dag nokkum ger-
ist eitthvað í tilbreytingarsnauðu smá-
bæjarsamfélaginu - Cookie flnnst lát-
in. Þá þarf náttúrlega að kanna það
mál til hlítar. Hvað gerðist?
Robert Altman leikur sér, að venju,
að fábrotnum persónuleikum og bygg-
ir upp heillandi mynd. Hann nýtir sér
hæflleika þekktra stjama, s.s. Glenn
Close og Julianne Moore, og skapar
sérstakt andrúmsloft með fremur
prýðilegum leik þeirra. Patricia Neal
er stórskemmtilegt gamalmenni í hlut-
verki Cookies og Glenn Close hefúr
þetta akkúrat útlit fyrir gribbuna.
Stíllinn er þessi sérkennilegi hæga-
gangur hverrar senu þar sem margar
imm
Cookie’s
Fortune
senur era í
gangi í upphafi.
Engin persóna
er kynnt fyrir
áhorfandanum
sérstaklega né út-
skýrð. Þurfi maður ekki yfirhlaðna
spennumynd þá er fyllilega óhætt að
mæla með þessari. -GG
Útgefandi Skífan. Leikstjóri Robert Altman.
Aðalhlutverk: Glenn Close, Julianne Moore,
Chartes S. Dutton, Chris OÍDonnell, Liv Tyler
og Patricia Neal. Bandarísk, 1998. Lengd 115
mín. Leyfð öllum aldurshópum.
Fortune,
er sérlega
ánægju-
legur.
Hann
hendir
inn fullt
af ólíkum
aðstæð-
um og
fólki í
byrjun
myndar
þannig að
áhorfand-
inn þarf
að flokka
og muna
hvað er í
gangi
hvar. Þó er aldrei of langt bil milli
hinna mismunandi atburðarása.
Þessi aðferð var sérlega áberandi
og skemmtileg í mynd hans Short
Cuts og í raun gefur titillinn til
kynna aðferðina.
Guðrún Guðmundsdóttir
Myndband
Drop Dead
Gorgeous
★★
Aud-
vitad
tekur
maður þátt í
fegurðarsam-
keppni
Sóst er eftir sumum stúlkum í
fegurðarsamkeppni en aðrar virðast
komast að til að fylla upp í fjöldann.
Draumur margra ungra stúlkna er
að fá viðurkenningu fyrir fegurð og
glæsileika og rétti vettvangurinn til
slíks er fegurðarsamkeppni. Vin-
sælt efni í heimildarmyndum
og/eða fréttaþáttum er að fjalla um
fegurðarsamkeppni því hún er tvi-
mælalaust afar umdeild og margt
gerist bak við tjöldin sem ófagurt
er.
í rúmlega 5000 manna bænum
Mount Rose er tækifærið til að kom-
ast eitthvað og verða eitthvað, sé
maður ekki strákur, það að vinna í
fegurðarsamkeppninni Ungfrú tán-
ingaprinsessa. Allir skrá sig sem
vilja. Fylgst er með keppendunum,
aðstandendum, dómurum og öllum
undirbúningi keppninnar. Amber
og Becky fá mesta athygli heimild-
armyndargerðarmanna þar sem
þær eru sigurstranglegastar. Becky
er komin af efnaðasta fólki bæjarins
og Amber býr ásamt móður sinni í
hjólhýsi.
Heimildarstíll bíómyndarinnar er
hálfmisheppnaður. Ekki er laust við
að manni finnist þetta eins og illa
gerð heimildarmynd á köflum og ef
ekki væri fyrir þekktar leikkonur
þá gæti maður fest sig í þeirri hugs-
un. Myndin nær ekki því gríni sem
hún þarf en aftur á móti er ádeilan
mun meiri. Ellen Barken fer þó á
kostum sem móðir Amber. Einhver
veginn virðist sem frábæru efni hafi
verið sóað í myndinni. -GG
Útgefandi: Háskólabtó. Leikstjórl: Mich-
ael Patrick Jann. Aöalhlutverk: Kristie
Alley, Ellen Barkin, Kristen Dunst og Den-
ise Richards. Bandarísk, 1999. Lengd:
97 mín. Leyfö öllum aldurshópum.